Morgunblaðið - 28.02.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Stuttar fréttir ...
● Veltan á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu fyrstu tvo mánuði árs-
ins hefur verið 15,3 milljarðar, en veltan
var 12,1 milljarður á sama tímabili í
fyrra. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var
67. Þar af voru 46 samningar um eignir
í fjölbýli, 17 samningar um sérbýli og 4
samningar um annars konar eignir en
íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var
2.034 milljónir króna.
Veltan hefur aukist
● Japanski
myndavélafram-
leiðandinn Olym-
pus lagði í gær til
skipun nýrrar 11
manna stjórnar
fyrirtækisins. Þetta
er liður í tilraunum
stjórnenda fyr-
irtækisins til að
endurheimta
traust, eftir að
upplýst var um bókhaldssvindl fyr-
irtækisins í haust, upp á tæplega 200
milljarða króna. Lagt er til að Yasuyuki
Kimoto, fyrrverandi forstjóri bankans
Sumitomo Mitsui, aðallánardrottins
Olympus, verði stjórnarformaður og að
boðað verði til aukaaðalfundar, þar sem
stjórnarkjörið verði samþykkt.
Traust endurheimt
með nýrri stjórn?
Blaðamannafundur
Olympus.
● Hagnaður danska skipa- og olíufé-
lagsins A.P. Moeller-Maersk var 46%
minni í fyrra en árið 2010 eða samtals
rúmlega 2 milljarðar evra, sem svarar
til 334 milljarða króna.
Er skýringin sögð felast í minni arð-
semi í flutningum og varar félagið við
tapi á því sviði í ár.
Starfsemi félagsins skiptist í tvo
meginhluta, viðskipti með olíu annars
vegar og flutninga hins vegar.
Hlutabréf í félaginu lækkuðu um
2,8% í dönsku kauphöllinni í gær.
Hagnaður A.P. Moeller-
Maersk dregst saman
Haraldur Guðni Eiðsson hjá Arion banka segir
það rétt að aldrei hafi neitt erindi eða kauptilboð
komið frá þeim til Dróma vegna lánasafnsins sem
það fyrirtæki er með. Hlynur Jónsson, stjórnar-
formaður Dróma, fullyrðir í grein í Morgun-
blaðinu í gær að Drómi hafi aldrei fengið tilboð frá
bankanum og tekur Haraldur undir það en annað
hefur verið gefið í skyn í fjölmiðlum. „Það er alveg
rétt,“ segir Haraldur. „Við vísum bara í þær
óformlegu viðræður sem áttu sér stað við þá á sín-
um tíma. Við nefnum hins vegar aldrei í okkar
svörum að við höfum verið að ræða við stjórnvöld
um kaup á safninu heldur að við höfum rætt við
stjórnvöld um þessa óvenjulegu uppsetningu og
ýmislegt sem tengist þessum málum.“
En þegar Haraldur talar um óvenjulega upp-
setningu vísar hann til þess að innlánin hafi endað
hjá Arion banka en íbúðalánin hjá Dróma.
„Ástæða þess að við lögðum ekki fram formlegt
tilboð var sú að viðræðurnar fóru aldrei á það stig
þar sem hugmyndir aðila um aðferðir til að meta
lánasafnið voru svo ólíkar,“ segir Haraldur. „En
Arion banki vildi nota sömu aðferðir og notaðar
voru m.a. við mat á því lánasafni sem Arion banki
tók yfir frá Kaupþingi.“
Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og
viðskiptaráðherra, sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær, að hann teldi mikla samfélagslega hags-
muni liggja í því að lánasafnið væri ekki í höndum
Dróma: „Drómi er aðeins hlutafélag um eignir
þrotabús, þess vegna hefur gengið illa að láta þá
fylgja þeim reglum sem gilda um fyrirtæki sem
vinna á þessum markaði. Það er óeðlilegt í mark-
aðsviðskiptum að annar aðilinn, sá sterkari, hafi
enga langtímahagsmuni af viðskiptasambandinu.“
Hlynur Jónsson sakar einnig Arion banka um
að reyna að ná óeðlilegum afslætti í tilboðum sín-
um í eignasafn Dróma. Hann segir í greininni að
boð Arion banka í 10 milljarða króna yfirdráttar-
heimildir viðskiptavina SPRON hafi fyrst verið
upp á 2 milljarða, en samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var það á endanum selt á 7,6 milljarða.
Þegar Haraldur er spurður hvort þetta sé rétt frá
sagt segir hann: „Nei, það er ekki rétt að Arion
banki hafi boðið 2 milljarða í yfirdráttarheimildir
viðskiptavina SPRON. Þeir yfirdrættir sem bank-
inn tók yfir voru teknir yfir á fullu verði.“
borkur@mbl.is
Engin formleg tilboð hafa
komið í lánasafn Dróma
Morgunblaðið/Ómar
Viðskipti Arion banki hefur sýnt lánasafni
Dróma áhuga, en engin tilboð hafa komið.
Árni telur óeðlilegt að
lánasafnið sé hjá Dróma
Hagnaður
breska bankans
HSBC, stærsta
banka Evrópu,
nam 13,8 millj-
örðum punda á
síðasta ári og
jókst um 15% frá
því árið 2010.
Í tilkynningu
frá bankanum
kemur fram að
góða afkomu bankans á árinu megi
ekki síst þakka öflugum vexti
HSBC í nýmarkaðsríkjum. Tekjur
bankans jukust um 12% í Suður-
Ameríku, Asíu og Mið-Aust-
urlöndum.
Forstjóri bankans, Stuart Gull-
iver, sem tók við starfinu í byrjun
síðasta árs, fær úthlutaðar 5,9
milljónir punda í bónus- og árang-
urstengdar greiðslur, jafnvirði um
1,17 milljarða íslenskra króna.
Hagnast um
13,8 millj-
arða punda
Hagnaður HSBC
jókst um 15% á árinu
Stuart Gulliver,
forstjóri HSBC.
Forstjóri Marels,
Theo Hoen, var
með 384 þúsund
evrur, 63,9 millj-
ónir króna, í laun
frá félaginu á síð-
asta ári. Það jafn-
gildir rúmlega 5,3
milljónum króna í
laun á mánuði.
Sjö stjórnar-
menn Marels gefa
kost á sér til endurkjörs á aðalfundi
félagsins sem haldinn verður á morg-
un. Engir aðrir bjóða sig fram til
stjórnar og því ljóst að sjálfkjörið er í
stjórnina. Þau gefa kost á sér: Arnar
Þór Másson, Árni Oddur Þórðarson
stjórnarformaður, Ásthildur Margrét
Otharsdóttir, Friðrik Jóhannsson,
Helgi Magnússon, Margrét Jóns-
dóttir, og Theo Bruinsma.
64 milljónir
í árslaun
Sjö manna stjórn
Marels endurkjörin
Forstjóri Marels
Theo Hoen.
Forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, Christine Lagarde, hefur viður-
kennt að óvíst sé hvort sam-
komulag muni nást fyrir apríl á
meðal aðildarþjóða sjóðsins um að
leggja fram 500 milljarða Banda-
ríkjadala til að stemma stigu við
skuldakreppunni á evrusvæðinu.
Lagarde lét þessi ummæli falla
eftir fund fjármálaráðherra G20-
ríkjanna í Mexíkóborg í fyrrakvöld.
Fram kom í tilkynningu eftir fund-
inn að fjármálaráðherrar tuttugu
helstu iðnríkja heims setja það sem
skilyrði að björgunarsjóður evru-
svæðisins verði efldur enn frekar,
ef önnur ríki utan Evrópu eigi að
taka þátt í björgunaraðgerðunum
með því að auka fjárframlag sitt til
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Ljóst er að yfirlýsingin mun setja
aukinn þrýsting á ráðamenn Þýska-
lands sem hafa fram til þessa lagst
gegn því að stækka björgunarsjóð-
inn.
Fjármálaráðherrar G20-ríkjanna
bentu ennfremur á að ekki mætti
búast við því að fjármagn til Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins verði aukið
á sama tíma og ekki liggur fyrir
skýr stefna um það hvernig eigi að
fást við þá djúpstæðu skuldakreppu
sem herjar á mörg ríki evrusvæð-
isins. hordur@mbl.is
G20 setur aukinn
þrýsting á Þýskaland
Björgunaraðgerðir Christine Lagarde, forstjóri AGS, segir óvíst hvort sam-
komulag muni nást um 500 milljarða dala fjárframlög til sjóðsins.
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Mikil eftirvænting ríkir á meðal evr-
ópskra fjárfesta og fjármálastofnana
fyrir útboð Evrópska seðlabankans á
morgun, en bankinn mun þá bjóða
fjármálafyrirtækjum – í annað skipti
á aðeins tveimur mánuðum – að
sækja sér lánsfjármagn til þriggja
ára á aðeins 1% vöxtum. Spár grein-
enda gera ráð fyrir því að upphæðin
sem bankarnir muni taka að láni
verði á bilinu um 500-1000 milljarðar
evra. Í fyrsta útboði bankans í des-
ember fengu 523 fjármálastofnanir
lán að andvirði samtals 489 milljarða
evra.
Mario Draghi, bankastjóri Evr-
ópska seðlabankans, segist vænta
þess að bankarnir muni að þessu
sinni nota féð í meira mæli til að auka
hjá sér útlán til raunhagkerfisins.
Eftir útboðið í desember héldu bank-
ar að sér höndum og reyndu fremur
að styrkja hjá sér lausafjárstöðuna í
ljósi þess að þeir glíma margir hverj-
ir við gríðarlega þunga endurfjár-
mögnunarstöðu. Á fyrsta fjórðungi
þessa árs þurfa bankar að standa
skil á lánum að andvirði 230 millj-
arða evra og ljóst er að fáar – ef
nokkrar – fjármálastofnanir eru í
þeirri aðstöðu að geta selt skulda-
bréf til fjárfesta við núverandi að-
stæður á markaði.
Greinendur eru ekki á einu máli
um hversu mikil eftirspurn verður í
útboðinu á morgun. Samkvæmt
meðalspá 28 greinenda sem Bloom-
berg-fréttaveitan leitaði til má
reikna með því að fjármálastofnanir
muni sækja sér 470 milljarða evra.
Bandaríska matsfyrirtækið Stand-
ard & Poor’s gerir hins vegar ráð
fyrir því að upphæðin verði um þús-
und milljarðar evra.
Sérfræðingar eru sammála um að
aðgerð Evrópska seðlabankans hef-
ur skipt sköpum fyrir fjármálastöð-
ugleika á evrusvæðinu og afstýrt
þeirri hættu – minnsta kosti til
skamms tíma – að stór banki færi í
greiðsluþrot. Hlutabréfavísitala
Bloomberg fyrir banka- og fjármála-
fyrirtæki hefur hækkað um 18% á
þessu ári og skuldatryggingaálagið á
helstu banka Evrópu hefur að sama
skapi lækkað skarpt.
Það eru hins vegar ekki aðeins
bankarnir sem hafa notið góðs af
ódýru lánsfé Evrópska seðlabank-
ans. Flest bendir til þess að evrópsk
fjármálafyrirtæki hafi einnig notað
lánsféð í þeim tilgangi að kaupa upp
evrópsk ríkisskuldabréf – ekki síst
verst stöddu evruríkjanna – og þar
með aðstoðað þau ríki sem eru í að-
þrengdri fjárhagsstöðu.
Bankar gætu tekið 500-1000 milljarða evra að láni á morgun
Ódýrt lánsfé ECB hefur
skipt sköpum fyrir banka
Lánveitandi Mario Draghi, banka-
stjóri Evrópska seðlabankans.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+10.+1
+,/.00
,,.-+2
,,.,+/
+3.314
+/3.//
+.4-54
+1/.52
+22.0+
+,-.20
+10.20
+,-.+/
,,.-3,
,,.,03
+3.14
+/3.0,
+.4-4
+1/.2-
+20.+3
,,3.-431
+,-.10
+13.+4
+,-.-1
,,.4-3
,,./-/
+1.554
+/1.++
+.4-14
+1-.,,
+20.24
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á