Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. A P R Í L 2 0 1 2  Stofnað 1913  83. tölublað  100. árgangur  TVÆR HUÐNUR KOMU MEÐ FAGRA VORBOÐA FÍFL KLÍFUR HÆSTU TINDA LANDSINS EINS OG Í RISA- VÖXNU ÍTÖLSKU BRÚÐKAUPI FÉLAG ÍSLENSKRA FJALLALÆKNA 10 ALDREI FÓR ÉG SUÐUR 14KIÐLINGAR Í HAUKHOLTUM 6 Um 2.500 manns renndu sér á skíðum í blíðskaparveðri í Bláfjöllum í gær en opið var milli kl. 10 og 17. Aðstæður voru eins og best verður á kosið, norðanandvari, vægt frost og færið afar gott. Nægur snjór hefur verið í Bláfjöllum í vetur, að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóra skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, og hefur verið opið í 60 daga alls en á undanförnum árum hefur verið opið í 55 daga að meðaltali. Stefnt er að því að opið verði út apríl- mánuð og jafnvel lengur. »4 Veður og færi eins og best verður á kosið Morgunblaðið/Árni Sæberg Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Mér finnst það óþolandi tilhugsun að samningskaflarnir sem varða stóru grundvallarhagsmunamálin okkar verði enn allir lokaðir þegar við förum að sigla inn í kosningar. Við verðum að knýja á um að þeir verði opnaðir þannig að við getum látið reyna á þá við samningaborðið og séum þá ein- hverju nær um það hvar við stönd- um,“ segir Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra um þá töf sem virðist ætla að verða á aðildarviðræð- unum við ESB vegna makríldeilunn- ar. Án tilgangs að reyna viðræður Það muni skýrast á næstu vikum hvort frekari tafir verði á því að sjáv- arútvegskaflinn opnist og af hverju. „Ég held að það sé tilgangslaust að reyna frekari viðræður um makrílinn áður en þetta veiðitímabil hefst. Þannig að það eru væntanlega ekki vænlegar aðstæður til að taka upp þráðinn þar fyrr en með haustinu,“ segir Steingrímur sem boðar hörku ef íslenskum sjávarútvegi verður refsað vegna makríldeilunnar. „Að sjálfsögðu hefur það afleiðing- ar ef það á að fara að setja á okkur ólögmætar viðskiptaþvinganir. Við myndum aldrei taka viðskiptaþving- unum með sölu á afurðum þegjandi. Slíkt teldum við ólöglegt og með öllu ólíðandi, óháð því hvort við værum í viðræðum við Evrópusambandið eða ekki,“ segir Steingrímur, spurður út í þá kröfu Ragnheiðar Elínar Árna- dóttur, formanns þingflokks Sjálf- stæðisflokksins, að stöðva beri aðild- arviðræðurnar á meðan hótun um löndunarbann á íslenskan fisk í lönd- um ESB vegna makríldeilunnar stendur. Spurð út í málið kveðst Ragnheiður Elín óttast að ef íslensk stjórnvöld haldi aðildarviðræðunum til streitu muni það leiða til þess að síður verði haldið á hagsmunum Ís- lands í makríldeilunni en ella. Að menn gefi eftir í makrílnum til þess að skaða ekki umsóknina. Undirbúa hertar aðgerðir „Mér finnst enginn bragur yfir því að halda viðræðum áfram á sama tíma og verið er að hóta okkur með viðskiptaþvingunum. Evrópuþingið er nú með til umfjöllunar ályktun um að herða refsiaðgerðir í deilum á borð við makríldeiluna. Sú ályktun gæfi ESB tæki til að beita harkalegri þvingunarúrræðum sem myndu þá bitna á Íslandi og að okkar mati brjóta gegn EES-samningnum. Mað- ur sér í hvað stefnir,“ segir hún og rifjar upp að þetta hafi komið til tals á fundi sameiginlegrar þingmanna- nefndar Íslands og ríkja ESB nýlega. Fulltrúar stjórnarflokkanna hafi þá ekki tekið undir þá kröfu að þvinganir jafngiltu viðræðuslitum við ESB. Þrýstir á ESB að opna lykilkaflana  Sjávarútvegsráðherra segir að þvingunum ESB yrði svarað Steingrímur J. Sigfússon Ragnheiður Elín Árnadóttir Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Heimsóknir sprautufíkla í sérútbú- inn sjúkrabíl á vegum Rauða kross Íslands voru 830 talsins á síðasta ári. Úrræðið nefnist Frú Ragnheiður og miðar að því að útvega sprautufíkl- um hreinar nálar og tæki til neyslu til að sporna við útbreiðslu HIV- smita og útbreiðslu lifrarbólgu C meðal sprautufíkla. Börn með notaða sprautunál Um nýliðna helgi fundu börn að leik á Suðurnesjum notaðar sprautu- nálar í námunda við leikvöll, en gríð- arleg hætta getur stafað af notuðum tækjum til eiturlyfjaneyslu og brýn þörf á að beisla þann vanda. Sjá má fjölgun á HIV-smitum meðal sprautufíkla á síðustu árum. Á síðasta ári greindust 24 með HIV- smit á landinu en fjölgunin er mest hjá sprautufíklum. Talið er að sprautufíklar á Íslandi séu um 700 talsins, en sú tala byggist á áætlun SÁÁ. Að sögn Þórs Gíslasonar, verkefn- isstjóra Frú Ragnheiðar, eru um það bil 250-300 af þessum 700 langt leiddir og í mikilli neyslu. Að hans sögn búa flestir sprautufíklanna í miðbæ Reykjavíkur (póstnúmeri 101) en nokkrir einnig í nálægum borgarhlutum (póstnúmerum 105 og 107). Helsta vandamál sprautufíkla hér á landi er að mati Þórs það að þeir finna sér ekki stað innan venjulegra úrræða heilbrigðis- og félagsþjón- ustunnar og er verkefnið tilraun til að bæta úr því. Að sögn Þórs fer þörfin fyrir úr- ræði af þessu tagi stigvaxandi. „Til að byrja með fórum við tvisvar í viku en síðan höfum við fjölgað skiptun- um í 5 með 2 klukkustunda vöktum í senn.“ »4 Morgunblaðið/Ómar Aðstoð Fíklar fá hreinar nálar. 830 heimsóknir í sprautubílinn  Sporna við útbreiðslu HIV-smits

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.