Morgunblaðið - 20.04.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
mánudaginn 23. apríl, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Á
sgrím
urJónsson
Á
sgrím
urJónsson
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Nú er sjávarútvegsráðherra bú-inn að viðurkenna að ekki sé
hægt að samþykkja fiskveiðistjórn-
unarfrumvörp hans óbreytt.
Hann hefur loksjátað, þó að
hann segist ekkert
gefa fyrir skoðanir
annarra á frumvörp-
unum, að þau muni
að óbreyttu ganga af
sumum fyrirtækjum
dauðum.
Staðan er að vísumun verri en svo
að einungis „sum“
fyrirtæki færu illa út
úr slíkri lagasetn-
ingu. Landsbankinn hefur til dæmis
upplýst að drjúgur meirihluti útgerð-
arfyrirtækja sem eru í viðskiptum
við hann og hafa verið metin muni
fara á hausinn verði frumvörpin að
lögum.
En Steingrímur J. vill þrátt fyrirþetta ekki hætta við. Hann vill
setja „fráviksreglur“ fyrir þau fyr-
irtæki sem að óbreyttu færu á haus-
inn með nýju lagasetningunni.
Þessar „fráviksreglur“ eiga aðvísu ekki að gilda fyrir alla sem
lenda í vandræðum, en Steingrímur
og Jóhanna munu í gegnum þær fá
enn frekari tækifæri til að auka af-
skipti sín og völd í íslensku atvinnu-
lífi.
Með þessu munu stjórnvöld getaákveðið hvaða fyrirtæki og
hvaða byggðarlög munu lifa eða
deyja.
Það verður skemmtilegt fyrir þásem reka fyrirtæki eða sveitar-
félög að hittast á biðstofunni hjá
Steingrími þar sem beðið verður eft-
ir að fá tækifæri til að sannfæra hann
um að um frávikstilvik sé að ræða.
Steingrímur J.
Sigfússon
Fráviksreglurnar
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 19.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 6 léttskýjað
Vestmannaeyjar 4 heiðskírt
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 6 skúrir
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 5 heiðskírt
Lúxemborg 10 léttskýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 10 skýjað
London 10 skúrir
París 12 léttskýjað
Amsterdam 10 skúrir
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 14 skúrir
Moskva 11 heiðskírt
Algarve 17 skýjað
Madríd 15 léttskýjað
Barcelona 13 skúrir
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 3 léttskýjað
Montreal 16 skýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 13 léttskýjað
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:36 21:18
ÍSAFJÖRÐUR 5:30 21:34
SIGLUFJÖRÐUR 5:13 21:17
DJÚPIVOGUR 5:03 20:50
Emil Guðmundsson, fyrrverandi
hótelstjóri á Hótel Loftleiðum, hef-
ur í samvinnu við Flugfélag Íslands
skipulagt ferðir fyrir eldri borgara
til Grænlands undanfarin sumur og
vill helst hvergi annars staðar vera.
Ferðir Emils og FÍ á slóðir nor-
rænna manna til forna í Eystri-
byggð á Suður-Grænlandi hófust
sumarið 2004 og hafa verið ein til
fjórar ferðir árlega síðan. Í júlí
verða tvær fjögurra daga ferðir og
er uppselt í þá fyrri. „Við getum
bara tekið 24 í hvora ferð því við
ferðumst mest um á tveimur bátum
og þeir taka sína 12 farþegana
hvor,“ segir Emil.
Á söguslóðir
Í ferðinni er meðal annars siglt
um Qooroq (Ísafjörð) milli nýfall-
inna ísjaka, farið til Garða við Ein-
arsfjörð þar sem áður var þing-
staður og dómkirkja norrænna
manna og skoðaðar mannvistar-
minjar í Bröttuhlíð, þar sem Eirík-
ur rauði bjó. „Við þræðum leiðir
víkinganna,“ segir Emil.
Emil fór fyrst til Grænlands 1973
og segist hafa fallið fyrir landinu
við fyrstu sýn. „Ég hef farið þangað
á nánast hverju sumri síðan,“ segir
hann. „Grænland er stórkostlegt
land og mér líður betur þar en að
veltast í sólinni í sólarlöndum.“
Íslendingar ferðast mikið og Em-
il segir að eldri borgarar hafi sýnt
Grænlandsferðum mikinn áhuga,
vilji kynnast næsta nágrannanum í
vestri. „Grænland hefur oft orðið
útundan en þegar fólk eldist vill það
veita sér þá ánægju að fara þang-
að,“ segir Emil.
Þræðir leiðir víkinganna
Mikill áhugi á
Grænlandsferðum
undanfarin sumur
Ljósmynd/Emil Guðmundsson
Fararstjórar Hjónin Emil Guðmundsson og Sigurbjört
Gústafsdóttir á Görðum (Ikaligu) við Einarsfjörð.
Sigling Í ferðunum er siglt innan grænlenskra fjarða á
tveimur hraðfara bátum sem taka 12 farþega hvor.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
SYN, stóð í gærmorgun færeyskan
línubát að meintum ólöglegum
veiðum innan hrygningar-
stoppssvæðis suður af Vest-
mannaeyjum.
Var skipstjóra gert að ljúka við
að draga línuna og halda síðan til
hafnar í Vestmannaeyjum þar sem
skýrslutaka fer fram.
Staðinn að meintum
ólöglegum veiðum
Landhelgi Línubáturinn var tekinn við
ólöglegar veiðar suður af Eyjum í dag.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan