Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Bandaríska
samheitalyfjafyr-
irtækið Watson
Pharmaceuticals
er samkvæmt
Bloomberg
fréttaveitunni,
nálægt því að
ganga frá kaup-
um á samheita-
lyfjafyrirtækinu Actavis fyrir um sex
milljarða Bandaríkjadala, eða um 762
milljarða króna.
Watson er eitt af fimm stærstu sam-
heitalyfjafyrirtækjum heims.
Í síðustu viku birti Reuters-
fréttastofan frétt um að Watson væri
nálægt því að kaupa Actavis á 7 millj-
arða dollara. Bloomberg segir í frétt
sinni að líklegt sé að gengið verði frá
kaupunum eftir páska.
Kaupir Watson Actavis?
● Í febrúar 2012 voru 106 fyrirtæki tek-
in til gjaldþrotaskipta en 131 fyrirtæki í
febrúar 2011. Flest voru gjaldþrotin í
byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
Fyrstu 2 mánuði ársins 2012 er fjöldi
gjaldþrota 195 sem er 42% fækkun frá
sama tímabili árið 2011. Þetta kemur
fram í tölum Hagstofunnar.
106 fyrirtæki í gjaldþrot
í febrúarmánuði
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Nýfallinn gengislánadómur Hæsta-
réttar kveður skýrt upp úr um að
það sé óheimilt samkvæmt lögum
að breyta samningsvöxtum með
afturvirkum hætti neytanda í óhag.
Það skiptir jafnframt engu máli
hvort um er að ræða einstaklinga
eða lögaðila. Svo lengi sem sam-
bærilegt atvik er fyrir hendi, líkt
og dómur Hæstaréttar fjallar um,
þá gilda samningsvextir ólögmætra
gengistryggðra lána. Þetta kom
fram í máli Elísabetar Guðbjörns-
dóttur, lögmanns hjá PwC, á morg-
unverðarfundi fyrirtækisins. Hún
telur að með nýjasta dómi Hæsta-
réttar sé myndin tekin að skýrast
varðandi hin ólögmætu gengislán.
Þrátt fyrir að dómurinn hafi ekki
svarað öllum spurningum, eða tek-
ið á öllum tilvikum er tengjast
ólögmætum gengistryggðum lán-
um, þá er það engu að síður mat
Elísabetar að dómurinn staðfesti
eina af meginreglum kröfuréttar
sem er að skuldara ber ekki að
greiða vexti né aðrar vanskila-
greiðslur af kröfu ef honum verður
ekki um kennt að greiðsla fór ekki
fram á réttum tíma eða með réttum
hætti. „Fullyrðingar um að dóm-
urinn hafi einvörðungu fordæmis-
gildi hvað varðar einstaklinga en
taki ekki til lögaðila,“ bendir El-
ísabet á, „standast ekki þar sem al-
mennar reglur kröfuréttar gilda í
öllum samningssamböndum óháð
því hvaða aðilar eiga í hlut.“
Dómur Hæstaréttar tekur ekki
beint á því álitaefni hvort fjármála-
fyrirtæki megi krefja skuldara,
sem annaðhvort var í vanskilum
eða með lán sitt í fyrstingu á ein-
hverjum tímapunkti, um lægstu
óverðtryggðu vexti Seðlabankans
með afturvirkum hætti, í stað
samningsbundinna vaxta. Að sögn
Elísabetar þurfa fleiri dómar að
falla til að fá endanlegt svar við
þeirri spurningu – ásamt ýmsum
öðrum álitaefnum. Á meðal þessara
álitaefna eru atriði á borð við
hvernig beri að reikna út vextina
afturvirkt og á hvaða tímabili og
hvort þeir sem hafi misst eigur sín-
ar vegna vanskila á ólögmætum
gengislánum eigi kröfu á skaðabót-
um gagnvart lánastofnunum.
Elísabet bendir hins vegar á að
það sem einkenni nýfallinn dóm
Hæstaréttar umfram aðra gengis-
lánadóma sé „að þarna tekur dóm-
urinn í fyrsta sinn með afgerandi
hætti afstöðu til röksemda er
byggjast á neytendasjónarmiðum
og reglum samningaréttar um
skuldbindingargildi samninga.“
Jafnframt segir hún að Hæstirétt-
ur taki það fram að sökum yfir-
burðastöðu fjármálafyrirtækisins
eigi það að bera hallann af því að
hafa ekki gætt ákvæða þeirra laga
er giltu um slíka samninga.
Hinir „dyggðugu og góðu“
Því telur Elísabet að ekki sé
hægt lesa það úr dómi Hæstaréttar
að þeir „dyggðugu og góðu,“ sem
ávallt stóðu í skilum með sín lán,
eigi aðeins rétt á því að lán þeirra
séu endurútreiknuð byggt á samn-
ingsvöxtum, á meðan hinir, sem
ekki stóðu í skilum, hafi með ein-
hverjum hætti fyrirgert rétti sínum
vegna þess að ekki hafi verið greitt
af láninu í einhvern tíma. „Það
gengur ekki rökfræðilega upp,“
segir Elísabet.
Kristján Markús Bragason hjá
fyrirtækjaráðgjöf PwC fjallaði um
þær aðferðir og forsendur sem
bæri að leggja til grundvallar við
endurútreikning ólögmætra geng-
islána. Samkvæmt útreikningum
Kristjáns myndi höfuðstóll láns
upp á 25 milljónir króna, sem var
tekið í ágúst 2006, lækka í ríflega
18,7 milljónir væri lánið endurú-
treiknað í samræmi við samnings-
bundna vexti. Sé hins vegar miðað
við vexti Seðlabankans stæði höf-
uðstóll lánsins í tæplega 29,3 millj-
ónum og nemur munurinn því 36%.
Myndin tekin að skýrast
Gengislánadómur Hæstaréttar skýr um að óheimilt sé að breyta samnings-
vöxtum afturvirkt neytanda í óhag Á við um bæði einstaklinga og lögaðila
Endurútreikningur PwC á gengisláni
Lán sem var tekið í ágúst 2006:
Lánsfjárhæð: 25 milljónir
Myntsamsetning: JPY (15%), CHF (15%), EUR (70%)
Lengd: 20 ár og mánaðarleg afborgun
Vaxtaálag: 2,95%
Upphafleg lánsupphæð: 25.000.000 kr.
Endurútreikningur m.v. vexti Seðlabankans: 29.269.070 kr.
Útreikningur PwCm.v. nýfallinn dóm Hæstaréttar: 18.727.425 kr.
Lækkun: 36%
Skýring: Rétt er að taka fram að í útreikningi PwC í þessu dæmi er miðað við ákveðnar forsendur
sem skila þessari niðurstöðu. Önnur lán og aðrar forsendur gætu sýnt aðra niðurstöðu.
Morgunblaðið/Kristinn
Gengislán Kristján Markús Bragason, fjármálasérfræðingur hjá PwC.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./
,0+.,1
+,-.-2
,,.-2,
,,.02-
+3.0,4
+23.-4
+.1404
+31.53
+-/.22
+,5.+
,0+.54
+,5
,,.-3/
,,.+0+
+3.0/
+40.02
+.1443
+3-.25
+-/./
,20.12+/
+,5.4
,0,.,2
+,5.25
,,.5-4
,,.+--
+3.+2-
+40.4,
+.1434
+3-.31
+-3.,5
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Stoðir hf. hafa falið Fyrirtækjaráð-
gjöf Landsbankans að annast sölu á
öllu hlutafé sínu í Tryggingamiðstöð-
inni hf. (TM). Um er að ræða 99,94%
útistandandi hlutafjár í félaginu og
er það til sölu í heild eða að hluta.
TM er eitt stærsta tryggingafélag
landsins. Rekstur félagsins er
traustur og hefur styrkst á undan-
förnum árum, segir í tilkynningu frá
Landsbankanum.
Þar kemur fram að stjórnendur og
starfsmenn félagsins hafi unnið
markvisst að margvíslegum umbót-
um sem hafi skilað sér í hagkvæmari
rekstri. Hagnaður TM á árinu 2011
nam 3,4 milljörðum króna.
„Efnahagur TM er traustur, hvort
sem horft er til eiginfjárhlutfalls,
gjaldþols eða gæða eigna. Í árslok
2011 námu heildareignir TM 29,3
milljörðum króna, eigið fé var 12,2
milljarðar króna og eiginfjárhlutfall-
ið 41,8%,“ segir orðrétt í tilkynningu
Landsbankans.
TM er eina íslenska trygginga-
félagið sem metið er af alþjóðlegu
matsfyrirtæki. Mat Standard & Po-
or‘s á TM er BB+ og var hækkað ný-
verið.
TM byggir á 56 ára sögu og hefur
um 26% markaðshlutdeild meðal
tryggingafélaga á Íslandi.
Þeir fjárfestar sem uppfylla skil-
yrði fyrir þátttöku í söluferlinu fá af-
hent ítarleg kynningargögn um TM
og gera óskuldbindandi tilboð á
grundvelli þeirra gagna.
Frestur til að skila óskuldbindandi
tilboðum er til kl. 12:00 föstudaginn
4. maí 2012.
Tryggingamið-
stöðin í söluferli
Morgunblaðið/Kristinn
TM Nánast allt hlutafé Trygginga-
miðstöðvarinnar, 99,94%, er til sölu.
99,94% hlutafjár TM eru til sölu
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár