Morgunblaðið - 29.02.2012, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 29.02.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 Hrafnaþing Náttúru- fræðistofnunar Íslands verður haldið miðviku- daginn 29. febr- úar kl. 15:15 í húsakynnum stofnunarinnar að Urriðaholts- stræti 6-8 í Garðabæ. Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræðingur á Náttúru- fræðistofnun og umsjónarmaður fuglamerkinga, mun fjalla um 90 ára sögu fuglamerkinga á Íslandi og sýna nokkur dæmi um niður- stöður þeirra. Fuglamerkingar hófust á Íslandi árið 1921 fyrir tilstilli danska fugla- fræðingsins Peters Skovgaards. Merkingar á vegum Íslendinga hóf- ust 1932 og hafa á þeim 80 árum sem liðin eru um 600 þúsund fuglar verið merktir og um 40 þúsund endurheimst, auk 3600 erlendra merkja sem endurheimst hafa á Ís- landi. Fuglamerkingar Fagdeild félagsráðgjafa um áfeng- is- og vímuefnamál og fagdeild fé- lagsráðgjafa á fræðslu- og skóla- sviði halda morgunverðarfund fimmtudaginn 1. mars á Grand Hót- el kl. 8:00-10:30. Fundarefnið er: Börn, unglingar og vímuefni. Erindi flytja: Jóna Margrét Ólafsdóttir, formaður fagdeildar félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál, Guðrún Elva Arin- bjarnardóttir, formaður fagdeildar félagsráðgjafa á fræðslu- og skóla- sviði og félagsráðgjafi í grunn- skóla, Sigurður Örn Magnússon og Vilborg Grétarsdóttir, Barnavernd Reykjavíkur, og Hjördís Árnadótt- ir, skólafélagsráðgjafi í FVA. Að- gangur að málþinginu kostar 2.100 krónur. Ræða um börn, ung- linga og vímuefni Stofnun stjórnsýslufræða og stjórn- mála og sálfræðideild Háskóla Ís- lands halda opinn fyrirlestur mið- vikudaginn 29. febrúar kl. 12:15-13:15 í Lögbergi, stofu 103. Dr. Jaime Napier, kennari við sálfræðideild Yale-háskólans í Bandaríkjunum, flytur fyrirlestur- inn Að skapa samhljóm: Geta stjórnmálaleiðtogar mótað siðferðisgildi fólks. Umræðunum stjórnar Hulda Þórisdóttir, lektor í stjórn- málafræði. Siðferðisgildi fólks Verður skól- inn án bóka? heitir ráð- stefna sem Félag les- blindra á Ís- landi heldur í húsi mennta- vísindasviðs HÍ við Stakkahlíð í dag kl. 13. Þar verður m.a. rætt um það hvaða stefnu skal marka í raf- bókavæðingu skólakerfisins hér- lendis og hvað hefur verið gert í þessum málum fram til þessa. Aðalfyrirlesari er Ollie Bray, ráðgjafi í kennslutækni í Skot- landi. Ráðstefnan er ætluð starfs- fólki í menntakerfinu auk áhuga- fólks um málefnið. Aðgangur er ókeypis. Rætt um notkun raf- bóka í skólakerfinu Rekstur hópferðabíla er afar þungur í dag þar sem eldsneytisverðið hefur hækkað án afláts. Því er mik- ilvægt að endurnýja og taka í notkun sparneytnari bíla, að sögn Þóris Garðarssonar, markaðs- og sölu- stjóra Iceland Excursions. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hefur fyrirtækið keypt tíu nýjar rútur, fimm hafa þegar ver- ið teknar í notkun en hinar fimm bætast við flotann í vor, sem telur þá 50 rútur. Þórir segir að miklu skipti að reyna að minnka rekstrarkostnað bílanna þar sem eldsneytiskostnaður- inn hefur aukist mikið. „Nýrri bílar eyða minni olíu og þurfa minna viðhald, sem er líka orðið mjög dýrt,“ seg- ir hann. Ná eyðslunni niður um 3 lítra Þórir segir að reksturinn við þessar aðstæður hafi þyngst verulega með síhækkandi eldsneytisverði. Í ferðaþjónustunni geri menn samninga allt að 18 mán- uði fram í tímann og við þær aðstæður sé erfitt að setja olíuverðhækkanir út í verðlagið. „Það er staðreynd að nýrri bílar eins og þessir sem við erum að fá núna eyða töluvert minna en eldri bíl- arnir. Það munar töluverðu,“ segir hann. Stærsti hlutinn af starfsemi Ice- land Excursions eru dagsferðir fyrir erlenda ferðamenn, t.d. tvær ferðir á dag með ferðamenn að Gullfossi og Geysi. „Það skiptir því geysilega miklu máli ef við náum olíueyðslunni niður um þrjá lítra á hundraðið,“ segir Þórir. Hann á von á umtalsverðri aukn- ingu fólksflutninga í ár frá seinasta ári ef mið er tekið af bókunartölum. „Sumarið lítur mjög vel út hjá okkur og veturinn hefur líka verið mjög góður. Það hefur verið mjög góð aukning í okkar ferðir og markaðssetning og þau kynningarátök sem við höfum verið í undanfarin ár hafa skilað sér í fleiri viðskiptavinum. Við höfum verið með 15 til 20% aukningu að með- altali á milli ára undanfarin fimm ár að og ég á von á því að árið í ár verði ekki síðra,“ segir hann. Fyrirtækið er með um 90 manns í vinnu í vetur en yfir sumarið eru þeir í kringum 120. omfr@mbl.is Flotinn stækkar Iceland Excursions hefur fest kaup á tíu nýjum rútum og hafa fimm þegar verið teknar í notkun. Nýrri bílar eyða minni olíu og þurfa minna viðhald  50 rútur í flota Iceland Excursions  Sumarið lítur vel út Þórir Garðarson Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Agné Krataviciuté, sem ákærð er fyrir að orðið nýfæddu barni sínu að bana, segist enn ekki skilja hvað gerðist. Hún segist sannfærð um að hún hafi aldrei eignast barn. Aðalmeðferð í máli hennar hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en hún er ákærð fyrir manndráp með því að hafa fætt fullburða, lifandi sveinbarn, skorið drenginn í andlitið og kyrkt hann. Lík barnsins fannst í ruslagám við Hótel Frón hinn 2. júlí 2011, þar sem Agné vann sem herbergisþerna. Agné er rúmlega tvítug að aldri. Hún flutti hingað til lands í október 2010 til að vera með þáverandi kærasta sínum, Deividas Marcin- kevicius. Þau kynntust á netinu fyrir um 5 ár- um en höfðu aðeins hist einu sinni áður en hún flutti til Íslands og inn til foreldra hans. Þau sögðust bæði hafa verið ástfangin og samrýnd. Eftir atburðina síðasta sumar sleit Deividas hins vegar öllu sambandi við hana. Honum seg- ist hafa liðið mjög illa eftir að ljóst var hvað gerðist og hefur hann gert bótakröfu í málinu. Engin líkamleg einkenni þungunar Geðlæknar sem mátu heilsu Agné eftir at- vikið telja hana vera við neðri mörk meðal- greindar. Hún sé óþroskuð eftir aldri og hafi búið við ofverndun foreldra sinna og verið þeim háð. Geðlæknar segja allt benda til þess að ekki hafi hvarflað að henni sjálfri að hún væri ólétt. Fæðing barnsins hafi líklega verið henni gríð- arlegt áfall og hugsanlegt sé að hún hafi upp- lifað tímabundið hugrof á einhverjum tíma- punkti tengdum fæðingu barnsins. Hún greindist hinsvegar ekki með neinn geðsjúkdóm eða persónuleikaröskun og telst því sakhæf. Sjálf neitar Agné hinsvegar sök. Fyrir dómnum lýsti hún þeirri sannfæringu sinni að hún hefði ekki verið ólétt. Hún segist hafa verið á reglulegum blæðingum allan tím- ann og ekki fundið fyrir neinum líkamlegum einkennum. Vitni sem kölluð voru fyrir Hér- aðsdóm í gær voru nokkurn veginn samhljóða um að ekki hefði verið ljóst að hún hefði verið þunguð. Hún hefði verið fremur búttuð í vext- inum fyrir og engar afgerandi breytingar sést á henni eða háttalagi hennar. Buxur og hendur alblóðugar Læknisfræðileg gögn benda hinsvegar öll til þess að hún hafi gengið með og fætt fullburða barn. Þegar farið var með hana á Landspítala vegna mikilla blæðinga voru föst fylgja og naflastrengur fjarlægð með skurðaðgerð, að sögn læknanna sem sinntu henni. Þá sýndu niðurstöður rannsóknar á DNA-sýni úr líki barnsins að 99,999% líkur væru á því að Agné og Deividas væru foreldrarnir. Þegar Agné var beðin um að lýsa atburða- rásinni hinn 2. júlí 2011 sagðist hún hafa vakn- að þá um nóttina með verki í síðu, sem hún taldi vera tíðaverki og fengið við þeim íbúfen hjá tengdamóður sinni. Um morguninn hélt hún til vinnu við að þrífa herbergi á Hótel Fróni. Þernurnar unnu tvær og tvær saman en vinnufélagi Agné fór í kaffi á meðan hún klár- aði að þrífa síðasta herbergið og stuttu eftir að hún fór sagðist Agné hafa fundið til svima og orðið vör við að henni blæddi óvenjumikið en talið það vera tíðablæðingar og sest á klósettið á meðan það leið hjá. Blóð hefði farið á gólfið en hún reynt að þrífa það upp og svo farið í kaffi. Agné virðist aðeins hafa verið ein í rúmar 10 mínútur. Þegar hún kom niður sáu vinnufélag- arnir að hendur hennar og buxur voru alblóð- ugar og var Deividas því sendur eftir henni og fór hann með hana á spítalann. „Ég veit ekki hvernig mér á að líða. Ég er ennþá að segja sjálfri mér: Ég fæddi ekki barn, ég var ekki ófrísk, ég gerði þetta ekki,“ sagði Agné að- spurð hvernig henni hefði liðið síðan atburð- irnir gerðust. „Ég bara er,“ sagði túlkur henn- ar að hún hefði sagt. Telur sig ekki hafa fætt barnið  Ung lithásk kona sem ákærð er fyrir barnsdráp neitar sök  Segist ekki hafa gengið með barn, hvað þá ráðið því bana  DNA-próf sýnir að hún eigi barnið  Andlegt ástand hennar við verknaðinn óljóst Morgunblaðið/Ómar Héraðsdómur Reykjavíkur Verjandi Agné Krataviciuté fór fram á að dómshaldið yrði lokað til að verja hana, en þeirri kröfu var hafnað. Aðalmeðferð málsins heldur áfram í dag. Agné Krataviciuté lagði áherslu á það í framburði sínum í gær að hún væri hrifin af börnum og hefði alltaf hugsað sér að verða móðir. „Börn eru almennt mjög mik- ilvægur hluti í mínum huga og að eignast barn myndi verða þvílík gleði fyrir mér,“ sagði Agné með hjálp túlks. Hún sagðist ekki hafa haft ástæðu til að óttast viðbrögð foreldra sinna eða þáver- andi kærasta ef hún hefði sagst vera barnshafandi. Hún hefði líka átt stuðning tengdafjölskyldu sinnar vísan. Deividas sagði Agné oft hafa talað við hann um börn á jákvæðum nótum. Þau hefðu ráðgert að eignast saman börn síð- ar þegar þau væru orðin eldri. „Ég elska börn og ef hún hefði allt í einu komið heim með barn hefði ég orðið ég mjög glaður.“ Vildu barn síðar ÆTLAÐI SÉR AÐ VERÐA MÓÐIR Stúlkan sem bjargaði erninum Sigurerni árið 2006 heitir Sigur- björg Sandra Pétursdóttir en ekki Sigurborg Sandra Pétursdóttir eins og misritaðist í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Nafn misritaðist Skannaðu kóðann til að lesa ítarlega umfjöllun mbl.is um málið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.