Morgunblaðið - 28.02.2012, Síða 21

Morgunblaðið - 28.02.2012, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012 Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Nú er nokkuð ljóst að ætlun Jó- Grímu er að næstu jarðgöng á eftir Héðinsfjarð- argöngum skuli verða Vaðlaheið- argöng og skiptir engu máli hvað þau kosta, Stein- grím vantar bót á bót. Það væri í sjálfu sér í góðu lagi ef ekki væri með því verið að stíga ofan á heiðursfólk enn og aftur. Í Vest- fjarðagöngum stendur að þau hafi verið grafin 1996 og eru þá liðin að minnsta kosti sextán ár frá því að styr stóð um hvort Norðfjarðar- eða Vestfjarðargöng skyldu grafin fyrr. Norðfirðingar gerðu þá heið- ursmannasamkomulag við Vestfirð- inga og stjórnvöld þess efnis að Norðfjarðargöng skyldu vera næst í röðinni á eftir Vestfjarðagöngum. Síðan hafa ómerkingar kúkað á slóð- ina og gert að engu þetta sam- komulag og þar með þessa þörfu framkvæmd. Þörfu framkvæmd, vegna þess að þar er stærsta og löngum afkasta- mesta byggðarlag á Austurlandi, sem þó er aðeins með tengingu við landið um rottuholu sem aldrei skyldi hafa verið boruð. Oddsskarðsgöng eru ekki barn síns tíma eins og ská- mæltir afglapar hafa reynt að halda fram sjálfum sér til verndar. Þau eru afglöp sem engum, hvergi í heim- inum, hefði látið sér detta í hug að samþykkja nema fyrir greiðslu í gulli og hvar skyldi það gull vera? Allar vegabætur eru til gagns, en að bora göng frá Egilsstöðum og norður í Fellabæ er ekki endilega næst á dag- skrá. Þar er nú þegar til ágætur veg- ur og brú, líkt og á milli Akureyrar og Fnjóskadals. Þar með er ég ekki að segja að Vaðlaheiðargöng eigi ekki rétt á sér, heldur að forgangsröð var til með samkomulagi heið- ursmanna og full ástæða til að standa við hana. Það gæti reynst skeinuhætt að snuða landann Síðan 1996 hafa forsendur breyst þannig að vegtengingar milli byggð- arlaga á Austurlandi kalla enn frekar á framkvæmdir, ekki bara til handa Norðfirðingum, þær eru þjóðhags- lega hagkvæmar þó að reiknimeist- arar JóGrímu og aðrir Gnarristar kunni ekki að telja á sér puttana. Með í forsendum fyrir álveri við Reyðarfjörð voru samgöngur að nú- tímahætti, sem og eðlileg aðkoma að heilsugæslu. Framkoma íslenskra stjórnvalda hvað varðar efndir í því máli rýrir mjög trúverðugleika þeirra til framtíðar. Allt er þetta þó léttvægt hjá þeirri staðreynd að Reykjavík þarf andvægi og það and- vægi verður aðeins til með því að efla byggðarkjarna á Austurlandi, Norð- urlandi og Vestfjörðum. Ein af meg- inforsendum þess að treysta þessa byggðarkjarna er að bæta sam- göngur til þess að þjónusta gagnist sem best. Andvægi við Reykjavík er lífs- spursmál, til þess að hér geti þrifist vitrænt samfélag. Á meðan við lands- byggðarfólk reynum að velja okkur skynsamt fólk til að gæta hagsmuna okkar þá kjósa Reykvíkingar trúða til að stjórna borginni sem á að heita höfuðborg okkar allra Íslendinga, en er í raun bara þeirra svo sem flug- vallarmál sanna. Okkur landsbyggð- arfólki er ekki boðið upp á að hafa nokkuð um það að segja og þess vegna gerum við þá kröfu að við gam- alt heiðursmannasamkomulag verði staðið nú þegar og Norðfjarðargöng og svo Hrafnseyrarheiðargöng og svo Seyðisfjarðargöng verði að veru- leika til að rétta af núverandi slag- síðu á okkar gjöfula landi. HRÓLFUR HRAUNDAL, vélvirki. Jarðgöng, heiðursfólk og svo öðruvísi fólk Frá Hrólfi Hraundal Hrólfur Hraundal Við hæstarétt- ardóminn um myntkörfulánin vaknaði von hjá mér og fleirum, að þetta sam- félag væri að breytast til hins betra. En kannski er þetta bara draumsýn. Alla vega er það skylda okkar sem viljum bæta þetta samfélag að slást málefnalega við þá hræðilegu rík- isstjórn sem hér situr við völd, það er að láta heyra í okkur. Krafan er að viðmiðanir verðtryggingarinnar verði endurskoðaðar og heimilum og einstaklingum verði skilað því fé sem haft hefur verið af fólki langt umfram eðlileg mörk. Á það hefur verið bent að lánveitendur nærast á verðbólg- unni. Elítukratar og fleiri spretta nú fram og reyna linnulaust að verja þetta kerfi. Á það hefur verið bent að oddvitar stjórnmálaflokkanna gátu eftir hrun með lagasetningu varið heimilin. En þeir tóku þá ákvörðun að láta tjónið óskipt lenda á heimilum og einstaklingum þessa lands. Af þeirri ástæðu gerist sú krafa æ há- værari að þessu þýfi verði skilað. Mín skoðun er sú að samfélag sem vill kenna sig við lýðræði gefi ekki fjár- magnseigendum skotveiðileyfi á þegna sína. Markmiðin fyrir norrænt lýðræð- issamfélag eru skýr og eru eftirfar- andi: Að raunvextir séu sambærilegir og á Norðurlöndum, einnig verðbólga. Að stjórnvöld virði niðurstöður dóm- stóla. Að atvinnuleysi sé í algjöru lág- marki, vart mælanlegt. Að þegnarnir búi við stöðugt efnahagsumhverfi þar sem ábyrgð er í heiðri höfð. Að at- vinnulífið sé örvað með heilbrigðum hætti og menn hvattir til dáða. Að mannréttindi séu virt og farið sé eftir stjórnarskránni. Að aldraðir eigi sér áhyggjulaust ævikvöld. Ungu fólki boðnar mannsæmandi aðstæður til menntunar og að stofna fjölskyldu. Að böndum sé komið á líf- eyrissjóðina og bankastarfsemi. Þjóðin skipti þjóðartekjum rétt- látlega. Séreignarstefna á íbúðar- húsnæði sé virt sem valkostur. Hvar liggja leiðirnar að þessum markmiðum? Þær geta til dæmis ver- ið þessar: Alþingi hefjist strax handa við að gera rammaáætlun um framtíð- arskipulag lífeyrissjóðakerfisins. Endurskoðun laga um fjármála- fyrirtæki, eignarhald og krosseign- artengsl. Ríkistjórnin skipi strax nefnd til að örva atvinnulífið og stöðva fólksflótt- ann. Að fjórflokkurinn geri upp hrunið við félaga sína, hver í sínu lagi. Að sáttaleið verði fundin í vísitölu verðtryggingarinnar og skuldirnar leiðréttar. Með þessu gætum við öll lagt okk- ar af mörkum og tínt brotin upp sam- an eftir hrunið. Þannig getum við lagt grunn að norrænu lýðræðis- og velferðarsamfélagi. SVEINN HALLDÓRSSON, húsasmíðameistari og sjálfstæðismaður. Ríkisstjórnin skili ránsfengnum Frá Sveini Halldórssyni Sveinn Halldórsson Ég get ekki orða bundist vegna óvæg- innar aðfarar að vini mínum Gunnar Þor- valdi Andersen, for- stjóra Fjármálaeft- irlitsins. Ég hef lesið í fjöl- miðlunum ávirðingar þær, sem á Gunnar eru bornar, en ætla ekki að fjalla um þær sem slíkar hér enda fá- ránlegar. Ég vil hins vegar veita vitnisburð um góðan dreng, mann sem er einkar annt um virðingu sína og orðspor og má ekki vamm sitt vita. Auðvitað er Gunnar sinn eigin besti verjandi og ég hvet alla sem geta til að lesa viðtal við hann í opnu helgarblaðs DV 24.-26. feb. Þar kemur fram hinn staðfasti heiðarlegi maður, sem vegna hæfileika sinna og dugnaðar hefur rifið FME áfram síðan hann tók við því fyrir aðeins um þremur árum síðan. Eitthvað hefur hann komið of nærri kaun- unum hjá einhverjum, sem nota nú málaliða til þess að reyna að hindra framgang réttvísinnar og/eða hefna sín með því að reyna að fella hann. Það er mergurinn málsins. Reykur án elds og ófræging hinna óvönduðu, sem komu landinu í þær ógöngur, sem það er í. Ég hef þekkt Gunnar lengi, bæði sem félaga og sem viðskiptamaður Landsbanka Íslands. Alla tíð, bæði í leik og í starfi, hefur Gunnar sýnt að hann er afar mikilhæfur, aðgætinn og grandvar, lítillátur og óvenju sið- prúður og þekki ég engan mann lengur, sem ég treysti betur en Gunnari til allra hluta. Þannig er maðurinn, sem á að höggva. Nú ríður á að hindra áhlaupið. Ég hvet alla þá, sem annt er um að áfram verði haldið að hreinsa til í ís- lensku samfélagi og jafnframt verja saklausan mann, að standa upp, að skrifa í blöðin, tala í útvarp og reyna hvað sem hver getur til að hafa áhrif. Það er hinn venjulegi maður, kjós- andinn, sem er í raun sterkasta aflið, en hann verður að beita sér óhrædd- ur. Gunnar Þ. Andersen – Hæfur og heiðarlegur Eftir Kjartan Örn Kjartansson Kjartan Örn Kjartansson »Ég hef lesið í fjölmiðlunum ávirðingar þær, sem á Gunnar eru bornar, en ætla ekki að fjalla um þær sem slíkar hér enda fáránlegar. Höfundur er fyrrv. forstjóri. Bréf til blaðsins Verkfræði og nýting tækniþekkingar á drjúgan hlut í þeim stórstígu efnahags- legu framförum sem íslenzkt samfélag tók á liðinni öld. Fyrsti ís- lenski verkfræðing- urinn var Sigurður Thoroddsen, sem hóf störf hérlendis árið 1893, að loknu námi í Kaupmannahöfn. Verkefni hans fólust einkum í að nýta verk- þekkingu þess tíma við gerð vega og brúa, í landi þar sem sam- göngur á landi höfðu verið nánast óbreyttar um slóða og vegleysur í þúsund ár. Þegar komið var fram á árið 1912 hafði verkfræð- ingum þegar fjölgað nokkuð og þeir voru 13 verkfræðingarnir og „aðrir verkfróðir menn“ – eins og segir í stofnfundargerð fé- lagsins – sem komu saman á Hótel Reykjavík til þess að stofna Verk- fræðingafélag Íslands. Auk mann- virkjagerðar voru verkfræðingar á Íslandi þá þegar farnir að fást við vélvæðingu, beizlun orku úr fall- vötnum og símavæðingu landsins – hina rafrænu upplýsingatækni þess tíma. Verkfræði á 21. öldinni Viðfangsefni verkfræðinga í nú- tímasamfélagi eru afar marg- breytileg. Hérlendis er kunnugleg myndin af byggingarverkfræð- ingnum að störfum við hönnun og stjórnun mannvirkjagerðar, í sam- göngum og öðrum framkvæmdum, í byggð eða í óbyggðum. Dreifikerfi raforku, hita og vatns eru einnig hönnuð af verkfræðingum, rétt eins og dreifikerfi síma, sjónvarps og netsins. Og ennfremur standa verk- fræðingar á bak við rafeindatæknina í tölvum og símum, heilbrigð- istæknina í hátæknisjúkrahúsunum, framleiðsluferlin í efna- og mat- vælaiðnaði, og svo má áfram telja. Hérlendis er í hópi verkfræðinga fjöldi frumkvöðla sem hafa byggt upp fyrirtæki og atvinnugreinar, sem leggja grunninn að hagsæld á Íslandi um ókomin ár. Verkfræðinám á Íslandi Verkfræðingafélag Íslands stuðl- aði að því að fyrsti áfangi verkfræði- kennslu hófst hérlendis haustið 1940 og félagið hefur til þessa dags látið sig varða menntun verkfræðinga. Verkfræði er núna kennd við tvo há- skóla á Íslandi, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, en við báða skólana hefur verið tekið mið af verkfræðinámi eins og það gerist bezt í háskólum erlendis. Grunnur að verkfræðinámi hérlendis er þriggja ára B.S. nám og M.S. nám til viðbótar gefur rétt til að nota starfs- heitið verkfræðingur. Aukið fram- boð á framhaldsnámi hefur auðveld- að nemendum að ljúka náminu alfarið hérlendis, en með samn- ingum við aðra háskóla víða um heim gefast einnig kostir á að taka hluta námsins er- lendis. Með þessu móti eflum við rannsóknir og þróun á sviði verkfræði hér heima, en byggjum jafnframt upp tengsl við nám og störf í verk- fræði í öðrum löndum. Einar B. Pálsson – minning á aldarafmæli Á sl. ári lézt Einar B. Pálsson, verkfræð- ingur, sem hefði orðið hundrað ára í dag, 29. febrúar og því nánast jafn gamall félaginu sem hann starfaði með stærstan hluta liðinnar aldar. Í tilefni þess býð- ur Háskóli Íslands í dag til málþings um Einar og störf hans, ásamt Verkfræðingafélagi Ís- lands og Reykjavík- urborg. Einar varð stúdent á alþingishátíðarárinu 1930. Hann ákvað að leggja fyrir sig verk- fræðinám og sækja það til Þýzkalands, sem þá var nýlunda hérlendis, og hann útskrifaðist með byggingarverkfræðipróf í Dresden árið 1935. Einar átti langan og far- sælan starfsferil hérlendis, hjá emb- ætti bæjarverkfræðings í Reykjavík og síðar í öðrum verkfræðistörfum fyrir ört vaxandi höfuðborg, en síð- ari hluta starfsævinnar starfaði Ein- ar sem prófessor í verkfræði við Há- skóla Íslands. Jafnframt tók Einar virkan þátt í félagsmálum á ýmsum vettvangi, en hér er sérstaklega get- ið starfa hans fyrir Verkfræðinga- félagið, þar sem hann starfaði m.a. í stjórn og sem formaður um tíma. Þá ber að minnast frumkvöðlastarfs hans að orðanefnd byggingarverk- fræðinga sem hann skilaði af sér með útgáfu íðorðabókar árið 2007, þá kominn á 96. aldursár. Verkfræðingafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári, en félagið var stofnað 19. apríl 1912. Í tilefni af- mælisársins mun félagið vekja at- hygli á verkfræði og störfum verk- fræðinga með ýmsum hætti á komandi mánuðum. Á þessum degi er vel við hæfi að horfa um öxl og minnast Einars B. Pálssonar á hundrað ára afmælisdegi hans um leið og við horfum fram á næsta ár- hundrað Verkfræðingafélags Ís- lands og tækifæra verkfræðinga á nýrri öld. Verkfræði á nýrri öld Eftir Kristin Andersen Kristinn Andersen » Í hópi verk- fræðinga er fjöldi frum- kvöðla sem hafa byggt upp fyrirtæki og atvinnugreinar, sem leggja grunninn að hagsæld á Íslandi um ókomin ár. Höfundur er formaður Verkfræðingafélags Íslands. - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.