Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
• Góðir tekjumöguleikar
• Þekkt vörumerki
• Sveigjanlegur vinnutími
Allar nánari
upplýsingar á
www.avon.is
Við leitum af
sölufulltrúum
um land allt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er gefið að taka eftir hlutum sem
fara framhjá öðrum. Leggðu þig fram um að
bæta samskiptin því maður er manns gam-
an. Vonir þínar og framtíðardraumar eru þér
ofarlega í huga þessa dagana.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að huga að framtíðinni og
tryggja stöðu þína sem best. Leggðu af vit-
leysu og notaðu fjármuni þína í annað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hugsanir þínar eru bjartar upp á
síðkastið og hún/hann heillar alla upp úr
skónum. Seinni partinn í dag mun góð hug-
mynd breyta öllu hjá þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Enn á ný kanntu að komast í upp-
nám yfir breyttum reglum varðandi sameig-
inlegt eignarhald. Ef þér finnst að einhver
beri ekki hag þinn fyrir brjósti er hyggilegast
að halda vöku sinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Með gamanseminni tekst þér að létta á
spennunni meðal félaganna. Dagurinn er líka
kjörinn til þess að hitta vinina og finna út úr
því hvernig hægt er að bæta veröldina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Allt sem þú gerir í dag til að bæta
skipulagið heima fyrir eða í vinnunni kemur
sér vel. Sýndu þolinmæði gagnvart mönnum
og málefnum og sæktu það sem þú vilt með
lipurð og festu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að gera ekki of miklar kröf-
ur til annarra. Mundu bara að ábyrgð fylgir
orði hverju og þá er þér ekkert að vanbúnaði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það liggur í loftinu að þú öðlist
nú þá viðurkenningu sem þú svo lengi hefur
átt skilið. Þú þarft að horfast í augu við stað-
reyndir og þér mun líða betur á eftir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef gildismat þitt er hið sama nú
og á barnsaldri, má velta því fyrir sér hvort
þú sért að vaxa eða læra eitthvað.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur öll tök á því að læra sitt-
hvað um sjálfan þig í samskiptum við þá
sem standa þér næst, það er maka og nána
vini.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt ekki að hika við að segja
þína meiningu, hver sem í hlut á. Horfðu svo
bjartsýnn fram á veginn. Nokkur létt reikn-
ingsdæmi gætu létt þér lífið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert skýrari í hausnum þessa dag-
ana en oftast gerist, svo nýttu þér það. Leit-
aðu ráða þér eldri og reyndari manna og þá
áttu auðveldara með að taka af skarið.
G
re
tt
ir
S
m
áf
ó
lk
H
ró
lfu
r
h
ræ
ð
ile
g
i
G
æ
sa
m
am
m
a
og
G
rí
m
u
r
F
er
d
in
a
nd
ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ
ÆTTIR AFMÆLI BRÁÐUM
HVAÐ Á ÉG AÐ GEFA ÞÉR,
ELLISMELLUR?
HVAÐ MEÐ
GLASABAKKA MEÐ
LÖPPUM?
ROSA
SNIÐUGT
ÉG
ÞOLI EKKI
AÐ VERA
ANDVAKA
ÉG FER ALLTAF AÐ HUGSA
UM SLÆMA HLUTI
ÞAÐ ER SLÆMT AÐ LIGGJA
HÉRNA OG HUGSA UM
LÍFSINS VANDAMÁL...
...EN
ÞAÐ AÐ VERA
ANDVAKA OG
LANGA Í
PIZZU ER
ÓBÆRILEGT
ÉG ER FARINN AÐ
RÆNA OG RUPPLA...
ER EITTHVAÐ
SEM ÞIG LANGAR Í?
JÁ, NÁÐU Í EITT
RUPPL OG TVÆR RÆNUR
HANDA MÉR
HENNI FINNST VINNAN MÍN
GREINILEGA EKKI JAFN
SPENNANDI OG ÁÐUR
VIÐ ÆTTUM AÐ BYGGJA
ÞAÐ VIÐ FRAMPARTINN
AF HÚSINU HENNAR
MÖMMU OG LÁTA ÞAÐ
GEFA FRÁ SÉR ÞOKU OG
SKRÍTIN HLJÓÐ
ÞÚ GERIR ÞÉR GREIN FYRIR ÞVÍ
AÐ ÞETTA MYNDI BRJÓTA ALLAR
REGLUGERÐIR UM VIÐBYGGINGAR
Í ÍBÚÐAHVERFUM
USS... VIÐ
ÞURFUM EKKI AÐ
BORGA SEKTINA
HREKKJAVAKA ER AÐ
NÁLGAST, VIÐ ÆTTUM AÐ
BÚA TIL DRAUGAHÚS
Í sveitinni í gamla daga brugðumenn sér af bæ í kaupstað til þess
að sinna ýmsum erindum. Stundum
skellti Víkverji sér meira að segja í
bíó á þessum stundum og þá voru
engar auglýsingar á undan myndum
í félagsheimilum. Lífið í höfuðborg-
inni býður upp á fleiri möguleika og
seint verður sagt um Víkverja að
hann sé fastagestur kvikmyndahúsa.
x x x
Víkverji gerði sér dagamun og fór íbíó á dögunum. Mætt var tím-
anlega og eftir að hafa birgt sig upp
af miðstærð af poppkorni og kóki
var haldið í salinn um 10 mínútum
áður en myndin átti að hefjast, sam-
kvæmt auglýsingu í Morgunblaðinu.
Um nýja mynd var að ræða, mynd
sem aukinheldur hafði fengið góða
dóma, og því kom Víkverja á óvart
að salurinn var nær tómur. Hann lét
það samt ekki á sig fá enda fékk
hann sæti á besta stað. Það sem kom
honum hins vegar spánskt fyrir
sjónir var að myndin byrjaði ekki
fyrr en um 20 mínútum eftir auglýst-
an tíma. Þegar hann spurðist fyrir
um þetta háttalag var honum sagt að
svona væri þetta bara. Auglýsing-
arnar þyrftu sinn tíma.
x x x
Víkverji fer ekki í bíó til þess aðhorfa á skjáauglýsingar í hálf-
tíma fyrir sýningu. Hann fer til þess
að sjá ákveðna mynd sem byrjar á
ákveðnum tíma og vill að poppið
endist eitthvað fram í myndina en
klárist ekki yfir auglýsingum.
x x x
Samstarfsmaður stappaði stálinu íVíkverja og sagði bíóheiminn
ekki alvondan. Bíó Paradís sýndi til
dæmis allar bestu myndirnar og þær
byrjuðu á auglýstum tíma. Vanda-
málið væri hins vegar að forsvars-
menn kvikmyndahússins stíluðu upp
á að hafa útgjöld í lágmarki og aug-
lýstu þess vegna ekki í fjölmiðlum.
Dagskrána mætti nálgast á vef bíós-
ins og í sérstöku dagskrárblaði.
Þetta hljómaði vel í eyrum Vík-
verja og ljóst er að þegar Víkverji
fer í kvikmyndahús í framtíðinni
verður Bíó Paradís fyrir valinu.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Guðmundur í Hléskógum hringdií umsjónarmann og vitnaði í
ljóðmæli Kristjáns fjallaskálds með
hinstu ósk, en vísan er í þeim kafla
bókarinnar sem kallaður er „Ljóð
skólapiltsins“ og þess vegna ekki ort
á dánarbeðinum. Hún ber yfir-
skriftina „Óskin“, birtist raunar í
Vísnahorninu á dögunum og hljóðar
svo:
Ó, að ég hreyfðist hinsta sinn
hýrður víns af tári
og bana yrði beður minn
bjartrar drósar nári.
Kristján orti þrjár andlátsbænir
persóna í Íslendingasögum og má
fyrsta nefna Andlátsbæn Sneglu-
Halla:
Glaðr ek geng nú héðan
grautar-fullr á brautu;
gott mér Gulaþing þótti,
giljaðák fljóð að vilja.
Graut mér gef þú at éta,
gimlis-valdr, um aldir
ok hrings mik á himna-þingi
hýrar þiljur lát gilja.
Þá Andlátsorð Þórólfs bægifóts:
Hefı́k ávallt
of ævi-daga
heim gjörvöllum
verit hefndar-eldr.
Æri mik nú allar
illar kinder,
svá ek í drauga-ham
drepi alla.
Loks Andlátsbæn Hrapps:
Ó, vargur ég í véum er,
í Valhöll því ég aldrei fer;
ég brenndi heilagt hofið.
Æ, Loka dóttir, leigðu mér
langt innı́ í myrkra heim hjá þér
eitthvert kerlingar-…
Það er gaman að bloggi Barða
Bárðarsonar, sem kveðst vera „fyrr-
verandi bóndi á eftirlaunum með
áhuga á þjóðmálum, kveðskap og
þjóðlegum fróðleik hvers konar.
Ræktun lands og lýðs er honum hug-
leikin. Hann hefur á því staðfasta
trú að með sköruglegri orðræðu og
kveðskap sé hægt að breyta þjóð-
félaginu til hins betra.“ Þar á meðal
er vísa um veðurhorfur:
Kolgrá hopa kólguský.
Kátt er á Norðurlöndum.
Bráðum helgi björt og hlý
berst að landsins ströndum.
Og um kapphlaupið á Bessastaði:
Yfir sviðið er nú horft
eins og vera ber.
Sjá, fólkið líður firna skort
á forseta, eins og mér.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af andlátsbænum í
bundnu máli og Barða