Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 31
AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Um liðna helgi lá stríðurstraumur gesta efst upp áÖskjuhlíð, hvar fólkið dróst inn í þrenginguna í snúningsdyrum Perlunnar, spýttist síðan framhjá vaxútgáfunni af Skarphéðni Njáls- syni í bláröndóttum buxunum, og breiddi flóðið ekki úr sér og róaðist fyrr en komið var inn á bókamarkað Félags bókaútgefenda. Þar gat að líta sömu breiðurnar af bókum og undanfarin ár; ævisögur, þjóðlegan fróðleik, ljóð, myndlistarbækur, unglingabækur og barna, teikni- myndasögur, skáldsögur og allt hitt. Sannkallaðir happahyljir fyrir von- glaða bókaveiðimenn. Fallhraðin jókst aftur þegar kom að af- greiðslukössunum, þar sem ung- menni slógu inn verð og önnur sóp- uðu bókum í plast áður en gestum var skolað út.    Það er alltaf gaman að koma áþennan stóra bókamarkað en þó er eitthvað sorglegt við það um leið. Að öll þessi vinna höfundanna sé gengisfelld á þennan hátt, oft svo furðu stuttu eftir að bækurnar koma út og eru til umfjöllunar í öllum fjöl- miðlum og hampað á söluborðum bókaverslana – og jafnvel stórmark- aðanna ef þær sleppa inn á þann gestalista. Það toguðust á í mér andstæðar kenndir þar sem ég ráfaði um á milli þunghlaðinna söluborða markaðar- ins og dæturnar voru komnar í barna- og unglingadeildina að velja sér lesefni. Á nokkrum stöðum sá ég glitta í eigin verk; bækur sem ég hafði setið yfir mánuðum saman, stundum við skriftir, stundum við að safna myndum saman; þarna voru þúsundir á þúsundir stafa og orða sem ég hafði slegið inn, ósjaldan fyrir önnur sem var eytt, og ófáar myndir í ferli sem höfðu leitt til þeirra sem voru valdar; þúsundir ekinna kíló- metra; hver svefnlaus nótt eftir aðra yfir tölvunni. Og þarna voru bæk- urnar nú, glottu þær framan í mig eða hrópuðu á hjálp? Ég veit það ekki – en vonandi eignast þær góð heimili. Rétt eins og ég lofaði bókunum sem ég lagði varlega í körfuna.    Ég talaði um andstæðar kennd-ir. Hverjir eru þær? Jú, ann- arsvegar leiði yfir því að öll þessi vinna, öll þessi hugsun, öll þessi sköp- un allra þessara höfunda, íslenskra og erlendra, hafi nú verið gengisfelld svona hastarlega og sé komin á út- söluborðið. Hinsvegar stóð ég mig að því að sjá bækur fullar af sögum sem mig langaði að lesa og hugsunum sem mig langaði að fræðast um, taka þær upp, líta á verðmiðanna og hugsa: Af hverju eru þær svona dýr- ar? Þrátt fyrir að verðið hafi verið lækkað umtalsvert frá því fyrir jólin í fyrra, hittifyrra eða hvenær sem bók- in kom annars út. Alltaf í leit að góð- um díl ...    Ég barst eftir kvíslum mark-aðarins og greip upp bók hér, aðra þar, og þrátt fyrir þessar (eðli- legu) hugsanir um verðið, þá rötuðu nokkrar í körfuna hjá mér. Dæt- urnar bættu við öðrum. Og þegar ég skrifaði undir snepilinn hjá af- greiðslustúlkunni undraðist ég hvað upphæðin var í raun lág. En þá er ekki öll sagan sögð. Í bílnum áttaði ég mig á því að þessar bækur myndu bætast við hækkandi staflana á náttborðinu, í gluggakist- um, ofan á bókaskápum. Ef ég ætti ekki að breyta ísskápnum og bak- arofninum í bókahillur, yrði ég að gera eitthvað í því. Ég greip því tækifærið, fyrst eiginkonan var í vinnuferð erlendis, kom við í hús- gagnaverslun og keypti mér nýjan bókaskáp. Það er eitthvert pláss laust í honum – kannski ég skreppi aftur í Perluna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á bókamarkaðinum Innan um þúsundir bóka má gleyma sér í draumum um sögur, ævintýri og allrahanda fróð- leik sem geti fyllt íbúðir upp í rjáfur. Enda er ekkert heimili án bóka, ekkert líf án lesturs. Öll þessi orð á útsölu » ... að öll þessivinna, öll þessi hugs- un, öll þessi sköpun allra þessara höfunda, íslenskra og erlendra, hafi nú verið gengisfelld svona hastarlega og sé komin á útsöluborðið. MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 Sú fregn barst um heimsbyggðina á dögunum að málverk sem varðveitt hefur verið á Prado-safninu í Madrid og talið var kópía af Monu Lisu Leonardos Da Vincis, líklega fræg- asta málverki listasögunnar, sé ann- að og meira en venjuleg seinni tíma eftirmynd. Eftir að verkið var hreinsað sannfærðust sérfræðingar um að myndin hafi í raun verið mál- uð samtímis meistaraverkinu sem varðveitt er í Louvre í París, á vinnustofu Da Vincis, af einhverjum lærlingi hans eða aðstoðarmanni. Málverkið hefur verið til sýnis í Prado síðustu vikuna og hefur fólk streymt að til að skoða. Myndin verður síðan komin upp á vegg í Louvre eftir tvær vikur og þá gefst tækifæri til að skoða myndirnar af Lisu del Giocondo, sem talin er fyrirsætan, hlið við hlið. Svipurinn er kunnuglegur í nýhreinsuðu útgáf- unni, stellingin og borgarlandslagið í baksýn, en samt er það ekki alveg eins. Listfræðingar segja snilldina vanta, þó vel sé að verki staðið. Sömu efni í báðum Í ljós hefur komið að eftirmyndin í Prado er gerð úr sömu vönduðu efn- um og Da Vinci notaði í frumútgáf- una; bláa litaduftið er mulinn lapis lapsuli-steinn, báðar eru málaðar á valhnetuvið og undirlag beggja er ekki úr gessói, eins og tíðkaðist á 16. öld, heldur sérstakri blöndu hvíts lit- ar og olíu sem Da Vinci þróaði. Þá er talið að útlínur fyrirsæt- unnar hafi verið kópíeraðar á eftir- myndina, og hafi málarinn fylgt þeim nákvæmlega, en hinsvegar hafi hann haft frjálsari hendur hvað bak- grunninn varðar og því er hann skissukenndari en á frummyndinni. Velta menn því fyrir sér hvort Da Vinci hafi haft kaupanda að annarri útgáfu og því látið málað hana sam- hliða því að hann vann að frum- myndinni, eða hvort hinn ónefndi málari hafi viljað læra af meistar- anum með því að herma eftir. Nýhreinsuð eftirmyndin er gló- andi björt og fögur, og telja menn litina í henni vera þá sömu og í hinni mun dekkri Monu Lisu, en sökum frægðar hennar mun ekki verða ráð- ist í hreinsun á fyrirmyndinni. Fjöldinn skoðar nýju Monu Lisu Reuters Eftirmyndin Sérfræðingar telja hana gerða um leið og Mona Lisa. Skapandi mynd- list getur vakið fólk til umhugs- unar. Sumarið 2013 hyggjast bandarísk sam- tök er kallast „Word Above the Street“ breyta 300 vatnstönkum á þaki bygginga í New York-borg með verkum valinkunnra myndlist- armanna – sem reyndar fá aðstoð frá fólki úr öðrum listgreinum á borð við rapparann Jay-Z. Í sam- tökunum eru kunnir sýningar- stjórar og listamenn. Markmiðið með gjörningnum er að vekja fólk til umhugsunar um versnandi stöðu mála hvað ferskvatnsbirgðir jarðar varðar. Meðal listamanna sem skapa verk á tanka eru þau Ed Ruscha, Lawrence Weiner, Tony Oursler, Marilyn Minter og Carrie Mae Weems. Samkvæmt The Art Newspaper munu verkin vera á tönkunum í tólf vikur. Myndlistin uppi á þaki Verk eftir Ruscha á vatnstanki. Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið) Fim 1/3 kl. 19:30 Forsýn Mið 28/3 kl. 19:30 11.sýn Mið 25/4 kl. 16:00 AUKAS. Fös 2/3 kl. 19:30 Forsýn Fim 29/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 Frums Fös 30/3 kl. 19:30 AUKAS. Lau 28/4 kl. 19:30 19.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 31/3 kl. 19:30 AUKAS. Sun 29/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/4 kl. 19:30 13.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 21.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 14.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 22.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 AUKAS. Sun 6/5 kl. 19:30 23.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 AUKAS. Fös 11/5 kl. 19:30 24.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 25.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 AUKAS. Sun 13/5 kl. 19:30 26. sýn Lau 24/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn Athugið - einungis sýnt í vor! Heimsljós (Stóra sviðið) Fim 8/3 kl. 19:30 18.sýn Mið 14/3 kl. 15:00 AUKAS. Fim 15/3 kl. 19:30 síð.sýn Ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins í nýrri leikgerð. Dagleiðin langa (Kassinn) Mið 29/2 kl. 19:30 2.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 10.sýn Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 11.sýn Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 12.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 9.sýn Frumsýnt 24.febrúar Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan) Sun 4/3 kl. 13:30 Sun 11/3 kl. 13:30 Sun 18/3 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 15:00 Sun 11/3 kl. 15:00 Sun 18/3 kl. 15:00 Hjartnæm og fjörmikil sýning Sjöundá (Kúlan) Sun 4/3 kl. 19:30 Mið 14/3 kl. 19:30 Fim 8/3 kl. 19:30 Fim 15/3 kl. 19:30 Ný leiksýning um morðin á Sjöundá Orð skulu standa (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 1/3 kl. 21:00 Fim 8/3 kl. 21:00 Útvarpsþátturinn Orð skulu standa öðlast nýtt líf á sviði! Fanný og Alexander (Stóra sviðið) Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 18/3 kl. 20:00 aukas Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Sun 11/3 kl. 20:00 aukas Fös 23/3 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 aukas Fim 15/3 kl. 20:00 aukas Sun 25/3 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00 Lau 31/3 kl. 20:00 lokas Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið. Sýningum lýkur í mars Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið) Sun 4/3 kl. 14:00 Sun 25/3 kl. 14:00 Sun 15/4 kl. 14:00 Sun 11/3 kl. 14:00 Lau 31/3 kl. 14:00 Sun 22/4 kl. 14:00 Sun 18/3 kl. 14:00 Sun 1/4 kl. 14:00 Sun 29/4 kl. 14:00 Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma NEI, RÁÐHERRA! (Menningarhúsinu Hofi) Lau 3/3 kl. 21:00 Lau 10/3 kl. 22:00 aukas Fös 16/3 kl. 22:00 Lau 10/3 kl. 19:00 Fös 16/3 kl. 19:00 Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Sýnt í Hofi í mars Eldhaf (Nýja sviðið) Mið 29/2 kl. 20:00 13.k Mið 7/3 kl. 19:00 aukas Fim 15/3 kl. 20:00 Fim 1/3 kl. 20:00 14.k Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00 aukas Fös 2/3 kl. 20:00 15.k Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 18/3 kl. 20:00 lokas Sun 4/3 kl. 20:00 16.k Sun 11/3 kl. 20:00 Ath! Snarpur sýningartími. Sýning 7/3 til styrktar UN Women Axlar - Björn (Litla sviðið) Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Nýtt verk úr smiðju Vesturports. Síðustu sýningar Saga Þjóðar (Litla sviðið) Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Sun 11/3 kl. 20:00 Fös 23/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00 Lau 24/3 kl. 20:00 Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Á Stóra sviðinu 11/2 Gói og baunagrasið (Litla sviðið) Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 14:30 Sun 1/4 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 14:30 Sun 18/3 kl. 13:00 Sun 15/4 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Sun 25/3 kl. 13:00 Sun 22/4 kl. 13:00 Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri Mínus 16 (Stóra sviðið) Lau 3/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00 Íslenski Dansflokkurinn - Verk eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.