Morgunblaðið - 26.03.2012, Síða 19

Morgunblaðið - 26.03.2012, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012 Við ramman að rjá Margar skemmtilegar viðureignir sáust á Íslandsmótinu í júdói á laugardag. Bjarni Skúlason sigraði í opnum flokki karla og Margrét Ragna Bjarnadóttir í kvennaflokki. Ómar Ríkisstjórnin hefur efnt til ófriðar um flest helstu úrlausn- arefni þjóðarinnar, gagnstætt því sem ætla hefði mátt. Þegar hún kemst í þröng með mál sín er ósk- að eftir víðtækri aðkomu stjórn- málaflokka og hagsmunaaðila. Þegar til stykkisins kemur er ekkert mark takandi á fagurgal- anum um samráð. Háttur núver- andi stjórnvalda hefur jafnan ver- ið sá að kynda ófriðarbálið, hvar og hvenær sem því verður við komið. Í þessu ljósi eigum við því að skoða nýtt ákall Jóhönnu Sigurðardóttur um víðtækt sam- starf um gjaldmiðilsmálin. Það er bara til marks um að ríkisstjórnin er sundruð í þessu máli, eins og við blasir; líkt og svo miklu víðar. Og í þess- um vandræðum gellur við gamalkunnugt sýnd- arákall um samráð, af því tagi sem við þekkjum. Rifjum aðeins upp 1. Ríkisstjórnin átti þess kost að skapa víð- tæka sátt um lausn í gömlu þrætumáli á meðal þjóðarinnar, deilunni um fiskveiðistjórnun. Sú sátt sem hafði náðst á meðal stjórnmálaaflanna og hagsmunaaðilanna var rofin einhliða af rík- isstjórninni. Niðurstaða ríkisstjórnarinnar var dæmalaust klúður, sem enginn vill nú bera ábyrgð á, þó eigi færri en 10 ráðherrar og þing- menn stjórnarflokkanna, hafi átt höfundarrétt- inn að því. 2. Markvisst var unnið að því að skapa sátt um nýtingu orkuauðlindanna. Það er gamalt átaka- mál í okkar samfélagi. Með því að gera sérstaka rammaáætlun, þar sem orkuauðlindunum yrði skipað í þrjá flokka, nýtingarflokk, biðflokk sem ætti að skoða betur og verndarflokk, var ætl- unin að hefja þessi mál upp fyrir dægurþras og ríg. Þegar verkið var nær fullbúið, rauf rík- isstjórnin sáttina, málið fór inn í gamaldags póli- tískt tog innan og á milli stjórnarflokkanna og friðurinn var úti. Rammaáætlunin var eyðilögð mála um að þýðingarlaust sé að eiga við þau frekara samstarf. Ríkisstjórnin leggur óhikað í stríð við verkalýðshreyfinguna jafnt og atvinnu- lífið. 6. Þá er að nefna þau mál sem snúa að skulda- vanda heimilanna. Þar er öllum ljóst nema rík- isstjórninni að vandinn er gríðarlegur og fjarri því að náð hafi verið utan um hann. Þó lýstu stjórnvöld því yfir fyrir tveimur árum, með for- sætisráðherrann í broddi fylkingar, að vandi heimilanna hefði verið leystur. Kallað var til sýndarsamráðs, en ekkert gert með það sem lagt var fram af öðrum en þeim sem rík- isstjórnin hafði velþóknun á. Málin voru svo knúin í gegn á Alþingi, gegn viðvörunarorðum stjórnarandstöðunnar. Niðurstaðan: Mikill ágreininingur um þetta stóra mál. 7. Ríkisstjórnin heyr núna heilagt stríð gegn atvinnulífinu. Forsætisráðherrann sniðgengur fundi með fulltrúum þess, neitar að hitta að máli fulltrúa heilu atvinnugreinanna og talar með niðrandi hætti til þeirra. Þegar unnið er að grundvallarbreytingum á starfsumhverfi sjáv- arútvegsins, er til að mynda sjómönnum, út- gerðarmönnum og smábátasjómönnum haldið utan við það ráðslag allt, nema til málamynda. Hið sama á við um aðra hagsmunaaðila. Því miður hefur ríkisstjórninni tekist það á sínum óburðuga ferli að efna til ófriðar um hvert málið á fætur öðru, eins og þessi örstutta og lítt tæmandi upptalning ber með sér. Hennar verð- ur því fyrst og síðast minnst fyrir einstakan hæfileika til þess að kjósa ævinlega ófriðinn þó svo að friður sé í boði og gera þar með að að- alsmerki sínu fleyg ummæli sem jafnan hafa verið kennd við ójöfnuð. og það sem frá ríkisstjórninni mun koma verður bara pólitísk yfirlýsing hálfdauðrar ríkisstjórnar, sem allir vita að lifir ekki af næstu kosningar. 3. Evrópumálin hafa klofið þjóð- ina, eftir að ríkisstjórnin, með full- tingi Vinstri grænna, ákvað að sækja um aðild að ESB. Það var gert í miklu ósætti, samnings- umboðið var veikt vegna þess ósam- lyndis sem um málið ríkti á meðal þeirra sem ábyrgðina báru. Þrátt fyrir að allt hafi núna breyst í Evr- ópu er enn þybbast við. Andstaðan við aðildina eykst hjá þjóðinni. Sam- fylkingin veit sem er að hún getur bara unnið að framgangi þess í slagtogi við VG, sem hefur látið svínbeygja sig í málinu. Því er feigðarförinni haldið áfram, ósættið magnað og átökin aukin. 4. Um eitt hafa stjórnmálaflokkarnir á Alþingi verið sammála, þrátt fyrir átök um önnur mál. Það er að við endurskoðun stjórnarskrárinnar ætti að vera sem víðtækust sátt. Nú hefur verið horfið frá þessu. Í fyrsta sinn á gjörvöllum lýð- veldistímanum, er nú endurskoðun stjórn- arskrárinnar keyrð áfram í fullkomnu ósætti. Og það sem enn verra er. Það veit í rauninni enginn lengur hvar þetta mikilvæga mál stend- ur, né hvert menn ætla að stefna. Upphafið lof- aði ekki góðu, þar sem byrjað var á því að snið- ganga niðurstöðu Hæstaréttar. Stjórnvöld ætla að keyra áfram vinnuna án þess að gera hina minnstu tilraun til þess að skapa víðtækan grundvöll, eða almenna sátt um stjórnarskrána sjálfa. 5. Stjórnvöld hafa ítrekað blekkt atvinnulífið og verkalýðshreyfinguna til samstarfs, und- irritað yfirlýsingar, sem hafa verið kallaðar því hátimbraða nafni Stöðugleikasáttmáli. En það er eins og stjórnvöld hafi hvorki skeytt um skömm né heiður. Sómatilfinningin er engin. Ríkisstjórnin hefur farið létt með að svíkja þessi loforð sem voru svo hátíðlega gefin. Nú er svo komið að enginn treystir orðum stjórnvalda. Verkalýðshreyfingin og atvinnulífið eru sam- Eftir Einar K. Guðfinnsson »Ríkisstjórninni hefur tekist það á sínum óburðuga ferli að efna til ófriðar um hvert málið á fætur öðru. Einar K. Guðfinnsson Höfundur er alþingismaður. Ófriðarbálið kynt Ég sat fund, sem hreyfingin „Já Ísland“ hlutaðist til um að haldinn yrði í Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri 19. mars. Skólinn hafði sett það skynsamlega hlutleysisskilyrði að einhver sæti fundinn af hálfu þeirra sem mæla gegn aðild að ESB. Fulltrúi „Já Ísland“ hóf inn- gangserindi sitt á eftirfarandi yfir- lýsingu: „Ísland er ekki framtíðar- landið.“ Síðan fylgdi löng hrollvekja um örlög íslenskra námsmanna og ungs fólks al- mennt, ef haldið yrði í íslensku krónuna. Námslán þeirra og íbúða- lán myndu ítrekað tvöfaldast. Öðru máli gegndi um aðild að ESB, þar sem leitað yrði í skjól evrunnar. Þar ríkti stöðugleikinn einn. Sú mynd sem „Já Ísland“ dró upp á þessum fundi af stöðugleika evrunnar stenst ekki skoðun. Mið- að við vantrú samtakanna á fram- tíð Íslands, vaknar sú spurning hvort samtökin væru ekki betur nefnd „Nei Ísland, já ESB“. Á fundinum kom í ljós að nem- endur voru vel að sér, opnir fyrir upplýsingum en að því er virtist ónæmir fyrir trúboði. Tómas Ingi Olrich Öfug- mæli Höfundur er fyrrv. alþingismaður og ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.