Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
KAUPTÚNI
RÝMUM
FYRIR
VORVÖ
RUNUM
20% AF
SLÁTTU
R
AF ÖLL
UM VÖR
UM
ÞESSA
HELGI
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld er fædd 30.mars árið 1965 og er því 47 ára í dag. Hrafnhildi finnstreglulega gaman að eldast og segist líta á öll afmæli sem
stórafmæli. „Mér finnst skemmtilegt að eiga afmæli og mér finnst
skemmtilegt að vera til upp á hvern einasta dag,“ segir Hrafnhildur.
Spurð hvað hún ætli að gera í tilefni dagsins svarar hún; „Ég ætla
að vera með fjölskyldu minni og elda spænska paellu en það er það
besta sem dóttir mín fær að borða.“
Hrafnhildur segir að það sé allur gangur á því hvort hún haldi
stórt upp á afmælin sín eða smátt. „Stundum er ég bara með innsta
hring, stundum býð ég breiðari hópi úr fjölskyldunni og stundum
held ég upp á það með pomp og prakt. Ég spila það eftir tilfinning-
unni hvert sinn.“
Hrafnhildur vinnur nú að leikverki sem verður flutt á Listahátíð í
Reykjavík í maí. „Þetta er samstarfsverkefni Listahátíðar og Út-
varpsleikhússins. Þetta er hljóðverk en verður samt flutt á Listahá-
tíð fyrir framan áhorfendur sem einskonar leikverk eða gjörningur.
Svo verður það unnið áfram fyrir Útvarpsleikhúsið og flutt í haust.
Ég er búin að vera í talsvert mörgum samstarfsverkefnum und-
anfarin ár svo ég er að einbeita mér að eigin leikritaskrifum núna.“
ingveldur@mbl.is
Hrafnhildur Hagalín er 47 ára í dag
Gaman að vera til
upp á hvern dag
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Elsa Eiríksdóttir hefur lokið doktorsprófi í verkfræðilegri sál-
fræði við Georgia Institute of Technology. Doktorsverkefni
hennar snerist um að rannsaka áhrif uppbyggingar og notk-
unar námsefnis á frammistöðu við lausn nýrra verkefna,
þekkingu á viðfangsefni og verkþekkingu. Helstu niðurstöður
sýndu að samantekt á upplýsingum leiðir til betri þekkingar
á viðfangsefninu en ekki nauðsynlega betri frammistöðu við
að leysa verkefni sem krefjast notkunar á þessari þekkingu.
Einnig kom í ljós að mismunandi samtvinnun reglna eða lög-
mála á tilteknu sviði og ólíkra aðferðarlýsinga í námsefni hef-
ur áhrif á hvaða aðferð fólk notar við verkefnalausn og þar af leiðandi það nám
sem á sér stað.
Elsa lauk BA-prófi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 1999 og MS-prófi í sál-
fræði við Georgia Institute of Technology árið 2007. Hún er gift Unnari Erni Auð-
arsyni og þau eiga eina dóttur, Vöku. Foreldrar Elsu eru Hulda Halldórsdóttir og
Eiríkur Þorsteinsson.
Doktor í sálfræði
Selfoss Emilía Rún fæddist 3. nóv-
ember. Hún vó 3.670 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Anna Val-
dís Kristmundsdóttir og Patrik Thor
Reynisson.
Nýir borgarar
Noregur Sigurborg Bjarnadóttir og
Jónatan Magnússon eignuðust stúlku
25. mars. Hún vó 2.935 g og var 51 cm
löng.
H
örður fæddist á Ísa-
firði og ólst þar upp.
Hann lauk stúdents-
prófum frá MA 1973,
stundaði nám í ensku
og sænsku við HÍ 1974-75, lauk
hjúkrunarfræðiprófi frá Hjúkr-
unarskóla Íslands 1978 og fram-
haldsnámi í svæfingarhjúkr-
unarfræði við Nýja
hjúkrunarskólann 1981, sótti stjórn-
unarnámskeið 1986 og 1988 og hefur
sótt fjölda námskeiða á vegum End-
urmenntunarstofnunar HÍ, Sjúkra-
flutningaskólans, Vestfjarðadeildar
FÍH, Rauða kross Íslands og fleiri
aðila.
Hann hefur 30 tonna skipstjórn-
arréttindi og sótti námskeið í sport-
köfun á Bahamaeyjum 1982.
Ólýsanlegar stríðshörmungar
Hörður var hjúkrunarfræðingur
við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði
1978 og 1979, við svæfingadeild
Borgarspítalans 1981. Hann starfaði
við bráðahjúkrun og svæfingar og
leysti af við hjúkrunarstjórn og spít-
alastjórn á stríðsskurðspítala við
landamæri Taílands og Kambódíu á
vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins
1983, þar sem hann komst í návígi
við hinar skelfilegustu afleiðingar
stríðsátaka.
Hörður var hjúkrunardeild-
arstjóri og sinnti svæfingum við
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði
1981-89, hjúkrunarforstjóri Fjórð-
ungssjúkrahússins á Ísafirði 1989-
98, hjúkrunarforstjóri Heilbrigð-
isstofnunar Ísafjarðarbæjar 1998-
Hörður Högnason 60 ára
Rómar-rómantík Hörður og Una Þóra slappa af á Alfredos Restraurant í Róm fyrir tæpum hálfum mánuði.
Líknandi lífskúnstner
Sótt á brattann Hörður og Una Þóra í einni af sínum ótalmörgum fjallgöng-
um. Hér eru þau á leiðinni upp úr Geirþjófsfirði í Arnarfirði sumarið 2005.