Morgunblaðið - 30.03.2012, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 30.03.2012, Qupperneq 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 ÍVeðkalli er hruninu á WallStreet haustið 2008 lýst innanfrá. Sögusviðið er fjárfesting-arbanki og Lehman Brothers koma ósjálfrátt upp í hugann. Myndin hefst á að hópur starfs- manna bankans fær reisupassann. Einn þeirra fær undirmanni sínum minniskubb með greiningu, sem hann átti ólokið, á leið út með þeim orðum að nú skuli hann gæta sín. Þegar undirmaðurinn fer að skoða upplýsingarnar á kubbnum áttar hann sig á því að allt er í voða út af hinum flóknu vafningum, sem búnir voru í kringum hin svokölluðu undir- málslán, sem veitt voru til húsnæðis- kaupa í Bandaríkjunum. Fyrirtækið er ekki bara komið út á ystu nöf, það er komið fram af henni og fleiri munu skaðast við fall þess. Stjórnendur bankans eru kallaðir inn einn af öðrum til að glíma við vandann, þeirra á meðal æðsti yfir- maðurinn, sem Jeremy Irons leikur með tilþrifum. Persóna hans heitir John Tuld og er örugglega engin til- viljun að nafnið rímar við Richard S. Fuld, sem var yfirmaður Lehman þegar bankinn fór á hausinn og hafði viðurnefnið górillan á Wall Street. Hann ákveður að eigi að reyna að bjarga fyrirtækinu sé eina leiðin að losa sig við eitruðu vafningana með þeim orðum að „stærsti haugur illa þefjandi saurs í sögu kapítalismans“ sé um það bil að lenda á Wall Street. Myndin gerist ýmist á fundum eða tveggja og þriggja manna tali og tekst J.C. Chandor í fyrstu leiknu mynd sinni í fullri lengd glettilega vel að halda spennu út myndina. Það er erfitt að fá samúð með persónun- um í Veðkalli, en allar eru þær hafa þær þó sínar mannlegu hliðar og samtölin eru trúverðug. Leikara- hópurinn er framúrskarandi. Kevin Spacey fer vel með hlutverk yfir- manns söludeildarinnar, sem þarf að kljást við siðferði þess að selja við- skiptavinum sínum ónýta „vöru“ vit- andi það að þeir muni aldrei vilja skipta við hann aftur. Sömuleiðis er Zachary Quinto góður í hlutverki verkfræðingsins, sem sérhæfði sig í hreyflafræðum, en fór í fjárfestingarbanka vegna þess að kaupið var betra. Hann er nýliðinn, sem fyrstur áttar sig á stöðunni þótt hann hafi enga við- skiptamenntun. Í aukahlutverki er síðan ljósahafið á Manhattan, í senn ógnandi og aðlaðandi. Irons fær hins vegar bestu setn- ingarnar. Undir lokin hefur hann á orði að „peningar séu bara pappír, sem hafi það hlutverk að koma í veg fyrir að við drepum hvert annað“. Og það er þó rétt. Í blóðbaðinu á Wall Street voru margir rúnir inn að skinni, en það dó enginn. Hjaðningavíg á Wall Street Bíóparadís Veðkall (Margin Call) bbbbn Leikstjóri og handritshöfundur: J.C. Chandor. Leikendur: Kevin Spacey, Je- remy Irons, Zachary Quinto, Paul Bett- any, Demi Moore og Stanley Tucci. 107 mínútur. Bandaríkin, 2011. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Fallið Alvaran blasir við á Wall Street. Paul Bettany, Kevin Spacey, Zach- ary Quinto og Penn Badgley í hlutverkum sínum í myndinni Veðkalli. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Heimildarmyndin Amma Lo-fi verð- ur frumsýnd á Íslandi í kvöld í Bíó Paradís. Myndin fjallar um hina ein- stöku konu Sigríði Níelsdóttur sem fór að taka upp og gefa út sína eigin tónlist á áttræðisaldri. „Hún tók allt upp á kassettutæki en dætur hennar gáfu henni hljómborð og upp- tökutæki þegar hún var sjötug,“ seg- ir Ingibjörg Birgisdóttir en hún leik- stýrði myndinni ásamt Orra Jónssyni og Kristínu Björk Krist- jánsdóttur. „Sigríður fór alltaf í Jap- is til að kaupa sér kassettur og þar kynntist hún afgreiðslustúlku sem hjálpaði henni og leiðbeindi hvernig hún gæti gefið tónlistina sína út á geisladisk en alls gaf hún út 59 diska á sjö árum.“ Stórsveit Sigríðar Níelsdóttur Orri Jónsson, einn leikstjóra myndarinnar, kynntist tónlist Sig- ríðar í gegnum vini og kunningja sem gaukuðu að honum tónlistinni. „Tónlistin hennar vakti forvitni mína og eftir að hafa keypt nokkra diska eftir hana ákvað ég og Kristín að fá hana til að spila opinberlega,“ segir Orri en Sigríður fékkst ekki til þess en stakk upp á því að einhver annar en hún myndi spila tónlistina hennar og upp úr því varð til Stórsveit Sig- ríðar sem spilaði á einum tónleikum í Íslensku óperunni. Heimsókn Orra og Kristínar til Sigríðar varð til þess að þau ákváðu að gera um hana heimildarmynd. „Hún bauð okkur í kakómjólk og kex þegar við komum fyrst og fljótlega eftir það varð okkur ljóst að við þyrftum að gera um hana heimild- armynd.“ Myndin Amma Lo-fi hefur nú þegar verið sýnd í Danmörku og á kvikmyndahátíðinni MOMA í New York þar sem hún gekk fyrir fullum sal í Nitehawk Cinema í Williams- burg. Auk þess verður hún sýnd í Ísrael, Portúgal og á Southwest- kvikmyndahátíðinni í Texas. Í tilefni af heimildarmyndinni er verið að vinna að því að gefa út plötu með því besta eftir Sigríði og segir Orri að diskurinn verði unninn upp úr upp- runalegu kassetunum og komi út einhvern tímann næsta haust. Samdi tónlist á áttræðisaldri  Heimildarmyndin Amma Lo-fi verður frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld Amma Lo-fi Sigríður Níelsdóttir hóf að semja tónlist um sjötugt og gaf út yfir 700 lög á 7 árum en hún dó fyrir ári síðan, þá 81 árs gömul. Leikstjórn Orri, Kristín og Ingi- björg leikstýrðu myndinni. LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarDV HHHH FBL HHHH FT HHHH MBL HHHH PRESSAN.IS HHHH KVIKMYNDIR.IS HHHH 21 JUMP STREET Sýnd kl. 8 LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 (950 kr.) - 6 LORAX 2D ENSKT TAL Sýnd kl. 8 - 10 LORAX 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 (800 kr.) HUNGER GAMES Sýnd kl. 4 (800 kr.) - 7 - 10:15 SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 10:15 STERK BYRJUN, MANN ÞYRSTIR Í MEIRA! T.V. - Vikan/Séð og Heyrt HHHH HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ Fór beint á toppinn í USA FORSÝNING „ÁKAFLEGA VEL HEPPNUÐ ÆVINTÝRAMYND“ A.L.Þ - MBL HHHH H.V.A - FBL HHH TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU MBL DVPRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS H.V.A - FBL T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRT A.L.Þ - MBL TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! 48.000 MANNS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% HUNGER GAMES KL. 4 - 5 - 8 - 10.20 - 11 12 HUNGER GAMES LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 12 LORAX 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 - 6 L LORAX 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L ACT OF VALOR KL. 10.35 16 THE VOW KL. 8 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 8.15 - 10.30 16 BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS HUNGER GAMES KL. 6 - 9 - 10.30 12 LORAX 3D ÍSLENSKT TAL KL. 6 L LORAX 2D ÍSLENSKT TAL KL. 6 L ACT OF VALOR KL. 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 8 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 HUNGER GAMES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 LORAX 3D KL. 6 L SVARTUR Á LEIK KL. 8 16 21 JUMP STREET FORSÝNING KL. 10 L FORSÝNING FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.