Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 11
Tilþrif Hin kanadísku Kaitlyn Weaver og Andrew Poje í mikilli sveiflu. Kát Þessi tvö svifu létt um svellið. Samspil Þessi virtust ofin saman. Glæsilegt útsýni Á Miðfellstindi, Öræfajökull í baksýn, tekið í ferð sem farin var árið 2011. Þverártindsegg og Miðfellstind en einnig var farin eftirminnileg haustferð á Herðubreið. „Við höfum reynt að brydda upp á mismunandi ferðum. Það er alltaf ein ferð á ári sem er hugsuð fyrir fólk sem er aðeins vant og hefur gengið á broddum áður. Síð- an erum við líka með styttri göngur og þá jafnvel minni hópa. Í félaginu eru flestir í sæmilegu formi og hafa gaman af því að hreyfa sig. Síðustu sumur hefur virðað vel og við höf- um farið í ótrúlega skemmtilegar ferðir,“ segir Tómas. Kvíðakast á tindinum Tómas samsinnir því að fólki finnist vissulega traustvekjandi að fara í slíkar göngur með hópi lækna. „Við höfum nú aðeins gert grín að okkur t.d. með nafninu og lógóið okkar lítur út eins fjallstindur í formi hjartalínurits. Það eru alls konar læknar í hópnum, allt frá skurðlæknum, augnlæknum og ekki síst geðlæknum, sem kemur sér vel ef fólk fær kvíðakast á tindinum. Í hópnum er líka heilmikið af hjúkr- unarfræðingum og fólki af ýmsum sviðum sem hefur áhuga á útivist. Það er gott að geta hitt gamla kunningja fyrir utan vinnuna og ekki í hvíta sloppnum. Við höfum líka hvatt yngri læknana til að koma með, líkt og eldri kollega, sem hefur lukkast mjög vel,“ segir Tómas. Fræðslustarfsemi félagsins Starfið tengist þó nokkuð inn í göngurnar því Tómas hefur líka haldið óteljandi fyrirlestra um há- fjallaveiki, bæði fyrir fólk sem er á leið í skíða- eða gönguferðir er- lendis og einnig fyrir ýmiss konar félög og hópa. Má rekja upphafið til þess að nokkrir félagar í FÍFL sem klifu saman Kilimanjaro árið 2007 urðu háfjallaveikir. Urðu fyrirlestarnir drifkrafturinn að fræðslustarfsemi félagsins, sem snýr að því að fræða fólk um þær hættur sem geta leynst á fjöllum. Í nokkur ár hefur FÍFL boðið heimsfrægum fjallagörpum hingað heim til að fjalla um þá áskorun að fara upp í svo mikla hæð og hvernig megi laga líkamann að svo þunnu lofti. Er þetta ekki hugsað eingöngu á læknis- fræðilegum forsendum heldur einnig fyrir hinn almenna útivistarunnanda og hafa fyrir- lestrarnir verið vel sóttir. Kajak- og fjallagarpur Í ár kemur í heimsókn Ren- ata Chlumska, sænsk ævin- týrakona sem er þekkt víða um Evrópu fyrir afrek sín í fjall- göngum, hjólreiðum og siglingum. „Hún er afrekskona í fjall- göngum en keppti einnig í hjól- reiðum á yngri árum og hefur mikla reynslu af siglingum og kaj- akróðri. Hún hefur oft birst í sjón- varpi í Svíþjóð og ferðast um og heldur fyrirlestur um bæði göngu sína á Everest og hjólaferð yfir Ameríku. Svo stendur til að hún verði fyrsta sænska konan út í geiminn í haust. Renata er mjög einbeitt á það sem hún gerir og notar ákveðnar aðferðir til að ná markmiðum sínum. Hún er vinsæll fyrirlesari hjá stórum fyrirtækjum í Svíþjóð þar sem hún segir frá þessum aðferðum og virkjar um leið liðsandann,“ segir Tómas. Félagið FÍFL heldur úti vef- síðunni www.fifl.is þar sem hægt er að skoða myndir úr ferðum og fræðast nánar um starfsemi fé- lagsins. Ljósmynd/Ólafur Már Björnsson FÍFL Dagný Heiðdal, Tóm- as Guðbjarts- son, Þóra Þór- isdóttir og Ólafur Már Björnsson. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 Nú þegar bensínið stendur í 263 krón- um er kominn hvati til þess að koma hjólinu í stand fyrir sumarið. Það kost- ar ekkert að hjóla en verra er að vera úti á vegi þegar hjólið bilar. Þetta vita forráðamenn Fjallahjólaklúbbsins. Í apríl heldur Fjallahjólaklúbburinn þrjú viðgerðanámskeið um reiðhjól. Nám- skeiðin eru haldin fimmtudagana 5., 12. og 19. apríl í félagsaðstöðu klúbbs- ins að Brekkustíg 2. Húsið verður opn- að kl. 20 og námskeiðin hefjast stund- víslega kl. 20:15 á verkstæðinu á jarðhæð. Uppi verður að vanda boðið upp á kaffispjall og léttar veitingar í kaffihléi. Fyrsta námskeiðið verður byrjenda- námskeið og öllum opið á meðan hús- rúm leyfir. Farið verður í stillingu hjólsins fyrir notandann og almennt viðhald eins og hreinsun og smurn- ingu, keðjuskipti og gert við sprungið dekk. Seinni tvö námskeiðin verða framhaldsnámskeið og fá félagar í klúbbnum forgang og frían aðgang. Á öðru námskeiðinu, 12. apríl, verður farið í stillingu og viðhald gíra og á þriðja námskeiðinu, 19. apríl, verður farið í stillingu og viðhald bremsa. Tekið verður við skráningu nýliða á öllum námskeiðunum og munu nýliðar njóta sömu kjara og félagsmenn strax eftir greiðslu félagsgjalds. Þrjú hjólaviðgerðanámskeið Hjólastilling Meðal annars er farið yfir það hvernig gera á við sprungið dekk og stilla gíra. Hjólaviðgerðir kenndar Félag íslenskra fjallalækna (FÍFL) heldur í samstarfi við 66°Norður fyrirlesturinn High Adventure með ævintýrakonunni Renötu Chlumska. Renata er 39 ára þriggja barna móðir sem hefur verið útnefnd af Outdore Magazine sem ein af fremstu ævintýrakonum heims. Hún var fyrst sænskra kvenna til að ná tindi Everestfjalls og hefur lagt að baki fjölda annarra tinda, m.a. Shishapangma (8006 m) án viðbótarsúrefnis. Þá hefur hún einnig hjólað frá Nepal til Stokk- hólms á 4 mánuðum og hjólað og róið á kajak yfir 48 ríki Banda- ríkjanna en ferðin tók næstum eitt og hálft ár og voru þá 18.500 km að baki. Næsta haust verður hún fyrsta sænska konan til að ferðast út í geim- inn. Fyrirlesturinn verð- ur í Háskólabíói á morgun, miðviku- dag 11. apríl, og hefst klukkan 20. Mikil ævin- týrakona RENATA CHLUMSKA Orkubolti Renata hjólar, gengur og siglir á kajak.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.