Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 32

Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Rafvirkjun Raflagnir, dyrasímar - S. 6630746 Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti. Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði, án endurgjalds. Straumblik ehf. löggilltur rafverktaki straumblik@gmail.com Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Húsnæði til sölu Til sölu 230 fm raðhús á tveimur hæðum í Friggjarbrunni. Gengið er inn á efri hæð þar sem er gert ráð fyrir eldhúsi, stofu, salerni og geymslu. Innangengur bílskúr. Efri hæðin er rúmlega fokheld. Búið er að leggja gólfhita og flota. Neðri hæðin er tilbúin til innréttingar. Þar eru 2-3 svefnherbergi, mjög stórt sjónvarps- hol, þvottahús og baðherbergi. Verð 38,7 millj. Uppl. í síma 697 9557. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi, s. 551-6488 fannar@fannar.is - KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Skattframtöl Skattframtal 2012 Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Mikil reynsla - hagstætt verð. Uppl. í síma 517-3977. www.fob.is. netf. info@fob.is. Þjónusta Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar Látið fagmenn okkar nostra við garðinn þinn. Öll almenn garðþjónusta á einum stað. 577 4444 www.gardalfar.is Malbikun og malbiks- viðgerðir S. 551 4000 & 690 8000. www.verktak.is Bílar Húsbíll til sölu M. Benz 614 dísil-húsbíll til sölu. Glæsilegur og mjög vel útbúinn bíll. Sjón er sögu ríkari. Verð 5.900.000. Uppl. í síma 899 9799, Baldur. SUZUKI GRAND VITARA Árg. 2000, ek. 120 þús. km, beinsk. 5 gíra. Verð 900 þús. Uppl. í síma 824-8018. Honda Jazz 2007 Ekinn 75 þús. km, vel með farinn og góður bíll. Verð 1.490 þús. Sparneyt- inn bíll. Uppl. í síma 862 6242. Bílar óskast Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is bílasala ...í bílum erum við sterkir! ☎ 562 1717 Skráðu bílinn þinn frítt hjá bilalif.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. ✝ Guðrún StellaHelgadóttir fæddist á Ólafs- firði 5. september 1929. Hún and- aðist á Garðvangi 23. mars 2012. Foreldrar hennar voru Helgi Krist- inn Halldórsson, f. 19.8. 1897, d. 27.1. 1977 og Ragnhild- ur Magnúsdóttir, f. 25.2. 1900, d. 14.1. 1939. Seinni kona Helga var Guð- finna Jónsdóttir, f. 1915, d. 1986. Systkini: Alexander, f. 1918, látinn, Guðbjörg María, f. 1923, látin, Halldór, f. 1926, látinn og Inga Guðlaug, f. 1933, Systkini samfeðra: Hulda Ósk, f. 1980, hennar dóttir er Dagný Dröfn, f. 1998, b) Sigmundur Einar, f. 1989, c) Kolbrún Sjöfn, f. 1993, d) Aðalbjörn Gottskálk, f. 1996. 4) Ragna, f. 19.4. 1962, bóndi á Stóru-Mörk III, maður hennar er Ásgeir Árna- son bóndi. Börn þeirra eru: a) Hafdís, f. 1982, sambýlis- maður hennar er Pálmi Sævar Þórðarson, f. 1977, barn þeirra er Guðný Lilja, f. 2011, b) Aðalbjörg Rún, f. 1986, sambýlismaður hennar er Eyvindur Ágústsson, f. 1983, börn þeirra eru Emilía Rós, f. 2006 og Ásgeir Ómar, f. 2010, c) Árni, f. 1988, d) Aldís Stella, f. 1990, sambýlismaður hennar er Hannes Arnar Við- arsson, f. 1987, barn þeirra er Ragna Júlía, f. 2010, e) Lilja Rut, f. 2002. Útför Stellu fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag, 30. mars 2012 og hefst athöfnin kl. 14. Ragna Steina, f. 1943, Margrét Jónfríður, f. 1945 og Sigurbjörn Ragnar, f. 1948. Stella giftist 26. desember 1947 Aðalbirni Gott- skálk Þorsteins- syni, f. á Siglufirði 18. október 1923, d. 14. september 1997. Börn þeirra: 1) Þorsteinn Helgi, f. 3.5. 1947, búsettur í Sandgerði, 2) Ragn- hildur Guðfinna, f. 22.12. 1950, d. 11.7. 1952, 3) Jón, f. 24.8. 1955, bílstjóri í Reykjavík, sambýliskona hans er Sigríður Sigmundsdóttir skrif- stofustjóri. Börn þeirra eru: a) Það er komið að kveðjustund, elsku mamma. Þinn tími var víst kominn. Þú skilur eftir þig góð- ar og fallegar minningar sem við getum öll munað og yljað okkur við þegar fram líða stund- ir, minningar um þig að hugga, hughreysta, fræða og gleðjast með okkur. Fjölskyldan og vin- irnir voru þér allt. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um þig um ævina en þú varst sterk og stóðst þann ólgusjó, held ég að létt skap þitt og bjartsýni hafi létt þér margar erfiðar stundir. Við fjölskyldan eigum um þig fallegar minningar þar sem þú varst alltaf til staðar, sterk og ráðagóð og ég tala nú ekki um glöð og jákvæð. Það var alltaf svo stutt í húmorinn hjá þér. Mamma var verkakona sem vann til fjölda ára við fiskverk- un í Sandgerði. Man ég vel þann tíma sem vinnudagurinn var langur hjá henni og stóð ég þá við eldhúsgluggann í gamla hús- inu okkar við Brekkustíginn og beið eftir að hún kæmi heim. Ekki að það væri leiði í mér, það er af og frá, því við krakkarnir á Brekkustíg áttum mömmu í mörgum húsum. Heimilin stóðu okkur opin ef ein mamman var að vinna var öruggt að önnur var heima og þá bara skoppað þar inn í kaffitímanum eða þeg- ar við þurftum smá faðmlag og plástur á sárin. Þú og pabbi réð- ust í það stórvirki að byggja ykkur hús á Norðurgötu 30. Til- hlökkunin var mikil hjá fjöl- skyldunni að flytja í þetta stóra og fallega hús og ekki var ná- grannakærleikurinn síðri við þá götu. Þar bjugguð þið okkur fal- legt heimili og garðurinn var líf ykkar og yndi. Ég halla augunum aftur og læt hugann reika til liðinna ára. Minning af ilminum af sunnu- dagssteikinni eða nýbökuðum lummum hjá pabba, ykkur pabba í eldhúsinu jafnvel að dansa saman eða hlæja með gestum, eða þú að tala í símann, kannski við Gullu systir þína. Eflaust annað símtalið þann daginn og ekki það síðasta. Mamma ætlaði ekki að fara frá Norðurgötu en lífið fer ekki allt- af eins og við óskum. Hún dvaldi seinustu mánuðina á Garðvangi í Garði orðin þreytt á líkama en samt kát og gerði stundum starfsfólkinu grikk með skemmtilegum tilsvörum og uppákomum eins og henni einni var lagið. Þegar ég sit hér og skrifa þessi kveðjuorð til henn- ar skín sólin inn um gluggann, tjaldurinn syngur úti og krókus- arnir kíkja uppúr moldinni í garðinum. Vorið var þín uppá- haldsárstíð. Ég vona að þú fáir ósk þína uppfyllta að fá að hitta hann pabba aftur og hver veit nema að Síldarvalsinn ómi og þið dansið saman á ný. Elsku Gulla frænka, þinn missir er mikill og vil ég fyrir hönd okkar fjölskyldunnar þakka þér og fjölskyldu þinni fyrir allt sem þið hafið gert fyrir okkur. Heil- brigðisstofnun Suðurnesja og Garðvangs í Garði færum við hlýjar kveðjur eða bara eins og mamma hefði sagt, þið eruð frá- bær. Þín dóttir, Ragna. Kveðja til frænku Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Stella, í dag kveðjum við þig í síðasta sinn. Hafðu þökk fyrir allt. Fyrir hönd fjölskyldunnar að Vallargötu 30, Helgi Sigurbjörnsson. Það er erfitt að byrja því af mörgu er að taka þegar ég rifja upp minningarnar um ömmu mína. Ferðirnar til Sandgerðis eru það sem kemur fyrst upp í hugann þegar öllu og öllum var pakkað niður og keyrt suður með sjó til að dvelja yfir helgina hjá ömmu og afa. Einnig allir pakkarnir sem bárust með póst- inum í sveitina frá henni. Það var mikill spenningur sem ríkti hjá okkur systkinunum þegar vitað var að von væri á pakka frá ömmu sem ávallt innihéldu eitthvað mjög spennandi og dýrmætt fyrir litla krakka. Ég þakka fyrir allar góðu stundirnar með þér, amma. Ég veit að nú ertu komin til afa sem ég er viss um að býður þér upp í einn dans eins og þið stiguð svo oft á eldhúsgólfinu heima. Ég vil dansa við þig meðan dunar þetta draumblíða lag sem ég ann. Meðan fjörið í æðunum funar, og af fögnuði hjartans sem brann. Og svo dönsum við dátt, þá er gaman meðan dagur í austrinu rís. Og svo leiðumst við syngjandi saman út í sumarsins paradís. (Magnús K. Gíslason) Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir Mig langar í nokkrum orðum að minnast Stellu vinkonu minnar og það fyrsta sem kem- ur upp í hugann er harðdugleg fiskverkakona sem kallaði ekki allt ömmu sína, ættuð úr Ólafs- firði, en lengst af búsett í Sand- gerði. Hún var prakkari sem lét í sér heyra og komst upp með það. Í mörg ár vann hún í Mið- nesi og helst það sem erfitt var, í flökun og öðru sem fyrir lá í frystihúsi og það var alltaf fjör í kringum Stellu. Okkar kynni eru frá því að ég man eftir mér, en á sumrin komu þau Alli frændi í síldina á Sigló og bjuggu hjá ömmu og afa, for- eldrum Alla og þar bjó ég líka. Það hefur verið gott að eiga Stellu og Alla að vinum og ég á eftir að sakna þeirra, en eftir að Alli lést vorum við Stella í síma- og heimsóknasambandi eins oft og við gátum og það var mikið hlegið. Það var oft minnst á Miðnes og góðu dagana og þrátt fyrir allt sem hún reyndi í lífinu, missti móður sína ung og unga dóttur ásamt erfiðum veikind- um Alla var Stella kát og sterk kona sem elskaði fjölskylduna sína og var hreykin af þeim. Takk fyrir að vera vinkona mín og minna. Ég votta fjölskyld- unni innilega samúð. Jóna í Grindavík. Guðrún Stella Helgadóttir ✝ Guðjón ÁrniSigurðsson fæddist á Kirkju- bóli í Mosdal í Arn- arfirði 17. apríl 1921. Hann and- aðist á Hrafnistu 16. mars 2012. Foreldrar hans voru hjónin Sig- urður Guðmunds- son bóndi á Kirkjubóli, f. 10.4. 1886, d. 29.8. 1965, og Jóna Krist- jana Símonardóttir frá Hjallkárs- eyri við Arnarfjörð, f. 13.8. 1895, d. 16.11. 1967. Systkini Guðjóns voru Pétur (Björn Jón Kristján) Sigurðsson, f. 15.3. 1914, d. 18.3. 2007, maki Þuríður Jónsdóttir, f. 12.3. 1920, d. 10.12. 2010; Númi Sigurðsson, f. 21.5. 1916, d. 22.11. 1998, maki Elísabet Ragnheiður Jónsdóttir, f. 6.6. 1897, d. 14.12. 1977; Ólína Guðmunda Sigurðar- dóttir, f. 8.12. 1917, d. 4.10. 2008, maki Dagur Daníelsson, f. 17.10. 1918, d. 27.7. 2001; Lilja Sigurðardóttir, f. 23.9. 1923, maki Bjarni Markússon, f. 22.10. 1919, d. 5.11. 1988; Sigurjón Markús Sigurðsson, f. 17.3. 1926, maki Guðbjörg Elentínus- dóttir, f. 11.8. 1929; Þorbjörg Sigurðar- dóttir, f. 26.12. 1927, d. 28.9. 2011; Kristinn Sigurðsson, f. 20.1. 1931, maki Erna Gunnarsdóttir, f. 22.11. 1938; Þórey Sigurðardóttir, f. 19.1. 1934, og Ágúst Sigur- björn Sigurðsson, f. 14.8. 1935, d. 2.7. 2010, maki Kristín Erla Bernódusdótt- ir, f. 5.10. 1933, d. 9.1. 2007. Guðjón vann ýmis störf um æv- ina, var á síld á Siglufirði, aðstoð- armatsveinn á Júpíter, hann vann hjá Brynjólfi í Tryggvaskála sem matsveinn, var innheimtufulltrúi hjá Vísi og vann hjá Póstinum frá 1960-1995, en þá lét hann af störfum. Hann var skáti, fór ma. með stóran hóp skáta til Parísar 1947, sem þótti mikið afrek á þeim tíma. Guðjón var mikill bókasafnari, hann átti stórt bóka- safn sem var með þeim stærri hér á landi. Útför Guðjóns Árna fór fram frá Fossvogskirkju 27. mars 2012. Kveðja frá Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar Viðskipti manna í millum eru ekki alltaf mæld í krónum og aur- um. Í dag kveðjum við kaupmenn okkar kærasta viðskiptavin Guð- jón Árna Sigurðsson. Guðjón gerði sér ferð í verslun okkar strax og hún var stofnuð í jólatíð árið 1996. Hann bauð af sér góðan þokka og var strax áhugasamur um gæfu okkar og gengi. Guðjón var grúsk- ari af guðs náð og safnaði ýmsu, m.a. tímaritum og úrklippum og vitum við að hann fylgdist vel með þegar fjallað var um verslunina í fjölmiðlum. Í áranna rás heimsótti Guðjón okkur reglulega í búðina. Erindið var yfirleitt að koma til að spjalla um daginn og veginn og var það okkur kærkomið. Guðjón þáði kaffisopa en engan sykur út í enda sagðist hann vera alveg nógu sæt- ur fyrir. Ekki mótmæltum við því. Verslunin tók sér launalaust leyfi á árunum 2000-2006 en opnaði þá með stíl á nýjum stað. Okkur þótti það merki um að allt væri eins og vera átti þegar Guðjón gerðist fastagestur í nýju versluninni. Guðjón var orðinn aðeins lélegri til heilsunnar undir það síðasta en þó ekki svo að hann gæti ekki litið til okkar í kaffisopa svona endrum og eins. Hann var ekki einungis gestur okkar svona hvunndags heldur var honum líka boðið þeg- ar meira stóð til eins og þegar hin- ar árlegu herrafatasýningar voru settar upp og kom hann þá gjarn- an með Lilju vinkonu sinni. Reyndist hann einkar bóngóður þegar leitað var til hans að vera sýningarherra og leysti hann það verk af einstökum myndarskap. Var hann fyrir vikið nefndur heið- ursfyrirsæta verslunarinnar. Búðin hefur alla tíð verið nokkurs konar félagsheimili og hafa marg- ir góðir drengir skapað þann anda sem þar ríkir. Sómamaður eins og Guðjón átti sinn þátt í því og fyrir það erum við ævarandi þakklátir. Genginn er drengur góður. Bless- uð sé minning hans. Kormákur Geirharðsson, Skjöldur Sigurjónsson, Þorlákur Einarsson og starfsmenn. Guðjón Árni Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.