Morgunblaðið - 20.04.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
Heimili og hönnun
föstudaginn
11. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 7. maí.
Í blaðinu verða kynntir
geysimargir möguleikar og
sniðugar lausnir fyrir heimilin.
Skoðuð verða húsgögn í stofu,
hjónaherbergi, barnaherbergi og
innréttingar bæði í eldhús og bað.
Heimili & hönnun
SÉ
RB
LA
Ð
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mikið var um dýrðir í Hörpu í gær þegar Verk-
fræðingafélagið fagnaði 100 ára afmæli sínu. Á
hátíðinni veitti félagið aldarviðurkenningu VFÍ.
Verðlaun voru veitt í þremur flokkum, til ein-
staklinga sem hafa þótt skara fram úr á sínu
sviði. Einstaklingar voru verðlaunaðir annars
vegar fyrir störf sín innan fyrirtækja sem eru al-
þjóðlega í fremstu röð og hins vegar fyrir störf í
þágu sprotafyrirtækja sem hafa náð fótfestu á
markaði. Þá verðlaunaði VFÍ einstaklinga sem
þykja hafa plægt akurinn og sýnt sérstakt frum-
kvæði og haft veruleg áhrif í greininni.
600 manns mættu á afmælishátíð Verkfræðingafélagsins í Hörpu í gær
Morgunblaðið/Eggert
Aldarviðurkenning VFÍ fyrir framúrskarandi störf
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heimilum sem skulduðu 15-20 millj-
ónir króna vegna fasteigna fjölgaði
verulega milli áranna 2010 og 2011 og
fóru úr 11.770 í 13.964. Heimilum sem
skulduðu 20-25 milljónir fjölgaði einn-
ig mikið eða úr 8.738 í 11.260 heimili.
Þetta má lesa úr svari efnahags- og
viðskiptaráðherra við fyrirspurn
Kristjáns Þórs Júlíussonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, um fast-
eignaskuldir heimilanna.
Tekið er fram í svarinu að tölurnar
fyrir árið 2011 komi frá lánastofnun-
um og ekki sé búið að yfirfara upplýs-
ingar sem fram komi í framtölum til
ríkisskattstjóra fyrir árið 2012. Tölur
fyrir árin 2007 til 2010 í svarinu hafa
hins vegar verið yfirfarnar en þær
benda til að skuldirnar hafi minnkað
milli áranna 2009 og 2010. Þá er tekið
fram að talsverður munur milli 2010
og 2011 geti stafað af tvítalningu
vegna skuldbreytinga og uppgreiðslu
lána, mismunur sem verði leiðréttur
hjá ríkisskattstjóra áður en álagningin
vegna síðasta árs liggur fyrir.
Ber að taka með fyrirvara
Það er því ekki hægt að slá því föstu
að skuldirnar hafi aukist eins mikið og
bráðabirgðatölur benda til.
Ýmis skýr teikn virðast þó á lofti.
Höfuðstóll óverðtryggðra lána
hækkar þannig gríðarlega eða úr 41,55
milljörðum króna árið 2010 í 135,13
milljarða króna árið 2011. Árið 2009
voru óverðtryggðu lánin 4,46 milljarð-
ar og ríflega þrjátíufölduðust því á
árabilinu 2009 til 2011. Höfuðstóll
verðtryggðra lána hækkar einnig milli
ára og fór með verðbótum og vöxtum
úr 664,24 milljörðum í árslok 2010 í
692,05 milljarða í lok árs 2011. Nemur
aukningin í óverðtryggðu lánunum 94
milljörðum milli áranna 2010 og 2011
og í verðtryggðu lánunum 28 milljörð-
um króna, eða samanlagt um 122 millj-
örðum króna.
Til að setja þá tölu í samhengi hafa
verðbætur verðtryggðra fasteigna-
lána hækkað úr 71,54 milljörðum 2007
í 214,80 milljarða eða um 143 milljarða.
Skuldir heimila fara vaxandi
Sprenging í óverðtryggðum lánum Höfuðstóll slíkra lána var 4,46 milljarðar 2009 en 30-faldaðist í
135 milljarða í árslok 2011 Höfuðstóll verð- og óverðtryggðra lána hækkar um 122 milljarða milli ára
Sviptingar á lánamarkaði
Verðtryggð lán Óverðtryggð lán Gengislán
2007 553,88 (71,54) 1,53 60,38
2008 638,81 (153,97) 1,79 154,93
2009 660,69 (189,66) 4,46 183,88
2010 664,24 (192,71) 41,55 152,46
2011 692,05 (214,80) 135,13 10,23
Lokastaða mismunandi lána í milljörðum króna, verðbætur í sviga
Vonir standa til þess að Bill Ga-
tes, stofnandi Microsoft, komi
hingað til lands á næsta ári og
keppi á alþjóðlegu bridsmóti,
Reykjavík Bridge Festival, sem
hefur verið haldið árlega hér á
landi í rúm þrjátíu ár.
Jafnan koma fjölmargir erlend-
ir spilarar á mótið, síðast um 130
spilarar. Bridsáhugamenn og
fleiri gætu því átt von á glaðningi
á næsta ári en einnig stóð til að
fá auðkýfinginn Warren Buffett
til keppni. Gates og Buffet eru
þekktir í bridsheiminum og spila
mikið sjálfir.
„Við höfum verið í sambandi
við bæði Bill Gates og Warren
Buffett um að koma á næsta ári.
Buffett hefur reyndar gefið okk-
ur afsvar en við vonumst til þess
að Gates þekkist boðið. Við erum
að herja á hann bæði í gegnum
erlenda spilara tengda honum
sem og í gegnum fyrirtæki hans,“
segir Jafet Ólafsson, forseti
Bridgesambandsins. Þess má geta
að nú stendur yfir Íslandsmótið í
sveitakeppni Bridgesambandsins.
Mótinu lýkur á sunnudaginn en í
úrslitum etja tólf sveitir kappi.
heimirs@mbl.is
Bill Gates á leiðinni
til Íslands í brids?
Bridsmenn reyna að fá hann hingað
Jafet S. ÓlafssonBill Gates
Allar björg-
unarsveitir á
höfuðborg-
arsvæðinu voru
kallaðar út
seinnipartinn í
gær eftir að
Neyðarlínu
barst tilkynning
um að göngu-
maður væri í
sjálfheldu í Esj-
unni. Maðurinn,
sem er 45 ára,
gat ekki gefið nákvæma staðfest-
ingu á því hvar hann væri þar sem
hann er ekki kunnugur á þessum
slóðum. Var því gripið til þess
ráðs að senda mjög fjölmennt lið
björgunarsveitarmanna á vett-
vang, bæði göngumenn og menn á
fjórhjólum.
Göngumaðurinn var allan tím-
ann í góðu símasambandi við
Neyðarlínu og aðstæður til leitar
voru mjög góðar.
Leitin að manninum tók um tvo
klukkutíma og fannst hann óslas-
aður í klettabelti í Kistufelli. Það
tók svo um eina og hálfa klukku-
stund að koma honum til byggða.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbjörg tóku hundrað björg-
unarsveitarmenn þátt í leitinni.
100 björgunarsveit-
armenn leituðu að
manni í Esju í gær
Maður lenti í sjálf-
heldu í Esju í gær.
Fjölmennt lið
björgunarmanna
úr Árnessýslu var
í gær kallað út
vegna svifdreka-
manns sem lent
hafði utan í
klettabelti í
Núpafjalli
skammt frá
Hveragerði.
Þyrla Landhelg-
isgæslunnar fór einnig á staðinn
sökum þess hve svæðið var erfitt yf-
irferðar. Svifdrekamaðurinn, sem
var kona, var fluttur með þyrlu á
sjúkrahús. Samkvæmt upplýsingum
frá lækni á bráðamóttöku LSH í
gærkvöldi var konan ökklabrotin, en
líðan annars ágæt og eftir að meta
hvað gert yrði vegna brotsins. Bata-
líkur eru taldar góðar. ipg@mbl.is
Brotlenti í
Núpafjalli
Þyrla Gæslunnar
sótti svifdrekamann
Þyrla Gæslunnar
sótti konu í gær.
Lestu viðtal við
Lilju Mósesdóttur
um málið á mbl.is.