Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 4

Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 Veldu einhverja tíu ávexti á ávaxtamarkaði Krónunnar – fyrst og fre mst ódýr! og þú borgar... „Þetta er án efa einn fallegasti dagurinn í Blá- fjöllunum í vetur,“ sagði Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgar- svæðisins, þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans síðdegis í gær. Alls mættu 2.500 manns í Bláfjöllin í gær en opið var milli klukkan 10 og 17. Aðstæður til skíðaiðkunar voru frábærar, norðanandvari, frostið 2,5° og það var heiðskírt og fallegt. Færið var mjög gott enda er búið að vera frost síðan á páskadag. Og fólk gerði meira en ganga og renna sér á skíðum og brettum. Klukkan 13 var hin árlega páskamessa við Bláfjallaskála þar sem sr. Pálmi Matthíasson messaði. Fjölmargir tóku þátt í messuhaldinu. Veðrið hefur gert strik í reikninginn Að sögn Magnúsar hefur verið nægur snjór í Bláfjöllum í vetur. Alls hefur verið opið í 60 daga. Veðrið hefur hins vegar gert strik í reikninginn enda hefur veturinn verið fádæma illviðrasamur. Heildarfjöldi gesta í vetur er kominn í 46 þúsund en gestir hafa flestir orðið 85 þúsund á einum vetri. Á undanförnum árum hefur verið opið í Blá- fjöllum í 55 daga að meðaltali. Veturinn 2009 til 2010 var martröð fyrir starfsmenn Bláfjalla en þá var bara opið í 5 daga. Var fyrst og fremst snjóleysi um að kenna. Stefnt er að því að Bláfjöllin verði opin út aprílmánuð og jafnvel lengur ef skíðafólk skil- ar sér í fjöllin. Magnús vonar að veðurguðirnir verði skíðafólkinu hliðhollir næstu daga og að- sóknin verði góð. „Við tökum svo stöðuna í lok mánaðarins og ef fólk er duglegt að mæta kemur til greina að hafa opið eitthvað fram í maímánuð,“ segir Magnús. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Messuhald Séra Pálmi Matthíasson hefur messað um páska í Bláfjöllum mörg undanfarin ár. Séra Pálmi var mættur við Bláfjallaskálann í gær og tóku fjölmargir skíðamenn þátt í messuhaldinu. Straumur skíða- fólks í Bláfjöllin  Án efa einn fallegasti dagurinn í vetur Njóta matar Gott var að setjast niður milli ferða niður fjallið og gæða sér á nestinu. Gleði Ungir sem aldnir mættu í Bláfjöllin í gær og nutu hinnar einstöku veðurblíðu. Ný tegund úrræðis fyrir sprautufíkla á Íslandi var tekið í gagnið 6. október 2009. Verkefnið nefnist Frú Ragn- heiður - skaðaminnkun og hefur það að markmiði að draga úr smiti HIV og lifrarbólgu C meðal einstaklinga sem nota sprautubúnað. Úrræðið felst í því að sérútbúinn sjúkrabíll fer á vegum Rauða kross Íslands á milli staða á Reykjavíkur- svæðinu og sér fíklum fyrir hreinum nálum. Einnig er veitt aðhlynning og framkvæmd umbúðaskipti. Þá geta sprautufíklar komið með notaðar nál- ar og sprautur og fengið hreinar í staðinn. Bíllinn vinnur í samstarfi við Konukot þar sem sprautum er dreift alla daga vikunnar og dagsetrið á Eyjaslóð þar sem líka er boðið upp á nálaskiptiþjónustu. Að sögn Þórs Gíslasonar, verkefn- isstjóra Frú Ragnheiðar, er þörfin fyrir úrræði af þessu tagi brýn. „Okkar megin- markmið er að ná tengslum við hóp- inn, að ná sam- ræðum um neysl- una og neyslu- aðferðir og koma inn meðvitund um vandvirkni.“ Þannig er að sögn Þórs hægt að koma í veg fyrir sýk- ingar og og útbreiðslu smita. Sjá má fjölgun á HIV-smitum með- al sprautufíkla á síðustu árum hér á landi. Á síðasta ári greindust 24 með HIV-smit á landinu en fjölgunin er mest hjá sprautufíklum. 55 af þeim 271 sem greinst hafa með HIV hér- lendis á síðustu 26 árum eru sprautu- fíklar. Þór segir að ekki sé meðvitað reynt að halda að gestum Frú Ragnheiðar hugmyndum um meðferð. „Fólk kem- ur til okkar á sínum forsendum. Það þarf ekki að þykjast hafa áhuga á að fara í meðferð. Staðreyndin er sú að alltaf eru einhverjir sem ekki eru til- búnir til að fara í meðferð og okkar hlutverk er að lágmarka skaðann sem það fólk veldur sjálfu sér og öðrum.“ Þór segir nauðsynlegt að líta raun- sætt á vandann. „Við munum aldrei ná því markmiði að allir fíklar hætti neyslu, það eru alltaf einhverjir sem eru virkir. Við verðum að vinna með hópnum á því sjúkdómsstigi sem neyslan er.“ Starfsmenn Frú Ragn- heiðar leiða fólk þó í rétta átt þegar það sýnir meðferð áhuga, en að sögn Þórs er það ekki forsenda fyrir nýt- ingu þessa úrræðis. gudrunsoley@mbl.is Hindra útbreiðslu  Hlutfall sprautufíkla í hópi HIV-greindra er hvergi hærra en hér á landi en úrræði skortir að sögn verkefnisstjóra Þór Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.