Morgunblaðið - 10.04.2012, Síða 36
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarDV
HHHH
FBL
HHHH
FT
HHHH
MBL
HHHH
PRESSAN.IS
HHHH
KVIKMYNDIR.IS
HHHH
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 - 6
LORAX 2D ENSKT TAL Sýnd kl. 4
LORAX 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 4
HUNGER GAMES Sýnd kl. 7 - 10
SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 8 - 10:15
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐFór beint á toppinn í USA
„ÁKAFLEGA VEL HEPPNUÐ
ÆVINTÝRAMYND“
A.L.Þ - MBL
HHHH
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
HHHH
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND
FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG
Sýnd með íslensku
og ensku tali
TVÆR VIKUR
Á TOPPNUM
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MBL DVPRESSAN.IS
KVIKMYNDIR.IS
T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRTA.L.Þ - MBL Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
SÉÐ OG HEYRT/KVIKMYNDIR.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
52.000 MANNS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
AMERICAN PIE: REUNION KL. 5.50 - 8 - 10.10 12
HUNGER GAMES KL. 5.30 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 10.30 16
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 - 9 10
AMERICAN REUNION KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 6 L
HUNGER GAMES KL. 6 - 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 4 - 8 10
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ LÚXUS KL. 4 10
AMERICAN PIE: REUNION KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
AMERICAN PIE: REUNION LÚXUS KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 - 6 L
HUNGER GAMES KL. 5 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 8 - 10.30 16
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Ég er skorpumaður þegar kemur að því hvað ég hlusta á
hverju sinni. Tek meira að segja nýju tónlistina í skorpum –
á milli þess sem ég sökkvi mér ofan í eldri tónlist héðan og
þaðan. Undanfarið hef ég verið að stúdera nýju Andrew
Bird-plötuna og virðist hún ætla að læðast álíka lymskulega
aftan að mér og snilldarverkið Helplessness Blues með
Fleet Foxes gerði í fyrra – plata sem ég hlusta enn mjög
reglulega á og er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt. Ég er
líka að hlusta á plötu sem fór alltof lítið fyrir þegar hún
kom út í fyrra, Numbers Game með Pétri Ben & Eberg.
Uppfull af frábærum popplögum. Svo er maður enn að
kynna sér það sem skríbentar töldu standa upp úr á síðasta
ári og undanfarið hefur House of Ballons með The Weeknd
sjarmerað mig upp úr skónum. Mikið Massive Attack þar í
gangi. Má svo til með að nefna nýja útgáfu með allra helstu
tónsmíðum Davids Sylvians sem heitir A Victim of Stars.
Hún er skyldueign.
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið
gerð að þínu mati?
Þær eru svo margar sem gera tilkall til þessa og því eina
ráðið að láta rökhugsun eiga sig og leyfa hjartanu að ráða
slíku vali hverju sinni. Sterkasta tilfinningin tengist trúlega
Pink Moon með Nick Drake því þegar maður þekkir tildrög
þessa rétt ríflega 28 mínútna langa meistaraverks þá verk-
ar hún ennþá sterkar á mann og sleppir aldrei takinu. Eftir
að þessi sárþjáði ungi maður hafði verið týndur og tröllum
gefinn svo mánuðum skipti skaut hann upp kollinum í hljóð-
veri í London í október 1971 og renndi í gegnum – eftir að
hafa verið týndur svo dögum og vikum skipti – lögin ellefu í
tveimur tveggja klukkustunda löngum atrennum. Lét sig
síðan hverfa aftur og sást vart framar opinberlega og gafst
endanlega upp rúmum tveimur árum síðar. Fullkomin plata
í alla staði sem á bara eftir að vaxa í virðingu og vegsemd.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú
hana?
Það mun hafa verið fjögurra laga plata – tólftomma svo-
kölluð – með stærstu smellum aksjónmennanna úr Village
People. Keypti hana í Músík og Sport í Hafnarfirði. Gulræt-
urnar voru að sjálfsögðu ofursmellirnir „In The Navy“ og
„YMCA“. Fimm hreystimenni í
grímubúningum að syngja ofurgríp-
andi hreystimennasöngva í dúndr-
andi diskótakti. Hvernig var ekki
hægt að fíla það verandi 6 ára?
Plata númer tvö var svo HLH
flokkurinn – aðallega vegna þess að
henni fylgdi túpa af brilljantíni.
Einhverjar plötur komu svo í kjöl-
farið en þær fölnuðu allar við hlið-
ina á Rio, sem ég keypti í Kaup-
félaginu í Hrísey sumarið 1982. Það
varð fyrsta alvöru uppáhaldsplatan.
Hvaða íslensku plötu þykir þér
vænst um?
Geislavirkir – kannski vegna þess
að ég man að mér fannst ég vera að
gera eitthvað sem ég mátti ekki
þegar ég hlustaði á hana hjá föð-
urbróður mínum og í gegnum hana
kynntist ungur áhrifagjarn pjakkur
öllu því sem þá var mest spennandi
í tónlist, rokki, nýbylgju, reggí,
bara nefndu það. Gling Gló – því
þar gerir Björk dægurtónlistararfi
okkar betri skil en nokkur annar
hefur gert og það er varla til sú
plata sem við kona mín höfum
hlustað oftar á saman. Hljóð er
nóttin – því þar eru framúrskarandi
lagasmíðar Magnúsar Þórs samankomnar í
mergjuðum útsetningum Jóns Ólafssonar
og Life‘s Too Good því hún súmmerar full-
komlega upp síðgelgjuna og ýfir alltaf upp
góðar minningar og sælutilfinningu. Og svo auðvit-
að svigaplatan með Sigur Rós, því hún er einfaldlega
besta íslenska plata allra tíma. Þykir óskaplega vænt um
þessa umdeildu plötu.
Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera?
Meistari Paul McCartney því annað eins ævistarf getur
maður vart hugsað sér. Thom
Yorke, annan eins sköpunarkraft
og hæfileika hlýtur alla að dreyma
um að hafa, eða Ólafur Arnalds því
hvað er hægt að hugsa sér betra
en að vera snillingur og eiga fram-
tíðina fyrir sér?
Hvað syngur þú í sturtunni?
„Make it Easy on Yourself“ með
Walker Brothers, „Ég er kominn
heim“, „Wild is the Wind“, „Half a
Person“ með The Smiths og síð-
ustu daga hef ég raulað „We Are
Young“ – poppslagari ársins so far.
Hvað fær að hljóma villt og galið
á föstudagskvöldum?
„No One Knows“ með Queens of
the Stone Age, „Romantic Exorc-
ism“ með Mínus, „Hellbound
Heart“ með Reykjavík!, „Mistakes“
með Tindersticks, „Teenage Kicks“
með The Undertones, „The Cutter“
með Echo and the Bunnymen,
„Venus“ með Television, Smiths og
Bítlar eins og þeir leggja sig og
eitthvað gamalt og gott með Jimmy
Cliff og Toots & The Maytals.
En hvað yljar þér svo á sunnu-
dagsmorgnum?
Næstum allt með Ninu Simone,
eins og t.d. „The Other Woman“ og „Lilac Wine“,
„Fallen“ með Ron Sexmith, „Like an Old Fash-
ioned Waltz“ og„ Silver Threads and Golden
Needles“ með bestu söngkonu sögunnar, Sandy
heitinni Denny, í síðarnefnda laginu með sveitinni
Fotheringay, plata Lambchop „Is A Woman“ í heild
sinni, „Junk“ með Sir Paul, Land míns föður með Ein-
ari Scheving og co. sem er einhver innilegasta plata síðari
ára og síðan eitthvað seiðandi á borð við Mulatu Astatke og
Moondog.
Í mínum eyrum Skarphéðinn Guðmundsson
Svigaplatan er besta íslenska platan
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
- nýr auglýsingamiðill
...þú leitar og finnur