Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Útlán stærstu bankanna þriggja til sjávarútvegsins eru hátt í 300 millj- arðar króna og því liggur mikið við að rekstur hans gangi vel. Fyrir Alþingi liggur nýtt frum- varp um stjórnun sjávarútvegs þar sem m.a. er gert ráð fyrir veiðigjaldi á sjávarútvegsfyrirtæki sem veiða meira en 100 tonn sem geti orðið um 70% af EBITDU fyrirtækjanna eftir að árgjaldið hefur verið dregið af henni. Þegar rætt er við fulltrúa bank- anna segjast þeir allir vera með það í skoðun hvaða áhrif þessi gjaldtaka muni hafa. Eins og sjá má í áhættuskýrslu Íslandsbanka fyrir árið 2011 eru tæp 13% útlána bankans til sjávar- útvegsins eða um 70 milljarðar ís- lenskra króna. Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi bankans, segir að ljóst sé að áhrifin af frumvarpinu séu margbrotin og því muni taka tíma að yfirfara þau út frá hverjum lántaka. Landsbankinn er langstærstur í útlánum til sjávarútvegsins með um 135 milljarða í útlánum til hans en það eru um 20% af útlánum bank- ans. „Landsbankinn á sér langa sögu og rekur mörg útibú úti á landi þannig að við höfum alltaf haft sterk tengsl við sjávarútveginn,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsinga- fulltrúi bankans. „Það er ljóst að mikið er undir en við erum að setjast yfir frumvarpið og það er of snemmt að fullyrða eitthvað um áhrifin.“ Haraldur Guðni Eiðsson, upplýs- ingafulltrúi Arion banka, hefur svip- aða sögu að segja og segir hann að- eins að þetta sé í skoðun. Hjá Arion banka er ekki hægt að fá nákvæmar upplýsingar um hversu mikil útlánin eru til sjávarútvegsins en tæpir 62 milljarðar, eða 11,1% útlánanna, eru til þess sem kallað er skógrækt, landbúnaður og sjávarútvegur. Ætla má að þar sé stærstur hlutinn, eða 70-80%, til sjávarútvegsins sem eru þá 43-50 milljarðar. Samanlagt eru þá útlánin til sjávarútvegsins hjá bönkunum þremur hátt í 300 milljarðar króna. Gæti fellt veiku fyrirtækin Fæstir viðmælenda í bönkunum telja að til fjöldagjaldþrota komi ef frumvarpið verður samþykkt óbreytt eða að höggið á bankana verði verulegt. Í það minnsta fyrst um sinn. En menn eru samt sem áð- ur mjög hikandi og óttast langtíma- áhrif laganna á atvinnugreinina, verði þau samþykkt. Fyrr í vikunni lýsti Friðrik Soph- usson, stjórnarformaður Íslands- banka, því yfir að breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu hefðu slæm áhrif á fjárfestingar fyrirtækja og að verulegar breytingar á kerfinu myndu draga úr arðsemi fyrirtækj- anna. Flestir horfa til þess að til langs tíma muni þetta hafa mjög slæm áhrif á sjávarútveginn. En skammtímaáhrifin verða að flestra mati þau að verr settu fyr- irtækin sem þegar hafa farið í gegn- um endurskipulagningu munu þurfa slíkt aftur enda búið að laska rekstr- argrundvöll þeirra nokkuð. Ýmsir benda þó á það að ef litið er framhjá veiðileyfagjaldinu, þá sé margt í frumvarpinu betra en var í því frumvarpi sem lagt var fram í fyrra. Bæði Landsbankinn og Arion banki gerðu ítarlegar skýrslur um það frumvarp og vöruðu alvarlega við því og áhrifum þess. Í nýja frum- varpinu er ekki búið að taka fyrir óbeina veðsetningu eins og var gert í fyrra frumvarpinu og ekki er búið að banna að kvóti sé áframseldur. En þar orkar samt enn þá margt tví- mælis að mati fólks í bönkunum. Ótti er innan bankanna um áhrif nýju laganna Útlán til sjávarútvegs » Landsbankinn er með útlán upp á 135 milljarða til sjáv- arútvegsins eða um 20% út- lána sinna » Íslandsbanki er með 70 milljarða eða tæp 13% » Arion banki er líklega með á bilinu 43-50 milljarða  Langtímaáhrif sjávarútvegsfrumvarps gætu verið slæm  Lítið um fjárfestingu Sjávarútvegur Talsmenn bankanna hafa áhyggjur af langtímaáhrifum frumvarpsins. ● Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætis- ráðherra telur „einboðið að Fjár- málaeftirlitið og Seðlabankinn skoði hvort ekki sé ástæða til að leið- rétta“ verðtrygg- ingarmisvægi í bankakerfinu – ekki síst í tilfelli Landsbankans. Þetta kom fram í svör- um hennar á Alþingi í gærmorgun vegna fyrirspurnar Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Framsókn- arflokksins, þar sem hann vísaði til umfjöllunar Morgunblaðsins um hvern- ig verðtryggingarmisvægi Landsbank- ans hefur stóraukist á umliðnum ár- um. Jóhanna sagðist telja að þessi ójöfnuður „ógni ekki stöðugleika í bankanum heldur hjálpar þetta verð- tryggingarmisvægi honum frekar“. Vill skoða verðtrygging- armisvægi bankanna Jóhanna Sigurðardóttir Stuttar fréttir ... ● Landsnet þarf á næstu árum að endurgreiða fimm milljarða í oftekin gjöld fyrir flutning á rafmagni. Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að bregðast verði við þessu með eig- inframlagi frá eig- endum eða hækkun tekjumarka. Þetta kom fram á ársfundi Landsnets í gær. Skýring þessa er að þegar Landsnet var stofnað árið 2005 var í lögum kveð- ið á um að tekjumörk gjaldskrár fyr- irtækisins ættu að taka mið af tekjum í fortíðinni. Nánar á mbl.is egol@mbl.is Greiði 5 milljarða króna Geir A. Gunnlaugsson SÆVARHÖFÐA 12 SÍMI 577 5400 THROTTUR.IS ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka ÖFLUGIR Í SAMSTARFI VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR · Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang · Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum · Seljum hellusand og útvegum mold

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.