Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
KROM 53x80 cm
• Aluminum / Ál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Með bættri hönnun á loftflæði ytra byrðis og tæknibúnaði sem tryggir
hagkvæmustu aksturstilhögun er mögulegt að minnka umtalsvert eyðslu
eldsneytis. Þannig er Audi A4 enn sparneytnari en áður og eyðir aðeins frá 4,5
lítrum á hverja 100 km.* Nýr A4 er því afrakstur stöðugrar tækniþróunar hjá Audi.
Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað í Audi A4 fylgir sóllúga öllum bílum sem
pantaðir eru fyrir 1. júní 2012.
*M.v. 2.0TDI 143 hestafla, dísilvél, beinskiptan.
Farvegur
framþróunar
Velkomin í reynsluakstur
Bandaríski fréttamaðurinn Mike
Wallace lést á skírdag, 93 ára að
aldri. Ferill hans spannaði alls sex-
tíu ár í útvarpi og
sjónvarpi en
hann er líklega
þekktastur fyrir
viðtöl sín í frétta-
skýringarþættin-
um 60 mínútum á
CBS-sjónvarps-
stöðinni. Hann
hóf feril sinn í út-
varpi þar sem
hann vann við
fréttir og
skemmtiþætti auk þess að leika og
koma fram í auglýsingum.
Árið 1963 var hann ráðinn frétta-
ritari hjá CBS-fréttastöðinni og
sagði sem slíkur meðal annars
fréttir frá Víetnam, Washington og
kosningabaráttunni í Bandaríkjun-
um.
Harður í horn að taka
Það var svo árið 1968 sem hann
var valinn til að vera annar ritstjóra
60 mínútna sem þá hófu göngu sína.
Þátturinn varð fljótlega vinsælasti
fréttaþátturinn í bandarísku sjón-
varpi og átti harðsoðinn stíll Wal-
lace stóran þátt í velgengninni.
Hann þótti harður í horn að taka
í viðtölum sínum og alls óhræddur
við að spyrja viðmælendur sína
óþægilegra spurninga sem brunnu
á flestra vörum.
Á ferli sínum tók Wallace viðtöl
við fjölda Bandaríkjaforseta, þjóð-
arleiðtoga og aðra fræga einstak-
linga. Þannig tók hann viðtal við
blökkumannaleiðtogann Malcolm X
skömmu áður en hann var ráðinn af
dögum árið 1965, spurði ajatollah
Khomeini, æðstaklerk Írans, hvort
hann væri brjálaður og tók viðtal
við Mahmoud Ahmadinejad, forseta
Írans, árið 2006.
Fjöldi verðlauna
Alls starfaði Wallace við 60 mín-
útur í 37 ár áður en hann lét af
störfum árið 2006. Hann hélt þó
áfram að taka viðtöl endrum og
sinnum þar til 2008 þegar hann dró
sig endanlega úr sviðsljósinu eftir
að hafa gengist undir þrefalda hjá-
veituaðgerð á hjarta.
Wallace vann til tuttugu Emmy-
verðlauna á ferlinum auk allra ann-
arra meiriháttar verðlauna sem
hægt er að vinna til fyrir sjónvarps-
fréttamennsku. kjartan@mbl.is
Mike Wallace
látinn, 93 ára
Fréttamaður 60 mínútna í 37 ár
Mike Wallace,
fréttamaður.
Að minnsta kosti sextíu manns
féllu í árás al-Qaeda-liða á her-
mannaskála í borginni Loder í
Jemen í gær. Að sögn yfirvalda
voru fjörutíu af þeim sem féllu
árásarmenn en fjórtán voru her-
menn. Auk þeirra féllu sex aðrir í
átökunum.
Árásin hófst fyrir dagrenningu
en samkvæmt heimildum hersins
veittu hermennirnir mótspyrnu.
AFP-fréttastofan hefur hins vegar
eftir embættismanni í borginni að
hermennirnir hafi síðan hörfað úr
skálanum og borgarbúar hafi bar-
ist við árásarmennina.
Verjast árásum al-Qaeda
Borgin Loder er í Abyan-héraði
sem samtökin Skæruliðar sjaría,
sem talin eru
tengjast al-
Qaeda, náðu á
sitt vald í maí í
fyrra. Samtökin
yfirtóku borgina
um skamma hríð
í ágúst 2010 áð-
ur en herinn
hrakti liðsmenn
þeirra þaðan.
Ættbálkar í hér-
aðinu hafa síðan barist við hlið
stjórnarhermanna gegn vígamönn-
um al-Qaeda.
Um helgina féllu 24 grunaðir al-
Qaeda-liðar í loftárásum hersins á
helstu vígi þeirra í suður- og aust-
urhluta landsins.
kjartan@mbl.is
Tugir féllu í árás al-Qaeda
á hermannaskála í Jemen
Grunaður Al-
Qaeda-liði í Jemen.
Páskagleði krá-
argests í mið-
borg Stokkhólms
tók óvæntan
enda á laug-
ardag. Hann
hafði gefið sig á
tal við annan
mann á barnum
og í gjafmildi
sinni boðið hon-
um að fá sér línu af kókaíni á bað-
herbergi staðarins. Hann vissi hins
vegar ekki að drykkjufélaginn var
lögreglumaður á frívakt sem kall-
aði út félaga sína sem komu og
handtóku manninn. Við leit á heim-
ili hans fannst meira magn af kók-
aíni og er hann nú ákærður fyrir
kókaínsölu. kjartan@mbl.is
SVÍÞJÓÐ
Bauð lögreglumanni
á frívakt kókaín
Pakki af kókaíni
Eli Yishai, innan-
ríkisráðherra
Ísraels, tilkynnti
á páskadag að
þýska rithöf-
indum Günter
Grass yrði hér
eftir bannað að
koma til landsins
fyrir að „reyna
að kynda undir
hatri á Ísraelsríki og þegnum þess“.
Grass hefur kallað yfir sig reiði
Ísraela eftir að hann birti ljóð á
miðvikudag þar sem hann sakar
Ísraela um að leggja á ráðin um
gereyðingu Írans og ógna öryggi
heimsins. Grass segir hins vegar að
ljóðið hafi aðeins beinst að stjórn
Benjamíns Netanyahu.
ÞÝSKALAND
Grass bannað að
koma til Ísraels
Günter Grass
Bertold Wiesner,
austurrískur líf-
fræðingur sem
rak frjósemis-
stofu í London
um áratuga-
skeið, er talinn
vera sjálfur faðir
um sex hundruð
barna.
DNA-rann-
sóknir á 18 manns sem komu undir
á stofunni á milli áranna 1943 og
1962 leiddu í ljós að tveir af hverj-
um þremur voru börn Wiesners.
Það voru tveir menn sem getnir
voru á stofunni sem komust að
þessu þegar þeir rannsökuðu hana.
Þeir segja að Wiesner geti verið
faðir 300-600 barna.
BRETLAND
Var sjálfur faðir
hundraða barna
Ungbarn.