Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 38

Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 38
Ástsæl Sigurgeir og Nína Margrét koma fram á tónleikunum í dag. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Nítjándu aldar tónskáldin Jóhannes Brahms og Jules Massenet verða í aðalhlutverkum á hádegistónleikum sem bera yfirskriftina Klassík í há- deginu og fram fara í Gerðubergi í dag kl. 12.15 og á sunnudag kl. 13.15. „Við munum annars vegar flytja Sónötu í e-moll óp. 38 eftir Brahms og hins vegar Meditation úr óp- erunni Thaïs eftir Massenet. Það má segja að þetta sé ástsæl rómantísk tónlist sem rifjar upp horfna tíma og gömul gildi,“ segir Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari og list- rænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, en flytjandi með henni er Sigurgeir Agnarsson sellóleikari. „Hljóðfærin njóta mikils jafn- ræðis í verki Brahms. Fyrsti kaflinn er mjög lagrænn og blíður, svo kem- ur menúett og tríó þar sem ríkir smá barokkstemning. Brahms stúderaði verk Bachs í þaula og í raun er þriðji kaflinn nokkurs konar virðing- arvottur við hann, en í kaflanum byggir Brahms á fúguþema úr verk- inu Kunst der Fuge eftir Bach. Kafl- inn er nánast ein fúga út í gegn milli hljóðfæranna sem er mjög sjaldgæft í rómantískri sónötu,“ segir Nína Margrét. Að hennar sögn er Thaïs mjög ástsælt verk, en það er þekkt- asta tónverk Massenets. Öllum tónleikum í tónleikaröðinni Klassík í hádeginu er fylgt úr hlaði með kynningum flytjenda á höf- undum og tilurð verkanna. „Mark- miðið með þessu er að veita áheyr- endum innsýn í heim klassískrar tónlistar. Slík kynning gefur tónleik- unum óformlegra yfirbragð sem mér finnst gríðarlega mikilvægt og und- irstrikar að tónlistin er bara partur af okkar daglega lífi,“ segir Nína Margrét. Aðspurð segir hún tón- leikagesti vera á öllum aldri, allt frá leikskólabörnum og upp úr, en stór hluti þeirra sem mæta eru íbúar hverfisins. „Aðgangur á tónleikana er ókeypis, en tónleikarnir eru hluti af starfsemi Gerðubergs og Reykja- víkurborg styrkir þessa tónleikaröð. Markmiðið er að auðga mannlífið og nærumhverfi Gerðubergs. Það er heilmikið um menningu og fallega hluti sem kosta ekki neitt og þetta er eitt af því,“ segir Nína Margrét. Horfnir tímar og gömul gildi  Klassík í hádeginu í Gerðubergi í dag kl. 12.15 og nk. sunnudag kl. 13.15 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Mótun menningar – Shaping Culture afmælisrit til heiðurs Gunnlaugi A. Jónssyni, sextugum Skráning á heillaóskaskrá Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í gamlatestamentisfræðum við guð- fræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, verður sextugur þann 28. apríl, 2012. Af því tilefni mun Hið íslenska bókmenntafélag gefa út veglegt afmælisrit honum til heiðurs með ritgerðum er tengjast þeim fræðasviðum guðfræðinnar sem hann hefur beint sjónum sínum hvað mest að. Höfundur eru valinkunnir innlendir og erlendir fræðimenn. Þeim sem vilja heiðra Gunnlaug á þessum tímamótum, og hafa ekki enn skráð sig til þátttöku, er boðið að gerast áskrifendur að ritinu og fá með því nafn sitt og maka skráð á heillaóska- skrá – tabula gratulatoria, sem birt verður fremst í ritinu. Upp- lýsingum um nafn/nöfn, kennitölu, heimili, kortanúmer eða annan greiðslumáta má koma á framfæri í síma 588-9060, á netfangið hib@islandia.is, eða í fax 581-4088. hið íslenska bókmenntafélag Skeifunni 3b – 108 Reykjavík Manninum er eðlislægt aðskapa sér lífsskilyrðimeð því að reisa sérskjól – á því grundvall- ast menningin. Flestum hérlendis hefur líklega fundist sem þeir væru skyndilega á staddir á bersvæði, og vart vitað hvaðan á þá stæði veðrið þegar efnahagshrunið varð haustið 2008. Sýningin Skjól, ljósmyndir Einars Fals Ingólfssonar í Lista- safni ASÍ, felur í sér viðbragð við þessari afhjúpun. Þar er í sölum safnsins að sjá þrjár raðir mynda sem bera heitin Skjól, Griðastaðir og Svörður, teknar víða um landið og má segja að með þeim leitist lista- maðurinn á vissan hátt við að treysta stoðir tilverunnar og leita jafnframt skjóls. Hver eru hin raunverulegu verð- mæti? Ekki úr vegi að byrja á und- irstöðunni; sjálfri jörðinni sem við byggjum. Þangað beinist sjónarhorn myndasmiðsins Einars Fals í „nið- urgröfnu“ rými Gryfjunnar þar sem til sýnis eru nærmyndir af sverð- inum, teknar á blaðfilmu á ólíkum árstíðum. Gróðurþekjan er skjól í sjálfri sér og ofan á hana leggst snjó- breiðan og hlífir henni að vetri, jarð- vegurinn og ræturnar bíða vorsins. Verkin njóta sín vel í rýminu, í blæ- brigðaríkri samræðu lita og áferðar sem endurómar samspil þátta, hreyfingu og aðlögun í hinu nátt- úrulega ferli. Í Arinstofu (og á ganginum) sést hvar manngerð skýli, Skjól, rísa upp úr landinu um leið og sjónarhornið opnast í myndum Einars Fals. Um- hyggja, fyrirhyggja og nægjusemi er þarna í fyrirrúmi: afdrep úr timbri og bárujárni, reist handa úti- gangsskepnum, eru miðlæg á mynd- fletinum þar sem þau kallast á myndrænan hátt á við landslags- form og sjónbauginn. Skjól þessi lýsa hógværum samskiptum við náttúruöflin og myndirnar end- urspegla jafnframt mannlega af- stöðu andspænis óendanleikanum; skjólveggirnir mynda eins konar skilrúm og viðmið í hinu náttúrulega flæði. Í myndröðinni býr skemmti- leg formræn hrynjandi, þarna hefur Einar Falur með næmu auga fest á filmu og opnað augu annarra fyrir menningarverðmætum sem vert er að gefa meiri gaum. Uppi í Ásmundarsal, á annarri hæð safnsins, er myndröðin Griða- staðir. Mannabústaðir setja svip á landslagið: fjallaskálar og hin svo- köllu sæluhús, hjólhýsi, kirkjur, sumarbústaðir, trjágróður eða önn- ur ummerki mannsins. Í sumum myndum fer ljósmyndarinn inn í húsin og fangar þar hljóðláta helgi griðastaða þar sem fólk kemur sam- an eða sækir sér andlega næringu og frið í einverunni. Náttúran er einnig slíkur helgidómur: þetta undir- strikar Einar Falur með landslags- mynd frá hálendinu þar sem fjalla- salir og himnafestingin umlykja ferðalanginn. Líkt og í Gryfjunni og Arinstofu er samspil myndanna líf- legt í dýnamískri samræðu forma, lína og litanotkunar í myndbyggingu verkanna. Sýningin Skjól er fallegur óður til sambýlis manns og náttúru. Sú íhug- un og tilfinning sem býr í verkunum myndar hæga en áleitna stígandi í safnrýminu. Í sýningunni felst hug- vekja um mikilvægi þess að hlúa að rótunum; halda hlífiskildi yfir nátt- úrunni, ekki síst vegna þess að hún er okkar skjól. Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson Skjól í Flóanum „Í sýningunni felst hugvekja um mikilvægi þess að hlúa að rótunum; halda hlífiskildi yfir náttúrunni,“ segir meðal annars í dómnum. Athvarf treyst Einar Falur Ingólfsson – Skjól bbbbn Til 1. apríl 2012. Opið þri.- sun. kl. 13-17. Aðgangur ókeypis. Listasafni ASÍ, Freyjugötu. ANNA JÓA MYNDLIST Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mozart hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Tónlistin hans er tímalaus en samtímis hefur hún yfir sér ferskan blæ. Í raun má segja að tónlist hans sé besta græðissmyrsl sem hugsast getur fyrir sálina,“ segir Mihaela Ursuleasa, en hún leikur einleik í Píanó- konserti í C-dúr K. 467 eftir W.A. Mozart á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld kl. 19.30. Aðspurð segist Ursuleasa margoft hafa leikið um- ræddan píanókonsert síðan hún lék hann fyrst opin- berlega aðeins 12 ár gömul fyrir rúmum tuttugu árum. „Mér finnst ég alltaf vera að uppgötva nýja hluti í þessum konserti í hvert einasta sinn sem ég leik hann, enda er það galdur góðra tónverka og snjallra tón- skálda,“ segir Ursuleasa sem hóf píanónám sitt aðeins fimm ára gömul. „Pabbi var djasspíanisti og mamma söngkona, þann- ig að það lá alltaf beint við að ég færi í tónlist. Það var engin pressa um það af þeirra hálfu, en þetta var það sem mig langaði. Pabbi lagði alltaf mikla áherslu á að það ætti að vera gaman að spila,“ segir Ursuleasa og tekur fram að hún hafi ávallt síðan haft það að leið- arljósi. „Ég get hins vegar alveg viðurkennt að mér fannst ekki alltaf jafngaman að æfa mig þegar ég var unglingur.“ Að sögn Ursuleasa finnst henni alltaf sérlega gaman að leika fyrir börn. „Mér finnst mikilvægast að virkja ímyndunaraflið þeirra í stað þess að einblína á hráar nóturnar. Hraðinn í nútímasamfélaginu er hins vegar orðinn svo mikill að það er raunveruleg hætta á því að fólk gefi sér ekki lengur tíma til að hlusta gaumgæfi- lega á tónlist og hugleiða hana.“ Aðspurð segist Ursuleasa hrífast mjög af Eldborgar- sal Hörpu þar sem hljómburðurinn sé framúrskarandi. „Það kom mér líka skemmtilega á óvart hvað flygillinn er góður,“ segir Ursuleasa. Spurð hvort ekki geti verið vandasamt að venja sig við nýja flygla í hvert sinn sem hún leikur á nýjum stað svarar Ursuleasa því játandi, en tekur fram að það sé bara skemmtileg áskorun. „Svo er ég líka mjög gleymin þannig að kannski er bara ágætt að ég þurfi ekki að ferðast með mitt eigið hljóðfæri, því ég væri vís með að gleyma því,“ segir Ursuleasa kímin. Á efnisskránni eru auk píanókonsertsins tvö önnur verk eftir Mozart, annars vegar forleikurinn úr Brúð- kaupi Fígarós og hins vegar Júpíter-sinfónían. Stjórn- andi tónleikanna í kvöld er Eivind Aadland, en hann er einn af virtustu hljómsveitarstjórum Noregs. Tónlist Mozarts tímalaus  Mihaela Ursuleasa leikur einleik í Píanókonserti í C-dúr eftir W.A. Mozart á tónleikum SÍ í Hörpu í kvöld kl. 19.30 Morgunblaðið/Kristinn Ímyndun Mihaelu Ursuleasa finnst sérlega gaman að leika fyrir börn og reyna að virkja ímyndunarafl þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.