Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Bjarni Helgason, fyrr-
verandi garðyrkju-
bóndi á Laugalandi í
Borgarfirði, lést á
Landspítalanum í
fyrradag, 83 ára að
aldri. Bjarni var um
árabil í forystusveit í
félagsmálum bænda og
Borgfirðinga.
Bjarni var fæddur í
Reykjavík 23. júní
1928. Foreldrar hans
voru Sigrún Sigurð-
ardóttir húsmóðir og
Helgi Bjarnason leigu-
bílstjóri.
Hann nam við Garðyrkjuskóla rík-
isins og var við starfsnám við garð-
yrkjustöðvar í Danmörku og Sví-
þjóð. Síðar kynnti hann sér
svepparækt við tilraunastöð Land-
búnaðarháskólans í Kaupmannahöfn
og víðar.
Bjarni hóf á unglingsaldri störf
við garðyrkjustöðina Laugaland hf.
sem faðir hans og föðurbróðir stofn-
uðu í Borgarfirði. Hann varð garð-
yrkjustjóri og síðan framkvæmda-
stjóri og aðaleigandi fyrirtækisins.
Hann var frumkvöðull að sveppa-
rækt á Íslandi.
Bjarni var alla tíð
virkur í félagsmálum,
var formaður Ung-
mennafélags Stafholts-
tungna og sat í stjórn
Ungmennasambands
Borgarfjarðar. Hann
var formaður Garð-
yrkjubændafélags
Borgarfjarðar og Sam-
bands garðyrkju-
bænda. Var fulltrúi
garðyrkjubænda á að-
alfundum Stéttar-
sambands bænda og
sat í stjórn Stéttarsambandsins og
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Bjarni átti sæti í hreppsnefnd Staf-
holtstungnahrepps og síðar bæjar-
stjórn Borgarbyggðar. Hann gegndi
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, átti sæti í náttúruverndar-
nefnd og stjórn Sparisjóðs Mýra-
sýslu. Hann var lengi í sóknarnefnd
Stafholtskirkju og tók mikinn þátt í
störfum Lionsklúbbs Borgarness.
Eftirlifandi eiginkona Bjarna er
Lea Kristín Þórhallsdóttir sem fædd
er á Ísafirði. Þau eiga fjögur upp-
komin börn.
Andlát
Bjarni Helgason
garðyrkjubóndi
Utanríkisráðuneytið sagði upp
samningi við sjávarútvegsráðuneyt-
ið um að ráðuneytin skiptu með sér
starfskröftum Tómasar H. Heiðar í
lok síðasta árs. Þetta kom fram í máli
Össurar Skarphéðinssonar, utanrík-
isráðherra, á Alþingi í gær. Tómas
hefur verið aðalsamningamaður Ís-
lendinga í makríldeilunni en lét sam-
kvæmt svari utanríkisráðherra við
fyrirspurn frá Ragnheiði Elínu
Árnadóttur, þingsflokksformanni
Sjáflstæðisflokks, af störfum 1. febr-
úar síðastliðinn.
Í svari sínu sagði Össur að samn-
ingurinn hefði verið gerður í apríl
2009 og hefði hljóðað upp á að 30% af
vinnuframlagi Tómasar yrðu nýtt af
sjávarútvegsráðuneytinu. Reyndin
hefði hins vegar orðið sú að störf
hans fyrir ráðuneytið hefðu útheimt
allt að 100% vinnugetu hans. Tómas
sé eini þjóðréttarfræðingur utan-
ríkisráðuneytisins, sem hefði ekki
mátt af starfskröftum hans sjá.
Svar utanríkisráðherra er eilítið
frábrugðið því svari sem Steingrím-
ur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, gaf í samtali
við mbl.is á miðvikudag en hann
sagði að samningur ráðuneytanna
um Tómas hefði runnið út fyrir
nokkru. Það var Jón Bjarnason,
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra,
sem vakti athygli á því að Tómas
hefði verið látinn hætta sem samn-
ingamaður Íslands í makríldeilunni
og lýsti hann yfir nokkrum áhyggj-
um vegna þessa. Tómas hefði staðið
sig vel, bæði í makríldeilunni og
hvalveiðimálum.
Steingrímur sagði hins vegar mál-
ið ekki tengjast makríldeilunni né
góðum störfum Tómasar. Þá væri
ákveðið hlé í þessum málum um
þessar mundir. Viðræður hæfust
væntanlega ekki aftur fyrr en í haust
og því væri nógur tími til stefnu til að
grípa til annarra ráðstafana.
holmfridur@mbl.is
Sögðu upp samn-
ingnum um Tómas
Utanríkisráðu-
neytið mátti ekki
af Tómasi sjá
Tómas H.
Heiðar
Össur
Skarphéðinsson
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni sem réðist að barns-
móður sinni með hamri og veitti henni áverka. Þá braut hann hliðarrúðu bif-
reiðar með hafnaboltakylfu, en fyrir innan var starfsmaður Fjölskyldudeildar
Akureyrarbæjar. Hann verður í haldi til 18. apríl nk. Einnig tilkynnti maður til
lögreglu að umræddur maður hefði heimtað fé af syni hans vegna fíkniefna.
Hefði sonurinn verið búinn að greiða manninum 7-800 þúsund krónur frá því
haustið 2011. Til rannsóknar er nokkur fjöldi mála sem maðurinn kemur að,
frá 12. október 2011 til 24. mars þegar hann var handtekinn. Við húsleit hjá
manninum fundust fíkniefni, skuldalisti, grammvogir og ólöglegir hnífar.
Réðist að barnsmóður sinni með hamri
Verð kr. 8.900.
fleiri litir
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Blómlegt vor
Ný sending
www.s i ggaog t imo . i s
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993
Sundbolir
Tankini
Bikini
Náttföt
Undirföt
Sloppar
YÜØ f|zâÜÄtâz
Mjóddin s. 774-7377
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is