Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
FLUGFELAG.ISBÆÐI Í BORG OG SVEIT
VOR Í LOFTI
Seiðmagnað
TILBOÐ
11. − 13. MAÍ
BÓKAÐU
Í DAG!
7.990 kr. 7.990 kr.
15.000 kr.
REYKJAVÍK − EGILSSTAÐIR, 13. MAÍ.EGILSSTAÐIR − REYKJAVÍK, 11. MAÍ.
BÁÐAR LEIÐIR 11. − 13. MAÍ, MEÐ SKÖTTUM :
60% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN2 − 11 ÁRA.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
mælir með vorkvöldum í Reykjavík eða á
Egilsstöðum. Sund daginn eftir? Pottþétt.
FRÁ: FRÁ:
Takmarkað sætaframboð. Bókanlegt til 30. apríl á flugfelag.is.
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Það var sumar í lofti og góð stemn-
ing í húsakynnum Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur í gær þegar
blaðamann bar þar að garði.
Tilefnið var stofnun Menntunar-
sjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykja-
víkur, sem hefur það hlutverk að
styrkja tekjulágar konur til frekari
menntunar svo þær eigi möguleika
á góðu framtíðarstarfi.
Stofnfé sjóðsins er fimm milljónir
króna og byggist á gjöf Elínar
Storr til mæðrastyrksnefndarinnar.
Í skipulagskrá sjóðsins segir að
verja megi árlega ávöxtun af höfuð-
stól sjóðsins, sem og árlegu sjálfs-
aflafé hans, til styrktar konunum. „Í
okkar starfi höfum við kynnst fjölda
kvenna sem hafa lítið á milli hand-
anna,“ sagði Elín Hirst, formaður
sjóðsins, sem kynnti stofnun hans í
gær. Hún kynnti með hvaða hætti
stæði til að safna fé til sjóðsins, en
það verður gert með sölu á svoköll-
uðu Mæðrablómi sem ætlunin er að
sjálfboðaliðar búi til úr efnisaf-
göngum og gömlum fötum.
Blómið í ár er rautt og hannað af
Steinunni Sigurðardóttur fatahönn-
uði, sem gaf sjóðnun hönnun sína.
Mæðrablómið verður selt á mæðra-
daginn í maí á völdum stöðum, en
ætlunin er að gera slíkt árlega.
„Við erum með svo frábært fólk í
landinu og fáum það með okkur í
Ráðhús Reykjavíkur til að búa til
þetta fallega blóm,“ sagði Elín, en
Mæðrastyrksnefnd óskar eftir
sjálfboðaliðum til framleiðslu á
blóminu þriðjudaginn 24. apríl nk. í
ráðhúsinu milli kl. 17 og 21.
Blaðamaður fékk sjálfur að
reyna sig við blómaframleiðsluna
og getur vottað að hún er ekki flók-
in þannig að allir geta lagt sitt af
mörkum.
Blómaval hefur þegar ákveðið, í
samstarfi við blómabændur, að
leggja sjóðnum til hluta söluverð-
mætis hvers blómvandar sem selst
á mæðradaginn í ár. Auglýst verð-
ur eftir umsóknum í sjóðinn í vor
fyrir nám sem hefst á haustönn
2012.
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Mæðrablóm Rósir framleiddar í gær, þegar stofnun Menntunarsjóðsins var tilkynnt hjá Mæðrastyrksnefnd.
Styðja tekjulitlar konur til náms
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fátt nýtt þykir koma fram í and-
svari Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) við málsvörn íslenskra
stjórnvalda í Icesave-deilunni en
svarið er lagt fram í samræmi við
málsmeðferðarreglur EFTA-dóm-
stólsins. Lögfræðingar íslenskra
stjórnvalda fá tíma til 11. maí til að
svara andsvarinu og lýkur þá þess-
um hluta formlegra bréfaskipta
vegna málsins áður en það verður
dómtekið í haust. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er á þessu
stigi ekki ljóst hversu mikla rann-
sóknarvinnu íslensku lögfræðing-
arnir þurfa að leggjast í vegna
andsvarsins. Andsvar ESA er
sautján blaðsíður og hefur það ver-
ið birt á vefnum.
Vikið að meintu broti
Er þar annars vegar einkum
fjallað um tilskipunina um inni-
stæðutryggingar á EES-svæðinu
og túlkunina á henni og hvort ís-
lenska ríkið sé í þessu tilviki
ábyrgt fyrir því að hún sé virk.
Hins vegar er fjallað um meint
jafnræðisbrot íslenskra stjórnvalda
gagnvart innistæðueigendum.
Munu rökin sem ESA teflir fram
varðandi fyrrnefnda atriðið vera
gamalkunnug eftir fyrri bréfaskipti
við ESA. Er aftur á móti minna
fjallað um hina meintu mismunun
en í fyrri bréfum. Höfðu lögfræð-
ingar íslenskra stjórnvalda rök-
stutt það með ýmsum gögnum í
fyrri bréfum að ekki hefði átt sér
stað ólögmæt mismunun.
Rennur út um miðjan maí
Sem kunnugt er hefur fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins óskað eftir meðalgöngu í mál-
inu.
Frestur aðildarríkja ESB, alls
27 að tölu, og hinna EFTA-þjóð-
anna þriggja, Noregs, Sviss og
Liechtenstein, til að skila inn skrif-
legum athugasemdum vegna máls-
ins rennur út um miðjan maí. Eins
og kunnugt er hefur framkvæmda-
stjórn ESB óskað eftir meðal-
göngu í málinu og rennur frestur
til að skila inn greinargerð vegna
meðalgöngunnar út síðla í maí, að
því gefnu að forseti EFTA-dóm-
stólsins heimili á annað borð með-
algönguna á næstu dögum.
Horft til júní
Þegar og ef framkvæmdastjórn
ESB skilar meðalgöngugreinar-
gerð fá íslensk stjórnvöld tækifæri
til að svara þeim athugasemdum
og þeirri greinargerð og fá þá
væntanlega svipaðan tíma til þess,
eða um mánuð.
Má ætla að svar Íslands vegna
þess þáttar málsins liggi fyrir seint
í júní.
Þegar þessum skriflega þætti
málsins lýkur fer málið á nýtt stig
með því að munnlegur málflutn-
ingur fer fram hjá EFTA-dóm-
stólnum í Lúxemborg. Ekki er vit-
að hvenær það verður en litlar
líkur eru taldar á að það verði fyrr
en í haust eða snemma í vetur.
Þegar dagsetning réttarhald-
anna liggur fyrir tekur málið einn
dag í málflutningi og tekur dóm-
stóllinn sér svo einn til tvo mánuði
til að dæma í því.
Miðað við dagskrána hjá dómn-
um eru taldar allar líkur á að dóm-
ur fáist í málinu síðla í haust eða
snemma vetrar áður en árið er lið-
ið.
Meðalganga ESB
kallar á frekari
bréfaskipti
Útlit fyrir að
Icesave-réttarhöld-
in hefjist í haust
Morgunblaðið/Ómar
Langvinn Icesave-deilan hófst
haustið 2008 og er enn til umræðu.
Átta aðilar buðu í nytjarétt af æðar-
varpi í Kollafirði, en frestur til að
skila inn tilboðum til Reykjavíkur-
borgar, sem á eyjarnar, rann út síð-
astliðinn fimmtudag.
Um var að ræða nýtingarrétt í
eyjunum Akurey, Engey, Viðey og
Þerney.
„Á föstudaginn næstkomandi á ég
fund með hæstbjóðanda. Það er
fyrsti fundurinn,“ segir Ólafur I.
Halldórsson hjá framkvæmda- og
eignasviði Reykjavíkurborgar, en
hann segir þann aðila hafa skilað
tilboðum í allar eyjarnar.
Leigutímabil á nytjarétti er frá 1.
maí til 15. júlí í ár, með möguleika á
framlengingu. Samningum við þá
aðila sem áður hafa nýtt eyjarnar
var sagt upp á sínum tíma og öllum
boðið að bjóða í afnotin. Í drögum
að leigusamningi segir að leigutaka
sé heimilt að nýta dún þann sem
leggst til á leigutímanum og máf-
segg einnig.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fengust ekki upplýsingar um hverjir
sendu tilboð, né hversu há þau voru.
ipg@mbl.is
Átta vilja nýta
æðardúninn
Borgin leigir út nytjarétt í fjórum eyjum
Morgunblaðið/Þorkell
Dúnn Æðarkolla á eggjum sínum.