Morgunblaðið - 10.04.2012, Side 24

Morgunblaðið - 10.04.2012, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 ✝ Lára Ágústs-dóttir fæddist í Ási á Hvamms- tanga 9. júní 1937. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 31. mars 2012. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Ágúst Halldórsson húsasmiður og Ingibjörg Jóhanna Ingólfsdóttir hús- móðir. Systkini Láru voru Ing- unn Ólafía, f. 20.11. 1925, d. 27.1. 1982, Ingólfur, f. 7.12. 1927, d. 17.11. 1980, María, f. 9.1. 1930, d. 10.7. 1977, Huld- ar, f. 13.10. 1934, d. 24.12. 2008, og Sigurlaug, f. 18.5. 1939, d. 16.5. 2010. Lára giftist 21.5. 1956 eft- irlifandi eiginmanni sínum Hafsteini Sigurbjörnssyni pípulagningameistara frá Akranesi, f. 5.10. 1931. Börn þeirra eru: Jóhanna Guðrún, f. 21.9. 1954, maki Ásgrímur Kárason, börn Ursula Ragna, Arnþór og Valþór; Sigurbjörn, f. 8.10. 1956, maki Sesselja Laufey Allans- dóttir, börn Haf- steinn Mar, Kristín Mist og Hrafnkell Allan; Ingólfur, f. 6.10. 1959, maki Heiðrún Hann- esdóttir, börn Hannes Ágúst, Lára og Arnbjörn, látinn; Hafdís Dögg, f. 15.11. 1964, maki Jónas Geirsson, börn Trausti Geir og Dagmar Elsa; Berent Karl, f. 21.6. 1971, maki María Lilja Moritz Viðarsdóttir, sonur hennar er Viðar; barna- barnabörnin eru fjögur. Lára var alin upp á Hvammstanga til níu ára ald- urs er hún fluttist með fjöl- skyldu sinni að Sólmund- arhöfða á Akranesi. Lára vann ýmis störf auk húsmóðurstarf- anna, lengst af í verslun og fyrirtæki þeirra hjóna, Pípulagningaþjónustunni. Útför Láru fer fram frá Akraneskirkju í dag, 10. apríl 2012, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku besta mamma. Okkur systkinin langar að minnast þín í örfáum orðum. Milli okkar elsta og yngsta eru 17 ár svo uppeldistíminn var ansi langur. Öll erum við þó minnug þess að allan þennan tíma var nærvera þín traust og örugg. Á þessum árum var hjá okkur eins og flestum öðrum frekar þröngt í búi, aldrei var þó svo að okkur skorti neitt og alltaf var heimilið til mikillar fyrirmyndar, enda var kjörorðið að vanda skyldi til allra verka. Þú varst frábær saumakona og einstök smekk- manneskja eins og myndir af okkur sem krökkum bera glöggt merki. Þú varst afskaplega fé- lagslynd og varst oft hrókur alls fagnaðar með gítarinn þinn og góða söngrödd, hvort sem var á sunnudagseftirmiðdögum í stof- unni heima eða í góðum hópi á ferðalögum um fjöll og firnindi. Talandi um ferðalög – við glott- um enn yfir því þegar pabbi fórnaði höndum yfir hrúgunni á stéttinni heima sem troða átti í bjölluna eða landróverinn á leið í ferðalögin og við enduðum stundum á því að húka á kökud- unkum því heimabökuðu snúð- ana og vínarbrauðin mátti að sjálfsögðu ekki vanta. Í gegn um unglingsár okkar allra stóð Brekkubrautin ætíð opin að nóttu sem degi fyrir vini okkar og félaga, sem tala um það enn í dag hversu gott var þar að koma og móttökurnar hlýjar. Eða all- ar gæðastundirnar í sumó – Tjarnarási í Ölveri, þar sem þið pabbi hreiðruðuð um ykkur af mikilli nostursemi, tókuð öllum opnum örmum og barnabörnin minnast með hlýju og þakklæti. Umhyggjusemi þín var einstök. Daglegar ferðir til ömmu Ingi- bjargar í öll þau ár sem hún lá rúmföst á sjúkrahúsi, óendanleg hjálpsemi við systur þínar og föður, sem og marga aðra sem áttu um sárt að binda. Ekki síst við okkur sem nutum ástar þinnar og umhyggju alla tíð. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku mamma. Við kveðjum þig með tregans þunga tár sem tryggð og kærleik veittir liðin ár. Þín fórnarlund var fagurt ævistarf og frá þér eigum við hinn dýra arf. (Guðrún Jóhannsdóttir) Þín Jóhanna Guðrún, Sigurbjörn, Ingólfur, Hafdís og Berent Karl. Mig langar að minnast þín með þessum örfáu orðum og um leið þakka þér kærlega fyrir þær stundir sem ég hef átt með þér. Þú varst yndisleg kona sem kenndir manni það að þrátt fyrir að lífsins vegur geti verið hlykkjóttur er hægt að takast á við flestallt með æðruleysi og bjartsýni að leiðarljósi. Þannig var þú, sama hvað bjátaði á. Veikindi spiluðu stóran part í lífi þínum síðustu árin en þú tókst því eins og þér einni var lagið, leist á þetta sem verkefni sem þú þyrftir að leysa og komst alltaf aftur heim til Hadda í fal- lega húsið ykkar. En síðustu vikuna sá maður að þú varst rétt ókomin á endastöðina, tilbúin að takast á við ný verkefni á nýjum stað með öllu fólkinu þínu sem horfið er yfir móðuna miklu. Daginn sem ég kom á Höfða- grundina í fyrsta sinn urðum við strax góðar vinkonur og það vin- áttusamband átti bara eftir að styrkjast næstu fimm árin. Það var nánast regla á mínu heimili að strax eftir kvöldfréttir hringdir þú, bara til að athuga með mig og drengina. Þið Benni áttuð líka ósvikið og yndislegt samband og oft var grínast með það að ekki væri enn búið að klippa á naflastrenginn á milli ykkar. Enda skilur þú eftir stórt skarð í hans hjarta elsku Lára mín, en ég mun gera mitt allra besta til að fylla það, því lofa ég. Þín tengdadóttir, María Viðarsdóttir. Það er afar skrítið að hugsa til þess að hún yndislega amma mín sé ekki hjá okkur lengur. Eins og sonur minn orðaði það: „Hjartað í henni var orðið veikt og hætti svo að slá en hún var samt með stórt hjarta“. Þessi fimm ára gullmoli minn hafði al- veg rétt fyrir sér, amma Lára var svo sannarlega með stór hjarta. Hún var baráttukona og barðist ekki einungis við sín eig- in veikindi heldur var hún ávallt mikill styrkur í baráttu annarra sem áttu við veikindi að stríða. Hún var fjölskyldu sinni afar kær og var ávallt til staðar þeg- ar á brattann sótti. Minningar mínar sem ég átti með ömmu minni eru fjölda- margar og hafa svo sannarlega huggað mig á þessum erfiða tíma. Amma kallaði mig ýmsum nöfnum á mínum yngri árum þar á meðal stígvélakött, Láru kláru en oftast þó Láru litlu. Það var ekki fyrr en ég fór að stækka og var orðin töluvert stærri en hún að hún fékk það viðurnefni Lára litla og ég fékk nafnið Lára stóra. Að bera nafn ömmu hefur alltaf glatt mitt hjarta. Æskuminningar mínar með ömmu og afa uppi í Ölveri gleymast aldrei og Brekku- brautin okkar góða geyma ótal minningar sem lifa ávallt í hjarta mínu. Ég er afar þakklát fyrir allar þær dýrmæddu stundir sem ég átti með ömmu minni og að sonur minn hafi fengið tækifæri tið að kynnast yndislegu langömmu sinni. Ég veit að amma er á góðum stað núna með öllum yndislegu systkinunum sínum og með litla bróður mínum sem fær núna fullt af faðmlögum og góðar stundir með ömmu okkar. Elsku amma mín, takk fyrir góðu kvöldstundina sem þú gafst mér í lokin, hún var mér afar dýrmæt. Ég og Arnbjörn Ingi elskum þig og eigum svo sannarlega eftir að sakna þín. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum) Lára Ingólfsdóttir. Í dag kveðjum við Láru föð- ursystir mína. Hún var mér ákaflega kær og dásamleg frænka alveg frá því að ég var lítil stúlka. Mikill samgangur var á milli heimila systkinanna og nutum við börnin góðs af því. Margt var gert í sameiningu, mikið um heimsóknir, allskonar uppákomur, ferðalög og margt fleira sem ber að þakka fyrir. Við upprifjun á þessum stundum er endalaust hægt að ylja sér. Mörgum í fjölskyldunni finnst ég lík frænku minni og hef ég alla tíð verið mjög stolt af því , hún sem alltaf var svo falleg, geislandi glöð, smekkleg og átti svo fallegt heimili. Í gamla daga fannst mér nú ekki verra að hún hafði meira að segja sungið í hljómsveit og átti tjullkjól. Lára frænka giftist Hadda sínum sem var kletturinn hennar. Hún var frábær móðir, börnin hennar bera öll gott vitni um það, mjög ólík en frábærir einstaklingar. Lára frænka gekk í gegnum margt á lífsleið sinni, bæði gleðilegar og miklar erfiðleika- stundir en þar fór einstök kona með styrk sem ekki öllum er gefinn, en hún nýtti þann styrk vel. Ég þakka þér yndislegar samverustundir og bið guð um að styrkja Hadda og alla þína afkomendur í sorginni. Guð geymi þig elsku frænka mín. Frá mér til þín: Þegar sólin sest þá dimmir, síðan kemur aftur dagur. Þá birtan á þig minnir, þinn regnbogi er fagur. Þín, Ingibjörg Jóhanna Ing- ólfsdóttir (Inga Hanna) Elsku Lára mín. Nú ert þú horfin yfir móðuna miklu og ég sakna þín mikið. Ég man við áttum góðar stundir saman þegar þú komst til mín og mun ég aldrei gleyma þeim. Ég man við fengum okkur alltaf kaffisopa og þú komst með síríus-rönd með. Þú varst alltaf yndisleg, elsku vinkona. Hjartans hinsta kveðja til þín, megi Guð og allir englar vaka yfir þér, elsku Lára mín. Þín besta vinkona, Ása. Látin er á Akranesi Lára Ágústsdóttir á 75. aldursári. Það var alltaf einhver heið- ríkja yfir Láru Ágústsdóttur í lifanda lífi. Svipurinn var enda eins og himinninn líkt og hann getur fegurstur orðið. Það staf- aði frá þessari óvenjulega við- felldnu konu einhver himnesk birta, sem fyllti mann bjartsýni í návist hennar. Glaðvært fas hennar gaf von um að allar þrautir yrðu farsællega til lykta leiddar og jákvætt viðhorf henn- ar til dægurmálanna fyllti menn krafti til að takast á við lífið. Hún var fyrirmynd í flestu. Það var erfitt að ímynda sér að hún ætti einhverja andstæðinga. Hún hafði einstakt lag á að feta jafnan hinn gullna meðalveg, sem kann að skýra hversu vin- sæl hún var og vel látin. Engu að síður var hún skoðanaföst og hreinskiptin en skoðunum sín- um kom hún til skila á jákvæð- an hátt þannig að þær meiddu engan. Slíkur eiginleiki er ekki öllum gefinn. Hún var réttsýn og sanngjörn og gerði miklar kröfur til sjálfrar sín. Aldrei lét hún bugast þrátt fyrir erfið veikindi hin síðari ár. Þar rísa kannski hæst mannkostir henn- ar og andlegur styrkur. Harmur er nú kveðinn að frænda mínum Hafsteini Sigur- björnssyni, eiginmanni Láru, og fjölskyldu. Megi það verða huggun harmi gegn í endur- minningunni, að þar gekk götu lífsins eiginkona og móðir með hjarta úr gulli. Láru hef ég þekkt í röska hálfa öld. Hjá frændum mínum á Skaga hafði ég jafnan nokkurt skjól, er ég ungur og óreyndur tók að mér starf bæjarritara á Akranesi fyrstur manna, en það embætti var þá nýstofnað. Ófá spor átti ég til þeirra hjóna til skrafs og ráðagerða og verð ég jafnan þakklátur fyrir vinsemd og hlýju, sem mér var þá sýnd og jafnan síðan. Konan með gullhjartað mun ætíð standa mér fyrir sjónum í heiðríkju endurminninganna. Hún var konan, sem aldrei lét bugast. Sverrir Ólafsson. Lára Ágústsdóttir Innilegt þakklæti til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og bróður, ÁRNA VIGNIS ÞORSTEINSSONAR Hjallabraut 11, Þorlákshöfn, Anna María Hjálmarsdóttir, og fjölskylda. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR GÍSLASON matsveinn, Steinholtsvegi 1, Eskifirði, verður jarðsunginn föstudaginn 13. apríl kl.15 frá Fella- og Hólakirkju. Þakklæti til starfsfólks líknardeildar Kópavogs, blóm og kransar afþakkaðir, bendum ál íknardeild Kópavogs. Hólmfríður María Sigurðardóttir, Ingigerður Gunnarsdóttir, Gunnar Baldursson, Sigurþór Gunnarsson, Guðmunda Birgisdóttir, Harpa Rún Gunnarsdóttir, Matteo Andreoni, afabörn og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og tengdadóttir MONIKA OLECHNOWICZ-WOJCIECHOWSKA Fosshlíð 5 Grundarfirði, lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi síðastliðinn fimmtudag. Jarðarför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju 10. apríl kl. 16. Piotr Wojciehowski, Klaudia Wojciehowska, Dominik Wojciehowski, Janek Wojciehowski, Anna Wojciehowska, Wieslaw Olechnowicz. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR Laufengi 8, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans á föstudaginn langa, 6. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Björn H. Þ. Ingvarsson, Guðmundur Björnsson, Unnar Elías Björnsson, Jón Ingi Björnsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma HRAFNHILDUR GRÍMA THORODDSEN, Rauðalæk 35, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að morgni skírdags, 5. apríl. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 13. apríl kl. 13:00. Tryggvi Viggósson, Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir, Guðmundur Viggósson, Líney Þórðardóttir, Regína Viggósdóttir, Gunndóra Viggósdóttir, Ásgeir Arnoldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, VILHELMS S. SIGURÐSSONAR frá Görðum við Ægisíðu Sérstakar þakkir til starfsfólks á Austurbæ (Skógarbæ) fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Eva Vilhelmsdóttir, Ólafur Haukur Matthíasson, Elín Vilhelmsdóttir, Stefán Ó. Helgason, Sigurður Vilhelmsson, Sigurlaug Sveinsdóttir, Málfríður Vilhelmsdóttir, Kristján Thorarensen, Ingvar Vilhelmsson, Kristín Sandholt, Olga Þorsteinsdóttir, barnabörn og langafabörn. SOLVEIG JÓNSDÓTTIR menntaskólakennari, Skeljatanga 5, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 3. apríl. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 13. apríl kl. 3 síðdegis. Jón Nordal, Hjálmur Nordal, Sigríður Sólveig Ólafsdóttir, Ólöf Nordal, Gunnar Karlsson, Sigurður Nordal, Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.