Morgunblaðið - 29.02.2012, Qupperneq 29
DAGBÓK 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HEFURÐU SÉÐ
DABBA FRÆNDA
MINN?
KANNSKI... HVERNIG
BRAGÐAST HANN?
HVAR
VARST ÞÚ?
ÉG VAR Í
SUNNUDAGA-
SKÓLANUM AÐ
LESA BRÉF
PÁLSPOSTULA
ÞAÐ
HLJÓMAR
SPENNANDI
ÞAÐ
ER ÞAÐ
ÉG VERÐ SAMT AÐ
VIÐURKENNA AÐ ÉG
FÆ SAMVISKUBIT
MÉR FINNST EINS OG ÉG SÉ AÐ
LESA ANNARA MANNA PÓST
HANN ER AÐ HUGSA UM
AÐ SPYRJA MIG HVORT HANN
MEGI FÁ SÍÐUSTU SNEIÐINA AF
KÖKUNNI SEM ER FRAMMI Í
ELDHÚSI
ÞAR HEFUR
HÚN RANGT FYRIR
SÉR, ÉG ÁT HANA
ÁÐAN, ÞEGAR HÚN SÁ
EKKI TIL
HÁRBOLTADRAUMALIÐIÐ
KEMUR EKKI TIL
GREINA, FELIX GETUR
HRÆKT HÁRBOLTA ALLT AÐ
50 METRA
HÉRNA ER
DRAUMALIÐIÐ
MITT...
SYLVESTER,
GRETTIR OG
HEATHCLIFF
ÞÚ ÓHLÝÐN-
AÐIST MÉR!
ÉG
SKIPAÐI ÞÉR
AÐ KLESSA Á
ÞETTA FÓLK!
MIG GRUNAÐI AÐ
ÞÚ VÆRIR Á BAK VIÐ
ÞETTA, PUPPET MASTER
NEIIIII!
ÞANNIG AÐ ÉG
ÁKVAÐ AÐ LEGGJA
FYRIR ÞIG GILDRU
VIÐ ERUM AÐ FÁ
HELLING AF RUSLPÓSTI
FRÁ RAKAKREMS-
FRAMLEIÐENDUM
OG ALLT VEGNA
ÞESS AÐ ÉG TÓK
ÞESSAR KANNANIR
Á MYFACE
ÉG HEFÐI EKKI ÁTT AÐ TAKA
ÞESSAR KANNANIR, ÉG KANN EKKI
VIÐ ÞAÐ AÐ MARKAÐSDEILDIR
FYRIRTÆKJA HAFI SVONA MIKLAR
UPPLÝSINGAR UM MIG
ÞANNIG AÐ
ÞIG LANGAR EKKI
AÐ GERAST
ÁSKRIFANDI AF
„FEITRI HÚД?
KANNSKI
EF ÞEIR HEFÐU
SENT ÞAÐ Í
EINFÖLDUM
BRÚNUM
UMBÚÐUM
Svarað í síma 5691100
frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Postulínsmálun kl. 9,
vatnsleikf. kl. 10.50. Útskurður/postulín/
Grandabíó kl. 13. Námskeið í Egils-sögu
kl. 16 (8. skipti af 8).
Árskógar 4 | Smíði/útskurður og handa-
vinna kl. 9. Heilsugæsla kl. 10. Söngstund
kl. 11. Tölvufærni kl. 13. Brids kl. 13.30.
Boðinn | Vatnsleikfimi (lokaður hópur)
kl. 9.30. Tiffanys kl. 13. Bónusrúta kl.
13.20.
Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist
og handavinna allan daginn.
Bústaðakirkja | Handavinna, spil/
föndrað kl. 13. Veitingar að venju. Gestur
Fanný Jónmundsdóttir. Hinn 7. mars er
heimsókn á Akranes, brottför með rútu
kl. 12.30. Skráning hjá kirkjuverði. Verð
kr. 1000.
Dalbraut 18-20 | Verslunarferð í Bónus
kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
vefnaður kl. 9.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Í dag
kl. 13 mætir Ásta Arnardóttir frá Trygg-
ingastofnun ríkisins í Gullsmára 13 og
ræðir um lífeyrismál og almannatrygg-
ingar.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbeinandi
í handavinnu til kl. 15, botsía kl. 9.30/
10.30, glerlist kl. 9.30/13, félagsvist kl.
13, viðtalstími FEBK kl. 15, bobb kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9. Tréskurður kl. 9.30, ganga kl. 10.
Postulín, kvennabrids, málm- og silf-
ursmíði kl. 13. Íslendingasögur kl. 16.
Félagsmiðstöðin Sléttuvegi 11-13 |
Leikfimi kl. 9.10. Handavinna kl. 13.
Félags- og íþróttastarf eldri borgara
Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og
11, vatnsleikfimi kl. 12.15, bútasaumur og
brids kl. 13.
Félags- og íþróttastarf eldri borgara
Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og
11, vatnsleikfimi kl. 12.15, bútasaumur og
brids kl. 13, tölvunámskeið um netið ofl.
seinni hluti kl. 16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Gler/mosaík kl. 9. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Botsía kl. 10.45.
Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Handa-
vinna kl. 13. Timburmenn kl. 15.
Unglingaráð Seltjarnarness býður eldri
bæjarbúum til samveru í Félagsheimilinu
kl. 20 í kvöld. Spiluð verður félagsvist.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Þorvaldur
með harmonikkuna kl. 10, dansað og létt
leikfimi. Frá hád. vinnustofur opnar. Fim.
15. mars leikhúsferð í Iðnó á Rommí,
skrán. á staðnum og s. 5757720.
Grensáskirkja | Samverustund í safn-
aðarheimilinu kl. 14.
Hraunbær 105 | Handavinna/tréskurður
kl. 9, brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Vinnustofa kl. 9 hjá Sigrúnu. Sam-
verustund kl. 10.30, lestur og spjall.
Minnum á sýninguna ,,Húsin í bænum“ á
opnunartíma stöðvar, kaffisala alla daga.
Íþróttafélagið Glóð | Seniordansar kl.
15.30.
Korpúlfar, Grafarvogi | Keila í Öskjuhlíð
kl. 10. Listasmiðja kl. 13.30.
Neskirkja | Opið hús kl. 15. Skólamál og
stjórnmál. Óli Þ. Guðbjartsson, fv. skóla-
stjóri og ráðherra, segir frá uppruna sín-
um á Vestfjörðum, lífshlaupi, skólamálum
og pólitík. Kaffiveitingar á Torginu í upp-
hafi.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Bók-
menntahópur kl. 11. Hjúkrunarfræðingur
á skrifstofu kl. 10. Félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Myndmennt kl. 9,
spænska (framh.) kl. 9.15, spænska
(byrj. ) kl. 10.45, verslunarferð kl. 12.10.
tréskurður kl. 13. Nýtt tölvunámskeið fyr-
ir byrjendur hefst 9. mars kl. 14. Leið-
beinandi María Óskarsdóttir. Skráning og
nánari upplýs. í síma 535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band og handavinna kl. 9, morgunstund
kl. 10, verslunarferð kl. 12.20, upplestur
kl. 12.30, dans fyrir alla með Vitatorgs-
bandinu kl. 14.
Kvæðamaðurinn Helgi Ormssonsendir svar vegna fyr-
irspurnar Vigfúsar M. Vigfússonar
um braginn og rifjaði upp braginn
um rauða Skódann, sem er út-
úrsnúningur á kvæði Davíðs frá
Fagraskógi: „Þú komst í hlaðið á
hvítum hesti.“
Umsjónarmaður studdist við út-
gáfu Helga, sem segist ekki muna
„hvaðan í fjáranum mér barst þessi
kvæðisbrenglun eða hvenær“, og
hafði uppi á kvæðinu í Alþýðu-
blaðinu 20. mars árið 1949.
Þar er það eignað Leifi Leirs og
er yfirskriftin „Kveðja frá sumum
til sumra. (Lauslega þýtt úr norð-
lenzku)“. Skopkvæðið hljóðar svo:
Þú rannst í hlaðið
á rauðum Skóda
og rattið blikaði
í höndum þér.
Hjá grænni heylön
við gin og sóda
ég gleymdi hrífunni
og sjálfri mér.
Ég heyri álengdar
hjólaskrallið
og horfi timbruð
eins langt og sést.
Ó, ef þú kæmir
á braggaballið;
æ, bara ef vissi ég
hvað þú hézt.
Þó líði dagar
og líði nætur
sjást lengi í tröðum
hjólaför.
Er kuldinn næðir
um daladætur
þær dreymir bílgesti
og meira fjör.
María Björnsdóttir hafði einnig
samband vegna bragsins, en hún
hafði lært hann af frænda sínum
Jóni Thór Haraldssyni.
Ólína Þorvarðardóttir orti vísu
að gefnu tilefni og birti á fésbók-
arsíðu sinni:
Raunir Ólaf Ragnar hrjá.
Ráð hans lúð sem hanski.
Segir „nei“ og segir „já“,
síðan „ef“ og „kannski“.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af rauðum Skóda
Ég vil fá að kjósa
Ég er óánægð með þessa undirskriftasöfnun
sem stuðningsmenn Ólafs Ragnars stóðu fyrir.
Ég vil að þjóðin fái að kjósa. Mér finnst illa farið
með Gunnar Andersen, ekki væri ég hissa þó að
Steingrímur ætlaði að koma einhverjum af sín-
um mönnum að.
Selma Ósk.
Góð vísa
Mig langar til að minna á þessi alkunnu
vísdómsorð:
Karlmannsþrá er vitum vér
vefja svanna fangi.
Kvenmannsþráin einkum er
að hann til þess langi.
(Hannes Hafstein)
Selma Júlíusdóttir.
Velvakandi Ást er…
… að sýna
tilfinningasemi.