Morgunblaðið - 10.04.2012, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Flísar f
ramtíða
rinnar
gæði og
glæsile
iki á gó
ðu verð
i
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Finnst þér allir
vera að hvísla?
Ljósmyndara Morgunblaðsins brá í brún þegar hann
rakst á leifar af áramótasprengjum við Hamrahlíð í
Reykjavík.
Stórtæk hreinsunarstarfsemi á sér iðulega stað eftir
áramót á vegum borgarinnar og því hlýtur að teljast
undarlegt að enn sé leifar af áramótafagnaði borgarbúa
að finna á götum úti í aprílmánuði. Hver veit þó nema
menntskælingar í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafi
fagnað sprengideginum í ár með bókstaflegum hætti og
leifarnar séu þaðan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áramótabombur í aprílmánuði
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, ný-
krýndur Íslandsmeistari í módel-
fitness, hlaut gullverðlaun í bik-
iní-flokki módelfitness á
vaxtarræktar- og fitnessmótinu
Loaded Cup sem fram fór í Dan-
mörku 7. apríl sl. Var það í fyrsta
sinn sem keppt er í slíkum flokki
á mótinu. Aðalheiður lenti í mars
sl. í öðru sæti í sama flokki á hinu
víðfræga Arnold Classic-móti
sem fram fór í Ohio í Bandaríkj-
unum og kennt er við hinn kunna
vaxtarræktarmann, leikara og
fyrrverandi ríkisstjóra Kali-
forníu.
Aðalheiður sagði blaðamanni í
gær að bikiní-flokkurinn væri
sambærilegur módelfitness-
flokki á líkamsræktarmótum hér
á landi. „Við eigum að vera vel
æfðar með íþróttamannslegan
vöxt og svo er líka verið að dæma
meira út frá útgeislun og sviðs-
framkomu,“ útskýrði Aðalheiður.
Vöðvastæltur líkami væri því
ekki það eina sem skipti máli en
þó þyrftu vöðvar að vera vel sýni-
legir.
Til að ná fyrrgreindum árangri
hefur Aðalheiður stundað líkams-
rækt í um 1,5 klst. á dag, sex
daga vikunnar. Um þjálfun henn-
ar sér Konráð Valur Gíslason
einkaþjálfari og segir Aðalheiður
hann allan heiður eiga skilinn
fyrir sín störf.
Þess má geta að Magnús Þór
Samúelsson keppti í vaxtarrækt
á Loaded Cup og hafnaði í öðru
sæti.
Hlaut gullverðlaun
á Loaded Cup
Aðalheiði Ýri vegnar vel á mótum
Ljósmynd/Gyða Henningsdóttir
Hreysti Aðalheiður Ýr glæsileg á
Íslandsmótinu í módelfitness.
Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins
hafði í nógu að
snúast í fyrrinótt
en farið var í um
30 sjúkraflutn-
inga. Samkvæmt
upplýsingum frá
slökkviliðinu var
ekki um að ræða marga forgangs-
eða neyðarflutninga heldur var
verið að flytja fólk á milli sjúkra-
stofnana.
Dælubílar slökkviliðsins fengu þó
hvíld yfir nóttina þar sem engin út-
köll voru vegna bruna.
Annríki var í sjúkra-
flutningum á páska-
dagsnótt