Morgunblaðið - 17.01.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.01.2012, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012 og varst svo hreinskilin, orð- heppin og mikill húmoristi. Vin- konur mínar elskuðu að koma í kaffi og kósý á Sogaveginn og ég er svo þakklát því að allir í kring- um mig fengu að kynnast þeim gullmola sem þú geymdir. Þú bjóst líka yfir þeim kosti að það var hægt að leita til þín með allt. Ef erfiðleikar komu upp gastu ráðlagt mér og hvatt mig til dáða en á sama tíma sam- gladdist þú innilega ef vel gekk og hafðir alltaf óbilandi trú á mér. Þegar við Elmar vorum að byrja að hittast þá sátum við að spjalla saman og þú spurðir mig hvort hann gæti dansað og væri duglegur að vinna. Ekki varstu nú glöð yfir því að hann kynni ekki að dansa en það gladdi þig mikið að hann væri duglegur í vinnu. Með tímanum urðuð þið Elmar svo bestu vinir svo ekki sé nú talað um harðfiskstundirnar ykkar. Þú barst hag minn alltaf í brjósti þínu og þegar við keypt- um okkar fyrstu íbúð þá hafðir þú miklar áhyggjur af því að ekki væri gluggi á baðinu. Þér fannst það alveg fráleitt að flytja inn í íbúð án glugga á baðinu og þú gast lýst áhyggjum þínum af þessu tímunum saman. Ég man þegar elsta lang- ömmubarnið þitt fæddist, þá von- aðist þú til þess að börnin yrðu enn fleiri þegar þú myndir falla frá því þig langaði til að lang- ömmubörnin yrðu í fleirtölu á þeim tíma. Við hlógum oft að því að þú skyldir virkilega hafa haft áhyggjur af því að eignast ekki fleiri en eitt langömmubarn því hópurinn stækkaði svo ört og tel- ur nú 55. Þú varst hin fullkomna amma og hafðir alla þá þætti sem prýða góða ömmu. Börn vinkvenna minna kölluðu þig líka ömmu Stínu, því þú varst amma í húð og hár og allir vildu eiga hlut í þér. Elsku amma, það er sárt að horfa á eftir þér því þú varst svo stór hluti af lífi mínu. Við bjugg- um saman í 24 ár og höfum haldið öll mín jól saman fyrir utan ein. Ég er svo þakklát fyrir það að hafa alist upp í sama húsi og þú þar sem öll fjölskyldan hittist alla sunnudaga og borðaði saman okkar fræga muskukjöt. Alltaf var fullt hús af fólki og Sogaveg- urinn var gjarnan nefndur BSÍ. Við töluðum um að mitt heimili myndi taka við sem BSÍ og Selju- gerði hefur svo sannarlega stað- ist þær væntingar. Elsku yndislega og fallega amma mín. Takk fyrir öll 32 árin sem ég átti með þér. Ég á aldrei eftir að gleyma öllum yndislegu stundunum og öllu því sem þú hefur kennt mér. Ég mun geyma minninguna um þig á vísum stað í hjarta mér og miðla áfram til strákanna minna. Það yljar mér að vita að nú séuð þið pabbi sam- einuð á ný, hann gefur þér morg- ungrautinn þinn með miða í skál- inni og ég veit að þið munuð hlúa hvort að öðru, hlæja saman og vaka yfir okkur. Elska þig meira en allt, elsku amma. Þín Rakel. Elsku besta amma mín og nafna, mér finnst svo erfitt að vita til þess að geta ekki lengur spjallað við þig, kysst þig og knúsað. Núna ertu komin til fal- legu englanna þinna, afa, elsku besta pabba míns, Bjarna, Hödda, Lindu og Terry. Veit ég að þau taka vel á móti þér á nýj- um stað. Við erum svo rík að hafa átt þig sem ömmu og þú varst ein ríkasta amma landsins, áttir 12 börn, 31 barnabarn, 60 barna- barnabörn, 2 barnabarnabarna- börn og 19 stjúpbarna- og barna- barnabörn og þú lifðir fyrir okkur öll. Það eru forréttindi að hafa búið og alist upp undir sama þaki og þú. Þú varst eins og mamma nr. 2 fyrir okkur systr- unum. Ég á svo óteljandi margar góðar minningar um þig, elsku amma mín. Elskaði þegar amma Stína var að passa okkur systur ef mamma og pabbi skruppu út, þá fengum við alltaf gott að borða áður en við fórum að sofa, því þú sagðir alltaf að maður ætti ekki að fara svangur í rúmið. Ég elskaði líka að koma heim úr skólanum á köldum degi, þá vissi ég að amma Stína væri tilbúin með heitt kakó og ristað brauð. Svo var eitt sem við barnabörnin fengum bara hjá ömmu Stínu, það var rúgbrauð með smjöri og sykri. Þú bjóst til heimsins besta grjónagraut og heimsins bestu pönnsur. Þegar ég var 1 árs fórst þú í frí til Benidorm og komst heim með svarta dúkku fyrir mig sem heitir Stína dúkka sem var og verður alltaf uppáhalds dúkk- an mín, ég á hana ennþá hér hjá mér 32 árum seinna. Strákunum mínum fannst allt- af svo gott að koma til ömmu Stínu sinnar og þér fannst svo gaman að fá þá til þín. Alltaf varstu líka að spyrja mig „hvern- ig hefur hann Addi minn það, er hann ekki duglegur að borða og hvíla sig vel?“ Þú hugsaðir til allra. Við fjölskyldan fluttum til Noregs fyrir einu og hálfu ári síðan og þér fannst það hræðilegt alveg, vildir bara hafa okkur hjá þér. Áður en við fórum sagðir þú við Jóel að hann yrði að passa það að gleyma ekki íslenskunni og hann talar ennþá um það hvað amma Stína hafi sagt við sig. Um jólin í fyrra varst þú með svo miklar áhyggjur af mér því það var svo kalt hér í Noregi að þú hringdir í mig til að segja mér að þú vildir kaupa fyrir mig hlýjar buxur úr 66° norður því ég yrði að passa það að fá ekki blöðru- bólgu. Elska ég þessar buxur svo mikið, elsku amma mín. Þú hefur alltaf verið svo skemmtileg og með góðan húm- or, varst yndisleg í alla staði og alltaf hægt að hlæja að þér og með þér, t.d. þegar ég var búin að vera lengi að leita að ferming- arskyrtunni minni kom ég til þín og spurði „Amma, veist þú um fermingarskyrtuna mína?“ „Já,“ svaraðir þú „ég henti henni, hún var svo hryllilega ljót“ sagðir þú, he,he. Þú varst með alveg sama húmor og ég. Fyrir 25 árum varst þú 65 ára og man ég eftir afmælinu eins og það hefði gerst gær, þar sem lag- ið „Amma Stína, Amma Stína 65 ára í dag“ var tekið og það hljóm- ar enn í hausnum á mér eins og brosið og hlýjan sem þú veittir mér alla tíð, elsku amma mín. Ég sakna þín svo mikið og bið ég þig um að passa vel upp á elsku pabba. Elska þig endalaust. Þín nafna, Þóra Kristín Þórhallsdóttir og fjölskylda. Elsku amma mín. Nú þegar þú hefur kvatt þenn- an heim hefur myndast stórt skarð sem verður rosalega erfitt að fylla upp í. Ef það væru til of- urhetjur í raunveruleikanum, þá varst þú svo sannarlega mín of- urhetja, „súperamma“. Þú gafst svo mikið af þér og tókst alltaf á móti manni með þínu góða skapi og skemmtilegu sögum. Það kom sjaldan fyrir að maður færi tóm- hentur heim eftir heimsókn á Sogaveginn. Góðu minningarnar um þig eru óteljandi og ef ég ætti að rifja þær allar upp núna, þá þyrfti að gefa út sérblað, bara um þig. Elsku amma mín, ég á eftir að sakna þín mikið, hvíl í friði. Þóra Kristín Kristjánsdóttir. Elsku amma mín, lífið er ald- eilis að breytast. Þú varst svo stór og mikill partur af okkar lífi og fyllist ég af hamingju þegar ég hugsa til baka, hversu heppin ég var að fá að kynnast þér svona vel. Þú varst stórmerkileg og góðhjörtuð kona með frábæran húmor og vildir að öllum liði vel. Oftar en ekki eftir að mamma og pabbi voru búin að setja okkur í rúmið þegar við vorum litlar og við ekkert á því að fara að sofa, þá læddumst við oft fram hjá mömmu og pabba og tókum til- hlaup niður stigann til þín því þegar við vorum komnar niður og sögðumst vera svangar varð ekki aftur snúið, mamma kom þá kannski nokkrum sekúndum á eftir okkur en þá sagðir þú: „Maður á aldrei að fara svangur í rúmið“ og gafst okkur í ófá skipt- in rúgbrauð með smjöri og sykri (sem við þurftum nú stundum að fela). Ég þakka svo mikið fyrir allar þær innilegu samræður sem við áttum saman og alltaf gastu gefið þér tíma til að spjalla um lífið og tilveruna eins og í gamla daga, þér þótti gaman að tala um þá tíma þegar þú varst yngri fyrir vestan og sagðir mér margar sögurnar. Eitt áttum við sameig- inlegt og það var að vilja skoða allt í búðunum svo við vorum góðar saman á þeim vettvangi. Ég vona að staðurinn sem þú ert komin á sé stór og fallegur með risastórri sundlaug þar sem þú getur synt fram og tilbaka því þú sást alltaf eftir því að hafa ekki lært að synda, ég veit að þú lærir það núna. Nú ertu komin til strákanna þinna þriggja og afa Steina og veit ég að þeir hafa allir tekið vel á móti þér. Amma, eins og ég sagði alltaf við þig þá elska ég þig alveg svakalega mikið. Takk fyr- ir allt það sem þú hefur gefið mér, Sigga og Viktori. Berglind, Sigurður og Viktor Valur. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við systkinin ömmu, þökkum henni samfylgdina, kær- leikann og innblásturinn sem hún blés okkur í brjóst. Amma Stína, Þóra Kristín Kristjánsdóttir, var kærleiksríkt og leiðbeinandi afl, átti auðvelt með að hlusta og gefa ráð af fag- mennsku, húmor og reynslu. Hún var með sterkan og fal- legan líkama, vestfirska krafta- verkahúð og ól og fæddi tólf börn. Hún lyktaði alltaf vel og bjó til góðan mat. Hún reykti og elskaði sykur og var sátt við breyskleika sína. Hún var dáð og elskuð af fjölda sem eingöngu nokkrir þora að láta sig dreyma um. Var ættmóðir, stór persóna og vinsældir hennar það miklar að hún náði á seinni árum að verða að vörumerkinu Amma Stína líkt og Apple, Google og Björk. Helstu einkenni ömmu voru kærleikur, umburðarlyndi, og víðsýni. Hún var sagnamann- eskja og sagði sögur á skemmti- legan hátt, rifjaði upp sjónrænt atburði frá Ísafirði. Þannig kynntumst við systk- inin lífinu, fólkinu, matnum og heimilishaldinu á uppvaxtarárum hennar á Vestfjörðum. Amma var æði – algjört æði, krúttleg á margan hátt en fyrst og fremst sterk og merkileg kona. Við elskuðum hana öll heitt og söknum útgeislunar og orku, við munum halda anda ömmu í hjört- um okkar og gerum minningu hennar enn goðsagnakenndari en hún er. Systkinin Soffía, Rebekka, Gunnar og Hörður. Langri jarðvist er lokið. Hún amma Stína er látin, 89 ára að aldri. Ég drúpi höfði í þökk fyrir allt sem hún var mér og mínum og hennar maður Steingrímur, en hann lést í október 1994. Öll þeirra umhyggja, ástúð og elska var einstök. Að ógleymdu örlæt- inu, en þau voru höfðingjar heim að sækja. Einnig ber að þakka fyrir öll skemmtilegheitin, en Þóra Kristín var einstaklega skemmtileg og orðheppin kona. Hann hógvær og hljóður, en húmorinn kom berlega í ljós í ótal vísum og ljóðum sem hann orti. Ég kveð þau með þessu ljóði eftir Magnús Markússon: Börn og frændur falla fram í þakkargjörð fyrir ástúð alla árin þín á jörð; fyrir andans auðinn, arf, sem vísar leið, þegar dapur dauðinn dagsins endar skeið. Hvíl, þín braut er búin. Burt með hryggð og tár! Launað traust og trúin, talið sérhvert ár. Fögrum vinarfundi friðarsunna skín; hlý að hinsta blundi helgast minning þín. Blessuð sé minning hjónanna Þóru Kristínar Kristjánsdóttur og Steingríms Bjarnasonar, Sogavegi 158, Reykjavík. Vilborg St. Sigurjónsdóttir, fyrrum tengdadóttir. Sogamýrin var sveit í borg þegar ég var að alast þar upp laust fyrir og eftir miðja síðustu öld. Í Sogamýrinni var unnt að komast yfir ódýrar leigulóðir þótt leigutíminn væri stuttur. Þarna varð til barnmargt hverfi, Smáíbúðahverfið, lengi vel „týnda“ hverfið í skipulagi Reykjavíkur, umvafið óspilltri náttúru. Þar var gott að alast upp. Frumbyggjarnir voru efna- lítið en harðduglegt og heiðarlegt fólk. Inn í þetta samfélag kom einnig fólk sem átti erfitt upp- dráttar af félagslegum og á stundum andlegum ástæðum. Meðal frumbyggjanna voru hún Kristín mín og Steingrímur fisksali Bjarnason, bæði ættuð af Vestfjörðum. Kristín, Steingrím- ur og börn þeirra á Sogavegi 158 voru og eru rótgróin og sæll hluti af lífi okkar systkinanna sem bjuggum á Sogavegi 126. Þær Kristín og mamma Ingibjörg voru sagðar vera í kappi í barn- eignum. Mamma eignaðist sex börn á árunum 1943 til 1954 en Kristín gerði gott betur og þau Steingrímur eignuðust ellefu börn á árunum 1944 til 1960 en áttu bæði eitt barn fyrir. Börnin á Sogavegi 126 og 158 urðu náin. Brandur og Bárður fæddir 1944 og 1945, Guðmundur og Kristján fæddir 1946, ég og Bjarni fæddir 1947, óaðskiljanlegir vinir, Ás- mundur og Steinþór fæddir 1951 og Guðrún og Kristín fæddar 1954. Það var sannarlega líf og fjör á þessum stóru heimilum og gekk á ýmsu. Kristín var akkerið á Sogavegi 158. Hún var falleg í öllum skilningi þess orðs. Sér- staklega lýstu augu hennar af ástúð og umhyggju fyrir okkur öllum. Um leið var hún hrein- skiptin, öguð og ákveðin. Þvílík- ur dugnaðarforkur. Þær voru fleiri sístarfandi heimavinnandi kvenalþýðuhetjur á Sogavegin- um. Mér er í bernskuminni að þær komu nær daglega saman á heimilum sínum, oft tvisvar á dag, fyrst að loknum morgun- verkum um tíuleytið og svo síð- degis fyrir kvöldverkin. Sátu saman, ræddu málin, ráðslöguðu og studdu og styrktu hver aðra í blíðu og stríðu. Kletturinn hún Kristín með sinn umvefjandi faðm hvatning- ar, gæsku, gleði og huggunar verður mér ógleymanleg. Minn- ingin um hana er mér dýrmæt. Ég dáðist og mun ætíð dást að þeim ótrúlega styrk sem hún bjó yfir. Kristín var trúuð kona og trú sína ræktaði hún með breytni sinni gagnvart samferða- mönnum sínum af eðlislægum náungakærleika og umburðar- lyndi. Kristín fór ekki varhluta af mótlæti í lífi sínu sem hún mætti með aðdáunarverðri reisn. Bjarni, æskuvinur minn, dó af slysförum rúmlega tvítugur. Það var erfitt og sorgin nísti. Kristín, sem missti mest, gaf okkur ómælda og ómetanlega huggun og styrk. Einkadóttir Bjarna dó einnig af slysförum rétt tvítug. Hörður og Þórhallur synir Krist- ínar létust báðir fyrir aldur fram. Alltaf var Kristín sami kletturinn, æðrulaus gefandi kona. Ég kveð Kristínu með virð- ingu og af djúpu þakklæti fyrir allt og allt eins og mamma hefði sagt. Við systkinin af Sogavegi 126 sendum börnum hennar, tengdabörnum, barna- og barna- börnum, já allri fjölskyldu henn- ar hjartans samúðar- og þakk- arkveðjur. Blessuð sé björt og falleg minning Kristínar. Atli Gíslason. Meira: mbl.is/minningar Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Ferðalög Spánn Íbúð í Exsample í Barcelona. Vikuleiga í sumar. starplus.is - starplus.info á ensku. Gisting AKUREYRI Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar- húsa við Akureyri og á Akureyri. Upplýsingar á www.orlofshus.is. Leó, sími 897 5300. Tómstundir Fjarstýrðar þyrlur í úrvali Erum með mikið úrval af fjarstýrðum þyrlum. Nýjasta tækni. Tilbúin til flugs beint úr kassanum. Netlagerinn slf / Tactical.is Dugguvogur 17-19 2. hæð. S. 517-8878 Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endurvinnslu. Fannar verðlaunagripir, Smiðju- vegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s. 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald N.P. þjónusta. Annast bókhalds-, eftirlits- og gæslustörf. Hafið samband í síma 861 6164. Þjónusta Er matur og þyngd vandamál? Nýir byrjendahópar að hefjast! „Fráhald í forgang“: Sérstakur stuðningshópur fyrir þá sem eru að hrasa í fráhaldi! Upplýsingar í síma 568-3868, www.matarfikn.is. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílaþjónusta Húsviðhald Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Sími 847 8704, manninn@hotmail.com DC TIG/MMA rafsuðuvélar - 2 í einni Tig/MMA 200 pinna- suðuvélar á lager, barkar fylgja. Af- burðarverð. Eigum MIG vélar og pinnasuður og fl. Auto dark og Shine rafsuðuhjálmar. www.holt1.is S 435 6662 Vélar & tæki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.