Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fullyrðingar um að Samherji hf. á
Íslandi sé að flytja fjármuni úr landi
til dótturfyrirtækisins Icefresh
GmbH í Þýskalandi og um undir-
verð, brot á kjarasamningum og
gjaldeyrislögum eru fráleitar, sam-
kvæmt tilkynningu Samherja í gær.
Þar er m.a. gerð grein fyrir veið-
um og verði á karfa. Seld voru um
5.300 tonn af karfa á íslenskum fisk-
markaði í fyrra, að heildarverðmæti
um 1.200 milljónir kr. Eitt skipa
Samherja, Björgvin EA, veiddi 240
tonn af karfa í fyrra sem flutt voru til
Þýskalands og var skiptaverð til sjó-
manna 221 kr/kg.
„Á sama tíma
var meðalskipta-
verð hins vegar
202 kr/kg. Meðal-
skiptaverð til sjó-
manna sem lönd-
uðu karfa á
fiskmarkað á Ís-
landi í fyrra, eftir
að dregið hafði
verið frá 4%
markaðsgjald og
umsýslugjald fiskmarkaðar var 219
kr/kg á árinu,“ segir m.a. í tilkynn-
ingunni. Tekið er fram að verðið var
hæst á fyrsta ársfjórðungi en þá
veiddu skip Samherja nánast engan
karfa. Á sama tímabili og karfinn af
Björgvini EA var fluttur út keypti
Samherji 863 tonn af karfa á fisk-
markaði hér til að flytja til vinnslu í
Þýskalandi. Skiptaverð til sjómanna
úr þeim karfa var 215 kr/kg. Sam-
herji segir þetta sýna að skiptaverð
áhafnar Björgvins EA hafi verið
hærra en úr karfa sem fór um fisk-
markað hér á sama tíma.
Þá bendir Samherji á að áður en
fiskur er seldur til Icefresh GmbH
bætist við söluverðið ýmis kostnað-
ur, m.a. vegna flutninga og umsýslu.
„Allar ásakanir um brot á kjara-
samningum og hvað þá brot á gjald-
eyrislögum eru því fráleitar. Full-
yrðingar um undirverð á fiski frá
skipum Samherja til dótturfyrirtæk-
is síns í Þýskalandi eiga því engan
veginn við rök að styðjast,“ segir í
tilkynningunni. gudni@mbl.is
Samherji segir fullyrðingar um
undirverð og lögbrot vera fráleitar
Skiptaverð til sjómanna Samherja var hærra en fyrir karfa af fiskmarkaði
Þorsteinn Már
Baldvinsson
28,9 milljónum heitið á
mikilfenglegar mottur
Alls höfðu 28,9 milljónir króna safnast í Mottumars þegar formlegri söfnun
áheita lauk í gær. Magnús Sigurbjörnsson bar sigur úr býtum í einstakl-
ingskeppninni en það var fagurskeggjað lið Arionbanka sem safnaði flest-
um áheitum í liðakeppninni. Þá þótti Meistarafélagi hárskera Guðmundur
Þorlákur Guðmundsson skarta fallegustu mottunni.
Þetta er í fimmta sinn sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir Mottumars
en þeim fjármunum sem safnast er varið í forvarnir, fræðslu, rannsóknir
og ráðgjöf sem tengjast baráttunni gegn krabbameini í körlum. Hægt er að
leggja söfnuninni lið fram yfir mánaðamót á mottumars.is.
Morgunblaðið/Golli
Mottumenn F.v. Magnús sigurvegari, Guðmundur fagurskeggjaði og Krist-
ján Björn Tryggvason, sem varð í öðru sæti einstaklingskeppninnar.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi og
fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi,
segir ljóst að bæjarlögmaður Kópa-
vogs, Þórður Clausen Þórðarson, og
tveir starfsmenn bæjarins og fyrrver-
andi stjórnarmenn Lífeyrissjóðs
starfsmanna Kópavogsbæjar, Sigrún
Guðmundsdóttir og Jón Júlíusson, séu
viðriðin samsæri gegn honum. Hann
segist ekki vilja geta sér til um hver
standi á bak við samsærið en hann líti
það afar alvarlegum augum að menn
hafi verið beðnir um að hagræða sann-
leikanum á hans kostnað.
Eins og fram hefur komið í umfjöll-
un Morgunblaðsins í vikunni sem er að
líða, sagði Þórður í samtali við Sigrúnu
Ágústu Bragadóttur, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
starfsmanna Kópavogsbæjar, að hún,
Sigrún Guðmundsdóttir og Jón þyrftu
að láta það koma
skýrt fram í vitn-
isburði sínum að
Gunnar Birgisson
hefði stjórnað lán-
veitingum sjóðsins
til Kópavogsbæj-
ar. Sigrún Ágústa,
Sigrún Guð-
mundsdóttir, Jón
og Gunnar, ásamt
tveimur öðrum,
hafa verið ákærð fyrir að hafa, í störf-
um sínum fyrir lífeyrissjóðinn, lánað
Kópavogsbæ fé í trássi við ákvæði laga
um lífeyrissjóði.
„Það er mjög alvarlegt mál að bæj-
arlögmaður sé að biðja menn um að
hagræða vitnisburði sínum í málinu
gegn betri vitund, á þann hátt að koma
sök á mig,“ segir Gunnar. Það orki tví-
mælis yfir höfuð að bæjarlögmaður
skipti sér af málinu með því að hafa
samband við hlutaðeigendur.
„Þá finnst mér ólíklegt að Þórður
Clausen Þórðarson hafi fundið þetta
upp hjá sjálfum sér,“ bætir Gunnar við
og segir einnig ljóst að Sigrún Guð-
mundsdóttir og Jón hafi verið þátttak-
endur í því að koma á hann sökinni.
Málið verði rannsakað
Hvað varði ásakanir um harðstjórn
Gunnars hafi stjórnin öll samþykkt að
veita framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs-
ins heimild til að lána Kópavogsbæ allt
að einum milljarði, til að koma pening-
unum í skjól á meðan fárviðri banka-
hrunsins gengi yfir. Gunnar segist
gera ráð fyrir að málið verði rannsakað
af Kópavogsbæ en ætlar ekki að grípa
til sérstakra ráðstafana að svo stöddu.
„Það hlýtur að þurfa að rannsaka þetta
mál því þarna er verið að ráðast á bæj-
arfulltrúa af bæjarlögmanni og fleiri
starfsmönnum bæjarins og reyna að
koma á hann rangri sök,“ segir Gunn-
ar.
Grafalvarlegt að hafa
áhrif á vitnisburð
Telur bæjarlögmann og fleiri viðriðin samsæri gegn sér
Gunnar I.
Birgisson
Um það bil 70 verslanir í miðbæ Reykjavíkur tóku þátt í
svokallaðri Tískuvöku í tilefni Reykjavík Fashion Festi-
val í gærkvöldi og lengdu afgreiðslutíma sinn til kl. 21.
Ýmis tilboð voru á boðstólum verslananna en að auki
var hægt að hlýða á lifandi tónlist utandyra, á meðan
rölt var á milli búðanna í leit að draumaflíkinni.
Morgunblaðið/Golli
Í búðarápi fram á kvöld
Tískuvaka
Það varð niður-
staða Félags-
dóms í gær að
boðað verkfall
flugliða hjá Ice-
land Express,
sem hefjast átti á
miðnætti liðna
nótt, væri ólög-
mætt.
Samkvæmt samningi Iceland Ex-
press við flugfélagið Holidays
Czech Airlines ber félaginu að hafa
um borð einn tékkneskan flugliða.
Flugfreyjufélag Íslands taldi þetta
brot á forgangsréttarákvæði kjara-
samninga en samkvæmt því skulu
fjórir félagsmenn FFÍ vera starf-
andi í hverju flugi.
Í tilkynningu frá Iceland Express
segir að engin röskun verði því á
flugi í dag.
Boðað verkfall
flugliða ólögmætt
Skannaðu kóðann
til að lesa yfirlýs-
ingu Samherja
Hálfdán Björnsson, bóndi á Kví-
skerjum í Öræfum, man ekki eftir
jafn miklum hlýindum í mars og
voru þar í gær. „Það vantar bara
mikið á að það hafi verið svo hlýtt
áður,“ sagði Hálfdán. Vel bjart var í
gær í Öræfum og vestlæg átt. Hálf-
dán átti von á að hlýindin héldust ef
ekki kæmi norðanátt.
Hiti mældist í gær 19,6°C á sjálf-
virkri mælistöð Vegagerðarinnar
við Kvísker í Öræfum og 18,6°C á
sjálfvirkri stöð Veðurstofunnar á
Kvískerjum. Það bendir því allt til
þess að þetta sé nýtt hitamet í mars
hér á landi. Fyrra met var 18,3°C
sem mældist á kvikasilfursmæli á
mannaðri stöð á Sandi í Aðaldal 27.
mars 1948. Þá mældist 18,8°C hiti á
sjálfvirkri stöð á Eskifirði 28. mars
árið 2000, að sögn Sigurðar Þórs
Guðjónssonar veðuráhugamanns.
„Þetta er mjög vorlegt núna.
Maður þurfti ekki að vera mikið
klæddur, það voru svo mikil hlý-
indi,“ sagði Hálfdán. „Það er allt að
gróa núna, komin vetrarblóm hér
Morgunblaðið/RAX
Kvísker Hálfdán Björnsson bóndi.
Hitamet sett á
Kvískerjum
um allt og eins er ljónslappinn far-
inn að lifna og breiða úr sér. Það
liggur við að það sé orðið vorlegt á
jörðinni.“ Vetrarblóm blómstra
venjulega fyrst sínum ljósrauðu
blómum.
Tjaldur var í gærmorgun að vitja
um hreiðurstæðið sitt og talsvert
var komið af skógarþröstum, þótt
enn hafi ekki borið mikið á öðrum
farfuglum, að sögn Hálfdánar.
Smáfiðrildi og flugur eru aðeins
byrjuð að lifna. gudni@mbl.is
Sjálfvirk stöð
mældi 19,6°C hita