Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Fjölhæfasti starfskrafturinn Fjölnota vinnuþjarkur sem höndlar hátt í 100 verkfæri ▪ Lágur rekstrarkostnaður ▪ Einstaklega lipur í notkun ▪ Örugg og þægileg í umgengni ▪ Vökvaknúinn í aldrifi Fáanlegar með þremur mismunandi gerðum af húsum 635 Dísel Hæð: 209 sm Breidd: 99-129 sm Lengd: 255 sm Þyngd: 1380 kg Lyftihæð: 282 sm Lyftigeta: 1400 kg Hestöfl: 37,5 Kubota díeselmótor með 66 lítra vökvadælu, 200 bar Í drifbúnaði Avant vélanna eru engar reimar, kúplingsdiskar né drifsköft 95 ára Olgeir Þorsteinsson 90 ára Alda Jóhannesdóttir Eiríkur Örn Gíslason 80 ára Hjörtur Tryggvason 70 ára Guðmundur Aðalsteinsson Júlíus J. Guðmundsson Kópur Sveinbjörnsson Loftur Hauksson Ólöf Kjaran Knudsen Örn Ólafsson 60 ára Björn Gunnar Gestsson Egill Vilhjálmur Sigurðsson Elsa Guðmunda Jónsdóttir Guðmundur Aðalsteinsson Guðrún Hauksdóttir Jón Oddi Víkingsson Kristján F. Ármannsson Sigurður Ágúst Sigurðsson Sigþór Bogi Eiríksson Steinar Viktorsson 50 ára Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir Anna Kristín Geirsdóttir Erna Stefánsdóttir Eyjólfur Örn Gunnarsson Hafdís Björk Laxdal Helga Hallgrímsdóttir Igor Galtsov Ingibjörg Kristín Valsdóttir Ingunn S. Þorsteinsdóttir Kirk Pétur Duffield Miroslaw Szrejter Ragnar Kristjánsson Steinunn H. Hannesdóttir Svanlaug Guðnadóttir 40 ára Aðalheiður Skúladóttir Arndís Ósk Jónsdóttir Ásgeir Már Ásgeirsson Erla Káradóttir Guðmundur B. Jónsson Hjördís Reykdal Ingibjörg Sveinsdóttir Kaja M. Kristjánsdóttir Kristín Björg Helgadóttir Miroslaw Stanislaw Zarski Þorbjörn Guðbrandsson Þóra Jónsdóttir 30 ára Alexandra Bancos Anna Lára Ármannsdóttir Ása Inga Þorsteinsdóttir Ásta Guðmundsdóttir Elías Örn Einarsson Fríða Hrund Kristinsdóttir Grazyna Marzena Kapera Gunnar Örn Jóhannsson Hróar Proppé Hugosson Jón Sigurðsson Kamil Lukasz Jablonski Katrín Guðlaugsdóttir Mariusz Stanislaw Grykien Páll Árnason Sólveig Lilja Ómarsdóttir Svavar Ólafsson Theodór Bjarnason Til hamingju með daginn 30 ára Guðfinna Harpa fæddist á Egilsstöðum en ólst upp á Straumi í Hró- arstungu. Hún lauk BSc- prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Ís- lands að Hvanneyri 2007 og er héraðsráðunautur og framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Aust- urlands. Maður Helgi Haukur Hauksson, f. 1984, bóndi á Straumi. Börn: Guðrún Katrín, f. 2009, og Árni Elís, f. 2011. Foreldrar Guðný Eiríks- dóttir, f. 1954, bóndi, og Árni Finnbjörn Þór- arinsson, f. 1952, bóndi. Guðfinna Harpa Árnadóttir 30 ára Sigurður fæddist á Selfossi og ólst þar upp og í Reykjavík og í Hafn- arfirði. Hann lauk meistaraprófi í bifvélavirkjun frá Meist- araskólanum og starfar hjá Vélamiðstöðinni. Kona Harpa Kristín Hlöð- versdóttir, f. 1980, leik- skólakennari. Börn þeirra eru Arnbjörg Ýr, f. 2007, og Ingvar Hrafn, f. 2010. Foreldrar Ástgeir Þor- steinsson, f. 1950, bif- reiðastjóri í Hafnarfirði, og Arnbjörg Sigurð- ardóttir, f. 1952, sund- laugarvörður í Hafnarfirði. Sigurður Ástgeirsson Hrefna Tynes skátahöfðingifæddist að Tröð í Súðavík-urhreppi 30. mars 1912, fyr- ir einni öld, dóttir Samúels Jóns Samúelssonar, vélstjóra að Tröð, og k.h., Amalíu Rögnvaldsdóttur hús- freyju. Hún lauk prófi frá Unglinga- skóla Ísafjarðar 1928 og flutti ung til Siglufjarðar þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Sverre H. Tynes, norskum byggingatæknifræðingi. Þau eignuðust þrjú börn en Sverre lést árið 1962. Hrefna stundaði skrifstofustörf á Siglufirði en á stríðsárunum voru þau búsett í Noregi. Hún stundaði skrifstofustörf hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur 1962-71 og var síðan fulltrúi hjá Æskulýðsstarfi kirkj- unnar. Hrefna var svo sannarlega eitt sinn skáti - ávallt skáti. Hún stofnaði skátafélag á Siglufirði og var skáta- foringi þar 1929-39, fór fyrir telpna- hópi í Noregi á stríðsárunum sem voru í rauninni ekkert annað en skátar þó skátahreyfingin væri þar bönnuð af þýskum hernáms- yfirvöldum, var skátaforingi í Reykjavík, varaskátahöfðingi og skátahöfðingi stúlkna í tuttugu ár, forstöðumaður Kvenskátaskólans á Úlfljótsvatni, starfaði með Zonta- klúbbi, var formaður hans eitt tíma- bil og stjórnarmeðlimur í Norð- urlandastjórn Zonta, starfaði í St. Georgsreglunni og var formaður landssambandsins í sex ár. Auk þess sat hún í safnaðarstjórn Neskirkju, var formaður Kvenfélags Neskirkju, formaður kirkjukórs Neskirkju, ritari Kirkjukóra- sambands Reykjavíkurprófasts- dæmis og var í Kirkjukórasambandi Íslands. Hrefna lést 10. maí 1994.Í minn- ingargrein um hana sem birtist í Morgunblaðinu, lýsti Hörður Zóp- haníasson því vel hvernig skátar meta störf hennar: „Hvar sem Hrefna Tynes fór um veg, skildi hún eftir vörður sem vís- uðu veginn. Þær eru ófáar vörð- urnar hennar Hrefnu í skátaveröld- inni okkar. Stundum er varðan úr mæltu máli, stundum úr athöfn eða ævintýri, stundum úr ljóði og söng. Allar eru þær traustar, vörðurnar hennar Hrefnu, og óbrotgjarnar.“ Merkir Íslendingar Hrefna Tynes 30 ára Gunnar fæddist á Ísafirði en ólst upp að Gemlufalli í Dýrafirði. Hann lauk stúdentsprófi, vélstjóraprófi og rafvirkja- prófi frá VMA og starfar hjá Becromal Iceland. Eiginkona Brynja Björg Vilhjálmsdóttir, f . 1985, leikskólakennari. Börn þeirra eru Vilhjálmur Blær Gunnarsson, f. 2004, og Dagbjörg Lilja Gunn- arsdóttir, f. 2008. Foreldrar Guðný Ágústa Skúladóttir, f. 1963, sjúkraliði, og Ólafur Gunnarsson, f. 1953, starfsmaður hjá Vísi í Grindavík. Gunnar Ólafsson 2009 og framkvæmdastjóri hjúkr- unar og svæfingarhjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða frá 2009. Hann var stundakennari í hjúkr- unarfræði og sjúkdómafræði við sjúkraliðabraut MÍ 1991-95 og hefur kennt á ýmsum námskeiðum. Rauði krossinn og Rotary Hörður var varaformaður Starfs- mannaráðs FSÍ 1983-85, sat í stjórn FSÍ 1983-85, var varaformaður Rauða krossdeildar Ísafjarðar 1985- 88, formaður hennar 1988-2007, sat í aðalstjórn Rauða kross Íslands 1999- 2007, var gjaldkeri Vestfjarðadeildar Hjúkrunarfélags Íslands, sat í fé- lagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar 2000-2006 og var formaður frá 2003, var varamaður í sameiginlegri Barnaverndarnefnd Ísafjarð- arbæjar, Bolungarvíkur og Súðavík- ur 2003-2006, sat í ráðgjafahóp vegna Fjölmenningarseturs á Ísa- firði 2001-2005, var formaður Þjón- ustuhóps aldraðra fyrir Ísafjarð- arbæ 2002-2005, var formaður Foreldrafélags Grunnskólans á Ísa- firði 1993-95, sat í stjórn Skíðafélags Ísafjarðar, er í Vinafélagi Íslensku óperunnar, hefur starfað í Rot- aryklúbbi Ísafjarðar frá 1992, stall- ari þar 1994-95, ritari 1995-96, vara- forseti 1998-99, forseti 1999-2000 og gjaldkeri 2009-2010. Kórar, köfun og koníak Hörður stundar fjallgöngur, skíða- iðkun og sjósport, s.s. kajakróður og köfun, hefur dálæti á eigin sönglist, hefur sungið í Karlakórnum Erni í árafjöld og Íslandskórnum, söng- sveit vinnufélaga Harðar. Hann tek- ur nú þátt í undirbúningi Heklumóts á Ísafirði 21.4. n.k., er karlakórar af norðanverðu landinu koma saman til kóraveislu og skemmta sér við tón- leikahald og klósettsöng. Þá er hann matgæðingur, unnandi sígildrar tón- listar, einkum óperutónlistar og bar- okk-tónlistar, að ekki sé minnst á dá- læti hans á Labradortík heimilisins, Donnu Floriu Tosca. Fjölskylda Hörður kvæntist 4.9. 2008 Unu Þóru Magnúsdóttur, f. 18.10. 1958, lögfræðingi og fulltrúa við embætti Sýslumannsins á Ísafirði. Dóttir Harðar frá fyrra hjóna- bandi er Lára Betty Harðardóttir, f. 23.6. 1984, hjúkrunarfræðingur, bú- sett í Noregi, gift Skafta Brynjólfs- syni, doktorsnema í jarðfræði og eru börn þeirra Jóhanna Skaftadóttir, f. 25.1. 2010, og Hörður Högni Skafta- son, f. 19.9. 2011. Stjúpsynir Harðar, synir Unu Þóru, eru Stefán Þórarinsson, f. 2.5. 1988, nemi, og Valtýr Þórarinsson, f: 2.4. 1991, nemi. Stjúpbörn Harðar af fyrra hjóna- bandi og hálfsystkini Láru eru Einar Snorri Magnússon, f. 27.6. 1971, út- flutningsmarkaðsfræðingur, og Bjarnveig Magnúsdóttir, f. 21.8. 1975, þroskaþjálfi. Systkini Harðar eru Þórður Högnason, f. 12.2. 1956, verkamaður á Ísafirði; Kristín Högnadóttir, f. 13.3. 1957, hjúkrunarstjóri í Reykja- vík; Guðmundur Kr. Högnason, f. 4.9. 1958, verkfræðingur í Kanada. Foreldrar Harðar eru Högni Þórðarson, f. 6.2. 1924, fyrrv. banka- útibússtjóri, og Kristrún Guðmunds- dóttir, f. 12.3. 1928, fyrrv. hjúkr- unarforstjóri. Úr frændgarði Harðar Högnasonar Guðni Egilsson b. á Kvíárnesi Guðrún Sigurðardóttir húsfr. á Kvíárnesi Jóhanna Pétursdóttir Helga Tómasdóttir húsfr. á Ísaf. Jóhann D. Erlendsson söðlasmiður í Stykkish. Anna Sigurðardóttir húsfr. í Stykkish. Hörður Högnason Högni Þórðarson fyrrv. bankaútibússtj. á Ísaf. Kristrún Guðmundsdóttir hjúkrunarforstjóri á Ísaf. Elín Magnúsdóttir húsfr. á Suðureyri Guðmundur K. Guðnason form. á Suðureyri Þórður Jóhannsson úrsm. á Ísafirði Kristín Magnúsdótir húsfr. á Ísaf. Magnús Ólafsson íshússtj. og prentsm.stj. á Ísaf. Lára Magnúsdóttir ljósmyndari á Ísafirði Arnþrúður Magnúsdóttir ljósmyndari á Ísaf. Sigrún Anna Magnúsdóttir leikkona í Rvík Ólafur I. Magnússon gjaldkeri HÍ Magnús Gunnar Magnússon, skipstj. í Boston, sjóliðsforingi í stríðinu Magnús Örnólfsson skipstjóri á Ísafirði Framkvæmdastjórinn Hörður í vinnunni við Sjúkrahúsið á Ísafirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.