Morgunblaðið - 10.04.2012, Síða 31

Morgunblaðið - 10.04.2012, Síða 31
Suðurlands á Selfossi 1987-90, í stjórn Hitaveitu Eyra 1980-92 og formaður af og til á tímabilinu, sat í stjórn Selfossveitna 1992-94, í skipu- lags- og byggingarnefnd sveitarfé- lagsins Árborgar 1998-2002, sat í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfélaga 1986-98, sat í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1994-98, í ráðgjafarnefnd félags- málaráðherra um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga 1990-99, í skipulags- nefnd fólksflutninga 1991-96, í húsa- friðunarnefnd ríkisins 1995-2000, varamaður í húsafriðunarnefnd frá 2010, í stjórn fornleifasjóðs frá 2007, í stjórn og varastjórn Kínversk- íslenska menningarfélagsins af og til 1975-2002. Magnús hefur tekið þátt í starfshópum á vegum sambandsins og stjórnarráðsins um aukið per- sónukjör við kosningar til Alþingis og sveitarstjórna. Magnús var kjörinn með persónu- kjöri í hreppsnefnd Eyrarbakka- hrepps aðeins 26 ára, árið 1978, og sat í hreppsnefndinni í 20 ár eða þar til Eyrarbakkahreppur var samein- aður þremur öðrum sveitarfélögum í sveitarfélagið Árborg. Verslun Guðlaugs Pálssonar Magnús hefur búið á Eyrarbakka alla tíð. Hann og Inga Lára, eig- inkona hans, hafa lengi haft mikinn áhuga á sögu Eyrarbakka og vernd- un gömlu byggðarinnar þar. Sjálf hafa þau gert upp þrjú hús á Bakk- anum með liðveislu fjölskyldu og vina, nú síðast verslun Guðlaugs Pálssonar í húsinu Sjónarhóli. Það hús var upphaflega byggt árið 1886, en Guðlaugur hóf verslunarrekstur í því árið 1919 og þar rak hann verslun í 74 ár eða til ársins 1993 þegar hann lést. Síðastliðið sumar opnuðu þau hjónin safnbúð í húsinu með gömlum innréttingum og munum frá Guð- laugi. Verslunin er opin um helgar yfir sumartímann og þar eru til sölu smámunir og ýmiss konar varningur fyrir ferðamenn. Þá hafa þau haldið úti vefnum www.eyrarbakki.is með fjölbreyttum upplýsingum og fróð- leik um sögu Eyrarbakka og þá þjón- ustu og viðburði sem í boði eru á Bakkanum á hverjum tíma. Arkað um Ölfusið Magnús og Inga Lára leggja oft land undir fót í gönguferðum, innan lands og utan. Á undanförnum árum hafa þau gengið með góðum vinum, Sigurlínu Eiríksdóttur og Sigurði Steindórssyni, um nágrenni Eyrar- bakka og um fjallvegi í Ölfusi. Þau hafa einnig farið í gönguferðir á Ítal- íu, Spáni og Grikklandi. Magnús hefur lengi verið áhuga- ljósmyndari og á mikið safn mynda frá Eyrarbakka, bæði mannlífi og umhverfi, og myndir frá ferðum inn- an lands og utan. Í tilefni af afmælinu hafa Magnús og Inga Lára boðað til sam- verustundar á Eyrarbakka föstudag- inn 13. apríl sem hefst kl. 20 í Eyr- arbakkakirkju. Fjölskylda Magnús kvæntist 28.12. 1985 Ingu Láru Baldvinsdóttur, f. 16.2. 1956, fagstjóra Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni. Hún er dóttir Bald- vins Halldórssonar, f. 23.3.1923, d. 13.7. 2007, leikara og leikstjóra í Reykjavík, og k.h., Vigdísar Páls- dóttur, f. 13.1. 1924, fyrrv. lektors við Kennaraháskóla Íslands. Sonur Magnúsar og Ingu Láru er Baldvin Karel Magnússon, f. 11.7. 1985, nemi við Tækniskóla Íslands. Systkini Magnúsar eru Sigríður Ingibjörg Hannesdóttir, f. 30.7. 1960, húsmóðir í Kópavogi; Svanhildur Magnúsdóttir, f. 25.7. 1943, húsmóðir á Eyrarbakka; Sveinn Magnússon, f. 3.6. 1947, d. 19.10. 2006, skipstjóri á Eyrarbakka. Foreldrar Magnúsar voru Hannes Þorbergsson, f. í Viðey 5.11. 1919, d. 15.10. 2003, vörubifreiðarstjóri á Eyrarbakka, og Valgerður Sveins- dóttir, f. á Grjótá í Fljótshlíð 18.4. 1921, d. 4.10. 2005, húsmóðir og verkakona á Eyrarbakka. Úr frændgarði Magnúsar Karel Hannesssonar Teitur Ólafsson b. á Grjótaá í Fljótshl. Sigurlaug Sveinsdóttir húsfr. Jón Sveinsson b. á Kirkjulæk Ástríður Pálsdóttir húsfr. á Kirkjulæk Sigríður Stefánsdóttir húsfr. Hannes Kláusson b. í Knútskoti í Mosfellssv. Elín Halldórsdóttir húsfr. í Knútskoti Magnús Karel Hannesson Valgerður Sveinsdóttir húsfr. á Eyrarb. Vilborg Jónsdóttir húsfr. á Grjótá Sveinn Teitsson b. á Grjótá í Fljótshl. Sigríður Ingibjörg Hannesd. húsfr. á Eyrarb. Þorbergur Guðmundsson verkam. á Eyrarb. Guðmundur Guðmundsson húsm. á Litlafjalli í Borgarf. Gunnar Karlsson myndl.m. og kvikm.g.m. Hafsteinn Karlsson bæjarfulltr. og skólastj. í Kópavogi Ólöf Þorbergsd. húsfr. Númi Þorbergsson textahöfundur Hannes Þorbergsson bifreiðastj. á Eyrarb. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 90 ára Gísli Kr. Gíslason Tómas Sigurðsson Þráinn Agnarsson 85 ára Bárður Vigfússon Guðrún Hjörleifsdóttir Stefanía Ágústsdóttir Unnur Jónsdóttir 80 ára Aðalheiður Guðmundsd. Valdimar Axelsson 75 ára Bóas Kristjánsson Garðar Ingvarsson Jóhanna Kristinsdóttir Pétur Haukur Helgason Sigmundur B. Guðmundss. Sonja R. Haraldsson 70 ára Björn Ingvarsson Guðrún Gunnarsdóttir Magnea Þorfinnsdóttir Margrét Sigurðardóttir Þorgerður S. Guðmundsd. Þorvaldur Jónasson 60 ára Guðlaug L. Sigurðardóttir Guðmundur Stefánsson Guðrún E. Guðmundsdóttir Inger M. Christensen Magnús Karel Hannesson Örn Jóhannesson 50 ára Ásdís Ólafsdóttir Hlynur Ólafur Pálsson Ingiríður Harðardóttir María Hálfdánardóttir Níels Harðarson Ómar Þór Eyjólfsson Ragnhildur Jónsdóttir Skúli Jónsson Tonny Hadberg Espersen Þröstur Sigurðsson 40 ára Anna Lára Magnúsdóttir Elín H. Stolzenwald Emil Anton Sveinsson Guðmundur I. Kristjánsson Hrafnhildur Sverrisdóttir Jórunn D. Sigurjónsdóttir Ólafur Örn Guðmundsson Tomasz Marek Kieczkowski Þorkell G. Þorkelsson Þórður Birgisson Þórður Þórðarson 30 ára Anna Antecka Anna Bára Rakelardóttir Árni Rúnar Kristjánsson Birgitta Björk Ásgeirsdóttir Brynjar Örn Gunnarsson Carlos Horacio Gimenez Daði Róbertsson Gunnar Þór Jónsson Hanna Sigrún Helgadóttir Íris Ingþórsdóttir Jakob Viðar Grétarsson Joanna Pruszynska Margrét H. Aðalsteinsdóttir Monika Olechnowicz Ríkharð Bjarni Snorrason Viðar Jónsson Til hamingju með daginn 30 ára Anna Bára fædd- ist í Reykjavík og ólst þar upp í Grafarvoginum. Hún lauk prófum sem grunn- skólakennari frá Kenn- araháskóla Íslands árið 2006 og er nú kennari við Hörðuvallaskóla í Kópa- vogi. Eiginmaður Kári Jón- asson, f. 1979, íþrótta- fræðingur. Börn Önnu Báru og Kára eru Erika Líf, f. 2005; El- ísa Birta, f. 2009. Foreldrar Rakel Ólafs- dóttir, f. 1963, bókhaldari, og Aron Halldórsson, f. 1962, d. 1984, vélvirki. Anna Bára Rakelardóttir 30 ára Árni fæddist í Keflavík en ólst upp í Grindavík og í Reykjavík á unglingsárunum. Hann stundar nú nám í raf- eindavirkjun við Tækni- skólann. Kona Alexandra Júlía La- sota, f. 1982, húsmóðir. Börn Árna og Alexöndru eru Artur Andrzej Lasota Árnason, f. 2009; Eiríkur Arnar Lasota Árnason, f. 2011. Foreldrar Ásrún Karls- dóttir, f. 1955, hár- greiðslukona, og Kristján Árni Kristjánsson, f. 1963, bifreiðastjóri. Árni Rúnar Kristjánsson Eiríkur Einarsson arkitektfæddist í Reykjavík 10. apríl1907, sonur Einars Helga- sonar, garðyrkjustjóra við Laufásveg þar sem nú er Einarsgarður, skammt frá gamla Kennaraskólanum. Systir Einars var Þórey, móðir Jónasar Péturssonar, fyrrv. alþm. Foreldrar Einars voru Helgi Páls- son, b. á Kristnesi við Eyjafjörð, og Kristbjörg Einarsdóttir, systir Sig- ríðar, eiginkonu Björns, prófasts og skálds í Laufási Halldórssonar, en þau voru foreldrar Þórhalls Bjarn- arsonar biskups, sem bjó í Laufási við Laufásveg í Reykjavík, föður Tryggva forsætisráðherra og Dóru, konu Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Móðir Eiríks var Kristín Guðmunds- dóttir, hreppstjóra á Þorfinnsstöðum í Önundarfirði Eiríkssonar, og Þór- unnar Sveinbjörnsdóttur. Eiríkur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavik 1927, stundaði fyrrihlutanám í arkitektúr við Technische Hochschule í Darm- stadt í Þýskalandi 1927-1930 og seinnihlutanám við Technische Hochschule í Dresden en þar lauk hann prófum 1936. Eiríkur starfaði hjá Sigurði Guð- mundssyni arkitekt 1936-1938, starf- rækti með honum teiknistofu þar til Sigurður lést 1958 og rak síðan eigin stofu til dauðadags 20. október 1969. Löng samvinna Eiríks og Sigurðar setti sitt mark á byggingarsögu Reykjavíkur en meðal þekktustu húsa sem þeir teiknuðu saman má nefna Nýja-Garð á háskólalóðinni, Fossvogskirkju og bálstofuna þar, Þjóðminjasafnshúsið og síðast en ekki síst Sjómannaskólann, sem margir telja til fegurstu bygginga í Reykjavík. Önnur verk Eiríks hafa orðið um- deildari svo ekki sé meira sagt, s.s. viðbótin við Útvegsbankahúsið við Lækjartorg, sem hann teiknaði ásamt Herði Björnssyni tæknifræð- ingi. Eiríkur var auk þess kennari í húsagerð við verkfræðideild Háskóla Íslands. Merkir Íslendingar Eiríkur Einarsson 30 ára Brynjar fæddist í Reykjavík, ólst upp í Grindavík, útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Íslands og er nú ritari Kárs- nesskóla í Kópavogi. Kona Sigurbjörg Helga- dóttir, f. 1988, MA-nemi í hagnýtri siðfræði við Há- skóla Íslands. Sonur Brynjars er Rík- harður Óli, f. 2008. Foreldrar Gunnar Tóm- asson, f. 1954, fram- kvæmdastjóri útgerð- arfyrirtækisins Þorbjörns hf. í Grindavík, og Rut Óskarsdóttir, f. 1954, bók- ari hjá Þorbirni. Brynjar Örn Gunnarsson 112 Grafarvogi - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is Kojur íbjarga málunum Margar stærðir og gerðir af kojum og rúmum, litlum og stórum, breiðum og mjóum fyrir barnaherbergið og sumarbústaðinn! Sérverslun með kojur og fylgihluti Vefverslun husgogn.is erum á Facebook

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.