Morgunblaðið - 26.03.2012, Síða 31
gullni meðalvegur væri jafnan far-
sælastur þegar hart væri deilt um
tvo ólíka kosti.
Úr heimspeki í lögfræði
Ágúst var í Fellaskóla og síðan í
Seljaskóla, stundaði nám við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti og lauk
þaðan stúdentsprófi árið 1993.
Hann stundaði síðan nám í heim-
speki við Háskóla Íslands 1993-94,
en söðlaði síðan um, stundaði nám í
lögfræði við Háskóla Íslands og
lauk þaðan embættisprófi í lög-
fræði árið 2000.
Ágúst Geir var í námsvist hjá
Hérðasdómi Reykjavíkur 1998, hjá
skattstjóranum í Reykjavík,
nefndasviði Alþingis og á Málflutn-
ingsskrifstofunni Suðurlandsbraut
4a í Reykjavík árið 1999.
Á framhaldsskóla- og háskóla-
árunum sinnti Ágúst margvíslegum
sumarstörfum. Hann var í vega-
vinnu hjá Reykjavíkurborg, var í
fiskvinnslu í frystihúsum og vann
við löndun. Þá stundaði hann sjó-
mennsku um skeið.
Ágúst Geir var nefndarritari
hjá nefndasviði Alþingis á ár-
unum 2000-2003, lögfræðingur
hjá umboðsmanni Alþingis frá
ársbyrjun 2004-2005, var lögfræð-
ingur við heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið 2005-2008, var
skipaður skrifstofustjóri í félags-
málaráðuneytinu 2008-2009, og
síðan skipaður skrifstofustjóri í
forsætisráðuneytinu og starfar
þar nú á skrifstofu yfirstjórnar
og sem staðgengill ráðuneyt-
isstjóra.
Með hugann við langhlaup,
lögfræði, heimspeki og hug-
leiðslu
Ágúst er meðlimur í brids-
klúbbnum Sjúrður Fánisbani.
Hann er mikill áhugamaður um
hlaup og útivist, er meðlimur í
skokkhópnum Valur Skokk, hefur
hlaupið maraþon og Laugavegs-
hlaupið og stefnir nú ótrauður á
Amsterdammaraþonið næsta
haust með tilheyrandi æfingum
og undirbúningi.
Þá hefur Ágúst umtalsverðan
áhuga á yoga, hugleiðslu og heim-
speki. Hann les einnig lögfræði í
frístundum sínum, hlustar á góða
tónlist og nýtur þess að stunda
stangveiði með góðum félögum
þegar tóm gefst til frá amstri
hversdagslífsins.
Fjölskylda
Kona Ágústs er Ingibjörg
Kristín Eiríksdóttir, f. 16.12.
1973, hjúkrunarfræðingur við
Landspítala - háskólasjúkrahús.
Foreldrar hennar eru Eiríkur
Ragnarsson, f. 20.3. 1956, skip-
stjóri í Reykjavík, og k.h., Jak-
obína Hjördís Ragnarsdóttir
Gröndal, f. 28.8. 1951, húsfreyja.
Dóttir Ágústs og Ingibjargar
Kristínar er Ísfold Líf, f. 15.4.
1994, framhaldsskólanemi.
Systur Ágústs eru Hulda
Hrönn Ágústsdóttir, f. 1965,
kennari, búsett í Reykjavík;
Vilma Björk Ágústsdóttir, f. 1966,
kennari, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Ágústs eru Ágúst
Þór Oddgeirsson, f. 12.3. 1938,
verkamaður í Reykjavík, og k.h.,
Erna Anine Vilmarsdóttir Thor-
stensen, f. 14.2. 1945, versl-
unarmaður í Reykjavík.
Úr frændgarði Ágústar Geirs Ágústssonar
Ole
Thorstensen
Amine Ernstine
Thorstensen
Svanlaugur
Jónasson
Kristjana Rósa
Þorsteinsdóttir
Guðlaug Helga
Ólafsdóttir
Níels
Pedersen
Ágústa María
Finnbogadóttir
Ágúst Geir
Ágústsson
Ágúst Þór Oddgeirsson
verkam. í Rvík.
Erna Amine Thorstensen
húsfr. í Rvík
Klara Hulda Svanlaugsdóttir
hjúkrunarkona í Rvík.
Vilmar Herbert Oleson
Thorsteinsen verkam. í Rvík.
Kamilla Pedersen
húsfr. í Rvík.
Carl Alfreð Nielsen
verkstj. í Rvík.
Níels Kristján
Nielsen
Ágúst Geir Ágústsson
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
103 ára
Georg Ólafsson
95 ára
Guðbjörg Andrésdóttir
90 ára
Ingvar Guðmundsson
85 ára
Guðbjörg Haraldsdóttir
Guðrún Haraldsdóttir
Jakobína Björg Jónasdóttir
Jóhanna Þórólfsdóttir
Þóra Þorsteinsdóttir
80 ára
Benedikt Eiríksson
Sigurbjörg Pálsdóttir
75 ára
Bragi Gunnarsson
Dagur Jóhannesson
Garðar St. Scheving
Guðmundur Valdimarsson
Guðrún Vigfúsdóttir
Kristján S. Kristjánsson
Kristrún Stefánsdóttir
Ólafur Þór Magnússon
Regína Steinsdóttir
70 ára
Guðný Jónasdóttir
Jóhanna K. Kristjánsdóttir
Sigrún Ragna Jónsdóttir
Steinunn Ingimarsdóttir
Svanhildur Elsa Jónsdóttir
60 ára
Alda Jónsdóttir
Berta K Gunnarsdóttir
Brynhildur Áslaug Egilson
Gísli Jónasson
Guðfinna Þorgeirsdóttir
Jón Guðmundsson
Lilja Ruth Michelsen
María Vilbogadóttir
Sigríður Sigurbjörnsdóttir
Þorvaldur Egilson
50 ára
Árni Guðmundsson
Björn Grétar Ævarsson
Bragi Guðmundsson
Einar Heiðar Birgisson
Elfa Björk Jóhannsdóttir
Gabriella E. Þorbergsdóttir
Guðrún Þorleifsdóttir
Gunnar Ingimarsson
Kristinn Sigurgeirsson
Sigríður Magnúsdóttir
Sigurður V. Sigurðarson
Sigurlaug S. Harðardóttir
Sokol Hoda
40 ára
Alda Þórunn Jónsdóttir
Ágúst Geir Ágústsson
Bjarki Þór Baldvinsson
Erla Hlín Hjálmarsdóttir
Guðjón Jóhannesson
Guðmundur B. Agnarsson
Guðríður Jónsdóttir
Hjörleifur Harðarson
Hörður Guðmundsson
Marian Kozlowski
Ólöf Una Ólafsdóttir
Robert Kowalewski
Sigríður Helgadóttir
Sigrún Hulda Jónsdóttir
Steinar Már Björnsson
Víkingur Kristjánsson
Wanli Ye
30 ára
Ariel Palada
Auður Sigbergsdóttir
Ásta Sigríður Skúladóttir
Birgir Már Hilmarsson
Gunnar Guðjónsson
Hrannar Einarsson
Ingveldur Sigurðardóttir
Jonas Trainys
Katrín Elísa Einisdóttir
Magnea Magnúsardóttir
Sandra Lind Valsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Sigrún Hulda
fæddist í Reykjavík. Hún
lauk kennaraprófi og er
leikskólastjóri í heilsuleik-
skólanum Urðarhóli.
Eiginmaður Atli Óm-
arsson, f. 1966, sölu-
fulltrúi. Börn þeirra: Ant-
on Örn, f. 1995; Margrét
Sif, f. 1997, og Diljá Björk,
f. 2000.
Foreldrar Jón Gíslason, f.
1947, fyrrv. tollvörður, og
Diljá Margrét Gúst-
afsdóttir, f. 1947, bókari.
Sigrún Hulda
Jónsdóttir
30 ára Ásta fæddist í
Neskaupstað og ólst upp
á Miðbæ í Norðfirði. Hún
lauk MA-prófi í mann-
auðsstjórnun frá Háskóla
Íslands 2011 og starfar nú
hjá Íslandsbanka.
Maður Óskar Sturluson,
f. 1983, lögfræðingur hjá
sýslum. í Reykjavík.
Foreldrar Ragnhildur
Skúladóttir, f. 1954, skrif-
stofumaður, og Skúli
Gunnar Hjaltason, f. 1953,
rafvirki.
Ásta Sigríður
Skúladóttir
Steindór S. Gunnarsson, prent-smiðjustjóri í Steindórsprenti,fæddist 26. mars 1889. Hann
var sonur Gunnars Björnssonar, skó-
smiðs í Reykjavík, og Þorbjargar
Pétursdóttur húsmóður.
Meðal bræðra Steindórs var Þor-
leifur, stofnandi Félagsbókbandsins
sem var fullkomnasta bókbandsstofa
hér á landi og stórfyrirtæki á sinni
tíð. Þorleifur kom einmitt mjög við
sögu í Íslenskum aðli Þórbergs Þórð-
arsonar enda góðvinur hans. Aðrir
bræður Steindórs voru Jón, skrif-
stofustjóri í Hamri, Gunnar, yf-
irkokkur á Borginni og Pétur heild-
sali, afi Péturs Blöndal.
Eiginkona Steindórs var Jóhanna
Petra Bjarnason og eignuðust þau
fjögur börn.
Steindór hóf prentnám í Fé-
lagsprentsmiðjunni 1903, stundaði
framhaldsnám í Teknisk Selskabs-
skole í Kaupmannahöfn og var prent-
smiðjustjóri Félagsprentsmiðjunnar
1916-33 en hafði verið meðeigandi
hennar frá 1910. Hann stofnaði Stein-
dórsprent 1934 og var forstjóri þess
síðan. Steindórsprent var fyrst til
húsa í Aðalstræti 4, síðan í Kirkju-
stræti 4 lengi í Tjarnargötu 4, og loks
í Ármúla 5 frá því á sjöunda áratugn-
um.
Er Steindór lét af störfum tók
tengdasonur hans við, Hálfdán Stein-
grímsson, en hann var fram-
kvæmastjóri Steindórsprents um
áratuga skeið. Undir hans stjórn festi
Steindórsprent kaup á Gutenberg og
síðan Prentsmiðju Árna Valdimars-
sonar. Steindórsprent var lengi ein
öflugasta prentsmiðja landsins og vel
búin tækjum. Hún var að lokum seld
Odda um síðustu aldamót.
Auk þess að vera mikilhæfur
prentsmiðjueigandi gaf Steindór út
fjölskyldublaðið Vikuna og Við-
skiptaskrána um árabil. Þá var hann
helsti hvatamaður að stofnun Prent-
skólans.
Steindór lést 29. mars 1948.
Merkir Íslendingar
Steindór S.
Gunnarsson
Steindór S. Gunnarsson
30 ára Sandra Lind
fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Hafnarfirði. Hún
hefur nú nýlokið ML-prófi
í lögfræði frá Háskólanum
í Reykjavík.
Maður Kristján Guðberg
Sveinsson, f. 1979, nemi
og þjálfari yngri flokka í
knattspyrnu hjá Haukum.
Foreldrar Valur Svein-
björnsson, f. 1956, rekstr-
arverkfræðingur, og Hall-
dóra Hafsteinsdóttir, f.
1959, skólaliði.
Sandra Lind
Valsdóttir
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11 ástæður