Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 Morgunblaðið/Einar Falur Flutningar Þingmenn vilja gera strandflutninga meira aðlaðandi. Samtök verslunar og þjónustu hafa mótmælt harðlega þeim rökum sem eru að baki frumvarpi til laga um breytingu á landflutningalögum. Þetta kemur fram í umsögn SVÞ til Alþingis. Í frumvarpinu er lagt til að við 18. gr. laganna bætist ný máls- grein, þar sem segir að við ákvörðun um flutningsgjald skuli sundur- greina hvern kostnaðarlið. Óheimilt sé að binda veittan afslátt við heildarflutning (svokallaða fram- haldsfrakt). Í umsögn SVÞ er spurt hvort það sé eðlilegt og í samræmi við samkeppnislög að gera einum flutningsmáta hærra undir höfði en öðrum með lagabreytingu sem þess- ari. Þingmenn fjögurra flokka standa að frumvarpinu þau Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari, Lilja Rafney Magnús- dóttir, Eygló Harðardóttir og Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Fram kemur að markmið frum- varpsins sé að gera strandsiglingar aðlaðandi kost í innanlandsflutn- ingum og að viðhald á vegum lands- ins sé mikið og kostnaðarsamt vegna þungaflutninga. Í umsögn SVÞ segir „að ekkert bendir til þess að fyrir- tæki sem í dag nýta sér landflutn- inga hafi áhuga á eða vilja til að nýta sér strandflutninga. Í lauslegri könnun sem gerð hefur verið meðal aðildarfyrirtækja SVÞ kemur í ljós að áhugi á að nýta sér strandsigl- ingar er hverfandi.“ Neytendasamtökin taka hins veg- ar undir markmiðin um að gera strandsiglingar aðlaðandi kost í innanlandsflutningum en efast um að frumvarpið nái því markmiði. „Skilja má frumvarp þetta á þann veg að ætlunin sé að bann sé sett við því að binda veittan afslátt við heildarflutning. Þannig geti aðili sem þarf að flytja vöru um langan veg keypt hvern „legg“ ferðarinnar af mismunandi aðilum, þar eð ekki verði lengur svo miklum mun dýrara að skipta við tvo eða þrjá flutnings- aðila um einn og sama flutninginn. Samtökin óttast að þetta ákvæði eitt og sér komi ekki endilega til með að bæta stöðu strandflutninga á sam- keppnismarkaði, og óttast jafnvel að það muni fremur leiða til hærra verðs á landflutningum, sem kemur neytendum ekki til góða,“ segir í umsögn Neytendasamtakanna. Frumvarp um landflutninga gagnrýnt  Hverfandi áhugi aðildarfyrirtækja SVÞ á að nýta sér strandsiglingar Elín Hirst sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún segist hafa ákveð- ið að bjóða sig ekki fram til emb- ættis forseta Ís- lands. „Ég hef á undanförnum vik- um hugleitt að bjóða mig fram til embættis forseta Íslands og margir hafa hvatt mig til slíks framboðs,“ segir í yfirlýsingu Elínar, þar sem hún þakkar þeim sem hafa viljað styðja hana og greiða götu hennar í tengslum við hugsanlegt forseta- framboð. Auka og efla hlut kvenna „Áhugi minn á að beina kröftum mínum í þágu bætts samfélags var hvatinn að því að ég hugleiddi for- setaframboð. Sá áhugi er óbreyttur þrátt fyrir að það verði með öðrum hætti en í gegnum forsetaembættið. Ég hlakka til að takast á við fjöl- breytt verkefni á því sviði, bæði þau sem ég er nú þegar að fást við og horfi ekki síður til framtíðar- vettvangs hver sem hann verður, til að geta lagt góðum málum lið,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni. Segist Elín sérstaklega hafa áhuga á að auka og efla hlut kvenna í sam- félaginu hvar sem því verði við komið með hvatningu og þjálfun. „Ég vil einnig stuðla að aukinni menntun ein- stæðra mæðra, ekki síst í lægstu tekjuþrepunum, í nafni nýstofnaðs menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, sem verður kynntur síð- ar í apríl. Auk þess vil ég vinna að auknum lífsgæðum barna, öryggi þeirra og velferð, ekki síst til að verja þau fyrir kynferðislegu ofbeldi.“ Fram kemur að Elín hefur unnið að verkefni í þágu barna með alvar- lega, sjaldgæfa og ólæknandi sjúk- dóma ásamt ,,Á allra vörum“, RÚV, Umhyggju, LSH o.fl. og er ætlunin að safna nægu fé með landsátaki í sept- ember til þess að opna og reka stuðn- ingsmiðstöð fyrir þessi börn og fjöl- skyldur þeirra. Elín Hirst gefur ekki kost á sér til embættis forseta Elín Hirst Hægri grænir vilja virkja í neðri hluta Þjórsár og vill flokkurinn halda Urriðafossvirkjun, Holta- virkjun og Hvammsvirkjun í nýt- ingarflokki. Flokkurinn vill bjóða út nýtingarréttinn og rekstur á þessum virkjunum í 32,5 ár með framlengingarmöguleika. Þetta kemur fram í ályktun frá flokknum. Í henni er því fagnað að ramma- áætlun hafi verið lögð fram á Al- þingi, en tekið fram að flokkurinn sé hlynntur virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Þá er tekið fram, að landið í kringum umræddar virkjanir sé í byggð og náttúruspjöll í lágmarki. „Það er kominn tími til þess að skattborgarar hætti að taka áhættu af virkjanaframkvæmdum eins og hingað til hefur verið og þessi verk- efni boðin út á evrópska efnahags- svæðinu og sett í einkafram- kvæmd,“ segir í ályktun. Vilja bjóða út nýtingarréttinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.