Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 44

Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 44
FÖSTUDAGUR 30. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Barn tók myndir af níðingi sínum 2. Lést eftir hópnauðgun 3. Býður sig fram til forseta 4. Ástfangin á ný »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Þrjú þúsund manns sóttu EVE Fan- fest og þar af hátt í 70 erlendir blaða- menn. Greinilegt er af fyrstu við- brögðum blaðamanna að mikil eftirvænting ríkir fyrir útgáfu leiks- ins DUST 514 sem kemur út síðar í ár. Mikil eftirvænting fyrir DUST 514  Í gær sendi hljómsveitin Prinspóló frá sér nýtt lag sem ber heitið Landspít- alinn. Lagið er meðal annars óð- ur til upphafs- og endastöðvar þeirra Íslendinga sem kjósa að fæðast á Landspít- alanum. Með laginu var líka frumsýnt myndband sem hægt er að nálgast á heimasíðu hljómsveitarinnar. Landspítalinn nýtt lag Prinspóló  Hljómsveitin Sigur Rós er að gefa út nýja plötu sem ber nafnið Valtari og er væntanleg í lok maí. Þetta er sjötta plata hljómsveitarinnar en áætlað að hún komi í verslanir í Bretlandi 28 maí. Þá hefur Sigur Rós bókað sig á nokkrar há- tíðir í sum- ar, m.a. Montreal Os- heaga Festival og fleiri stærri hátíð- ir. Ný plata frá Sigur Rós væntanleg í maí Á laugardag Hæg vestlæg átt S- og V-lands, skýjað að mestu en úr- komulítið. Hiti 1 til 7 stig. Hæg austlæg átt á N- og A-lands og lítils- háttar væta eða snjómugga. Hiti kringum frostmark. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari breytileg átt og dálítil slydda eða snjó- koma fyrir norðan, en úrkomulítið syðra. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast SA- til. Kólnandi N- og A-lands. VEÐUR Patrekur Jóhannesson kveðst stoltur yfir því að Valsmenn skyldu bjóða hon- um í gær að þjálfa hand- boltalið þeirra á næsta tímabili. Hann ætlar hins vegar að fara vel yfir það og fá á hreint hvernig Valsliðið verður skipað næsta vetur. Patrekur mun þá þjálfa bæði Val og austurríska landsliðið ef af samningum verður. »1 Patrekur skoðar tilboð Vals vel Grindavík vann Njarðvík mjög örugg- lega og KR þurfti bara nokkra góða kafla til að sigra Tindastól í fyrstu leikjum átta liða úrslitanna í körfu- bolta karla í gærkvöld. Njarðvíkur- strákarnir voru í vandræðum með kjötstykkin í Grinda- vík og klaufaskapur Sauðkrækinga var vatn á myllu KR- inga. »2-3 Grindavík tilbúin og góðir kaflar dugðu KR Júlían Jóhann Karl Jóhannsson er 19 ára kraftlyftingamaður sem ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Hann setti átta ný unglingamet um síðustu helgi og var þriðji stigahæstur í fullorð- insflokki á Íslandsmótinu. Júlían seg- ir að markmiðið sé að komast á stóru mótin erlendis en hann fer á Evr- ópumót unglinga í sumar. »4 Júlían ætlar sér langt í kraftlyftingunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Í staðinn fyrir að gömlu og ónýtu raftækin séu brædd í málma er reynt að gera við þau eða nýta part- ana úr þeim til að gera við önnur tæki,“ segir Bjartmar Alexand- ersson, framkvæmdastjóri Grænnar framtíðar, sem sérhæfir sig í að endurnýta raftæki. Fyrirtækið tekur á móti raftækj- um á borð við farsíma, fartölvur, myndavélar, tónhlöður, leikjatölvur, sjónvörp og posa. Þau eru síðan send til vottaðra endurnýtingarfyr- irtækja í Bandaríkjunum og Vestur- Evrópu. Tækin og partarnir fara svo aftur út á markaðinn. „Ef við tökum iPhone sem dæmi þá fer hann út á markaðinn sem uppgerður iPhone eða sem vara- hlutir í hann. Gömlu tækin fara meira inn á markað í Afríku eða Suðaustur-Asíu sem virt tæki,“ seg- ir Bjartmar. Þannig fái íbúar í þróunarríkjum aðgang að nútímafjarskiptatækni með klassískum símum á borð við gamla Nokia 5110-síma sem hafa verið gerðir upp. 16. aldar aðferðir á 21. öld Töluvert er af spilliefnum í raf- tækjum eins og blý, arsenik, kvika- silfur og kadmín. Þannig segir Bjartmar að einn ónýtur farsími geti gert 250.000 lítra af vatni ódrykkjarhæfa ef hann kemst í snertingu við vatnið. Því vinni Græn framtíð aðeins með fyrirtækjum sem tryggja að tækin fari ekki út fyrir Evrópusambandið til landa eins og Kína eða Nígeríu þar sem sömu umhverfisreglur gildi ekki. „Ef varahlutir eða raf- tækið er ónýtt þarf ekki að koma því í eyðingu heldur er það brennt yfir kolaeldi til að ná málmum og plasti úr því. Í raun er notuð 16. aldar tækni til að taka í sundur 21. aldar tækni,“ segir hann. Magnið alltaf að aukast Græn framtíð er í samstarfi við allflest fyrirtæki á Íslandi sem hafa eitthvað að gera með raftæki en það starfar einnig í Færeyjum og á Ný- fundnalandi. Þá er fyrirtækið í sam- starfi við Sorpu og Efnamóttökuna. Bjartmar segir að endurnýting raftækja sé á réttri leið á Íslandi frá því fyrirtækið var stofnað árið 2009. „Magnið er alltaf að aukast. Fólk er að átta sig á þessum hættum. Áður en við komum inn sáum við ekki þetta endurnýtingarferli en við höfum náð að breyta því,“ segir hann. Gefa gömlum tækjum nýtt líf  Græn framtíð sendir raftæki í endurnýtingu Morgunblaðið/Árni Sæberg Endurnýting Haugur af gömlum farsímum í höfuðstöðvum Grænnar framtíðar í Kópavogi. Töluvert af spilliefnum er í farsímum, sérstaklega í rafhlöðum þeirra, og geta þeir t.a.m. eitrað vatn sem þeir komast í snertingu við. „Í Bretlandi og Álandseyjum sem við vinnum með er það bannað með lögum að henda raftækjum í ruslið. Samkvæmt WEEE- reglugerðinni [Waste Electri- cal and Electronic Equip- ment-tilskipun Evrópusam- bandsins] eiga vörur sem mega ekki fara í ruslið að vera merktar. Því miður hafa yfirvöld hér á Íslandi ekki staðið sig í því að mennta fólk í hvað það eigi að gera við þær,“ segir Bjartmar Alex- andersson, framkvæmdastjóri Grænnar framtíðar. Í vetur dreifði fyrirtækið í sam- starfi við SAFT (Vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga) bók til allra 4. bekkinga í grunnskólum sem heitir „Ruslaeyj- an“ þar sem m.a. er fjallað um mikilvægi endurnýtingar smáraf- tækja. Yfirvöld hafa ekki staðið sig FRÆÐA BÖRN UM MIKILVÆGI ENDURNÝTINGAR Bjartmar Alexandersson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.