Morgunblaðið - 29.02.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 29.02.2012, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 ✝ Sigrún Björg-vinsdóttir fæddist á Akranesi 26. janúar 1940. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi mánudaginn 20. febrúar 2012. Foreldrar henn- ar voru Anna Mýr- dal Helgadóttir og Björgvin Ólafsson. Sigrún var yngst af fjórum systkinum. Systkini hennar eru Þorbjörg Þorbjörnsdóttir (sammæðra), Helgi Björgvinsson og Guðrún Mýrdal Björgvinsdóttir. Sigrún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Gunnari Lárussyni, 30. des. 1960, hann er fæddur 5. maí 1929. Þau eiga fjórar dætur, þær eru: Lára Dröfn Gunn- arsdóttir f. 16. jan. 1961, hún er gift Jarle Reiersen og eiga þau tvö börn, Sindra f. 5.3. 1990 og Sigrúnu f. 27.2. 1992. Eyrún Signý Gunnarsdóttir f. 19. maí 1962, hún á tvær dætur, Evu Björg Jónsdóttur f. 21.10. 1984 og Sædísi Björk Jónsdóttur f. 10.5. 1995. Hafdís Gunnarsdóttir f. 9. nóv. 1963, hún er gift Ágústi Páli Sumarliðasyni og eiga þau þrjú börn, Láru f. 28.5. 1986, Arnór f. 27.9. 1989 og Dagnýju f. 5.8. 1991. Anna Björg Gunnarsdóttir f. 5. sept, 1965, hún er gift Teiti Gunn- arssyni og eiga þau þrjú börn, Tryggva Gunnar f. 16.1. 1987, Hilmar f. 4.6. 1988 og Heiðrúnu f. 14.12. 1989. Sigrún á eitt lang- ömmubarn, Adrían Mána, f. 21.2. 2009, hann er sonur Tryggva Gunnars og unnustu hans Sylvíu Rakelar Guðjóns- dóttur. Sigrún bjó alla sína tíð á Akranesi og lengst af starfaði hún á Dvalarheimilinu Höfða. Útför Sigrúnar fór fram frá Akraneskirkju 28. febrúar 2012. Elskulega mamma mín, mjúk er alltaf höndin þín, tárin þorna sérhvert sinn, sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðinn er allt það skal ég launa þér. (Sig. Júl. Jóhannesson.) Elsku mamma mín, mig langar til að kveðja þig með nokkrum orðum og að þakka þér fyrir allt það sem þú gafst mér, þakka þér fyrir það hvernig þú varst. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, öryggið og reglan sem þið bjugg- uð til í kringum mig var mér afar mikilvægt. Þegar ég var krakki var ég ekki alltaf ánægð með þessa miklu reglu og stranga aga, en það hefur gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Ég hugsa með hlýhug til allra stund- anna sem við áttum saman. Fimmtudagskvöldanna þegar við sátum allar saman mæðgurnar og gerðum handavinnu og hlust- uðum á útvarpssöguna, laugar- dagsmorgnana þegar við vorum allar að taka til og hlustuðum á lög sjúklinga, það voru svo marg- ar góðar stundir sem við áttum saman. Þú kenndir mér svo margt sem ég bý að og get von- andi kennt dætrum mínum. Mamma var frábær húsmóðir, hún var 25 ára þegar hún var bú- in að eiga 4 dætur, hún var mikið ein með okkur þar sem pabbi vann alltaf mikið, hún vann lengst af hálfan daginn en gat samt saumað og prjónað á okkur öll föt og ekki bara okkur heldur líka dúkkurnar okkar. Mamma var alltaf að, henni féllu sjaldan verk úr hendi. Mamma átti fal- legt heimili, þar var reglan í fyr- irrúmi, alltaf hreint og snyrtilegt og alltaf hlaðborð af heimabök- uðum kökum og mat. Þegar við komum heim úr skólanum var mamma alltaf tilbúin með eitt- hvað gott fyrir okkur og alltaf tilbúin að hlusta á okkur. Ég á þér svo margt að þakka, elsku mamma mín, hvíl þú í friði. Minn- ing þín er ljós í lífi mínu. Þín dóttir Eyrún Signý Gunnarsdóttir. Elsku amma, nú sitjum við hér með tárin í augunum og hugsum um allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Þú varst svo sannarlega góð amma, alltaf vissi maður að þér þótti vænt um okk- ur og alltaf var svo gott að koma í heimsókn til ykkar afa. Síðustu árin áttu við einnig mjög góðar stundir með þér, minnisstæðast- ar eru stundirnar sem við áttum saman við eldhúsborðið í Garð- húsum þar sem við spjölluðum um alla heima og geima. Þú varst svo góð fyrirmynd, alltaf svo fín, hnarreist, skipu- lögð, dugleg og hæfileikarík. Við erum svo þakklátar fyrir að hafa átt þig að sem ömmu og fyrir allt sem þú kenndir okkur. Við munum aldrei gleyma þér, elsku amma. Þínar ömmustelpur, Eva Björg og Sædís Björk. Sigrún Björgvinsdóttir ✝ Jón Sigurðssonfæddist í Reykjavík 10. októ- ber 1939. Hann lést á Borgarspítalanum hinn 21. febrúar 2012. Foreldrar hans voru Sigurður Jóns- son, f. 21.3. 1912, d. 7.11. 1985, og Vil- borg Karelsdóttir, f. 7.4. 1937, d. 20.10. 1966. Systir Jóns er Ásthildur Sigurðardóttir, f. 25.5. 1936. Eig- inmaður Ásthildar er Rafn Helgason, f. 8.6. 1933. Eftirlif- andi eiginkona Jóns er Ína Dóra Sigurðardóttir, f. 20.4. 1937. Jón og Ína Dóra giftust 17.9. 1960. Þau eignuðust 3 stráka. 1. Sig- urður Haukur Jónsson, f. 4.1. 1961. 2. Ólafur Karel Jónsson, f. 1.8. 1963. Hann kvæntist Guð- rúnu Klöru Sigurbjörnsdóttur, börn þeirra eru, a) Íris Ósk, f. 1984 og er sambýlismaður henn- ar Björgvin Eyjólf- ur Ágústsson, b) Unnur Lilja, f. 1989, d. 1990, c) Jón Kar- el, f. 1991, d) Anton Örn, f. 1993. Ólafur Karel og Guðrún Klara skildu. Sam- býliskona Ólafs Karels er Harpa Steingrímsdóttir. 3. Guðmundur Berg- mann Jónsson, f. 11.8. 1965, og maki hans er Jó- hanna Jónsdóttir. Börn þeirra eru a) Andrea Bergmann, f. 1993, b) Ían Bergmann, f. 1999, c) Emma Bergmann, f. 2003. Jón ólst upp á Víðimelnum í Reykja- vík. Hann vann við ýmis störf frá unga aldri en svo ráku Jón og Ína Leðurverkstæðið á Víðimel frá árinu 1983 og er það enn starfrækt. Jón var jarðsunginn frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði 27. febr- úar 2012. Sem dropi titrandi taki sig út úr regni hætti við að falla haldist í loftinu kyrr Þannig fer unaðssömum augnablikum hins liðna þau taka sig út úr tímanum og ljóma kyrrstæð, meðan hrynur gegnum hjartað stund eftir stund. (Hannes Pétursson) Vegir almættisins eru órann- sakanlegir og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Skyndilega er tengdafaðir minn horfinn á braut. Margar á ég minningarnar frá þeim fjölmörgu stundum sem mér hlotnaðist að deila með Jóni, hvort sem það var á Íslandi, í Bandaríkjunum, í Mexico eða á Spáni. Jón var oft- ast léttklæddur sama hvernig viðraði og átti hann það til að skafa snjó af bílnum mínum í stuttermabol og opnum skóm. Ég sagði honum oft að hitamælirinn í honum væri bilaður þegar hann var svona léttklæddur í kulda þar sem hann elskaði að vera í sól og miklum hita. Við fjölskyldan not- uðum hvert tækifæri í ferðum okkar til Íslands til að komast í bústaðinn í Borgarfirði og vorum þá Jón og Ína oftast með í ferð. Jón sat ætíð léttklæddur við ar- ininn og sá um að eldurinn slokknaði ekki. Börnin okkar hafa notið þeirra forréttinda að hafa geta dvalið á sumrin á Íslandi hjá fjölskyldum okkar og þá oft hjá Jóni og Ínu. Jón var mikið fyrir sætindi og fannst honum nú ekki slæmt að hafa krakkana í kringum sig þar sem þau deildu oft nammi eða ís með honum. Jón og Ína komu líka í heimsókn til okkar í Colorado, nú seinast í vor þegar Andrea út- skrifaðist úr skólanum. Í einni heimsókn þeirra keypti Jón stál- bolla til að drekka mjólk úr þar sem hann vildi alltaf kalda mjólk. Jón skildi bollann eftir hjá okkur og var bollinn það fyrsta sem var tekið fram þegar Jón kom aftur í heimsókn, en þessi bolli var aldr- ei notaður annars þar sem þetta var bollinn hans afa Jóns. Elsku Jón, hjartans þakkir fyrir allar minningarnar og kveð ég þig með söknuði í hjarta. Þín tengdadóttir, Jóhanna. Elsku afi Jón, Við vorum svo heppin að geta verið hjá þér öll þessi sumur á Ís- landi og hafa haft allan þann tíma sem við áttum saman. Við elskum þig svo rosalega mikið og það eru svo margar minningar sem við eigum og munum aldrei gleyma. Þú varst aldrei í bol og oftast bara á stuttbuxum sama hvernig veðrið var og maður skildi það nú aldrei. Við vitum að þú ert á góðum stað og Guð á eftir að hugsa vel um þig og að þú getur drukkið eins mikla bláa mjólk og þú vilt þar án þess að amma Ína skammi þig. Mundu bara alltaf þetta: „Afi, þú ert ekki fyndinn.“ Barnabörnin þín í Colorado, Andrea, Ían, og Emma. Jón Sigurðsson Foreldrar mínir eignuðust upp úr 1960 lóð undir hús við hlið Guðrúnar og Jónasar og Hall- dórs sonar þeirra á Sunnubraut í Kópavogi. Fljótlega eftir að við fluttum inn var ég í bíló á ófrá- genginni lóð húss okkar þegar Halldór stakk upp haus við lóða- mörkin. Var það upphaf ævi- langrar vináttu okkar Halldórs og kynna minna af foreldrum Jónas H. Haralz ✝ Jónas HalldórHaralz fæddist í Vinaminni í Grjótaþorpinu í Reykjavík 6. októ- ber 1919. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Mörk 13. febr- úar 2012 á 93. ald- ursári. Útför Jónasar fór fram frá Dóm- kirkjunni 27. febr- úar 2012. Meira: mbl.is/minningar hans. Faðir minn og Jónas þekktust raunar frá fyrri tíð, þeir voru jafnaldrar og samtíma í MR. Jónas og Guðrún voru alla tíð sérlega elskuleg við mig og var ég alltaf vel- kominn inn til Hall- dórs vinar míns. Þau fjölskyldan voru mjög samrýmd og voru t.d. mikið saman í garð- inum við hús sitt við leik og störf. Var það mikið högg fyrir þá feðga Jónas og Halldór þegar Guðrún lést langt fyrir aldur fram. Jónas var á þessum tíma orð- inn landsþekktur, áhrifamikill ráðunautur og embættismaður Viðreisnarstjórnarinnar, sem lík- legast má telja þá farsælustu frá lýðveldisstofnun. Held raunar að telja megi hann guðföður henn- ar, fái einhver að bera það sæmdarheiti. Kunn eru og marg- háttuð störf Jónasar síðar meir m.a. við Landsbankann og Al- þjóðabankann. Mikill gestagangur var á heimili Jónasar og Guðrúnar, alls kyns forvitnilegt fyrirfólk innlent og erlent heimsótti þau. Man ég líka eftir því að mikið samband og gott virtist vera með Jónasi og Gylfa Þ. Gíslasyni, ráð- herra og máttum við Halldór læðast á tánum um ganga meðan þeir ræddu löngum saman í síma. Löngu seinna þegar ég var kominn í háskólann og var stundum að tjá mig opinberlega um daginn og veginn og Jónas vék að einhverju sem ég hafði sagt með vinsemd þótti mér mik- ill vegsauki að því. Enn er ég stundum að glöggva mig á því sem Jónas hafði fram að færa um málefni þjóðfélagsins með því að grípa í skrif hans. Enn síð- ar þegar ég hóf lögfræðistörf þótti mér vænt um það þegar hann fól mér ýmis viðvik fyrir sig. Jónas var einn af fáum sem stunduðu göngur stíft á æskuár- um mínum, þannig gekk hann iðulega til starfa sinna í Miðbæn- um úr Kópavoginum, sem var nú góður spölur. Held ég að sumum hafi jafnvel þótt þetta heldur skrítið á þeim tíma. Eitt sinn var Jónas spurður um það í fjöl- miðlaviðtali hvort hann héldi að hann myndi lifa lengur ef hann hreyfði sig svo mikið. Hann sagðist ekki vita um það, en hon- um myndi áreiðanlega líða betur meðan hann lifði. Jónas hélt alla vega lengi ótrúlegu þreki og heilsu og sinnti mikilvægum ábyrgðarstörfum og kom fram í fjölmiðlum og á fundum sem ekkert væri fram yfir nírætt. Ég veit um náið og gott sam- band Jónasar og Halldórs sonar hans og hversu fyrirferðamikill Jónas var í lífi vinar míns og fjöl- skyldu hans. Þannig að þar er skarð fyrir skildi. Ég votta Halldóri og Gyðu og fjölskyldu þeirra samúð mína vegna fráfalls Jónasar og þakka fyrir elskulegt viðmót og góð kynni fyrr og nú. Tryggvi Agnarsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON húsasmíðameistari, Dælengi 17, Selfossi, lést á Kanaríeyjum að morgni miðviku- dagsins 15. febrúar. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 2. mars kl. 13.00. Guðmundur Sigurðsson, Ingvi Rafn Sigurðsson, Laufey Jóna Kjartansdóttir, Sesselja Sigurðardóttir, Örn Grétarsson, Sigurður Þór Sigurðsson, Kristín Gunnarsdóttir, Óðinn Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Kær móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi sunnudaginn 26. febrúar, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 3. mars kl. 11.00. Rebekka Björk Þiðriksdóttir, Viðar Pétursson, Hjalti Viðarsson, Kári Viðarsson, Ingibjörg Viðarsdóttir, Þiðrik Örn Viðarsson og fjölskyldur. ✝ Elsku maðurinn minn, VIÐAR BJÖRGVINSSON, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug. Fyrir hönd barna, tengdabarna, afa- og langafabarna, Hildur Andrésdóttir. ✝ Okkar elskulega NANCI ARNOLD HELGASON andaðist í Sunnuhlíð mánudaginn 23. janúar, eftir stutta sjúkdómslegu. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sjöfn Guðmundsdóttir, Dagný Michelle Jónsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær frændi okkar, HJALTI FINNSSON frá Ártúni, Eyjafjarðarsveit, lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugar- daginn 25. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Hólakirkju, Eyja- fjarðarsveit, laugardaginn 3. mars og hefst athöfnin kl. 13.30. Aðstandendur. ✝ Àstkæra mamma, amma og langamma okkar, INGIBJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR frá Sveinatungu, kennari, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 24. febrúar, verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn 2. mars kl. 15.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks 3-B á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir hlýju og góða umönnun. María Helga Kristjánsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.