Morgunblaðið - 26.03.2012, Side 26

Morgunblaðið - 26.03.2012, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012 Í dag kveðjum við með miklum söknuði og trega yndislegan og góðan strák. Jón Björn, eða Jónbi eins og hann var kallaður, var jákvæður og átti sér stóra drauma. Undanfarin ár hefur Jónbi barist við erfið veikindi og átti hann marga góða að sem stóðu við bakið á honum, þá sér- staklega eiginkonu sína, Guð- björgu. Saman stóðu þau hjónin sig eins og hetjur, og þrátt fyrir erfiða tíma lét Jónbi aldrei deig- an síga. Við vorum svo heppin að fá að kynnast Jónba þegar hann starfaði sem verslunarstjóri í Krónunni. Hann var alltaf hress í vinnunni, góða skapið skein af honum, það voru algjör forrétt- indi að fá að vinna með honum. Jónbi tókst á við veikindi sín með jákvæðni og bjartsýni, það kom aldrei til greina að gefast upp, enda mikil hetja og baráttumað- ur. Hann var fyrirmynd okkar allra, og kom fram við okkur eins og jafningja þrátt fyrir ungan aldur okkar flestra. Hann var sanngjarn og þægilegur í sam- skiptum. Þegar til veikindanna kom kallaði hann okkur á starfs- mannafund og sagði okkur frá stöðunni. Hann leyfði okkur að fylgjast með baráttu sinni við veikindin, og fyrir það erum við honum afar þakklát. Elsku vinur okkar, nú er kom- ið að kveðjustund. Þú ert núna kominn á góðan stað þar sem þú ert laus við þjáninguna, og megi Guð geyma þig. Elsku Jónbi, við munum aldrei gleyma þér, allar góðu minningarnar um þig munu Jón Björn Marteinsson ✝ Jón Björn Mar-teinsson fædd- ist í Reykjavík 6. júlí 1984. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 14. mars 2012. Útför Jóns Björns fór fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 24. mars 2012. lifa. Guðbjörg, þú ert ein sú sterkasta kona sem við þekkj- um. Þú varst klett- urinn hans Jónba í gegnum allt, þið börðust saman eins og hetjur. Við vott- um þér og fjölskyld- um ykkar okkar dýpstu samúð og megi Guð fylgja ykkur um komandi tíma Kveðja, Starfsfólk Krónunnar í Vest- mannaeyjum 2008-2010, Bjartey Ósk, Jóhanna Rut, Jóna Þóra, Bylgja Dís, Bylgja Sif, Hanna Sigga, María Rut, Jón Þór, Sævar, Anton, Alexandra, Þórunn, Sara Rún, Ólöf, Elín Björk, Drífa, Elvar, El- ísabet, Eva Dögg, Særós Eva, Aníta Marý, Dóra Kristín, Gunnlaugur Örn. Elsku Jónbi minn. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég er búin að setjast niður og reyna að skrifa þetta en stað- reyndin er sú að ég er hreinlega ekki tilbúin að kveðja þig. Erf- iðast finnst mér þó að vera svona langt í burtu og geta ekki fylgt þér alla leið og staðið við hlið Guggu hetju en hugur minn verð- ur í Eyjum hinn 24. mars. Þú ert sannkölluð hetja. Þú gafst aldrei upp, varst alltaf svo jákvæður og lífsglaður, gafst sko ekkert eftir. Að lifa lífinu lifandi og í núinu er eitthvað sem þú kenndir mér og það mun ég alltaf gera. Þegar ég fer að minnast þín eru ótal margar skemmtilegar minningar sem ég á með þér, Guggu og Camillu. En sú sem stendur mér efst í minni er brúð- kaupið, yndislegur dagur í alla staði. Elsku vinur, hvíl í friði, þín er saknað. Minningarnar eiga alltaf sérstakan stað í mínu hjarta. Standandi, Standandi. Auður. Þegar ég fékk fregnir af því að baráttu Jóns Björns frænda míns væri að ljúka og að það styttist í að hann fengi hvíld frá veikindum sínum varð mér hugsað til þess að lífið væri ekki sjálfgefið. Það er ósanngjarnt að svo ungur maður falli frá í blóma lífsins. Mæður okkar Jóns Björns eru systur og samskipti þeirra hafa alltaf verið mikil. Við Jón Björn vorum jafnaldrar og lékum okkur oft á Meltröðinni hjá ömmu Gunnvöru og afa Birni þegar við vorum börn. Á unglingsárunum hittumst við sjaldnar en eftir að hann veiktist lágu leiðir okkar aftur saman. Hann og Guðbjörg Erla eiginkona hans leyfðu mér og öðrum ættingjum sínum og vinum að fylgjast með baráttu hans við krabbameinið. Ég fékk að heimsækja hann og með okkur myndaðist góður vinskapur. Mér þótti virkilega gaman að spjalla við hann og kynnast honum upp á nýtt. Við áttum margar góðar stundir saman á spítalanum, ann- aðhvort með mömmu minni sem var dugleg að elda mat og færa honum á kvöldin, eða tvö ein. Hann sagði mér meðal annars skemmtilegar sögur af bróður sínum Hilmari og því hve stoltur hann væri af mömmu sinni, henni Guggu frænku. Jón Björn var sérstaklega já- kvæður maður og við krabba- meinið barðist hann af miklum krafti. Það var aðdáunarvert hvernig hann gat alltaf séð það jákvæða við hvert skref í barátt- unni og hve æðrulaus hann var. Hann gafst aldrei upp þrátt fyrir hvert áfallið á fætur öðru. Hann var svo jákvæður að í einni heimsókn minni á spítalann sagðist hann í raun stundum þakka fyrir að hafa fengið krabbamein. Hann nefndi nokkra hluti sem hann hefði breytt í kjöl- far greiningarinnar og hvernig hann leit lífið öðrum augum eftir hana. Hann sagði meðal annars að nú hefði hann aftur tekið upp samband við frændsystkin sín og að mörg okkar væru nú bara frekar skemmtileg. Þessa dagana er hugur minn stöðugt hjá Guggu frænku minni. Missir hennar er mikill og óverð- skuldaður. Ég veit að Jóni Birni þótti afar vænt um mömmu sína. Hann sagði mér að hann hefði lært af henni að gefast aldrei upp því hún hefði þurft að berjast fyr- ir svo mörgu á ævi sinni. Ég er einnig viss um að frá mömmu sinni hafi hann fengið alla sína helstu kosti sem nýttust honum í baráttunni og gerðu hann að því sem hann er, því hann er og verð- ur til í minningu okkar. Mér finnst erfitt að komast ekki til Vestmannaeyja til að kveðja Jón Björn en í staðinn kveiki ég á kertum og rifja upp minningar af þessum góða frænda mínum. Guggu frænku, Guðbjörgu Erlu, Matta og fjöl- skyldum þeirra sendi ég innileg- ar samúðarkveðjur. Missir ykkar er mikill. Kolbrún Ingibjörg Jónsdóttir. Ég man þegar Jón Björn var lítill og stríðinn strákur. Ég man eftir þeim bræðrum í góðum gír. Hilmari Þór og Jóni Birni Ég man eftir Hilmari, Jóni Birni og Guggu frænku. Ég man þau hlæjandi. Ég man hvað þau voru oft kát. Ég man þegar þau komu til Ólafsvíkur þegar við vorum krakkar og við klæddum köttinn í dúkkuföt. Ég man unglingsárin með öll- um prakkarastrikunum. Ég man mikið fjör og læti á Meltröðinni hjá ömmu og afa. Ég man þegar ég var allt í einu minni en litli frændi minn. Ég man hvað Gugga frænka var alltaf ánægð með strákana sína. Ég man hvað lífið var erfitt þegar Hilmar dó. Ég man hvað Gugga var þá ánægð með Jón Björn sinn. Ég man hvað það tók á Guggu mína þegar Jón Björn greindist með krabbamein. Ég man þegar ég fór í heim- sókn til litla frænda á spítalann og var búin að kvíða því í marga daga að það yrði erfitt en svo var þetta með skemmtilegri heim- sóknum sem ég hef farið í. Ég man þegar við fengum hlátursköst á spítalanum. Ég man þegar mér leið eins og eftir skemmtikvöld eftir að hafa heimsótt flotta frænda minn fár- veikan. Ég man hvað ég var oft hissa á kátínu frændans og baráttugleði og ótrúlegri lífsgleði. Ég man svo margt sem ungur frændinn kenndi mér í löngu og oft erfiðu ferli undanfarin ár. Ég man þegar ég var lasin í fyrra og hann kallaði mig svart- hvítu hetjuna sína, samt voru veikindi mín svo lítilvæg og auð- veld miðað við hans. Ég man loforðið sem ég gaf honum í síðasta sinn sem ég sá hann. Ég man svo margt og það hjálpar í sorginni. Mínar dýpstu samúðarkveðjur sendi ég Guggu frænku minni sem hefur nú misst báða strák- ana sína. Það er ekki hægt að skilja hvers vegna lífið er eins og það er. Guðbjörgu Erlu, eftirlif- andi eiginkonu hans, votta ég einnig samúð mína og öllum sem sakna. Ég bið Guð að gefa okkur öll- um styrk og frið í hjarta. Stórt skarð er höggvið í barnabarna- hópinn frá Meltröð en minning þín, Jón Björn, mun lifa með okk- ur. Hvíl í friði. Þín frænka, Helga Björk Jónsdóttir. Ljúfur, lífsglaður og góður drengur er fallinn frá. Stórt skarð er höggvið í hópinn okkar. Upp koma margar minningar sem ná yfir langan tíma en mörg okkar þekktum Jón Björn frá því við vorum einungis lítil 6 ára börn á okkar fyrsta skóladegi. Í gegn- um skólagönguna tengdumst við svo öll mjög sterkum böndum sem halda enn í dag, 12 árum frá útskrift. Jón Björn tók upp á ýmsu á okkar skólagöngu en bekkurinn okkar var ekki þekktur fyrir að vera sá stilltasti í sögu skólans. Við skemmtum okkur þó konung- lega yfir öllum prakkarastrikun- um og ekki annað hægt en að brosa út í annað þegar hugsað er til baka. Við hittumst flest fyrir einu og hálfu ári á 10 ára útskriftaraf- mæli okkar en Jón Björn var einn af þeim sem skipulögðu þann hitting. Hann lagði mikinn metn- að í að setja saman gott kvöld með áherslu á að njóta augna- bliksins. Þessu kvöldi munum við sem mættum seint gleyma en Jón Björn var hrókur alls fagn- aðar eins og svo oft áður. Jón Björn barðist af mikilli hetjudáð við óvin sem því miður náði yfirhöndinni að lokum. Bar- átta hans einkenndist af svo mik- illi jákvæðni að við sem eftir stöndum hreinlega skiljum ekki hvaðan hann fékk þennan mikla styrk. Honum var ofarlega í huga að minna okkur á hvað lífið er stutt og breytilegt og hversu mikilvægt er njóta hverrar ein- ustu mínútu, hvers einasta dags. Við munum halda fast í þennan boðskap og minna hvert annað á að fylgja þessum orðum hans í framtíðinni. Við sendum okkar samúðar- kveðjur til Guðbjargar, eigin- konu vinar okkar, sem hann elsk- aði svo heitt, til Guðbjargar móður hans, sem var kletturinn og hetjan í lífi hans og til Mar- teins föður hans. Hvíldu í friði, kæri vinur. Fyrir hönd bekkjar- og skóla- félaga úr Digranesskóla Karen Jóhannsdóttir. Kæri Jón Björn. Mig setti hljóðan þegar hún mamma þín hringdi í mig til að láta mig vita að þú værir fallinn frá. Við Inga munum eftir þér pínulitlu barni í burðarrúmi þeg- ar ég þurfti að ná í þig eftir veik- indi þegar þú lást á barnaspítala Hringsins. Þú áttir alltaf vissan stað í hjarta okkar Ingu. Þegar þið tókuð rúnt á hjólastólnum hennar um gangana niðri í Há- túni, það var svo gaman hjá ykk- ur Hilmari bróður þínum þegar þið komuð til okkar. Megi góður guð vernda þig og blessa, Jón Björn minn, við sökn- um þín voða mikið. Við sendum mömmu þinni og pabba okkar innilegustu samúðarkveðjur, svo og allri móðurfjölskyldu þinni. Megi birta ljóssins skína ykk- ur öllum. Kristinn G. Guðmundsson og Ingveldur Einarsdóttir. Elsku amma mín. Skrítið að þú sért farin á vit ævintýra og ferðalaga. Ég tek enn upp sím- ann til að heyra í þér en legg hann svo frá mér með sorg í hjarta. Þú varst alveg einstök kona, amma og vinkona. Alltaf var hægt að treysta á að þú stæð- ir með manni í gegnum súrt og sætt og gátum við bablað enda- laust um allt milli himins og jarð- ar. Alltaf var gott í Bólstaðarhlíð- inni að vera. Frá unga aldri fann ég afsakanir til að verða eftir til að gista og vera í kósíheitum hjá ömmu og afa. Það væri nú nauð- synlegt að aðstoða hana við að skúra uppi í Kennó! Já eða kannski frekar hlaupa um og prakkarast en það er önnur saga sem var aldrei sögð því alltaf vor- um við barnabörnin svo stillt. Það varð svo auðveldara nokkr- um árum seinna þegar það var svo heppilegt að flest sundmótin Anna Jónína Þórarinsdóttir ✝ Anna JónínaÞórarinsdóttir fæddist 3. febrúar 1925 á Fljótsbakka í Eiðaþinghá. Hún lést á Borgarspít- alanum í Fossvogi 5. mars 2012. Útför Önnu fór fram frá Háteigs- kirkju 13. mars 2012. sem ég keppti á voru í Reykjavík. Að sjálfsögðu væri það tómt rugl að keyra brautina snemma morguns, við amma vorum mikið sammála um það! Seinna tóku svo við háskólaárin, þá fengum við Rafn líka oft að vera hjá þeim og urðum hálf- gerðir heimalningar. Ófáar stundirnar áttum við líka saman á kaffihúsum með kaffibolla og gúmmelaði í hendi, þess mun ég sakna mikið. Mér mun renna seint úr minni ferðalag þitt til okkar í Kanada. Það var yndislegur tími sem við áttum saman. Já, áttræð og gal- vösk óðstu um borgir og bæi með okkur og lést ekki þitt eftir liggja. Upp í CN-turninn þar sem við vorum lofthræddari en moldvörpur, skoðuðum dýrð Ni- agara-fossanna, gamla bæjarins Huntsville, nutum kaffihúsanna í botn og svo mætti lengi telja. Einnig vorum við duglegar í mollunum, því má nú ekki gleyma. „Þetta er bara svo skít- billegt!“ heyrðist ósjaldan í minni ánægðri með úrval og verð. Það var alveg æðislegt að fá að upp- lifa þetta með þér og eigum við margar góðar minningar frá þessum tíma. En nú er að leiðarlokum komið hjá okkur amma mín og takk fyr- ir allar þær stundir sem við átt- um saman. Bið að heilsa öllum fyrir handan. Ástarkveðja, Anna Valborg, Rafn Alexander, Guðmundur Leo og Greta Björg. Það tók mig sárt að heyra að hún Anna væri farin. Þessi hressa lífsglaða kona sem reynd- ist mér svo vel á viðkvæmum aldri. Ég man það vel þegar fjöl- skyldan mín þurfti að búa þröngt um tíma, þegar við fluttum úr Hlíðunum út á Seltjarnanes, að þá fékk ég sextán ára gamall að búa í nokkra mánuði hjá Önnu og Jóa í Bólstaðarhlíðinni. Það var eins og ég væri hennar eigin son- ur, slíkar voru móttökurnar og aðhlynningin sem ég fékk. Þarna tengdist ég Önnu þannig að ég notaði mörg tækifæri fram á full- orðinsár til að koma við í Ból- staðarhlíðinni og fá mér kaffi og spjalla ef tími var á milli verka. Alltaf var til með kaffinu og alltaf var maður velkominn á það heim- ili. Á unglingsárunum áttum við félagar Óskars og Tolla griðastað á heimili þeirra Önnu og Jóa. Al- veg var ótrúleg þolinmæðin sem þau sýndu gagnvart okkur, hvort sem það var þegar við spiluðum handbolta með sokkavöndli á ganginum, því ekki var hægt að ganga um íbúðina á meðan, nú eða þegar við sátum langt fram á nætur að spila og fórum jafnvel út á rúntinn á milli. Elsku Anna, hvíldu í friði. Þorleifur Jónasson. Erla, góða Erla! eg á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð, því kveldsett löngu er. (Stefán frá Hvítadal) Eftir þessu fallega ljóði var Erla vinkona mín skírð. Hún lést eftir erfiða legu meðan við hjónin dvöldum erlendis. Ég er þó ánægð að fá að fylgja henni til grafar. Erla var Hnífsdælingur eins og ég en ég kynntist henni fyrst að ráði nokkru áður en ég fluttist á Akra- nes þegar Svala dóttir mín fékk samastað á heimili þeirra Gísla að tilhlutan frænku þeirra beggja þegar hún kom í Fjölbrautaskól- ann á Akranesi. Eftir að ég flutti urðum við mjög góðar vinkonur og mér var tekið opnum örmum á heimili þeirra hjóna og Erla tók mig fljótlega með sér í sjúkravini, sem var deild innan Rauða kross- ins. Og fyrir nokkrum árum stofn- Erla Guðmundsdóttir ✝ Erla Guð-mundsdóttir, húsfreyja á Akra- nesi, fæddist í Hnífsdal 5. janúar 1931. Hún lést á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Höfða á Akranesi 4. mars 2012. Útför Erlu fór fram frá Akra- neskirkju 16. mars 2012. uðum við nokkrar innan þess hóps prjónahóp sem prjónar föt til að senda út fyrir Rauða krossinn. Þessi hóp- ur hefur fer nú stækkandi og henn- ar er sárt saknað, þar sem hún var mjög flink prjóna- kona. Erla og Gísli voru mjög samhent hjón og áttu fallegt heimili og indælan sumarbústað í Ölveri. Snyrtimennska og mynd- arskapur var allsráðandi á báðum stöðum. Þau hjónin voru nýflutt á Dvalarheimilið Höfða vegna veik- inda og var vel búið að þeim þar. Við Júlíus þökkum elsku Erlu fyrir allt og sendum Gísla og allri fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Jóna Kristrún Sigurðardóttir. Með einlægri þökk fyrir sam- fylgdina góðu vil ég hér minnast elskulegrar fyrrverandi tengda- móður minnar, Erlu Guðmunds- dóttur, sem lést hinn 4. mars sl. Sárt er að sakna þín, en huggun að vita þig nú lausa undan þján- ingum þínum. Ég veit að svo ynd- islegri sál sem þinni verður ekki fótaskortur í nýjum heimkynnum. Í fullvissu þess að líkamsdauðinn er flutningur yfir á æðra tilveru- stig samgleðst ég þér yfir að hitta á ný gengna ástvini. Það er margs að minnast frá þeim rúmlega 30 árum sem ég hef átt þess kost að vera samvistum við þig og er ég forsjóninni þakk- lát fyrir að hafa átt slíka gersemi sem tengdamóður. Kveðjuorð þín til mín og hið síðasta faðmlag frá þér munu lifa í hjarta mér að ei- lífu. Elsku Gísli og fjölskylda. Miss- ir ykkar er mikill, en megi minn- ingin um góða konu og lífsföru- naut um árabil styrkja ykkur í sorginni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Áslaug Ragnarsdóttir. Elsku Erla. Mig langar til að þakka þér fyrir allar þær stundir sem þú gafst mér þegar ég var að koma á Skagann til Maju systur. Litum við stundum inn hjá þér, hvort sem var fyrir hádegi eða eft- ir mat. Þú sýndir okkur handa- vinnu þína og varst svo stolt af. Alltaf var borðið hjá þér fullt af kræsingum, maður fór aldrei svangur frá þér. Það var gott að koma til ykkar hjóna og gaman var að fylgjast með þegar þið vor- uð að byggja nýja húsið ykkar. Erla mín, nú hefur þú kvatt þenn- an heim en ég veit að þér líður bet- ur þar sem þú ert núna, ég minnist þín í hjarta mínu. Samúðarkveðj- ur sendi ég Gísla þínum, börnum ykkar og fjölskyldum þeirra. Ingibjörg Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.