Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 27

Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 an þín á kvenréttindadaginn 19. júní 1982. Og þvílíkt kvonfang sem þú náðir þér í á þeirri stundu. Við höfum síðan verið svilkonur og ekki síður vinkonur allar götur síðan og erum það enn. Fjölskyldur okkar hafa verið einstaklega samrýndar alla tíð og þú tókst virkan þátt í uppeldi dætra okkar Guðna sem allar dýrka þig og Ágústu sem væruð þið þeirra foreldrar. Þið Ágústa eignuðust þó ykkar eigin börn og fyrst og fremst verður þín minnst sem yndislegs fjölskylduföður sem allt vildi gera fyrir sína nán- ustu. Of langt mál er að rita um allt lífshlaup þitt í þessari örgrein sem okkur er skammtað hér á þessari stundu. Þakklæti skal hins vegar komið á framfæri við þig að þú skyldir meðal annars heiðra mig með nærveru þinni á ættaróðalinu á Votumýri síðast- liðið sumar í tilefni af sextugsaf- mæli mínu þar sem þú tókst full- an þátt í hátíðarhöldunum fram undir morgun, lengur en flest okkar hinna. Það var þinn stað- fasti vilji að mæta þar hjá mág- konu þinni þótt helsjúkur værir. En þannig varst þú, vildir standa við það sem þú hafðir lofað og ætlaðir þér. Nú er hins vegar komið að leið- arlokum elsku Tryggvi minn og að lokum vil ég vitna í skólafélaga þinn frá ML og gera hans orð að mínum: „Hann Tryggvi var hetja sem var ótrúlega jákvæður og það var auðvelt að láta sér þykja vænt um hann. Þess vegna sökn- um við hans meira en flestir vilja tala um.“ Þannig er það eflaust um marga aðra en mig. Elsku Ágústa mín, þinn missir er mikill og megi góður guð styrkja þig og fjölskyldu þína á þessum erfiðu tímum. Guð blessi þig þig elsku Tryggvi minn. Þín Helga mágkona. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Elsku Ágústa, sendum þér og fjölskyldunni okkar bestu samúð- arkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur og Hjördís. Tryggvi okkar er fallinn frá eftir að hafa glímt með sínum ein- staka hætti við erfið veikindi. Þegar við hugsum um Tryggva sjáum við fyrir okkur bros hans og hlýtt viðmót. Við kveðjum með miklum söknuði góða fyrirmynd, ástkæran og einstakan mann sem alltaf var tilbúinn að hlusta og veita góð ráð. Hugur okkar er hjá Ágústu, Ragnhildi, Ástþóri, Berglindi, Dodda og börnum. Njörður, Gunnhildur, Sturla, Perla og Tómas. Elsku frændi. Þá er þessari baráttu lokið, ein af mörgum sem þú hefur mátt heyja um ævina, ævi sem hefði átt að vera miklu lengri. Þó að við höfum vitað að hverju stefndi þá er maður aldrei undirbúinn undir kveðjur sem þessa. Maður situr eftir svekktur, sár og reiður yfir öllu sem lagt hefur verið á þig og fullur söknuðar en þó svo innilega þakklát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu og þekkt þig eins vel og ég gerði. Enn er stórt skarð höggvið í fjölskyldu okkar sem ekki verð- ur fyllt. Lífið er ekki sanngjarnt og það þekktir þú svo vel af eigin raun þó æðruleysið hafi ávallt einkennt þig. Þegar ég hugsa til baka þá sæki ég fyrst í þá hugsun þegar við mamma og Ásgerður unnum stóra lottóvinningin, að fá pabba inn í líf okkar, þá fylgdi stærsti bónusvinningur sögunnar með, þú. Þú sem varst spegilmynd pabba enda eineggja tvíburar. Ég á svo ótal margar minningar um þig að ég gæti skrifað heila bók um það. Þó stendur sveitin okkar upp úr í þeim efnum því þar átti fjölskydan svo margar góðar stundir saman og einnig þegar þið Ágústa bjugguð á Háaleitis- brautinni og ég grenjaði hrein- lega til að fá að gista hjá ykkur þar. Persónuleikinn þinn var svo yndislegur, þú varst alltaf glaður og góðmennskan þvílík að bar af og nærveran einstök. Oft þegar ég hitti fólk sem þekkti þig þá tal- aði það um „öðling“ og er það svo gott lýsingarorð á þér. Lífsgleði þín svo mikil þrátt fyrir allt og dugnaður að ég þekkti engan annan slíkan. Þið Ágústa pössuðuð okkur systurnar oft og þá var sko gam- an. Við systurnar fengum alltaf óskipta athygli þegar þú varst ná- lægt og alltaf varstu til í allsskon- ar prakkarastrik með okkur, hvort sem það var að taka vínber ófrjálsri hendi, til smökkunar, í matvöruverslun, fara í smá- „rally“ út á bakka, fara í réttirnar eða veiða á færi, óteljandi gaml- árskvöld og svo mætti lengi telja. Þú hefur snert líf mitt á ótelj- andi vegu og á ég eftir að sakna þín alveg óskaplega. Hitt veit ég þó að það er stórt ættarmót í himnaríki núna og þú skokkar um með bros á vör. Það er notalegt að hugsa til þess og hlýjar mér um hjartarætur. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar. Þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Og þegar tími minn á jörðu hér liðinn er, þá er ég burtu fer, þá ég veit að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Elsku frændi minn, ég kveð þig að sinni. Ruth Guðnadóttir. Í dag kveð ég ástkæran frænda minn hann Tryggva, en hann var hreint út sagt einstakur maður sem ég var svo heppin að þekkja og eiga að. Ég hef alltaf verið mjög stolt af frænda mínum og svo ótrúlega ánægð og þakklát að hafa hann í fjölskyldunni. Sem barn fékk ég iðulega að gista hjá Tryggva og Ágústu og voru það ávallt frábærar stundir sem hafa skilið eftir sig óteljandi góðar og hlýjar minningar bæði í huga mínum og hjarta. Ég státaði mig oft af því sem lítil stelpa að ég ætti í rauninni tvo pabba. Það var jú pabbi minn hann Guðni og svo var það Tryggvi, en þar sem þeir eru eineggja tvíburar og mjög lík- ir fannst mér ég eiga „vara- “pabba í Tryggva þar sem þeir voru nánast sama manneskjan að mínu mati. Samverustundir okkar hafa alltaf verið góðar í gegnum árin. Minna um gistingar þegar árin liðu en alltaf mikið spjallað og mikið hlegið enda var Tryggvi með bráðskemmtilegan húmor og alltaf til í góða brandara. Hann hafði einstaklega góða nærveru, gaf af sér mikla hlýju og brosið hans var slíkt að maður gat ekki annað en brosað á móti. Nú er baráttu elskulega frænda míns lokið og hef ég fulla trú á því að hann sé nú á góðum stað og í góð- um félagsskap með hinum engl- um fjölskyldunnar sem vaka yfir okkur. Elsku frændi, þú varst svo mikið uppáhald hjá mér. Ég veit að það verður langt þangað til við sjáumst á ný, spjöllum og hlæjum saman, en þangað til mun ég fletta í gegnum allar þessar ynd- islegu minningar sem þú hefur skilið eftir hjá mér og hugsa til þín með yl í hjarta og bros á vör. „… eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei það er minning þín.“ Saknaðarkveðja, Bergþóra. Ótrúlegt að hugsa til þess að þú sért farinn, Tryggvi minn. Þú ert ein af stóru persónunum í lífi mínu. Þitt góða og fallega hjarta- lag, ótæmandi viska og þinn alveg einstaki húmor hafa sett þig alveg í sérflokk meðal þeirra manna sem ég hef kynnst um ævina. Ég man allar þær heimsóknir sem ég átti hjá þér og Ágústu í gegnum árin, þar var alltaf tekið á móti manni með bros á vör og gleði, sest niður og hellt upp á könnuna. Svo var talað um heima og geima og ekki ósjaldan langt fram á nótt. Það skipti litlu hvar var staldrað við í umræðunni því þú, Tryggvi, hafðir alltaf einhverja skemmtilega viskumola að leggja til. Þegar ég hugsa til baka alveg frá því ég var unglingur hef ég upplifað þig sem fyrirmynd þess hvað það er að vera nútímamað- ur, karlmaður okkar tíma. Þú sýndir Ágústu einstaklega mikla ást og virðingu og varst hennar besti vinur, tókst jafnan þátt í heimilisstörfunum, varst mættur tímanlega heim úr vinnunni og einstaklega góður faðir. Þessi störf vannstu með alúð og gleði. Þú og Ágústa voruð alveg ein- stakt par og gátuð svo vel notið ykkar í hversdagsleikanum. Þess vegna var heimili ykkar alltaf hálfgerð félagsmiðstöð stórfjöl- skyldunnar. Alltaf var hægt að leita til ykkar með hvaða mál sem var. Á unglingsárum mínum reynd- ist þú og Ágústa mér einstaklega vel og þið ásamt stórfjölskyldunni voruð alveg ómetanleg við lát mömmu. Þar sem pabbi var bú- settur erlendis var gott að eiga þig að, Tryggvi minn. Alltaf gat ég leitað ráða hjá þér með alls- konar vangaveltur og spurningar. Þú varst maður án fordóma, svo heill með stórt hjarta og tókst því öllum umræðum jafn fagnandi. Óendanlega smátt er sandkornið á ströndinni Óendanlega stór er kærleikur þinn. Ég er sandkorn á ströndinni, kærleikur þinn hafið. (Matthías Johannessen) Þú munt alltaf hafa stað í hjarta mínu og þín verður sárt saknað, elsku Tryggvi. Þinn Jökull. Elsku Tryggvi. Við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Hvíldu í friði. Brosið breitt og augun skær, bið guð þig að geyma, bestu þakkir, þú varst mér svo kær. Þér mun ég aldrei gleyma. (Guðný Sigríður Sigurðardóttir) Við spyrjum margs en finnum fátt um fullnægjandi svör. Við treystum á hinn mikla mátt sem mildar allra kjör. Í skjóli hans þú athvarf átt er endar lífsins för. Og það er margt sem þakka ber við þessa kveðjustund. Fjör og kraftur fylgdi þér, þín fríska, glaða lund. Mæt og góð þín minning er og mildar djúpa und. Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta, blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. En þó að verði vegamót og vinir hverfi brott, á alfaðir við öllu bót svo aftur verði gott. Hann græðir allt af einni rót með ást og kærleiksvott. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjótast inn. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veginn þinn. (GÖ) Ásgerður, Jóhann, Hilmar og Hjalti. Gullna hliðið stendur opið uppá gátt þegar Tryggvi gengur þar inn. Móttökunefndin efast ekki um að þessi maður eigi vísa vist í himnaríki. Lífsskrá hans er með þeim hætti og honum er tekið fagnandi þó koma hans sé ótíma- bær. Harla verður hún að teljast óvenjuleg þessi skrá sem þau hafa farið yfir. Ekki er það aðeins lífshlaupið heldur einnig öll lynd- iseinkunn þessa góða manns. Það er erfitt að finna réttu lýsingar- orðin í orðabókinni sem geta gefið af honum rétta mynd. Sveitastrákur fæddur inn í góða fjölskyldu, tvíburi og allt leikur í lyndi þar til dag einn að slys sem ekki gerir boð á undan sér setur mark sitt á allt líf Tryggva. Hann lætur það samt ekki aftra sér frá því að ná settum markmiðum. Hann gengur til mennta og lýkur háskólaprófi. Starfar alla sína starfævi við sitt fag. Eignast góða og fallega konu, Ágústu sem margir öfunda hann af. Tekur að sér ásamt henni systkini þrjú og ganga þau þeim í foreldrastað, ala upp á þann besta máta sem verða mátti. Dæturnar Erla Berglind og Ragnhildur Ýr og sonurinn Ástþór Hugi sem glímir við mikla fötlun. Berglind er nú orðin móðir þriggja fallegra og efnilegra stúlkna. Afa sinn hefðu þær mátt hafa hjá sér svo miklu lengur. Tryggvi tekst á við erfið veik- indi af miklu æðruleysi, sigrar vá- gestinn og á mörg góð ár. Aftur þurfti sá leiði óvinur að koma í heimsókn og í þetta skipti til að setjast að og sigra þennan góða dreng að lokum. Við sem kveðjum Tryggva nú og horfum á eftir honum fara inn um Gullna hliðið, söknum góðs vinar. Fallegur maður, einstök gæða sál. Ljúfur og góður húmor, aldrei kvartað. Bjartsýnn og brosandi mót framtíðinni og þeim verkefnum sem hann þurfti að sinna. Samverustundirnar með Tryggva hefðu gjarnan mátt vera miklu fleiri. Í amstri dagsins gleymist oft hversu lífið er í raun stutt. Tryggvi var sannkölluð fyr- irmynd sem allir gátu lært af. Það er ekki sjálfgefið að fá tækifæri til að kynnast slíkum sómamanni. Það er okkar heiður. Guð blessi Tryggva og fjöl- skylduna hans og veri með þeim alla tíma. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Ísólfi Gylfa og fjölskyld- unni. Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir. Elsku besti Tryggvi minn. Þú varst alltaf svo kátur og jákvæður og húmorinn var sko í lagi. Þér þótti svo gaman að hlæja og hafa gaman með öllum en sérstaklega voruð þið pabbi og Halla dugleg að tala um gömlu tímana þegar þið voruð lítil. Þið voruð svo mikl- ir prakkarar og sögurnar frá ykk- ur alveg einstakar. Það eru svo margar minningar um þig Tryggvi minn en það sem er efst í huga mér eru áramótin sem við fjölskyldan héldum saman í den … og svo náttúrlega réttirn- ar. Það var alltaf svo gaman að öll fjölskyldan kom saman á þessum tímum. Við systurnar vorum líka mikið hjá ykkur Ágústu þegar við vor- um litlar og var það svo sérstakt. Ég man sérstaklega eftir því þeg- ar þú, ég og pabbi sátum inni í eldhúsi heima hjá afa á Votamýri og við sungum. Ég söng Frost er úti fuglinn minn og þú sagðir að ég syngi alveg eins og Ella amma söng. Það þótti mér svo vænt um að heyra. Það var alveg yndisleg stund með þér. Elsku besti Tryggvi minn, það er svo margt sem ég get sagt og hefði viljað segja við þig áður en þú lést, en ég flaug til Íslands til að kveðja þig og var sá tími mér svo dýrmætur og er ég afar þakk- lát fyrir hann. Þú og Ágústa voruð svo falleg hjón og sást það enn, þó svo að þú værir mjög veikur, hversu mikið þið Ágústa elskuðuð hvort annað. Svo varst þú svo yndislegur faðir og afi. Þú varst einstakur maður og gafst svo mikið af þér þrátt fyrir allt og er ég svo stolt að hafa verið bróðurdóttir þín. Megi góður Guð geyma og varðveita þig elsku besti Tryggvi minn. Hér er ljóð til þín frá mér: Minningar um þig eru dýrmætar mér, takk fyrir að hafa verið til, þú gafst svo mikið af þér. Englarnir á himnum, taka nú á móti þér, ásamt öllum hinum, sem bíða eftir þér. (EG) Elsku Ágústa, Berglind, Ragn- hildur, Ástþór og barnabörn, pabbi minn og Halla, megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Elín Guðnadóttir og fjölskylda. Hann Tryggvi er dáinn, enn er höggvið skarð í stúdentaárgang- inn 1970 frá Menntaskólanum að Laugarvatni. Tenórinn ljúfi sem fór allra sinna ferða gangandi þótt hann væri lamaður fyrir neð- an mitti er allur, hans er sárt saknað. „Þegar menn gátu ekki lengur dáðst að Heklugosinu og þess undurfurðulegu töfrum fengu hjónakornin á Votumýri á Skeið- um tvö lítil undur að furða sig á. Annað þessara undra var Tryggvi Karl.“ Svona hefjast gáskafull ummæli um Tryggva í Skuggsjá vorið 1970 þegar hann varð stúd- ent frá Menntaskólanum að Laugarvatni. Það var einmitt á Laugarvatni sem leiðir okkar lágu saman, en haustið 1966 byrj- aði vaskur hópur pilta og stúlkna í Menntaskólanum að Laugar- vatni. Þar á meðal voru tveir sveitadrengir, eineggja tvíburar sem voru ívið eldri en flestir í ár- ganginum, andlitsfall og lundin lík. Þetta voru Tryggvi Karl og Guðni Eiríkssynir frá Votumýri á Skeiðum. Samrýndir voru þeir og góðir heim að sækja. Fram eftir aldri voru þeir svo líkir að einungis nánustu aðstand- endur þekktu þá í sundur, en við 11 ára aldur breyttist líf beggja. Bílslys, þar sem mæna Tryggva skaddaðist, olli því að hann lam- aðist neðan mittis og gekk hann við hækjur upp frá því. Hann var harður af sér og sló aldrei af, ekki tilætlunarsamur né gerði ráð fyr- ir sérstakri meðhöndlun vegna fötlunar sinnar. Fyrir okkur bekkjarsystkini hans á Laugar- vatni var mjög þroskandi að fá að kynnast Tryggva. Tryggvi var eini bekkjarfélag- inn sem átti bíl þegar við vorum í fyrsta bekk og reyndar sá eini í öllum skólanum. Hann ók göml- um beinskiptum Landróver X-1461, með heimatilbúnum hjálpartækjum, stangir voru fest- ar á bremsu og bensíngjöf þannig að Tryggvi gæti ekið bílnum. Ein- hverju sinni þurfti bekkurinn að bregða sér á milli bæja, fara í kaupfélagið. Þá tróðu 17 bekkjar- félagar sér inn í Landróverinn og Tryggvi ók. Ekki þurfti hann allt- af að kúpla þegar hann skipti um gír svo tengdur var hann gamla róvernum. Flotti rauði fólksvagn- inn tók við af jeppanum, sérútbú- inn. Eftirminnilegt er þegar hann tók rauð til kostanna í uppsveit- um Árnessýslu þá örlagaríku nótt 1968, þegar Íslendingar fóru frá vinstri til hægri. Bannað var að nota vegina meðan skiptin gengu í garð, en ekki hefti það ærslafulla menntskælinga á bjartri vornótt enda keyrt á miðjum veginum. Margar fleiri minningar um góðan dreng sækja á hugann og gott er að hlýja sér við þær þegar horft er um öxl og Tryggva er minnst. Við sendum Ágústu og börnum þeirra svo og Guðna og öllum að- standendum Tryggva okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Stúdentar frá ML 1970, Gísli Karel Halldórsson og Rúnar Gunnarsson. Ég hitti Tryggva í fyrsta sinn er ég hóf störf á Þjóðhagsstofnun nýkominn úr námi árið 1976. Næstu þrjú ár deildum við skrif- stofu og fengumst við svipuð verkefni. Hann var sveitadrengur af Skeiðunum og þessi fyrstu samskipti okkar minnisstæð. Í upphafi komu fram einkenni hans, stílhreint andlitsfall, skarp- ur augnsvipur, stríðnislegt bros, jafnan stutt í hláturinn og hann gekk við hækjur, hafði lent í bíl- slysi ungur. Við urðum strax miklir mátar, hann afar vingjarn- legur og hjálpsamur. Þarna hófst einskonar framhaldsnám, hann kennarinn sem sagði nákvæm- lega til um nánast öll atriði sem máli skiptu í starfinu, óþreytandi við það verkefni. Tilsögnin hefur reynst vel og þarna var lagður grunnur að ævilangri vináttu. Hann kvartaði aldrei yfir nokkru nema ef væri til að taka upp hanskann fyrir aðra og eftir stuttan tíma hætti maður að taka eftir hækjunum og fötlun hans. Að mörgu leyti held ég að hann hafi verið heilsteyptasti og jafn- framt hreinskiptnasti maður sem ég hef kynnst. Hann gat verið fastur fyrir ef á þurfti að halda, en samt var lag hans í samskiptum einstakt og eftirminnilegt. Með því tókst honum oft að afla upp- lýsinga sem þurfti og þeir sem veittu þær gerðu það undantekn- ingarlaust með glöðu geði. Tryggvi var afar forvitinn að eðl- isfari, ekki til að hnýsast um hluti, heldur til að sjá þá í nýju ljósi, kafa undir yfirborðið. Tryggvi starfaði á Þjóðhags- stofnun lengst af við gerð einka- neyslu, en ég hvarf til annarra starfa um tíma. Árið 2002 var hluti af starfsemi Þjóðhagsstofn- unar fluttur til Hagstofu Íslands og kom þá Tryggvi til starfa þar. Árið 2003 flutti hann sig um set innan stofnunarinnar yfir í vísi- töludeildina og þá lágu leiðir okk- ar saman á ný. Aðalverkefni hans tengdist vinnu við alþjóðlegan verðsamanburð og því fylgdu nokkur erlend samskipti sem hann rækti vel, dyggilega studd- ur til þess af konu sinni, henni Ágústu. Hann var afar góður fulltrúi Íslands á þeim vettvangi og vel liðinn. Ég hitti Tryggva í síðasta sinn fyrir stuttu. „Mig dreymdi þig í nótt,“ sagði hann, „við vorum saman í bardaga“. Það var nokk- uð af honum dregið líkamlega en andlega atgervið eins, glettnis- glampi í augum, stríðnislegt bros og stutt í hláturinn. Fáir eru gæddir þeirri náðargáfu að skilja alltaf við þá sem verða á vegi þeirra léttari í lundu og við betri líðan. Þannig var Tryggvi, honum tókst með sinni yfirveguðu ró- semi að gefa ætíð af sér til ann- arra og einnig þarna, ég yfirgaf hann í síðasta sinni léttari fyrir hjartanu og eftir stendur minning um góðan dreng sem gaf vinum sínum mikið. Tryggvi var einn af elstu og reyndustu hagskýrslugerðar- mönnum Íslands, sem eru eins konar skraddarar, sníða til föt og sauma utan um tölur og hans er sárt saknað. Tryggvi bar einlægt hag fjöl- SJÁ SÍÐU 28

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.