Morgunblaðið - 30.03.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Spurningin er sú hvort að Stein-grímur J. stormi nú aftur til
stækkunarstjórans. Hann réði sér
ekki fyrr en hann fékk bæði bugtið
í Brussel og klappið á kollinn eftir
brottrekstur Jóns Bjarnasonar. Nú
er búið að reka harðskeytta samn-
ingamanninn úr makrílmálinu.
Hann hafði stað-ið í lappirnar,
svo útlendingar sáu
til, sem er embætt-
isleg dauðasök í
augum þeirra Öss-
urar og Steingríms.
Þegar umræðastóð í þinginu
um brottrekstur
Tómasar H. Heiðar
úr forystu viðræðu-
nefndarinnar
heyrðu þingmenn
Árna Þór Sigurðs-
son segja stundarhátt í hliðarsal:
„Hann semur aldrei, hann semur
aldrei. Það er ekki hægt að hafa
mann sem semur aldrei.“
Auðvitað er engin sanngirni í þvíað Steingrímur J. fái aftur að
segja stækkunarstjóranum svona
góðar fréttir, þegar svo fátt er orð-
ið um slíkar. (Meira að segja iðn-
rekendur eru langflestir orðnir á
móti ESB-aðlöguninni).
Enda er það formlega Össur semrekur Tómas úr samninga-
formennskunni svo hann á fyrsta
rétt á að skríða fyrir stækk-
unarstjórann.
En á móti kemur að Steingrímurhefur sýnt að hann hefur fjöl-
marga menn á sínum snærum sem
semja fljótt og vel, aftur og aftur,
hvað sem það kostar þjóðina.
Stækkunarstjórinn má því varlaá milli sjá.
Össur
Skarphéðinsson
Hvor má nú?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 29.3., kl. 18.00
Reykjavík 6 súld
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 14 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 léttskýjað
Vestmannaeyjar 5 alskýjað
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 léttskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 3 léttskýjað
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 17 heiðskírt
Glasgow 12 heiðskírt
London 17 heiðskírt
París 20 heiðskírt
Amsterdam 10 skýjað
Hamborg 8 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 14 alskýjað
Moskva 0 snjókoma
Algarve 17 skýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 18 heiðskírt
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 3 alskýjað
New York 11 léttskýjað
Chicago 7 skýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:51 20:14
ÍSAFJÖRÐUR 6:52 20:23
SIGLUFJÖRÐUR 6:35 20:06
DJÚPIVOGUR 6:20 19:45
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Við erum búnir að sækja um leyfi
og við erum að gera bátinn kláran
núna. Við stefnum á að fara út í
seinni hluta apríl,“ segir Gunnar
Bergmann Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hrefnuveiðimanna ehf. sem
gerir út hrefnuveiðibátinn Hrafn-
reyði KÓ-100.
Alls veiddi fyrirtæki Gunnars 53
dýr í fyrra en aðeins var sótt um
leyfi fyrir þrjú önnur skip til að
veiða hrefnu það ár. Frestur til að
sækja um leyfi til hrefnuveiða á
árinu 2012 hjá sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu rennur út
hinn 4. apríl.
Vex hægt og bítandi
Spurður um hvað hann búist við
að veiða mikið í sumar segist Gunnar
búast við að veiða eitthvað meira en
síðasta sumar. Heildarkvótinn í ár
sé 216 dýr.
„Það gekk þokkalega vel salan á
þessu í fyrra. Það kláraðist allt kjöt í
fyrra en við erum ekkert að veiða
neitt meira en við seljum. Það fer
allt á innanlandsmarkaðinn,“ segir
Gunnar.
Mest af kjötinu segir hann fara í
matvöruverslanir en einnig fer stór
hluti á veitingastaði.
„Þetta hefur alltaf verið að vaxa
hægt og bítandi. Við erum alltaf að
reyna að stækka markaðinn og nýta
meira af skepnunni,“ segir hann.
Fyrirtækið er með vinnslu í Hafn-
arfirði en þar vinnur það meðal ann-
ars reykt og grafið hrefnukjöt auk
þriggja tegunda af maríneruðu kjöti.
Hrefnuveiðarnar fara að mestu
fram yfir hásumarið að sögn Gunn-
ars en samkvæmt alþjóðlegum lög-
um megi þeir veiða í sex mánuði frá
því að veiðarnar hefjast. Þær fara
aðallega fram í Faxaflóa og suður af
landinu en Gunnar segir að hann bú-
ist við því að vera einnig við veiðar á
Breiðafirði nú í sumar.
Stefna á hrefnuveiðar seint í apríl
Morgunblaðið/RAX
Undirbúningur Hrafnreyður við höfn í Hafnarfirði þar sem verið er að búa
skipið undir hrefnuveiðitímabilið sem hefst í næsta mánuði.
Heildarkvótinn 216 dýr Frestur til að sækja um leyfi rennur út 4. apríl
Dalvegi 6-8
201 Kópavogur
S. 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Kraftvélar bjóða breitt vöruúrval atvinnubifreiða frá Iveco
Kraftvélar í samvinnu við Iveco leggja áherslu á skjóta og góða varahluta- og viðgerðarþjónustu.
Hafið samband varðandi þjónustu eða ósk um tilboð í nýja atvinnubifreið.