Morgunblaðið - 17.01.2012, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 17. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Keypti íbúð í Ósló á krónu
2. Borðaði sig út úr starfinu
3. Þurfti að sleppa hátíðarkvöldverði
4. Henry reiður út í stuðningsmenn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Don McLean, höfundur American
Pie, einnar mest seldu plötu áttunda
áratugarins, er væntanlegur til lands-
ins í október. Mun hann halda stór-
tónleika í Háskólabíói þar sem 40 ára
afmæli gripsins verður fagnað.
Don McLean leikur
á Íslandi í október
Söngtríóið Char-
lies er komið aftur
til Los Angeles.
Þetta kemur fram
á opinberu fésbók-
arsetri sveitar-
innar. Þar segir að
margt sé í deigl-
unni þetta árið en
megnið af færsl-
unni fer í að fagna því að ekki þurfi
lengur tuttugu mínútur til að klæða
sig, ætli maður að lifa útiveru af.
Charlies aftur til
Englaborgarinnar
Fyrstu tónleikarnir á vorönn tón-
leikaraðarinnar Kaffi, kökur & rokk &
ról fara fram í Edrúhöllinni, Efstaleiti
7, í kvöld. Í þetta skiptið koma John
Grant og Myrra Rós
fram. Húsið verð-
ur opnað kl. 20,
það er talið í á
slaginu kl.
20.30 og tón-
leikum lýkur
fyrir kl. 22. Að-
gangseyrir er
500 kr. »31
John Grant leikur
í Edrúhöllinni
Á miðvikudag Hvöss vestanátt og snjókoma í fyrstu, síðan él.
Lægir heldur síðdegis. Vægt frost.
Á fimmtudag Ákveðin norðvestanátt, víða snjókoma á norðan-
verðu landinu og él vestanlands. Frost 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari og úrkomuminna. Gengur í austan-
og suðaustan 10-15 með slyddu eða rigningu síðdegis og í kvöld.
VEÐUR
„Lærdómur þessa leiks er
kannski sá að enginn er
ómissandi, sama hvað hann
er stór eða sterkur. Það er
enginn ómissandi en það
var svo sannarlega áskorun
fyrir liðið að það gæti leikið
vel og fyllt í skörð reynslu-
mikilla manna, á því leikur
enginn vafi,“ sagði Guðjón
Valur Sigurðsson fyrirliði
eftir tapið gegn Króötum á
EM í Serbíu í gær-
kvöldi. »1
Mikil áskorun
að fylla í skörðin
Ólafur Bjarki Ragnarsson er mikill
markaskorari og skapandi leikmaður
en ekki nógu sterkur varnarmaður.
Aron Rafn Eðvarðsson er framtíð-
arlandsliðsmarkvörður en vantar
ennþá reynslu. Einar Andri Einarsson,
þjálfari FH, metur kosti og galla
landsliðsmannanna í
handbolta. »4
Skapandi leikmaður og
framtíðarmarkvörður
Heimsmeistaramótið í handbolta fer
fram í Katar við Persaflóa árið 2015
og Katarar hafa í hyggju að krækja í
þekkta leikmenn til að styrkja sitt
landslið. Þeir sem ekki spila á EM í
Serbíu yrðu gjaldgengir með landsliði
Katar eftir þrjú ár og nokkrir sterkir
leikmenn eru orðaðir við það. Nokkur
forföll á EM þykja grunsamleg af
þessum sökum. »4
Reynir Katar að kaupa
sér landslið fyrir HM?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Upplifun kúnnans og allra þeirra
sem heimsækja Aurum skiptir okk-
ur miklu og við leggjum áherslu á að
fólk njóti þess að koma til okkar,“
segir Guðbjörg Ingvarsdóttir, eig-
andi verslunarinnar Aurum, sem
hlaut Njarðarskjöldinn í liðinni viku.
Markmið verðlaunanna, sem
Reykjavíkurborg veitir ásamt sam-
starfsaðilum, er að hvetja til bættrar
og aukinnar verslunarþjónustu við
ferðamenn í höfuðborginni. Það hef-
ur Aurum sannarlega tekist, því
verslunin hefur frá upphafi vakið at-
hygli hjá ferðamönnum. Guðbjörg
segir þó að það hafi aldrei verið sér-
stakt metnaðarmál í sjálfu sér að
höfða til erlendra ferðamanna.
„Markmiðið var frekar að gera
Aurum að spennandi verslun og með
það fjölbreytt vöruúrval að hún
myndi höfða til allra.“ Aðspurð segir
hún heimamenn og ferðamenn al-
mennt kaupa það sama í Aurum og
báðir hópar séu jafn hrifnir af ís-
lenskri hönnun. „Erlendir ferða-
menn eru auðvitað alltaf spenntir
fyrir íslenskri vöru en þeir eru ekki
endilega gagngert að leita að henni.“
Leita að hönnun um allan heim
Guðbjörg opnaði Aurum árið 1999
þegar hún hafði nýlokið gullsmíða-
og hönnunarnámi. Framan af voru
þar fyrst og fremst seldir skart-
gripir, hannaðir og smíðaðir af henni
sjálfri, en verslunin hefur vaxið og
2009 var hún stækkuð um helming.
Í dag er þar að finna, auk skart-
gripanna, fjölbreyttar hönnunar- og
gjafavörur frá öllum heimshornum.
„Við förum sjálf út og leitum uppi
spennandi og áhugaverð vörumerki
og helst þau sem ekki hafa verið til á
íslenskum markaði áður. Okkur
finnst líka spennandi að vera með
vöru frá öllum heimshornum, ekki
bara Evrópu og Bandaríkjunum.“
Útkoman er sú að heimsókn í Aurum
er veisla fyrir augað, enda er algeng
sjón að sjá vegfarendur staldra við
til að skoða gluggaútstillingarnar,
sem mikill metnaður er lagður í til
að skapa stemningu. „Það hefur bor-
ið á því að fólk komi bara til að upp-
lifa og skoða úrvalið. Við leggjum
líka mikið upp úr því að endurnýja
það reglulega svo alltaf sé eitthvað
nýtt að skoða,“ segir Guðbjörg.
Hún hefur verið að þróa sig áfram
í hönnuninni, fyrir stuttu kom á
markað borðbúnaður sem hún hann-
aði undir merkjum Aurum og meira
er í vændum enda framtíðarsýnin
skýr: „Að það muni bætast í vöruúr-
valið sem verður hannað undir
merkjum Aurum og Aurum verði
meira en skartgripir.“
Upplifun ekki síður en verslun
Aurum fær
viðurkenninguna
Njarðarskjöldinn
Morgunblaðið/Kristinn
Aurum Samkvæmt dómnefnd Njarðarskjaldarins hafa ferðamenn oft orð á því að í Aurum hafi þeir fundið betra úrval
hönnunar- og gjafavöru en þeir hafi áður séð á ferðum sínum. Guðbjörg Ingvarsdóttir hönnuður er eigandi Aurum.
Samhliða Njarðarskildinum var í ár
í fyrsta sinn veitt viðurkenningin
Freyjusómi, til þeirrar verslunar
sem þykir koma með ferskan
andblæ í verslunarrekstur á ferða-
mannamarkaði í borginni.
Nafn viðurkenningarinnar er
sótt í norræna goðafræði, en
Freyja var gyðja frjósemi og þykir
því við hæfi að tengja nafn hennar
frjórri hugsun og ferskri nálgun í
verslunarþjónustu. Það var versl-
unin Nostalgía við Laugaveg 32
sem hlaut fyrsta Freyjusómann en
þar er seldur notaður fatnaður og
mikill metnaður lagður í úrvalið.
Að sögn eiganda verslunarinnar,
Þuríðar Hauksdóttur, er það helst
ungt fólk á aldrinum 18-35 ára sem
verslar í Nostalgíu og eru þar Svíar
og Færeyingar áberandi en einnig
Bretar og Bandaríkjamenn sem
segjast margir hvergi hafa séð jafn
flott úrval af vintage-fötum.
Freyjusómi að Nostalgíu
NÝ VIÐURKENNING FYRIR FERSKAN ANDBLÆ