Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 14

Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Haldið verður áfram með byggingu frjálsíþróttahússins í Kaplakrika næstu mánuði. Hafnarfjarðarbær og Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) hafa boðið út vinnu við að fullgera þak og gluggapanela. Hafnarfjarðarbær hóf fram- kvæmdir við Íþróttamiðstöðina í Kaplakrika á árinu 2006 og átti þeim að vera að fullu lokið fyrir 1. júní 2009. Það gekk ekki eftir og enn er eftir að leggja í verulegan kostnað. Meðal verkþátta eru félagsaðstaða, frjáls- íþróttahús, stúka og endurgerð eldri búningsklefa. Nýbyggingar eru 7000 fermetrar. Verkþættirnir eru mislangt komn- ir. Þannig er búið að taka stúkuna í notkun og félagsaðstaðan er fullgerð. Framkvæmdir stöðvuðust Frjálsíþróttahúsið er mikið mann- virki. Framkvæmdir voru boðnar út en stöðvuðust í miðjum klíðum, meðal annars vegna þess að verktakinn fór í þrot. Þá hefur Hafnarfjarðarbær átt í fjárhagserfiðleikum eftir hrun, eins og fleiri sveitarfélög. Vinna í húsinu hefur legið niðri frá því í maí 2010 eða í nærri tvö ár. Frjálsíþróttahúsið er opið fyrir veðri og vindum þótt búið hafi verið að reisa stálsperrur. Sigurður Páll Harð- arson, sviðsstjóri umhverfis og fram- kvæmda hjá Hafnarfjarðarbæ, telur að ekki hafi orðið umtalsverðar skemmdir á húsinu á þessum tíma. Ryð sem sést á grindinni sé aðeins á yfirborði og til standi að bletta það. Hann segir að verkið sem nú sé ráðist í sé skýr verkhluti sem eigi að ljúka á næsta ári. Þá verður eftir að einangra veggi frjálsíþróttahússins og ganga frá húsinu að innan, meðal ann- ars með því að leggja íþróttagólf og ganga frá tengibyggingu. Samkvæmt þriggja ára áætlun og framkvæmdaáætlun Hafnarfjarðar- bæjar er ráðgert að halda áfram framkvæmdum við frjálsíþróttahúsið, í beinu framhaldi af þeim áfanga sem nú hefur verið boðinn út. Einnig er eftir að endurgera eldri búningsklefa, útbúa tengingu við knattspyrnuhúsið Risann, ganga frá stúkunni og úti- svæði. 750 milljónir eftir Framreiknaður kostnaður við upp- byggingu í Kaplakrika, frá árinu 2006, nemur 1,9 milljörðum kr., að sögn Sig- urðar. Verulegur kostnaður er eftir. Áformin eru enn þau sömu og í upphafi en farið hefur verið yfir hönn- unargögn í þeim tilgangi að ná niður kostnaði. Áætlað er að kostnaður við þá verkþætti sem eftir eru verði um 750 milljónir kr. Frjálsíþróttahúsi FH lokað fyrir veðri og vindum á næstu mánuðum  Framkvæmdir í Kaplakrika af stað á nýjan leik eftir tveggja ára hlé  Kostnaður við frjálsíþróttahús og stúku er að nálgast tvo milljarða króna Morgunblaðið/Ómar Frjálsíþróttahús Nú er komið að næsta áfanga við Íþróttamiðstöðina í Kaplakrika. Þaki hins mikla frjálsíþrótta- húss verður lokað, það verður einangrað og pappi lagður á. Einnig verður gengið frá gluggapanelum. Allt í drasli Einhverjar skemmdir hafa orðið á frjálsíþróttahúsinu á meðan það hefur staðið hálfbyggt. Ryð sem komið er í stálgrind verður blettað. Hannes Bjarna- son frá Eyhild- arholti í Skaga- firði hefur ákveðið að fara í framboð til emb- ættis forseta Ís- lands. Frá þessu er sagt á vefmiðl- inum Feyki.is. á Sauðárkróki. Þar með hafa fjórir einstaklingar lýst yfir fram- boði, allt karlmenn. Auk Hannesar eru það Ástþór Magnússon, Jón Lárusson og Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands. Hannes Bjarnason er fæddur á Sauðárkróki 25. apríl 1971, uppalinn í Eyhildarholti í Skagafirði, sonur hjónanna Bjarna Gíslasonar, skóla- stjóra og bónda í Eyhildarholti, og Salbjargar Márusdóttur, húsmóður og kennara. Í Feyki í gær segir Hannes frá sjálfum sér og ástæðu þess að hann ákvað að fara í fram- boði til embættis forseta Íslands. Hann segir ástandið í samfélaginu hafa hreyft við sér og hefur látið sig það varða. „Ég vil leggja hönd á plóg, leggja mitt af mörkum til að bæta sam- félagið sem ól mig. Þess vegna býð ég mig fram í kjör til forseta Íslands og tel mig hafa burði til að bera emb- ættið inn í framtíðina,“ segir Hannes í samtali við Feyki. Hannes hefur opnað heimasíðuna www.jaforseti.is. Býður sig fram til forseta Hannes Bjarnason Fjórir frambjóðendur komnir fram Ökumaður fólksbíls slapp ómeiddur þegar hann lenti út af veginum í Kömbunum í fyrrinótt. Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Maðurinn ók bíl sínum á vegrið í neðstu beygjunni í Kömbunum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi ók hann síðan meðfram vegriðinu og út fyrir veginn þar sem það endaði. Hann slapp ómeiddur. Ók út af í Kömbum Karlmaður var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í fjölskipuðum Héraðs- dómi Vesturlands í gær fyrir kyn- ferðisbrot gegn dóttur sinni. Hann var einnig dæmdur til þess að greiða dóttur sinni 1,2 milljónir króna í miskabætur. Stúlkan var tíu ára gömul þegar brotin, sem eru mjög gróf, voru framin. Maðurinn neitaði sök í málinu. Maðurinn braut mjög gróflega og ítrekað gegn dóttur sinni. Hann bar á móti því að hann hefði verið einn með dóttur sinni þannig að atvik hefðu getað orðið með þeim hætti sem hún ber. Þá sagði maðurinn að enda þótt hann teldi að stúlkan bæri ekki illan hug í hans garð þá væri hún lygin og jafnvel þjófótt og færi jafnan sínu fram. Framburður móð- ur stúlkunnar hneig í sömu átt. Virt- ist þeim helst að dóttur þeirra kynni að hafa dreymt atvik eða skáldað þau upp eftir að hafa verið í klámfengn- um samskiptum á Skype í tölvu sinni. Enn fremur veltu þau því fyrir sér að hún kynni að hafa séð klámefni sem hefði verið til á heimili hennar. Dómurinn var hins vegar á öðru máli og í niðurstöðu hans segir að hér verði að líta til þess að samskipti þau kynferðislegs eðlis sem áttu sér stað á Skype fóru fram á tímabilinu 9. nóvember til 24. nóvember sl. en samkvæmt framburði kennara stúlk- unnar var merkjanleg breyting á hegðan hennar í skóla þegar við upp- haf haustannar og höfðu skólayfir- völd áhyggjur af því. „Þá verður með engu móti séð hvers vegna þau samskipti um Skype sem hér eru nefnd, klámefni á heimili eða draumfarir brotaþola hafi leitt til þess að hún beri jafn grófar sakir á föður sinn líkt og hún hefur gert,“ segir í dómnum. Engar málsbætur Í niðurstöðu dómsins segir einnig að stúlkan hafi gefið skýrslu í Barna- húsi og lýsing hennar hafi verið orð- uð þannig að fráleitt sé að 11 ára gamalt barn geti lýst atvikum af þessum toga án þess að barnið sé að lýsa upplifun sinni. Þá hafi frásögn skólafélaga hennar sem skýrðu frá því hvað stúlkan hefði sagt þeim, verið í samræmi við lýsingar hennar á atvikum að mati dómsins. Brot mannsins gegn dóttur sinni var talið alvarlegt og taldi dómurinn að hann ætti sér engar málsbætur. Því þótti hæfileg refsing fjögurra ára fangelsi. Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.