Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Markmiðið var ekki að drepa 69
manns á Útey. Markmiðið var að
drepa þau öll,“ sagði fjöldamorðing-
inn Anders Behring Breivik á fjórða
degi réttarhaldanna yfir honum í
gær. Þá lýsti hann algerlega án til-
finninga undirbúningi sínum fyrir
árásirnar í Ósló og Útey og upplifun
sinni. Vöktu yfirvegaðar lýsingar
hans óhug viðstaddra í réttarsalnum.
„Það er andstætt mannlegu eðli að
framkvæma eitthvað þessu líkt.
Maður verður að vinna í sjálfum sér
lengi til að fá sig til þess – vinna á til-
finningum sínum.“
Auðvelt að ýta á takka
Hann sagði að upphafleg fyrirætl-
un sín hefði verið að sprengja þrjár
bílsprengjur og aka svo um Ósló á
léttu bifhjóli og skjóta fólk þar til
hann yrði sjálfur felldur. Skotmörk
hans áttu að vera höfuðstöðvar
Verkamannaflokksins, stjórnar-
byggingahverfi höfuðborgarinnar og
annaðhvort konungshöllin, þinghús-
ið eða skrifstofur stóru dagblaðanna.
Hann sagðist ennfremur hafa orð-
ið fyrir vonbrigðum þegar hann
frétti að aðeins átta hefðu fallið í
sprengjuárásinni í Ósló því hann
hafði sett sér það markmið að bana
að minnsta kosti tólf manns.
Breivik hélt því fram að hann hefði
ekki viljað fremja fjöldamorðin á Út-
ey eða myrða neinn sem væri yngri
en 18 ára. Norsk og evrópsk lög
hefðu hins vegar torveldað sér mjög
að afla sér nægs efnis til að smíða
fleiri sprengjur og hann hefði því
neyðst til að láta til skrarar skríða á
eynni. Þá hefði verið erfitt að meta
aldur ungmennanna því mörg þeirra
hefðu snúið baki í hann þegar hann
skaut þau.
„Það er auðvelt að ýta á takka og
sprengja sprengju. Það er mjög erf-
itt að fremja eitthvað eins villi-
mannslegt og skotárás,“ sagði hann.
Þeim sem hlýddu á vitnisburð
Breivik rann kalt vatn milli skinns og
hörunds þegar hann lýsti því hvernig
hann hefði ætlað að taka Gro Harlem
Brundtland, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Noregs, í gíslingu, afhöfða
hana með byssusting og birta mynd-
band af því á netinu. Brundtland var
hins vegar farin af Útey þegar Brei-
vik bar þar að.
Lýsingarnar
vöktu óhug
Breivik hugðist myrða Brundtland
Reuters
Ást gegn hatri Kona tekur mynd af minnisvarða um 77 fórnarlömb hryðju-
verkaárása Breiviks hinn 22. júlí nærri dómkirkjunni í Ósló í gær.
Lögregla í Barein beitti táragasi og leiftursprengjum gegn stjórnarand-
stæðingum sem mótmæltu á götum höfuðborgarinnar Manama í gær. Um
helgina fer fram mót í Formúlu 1-kappakstrinum en liðsmenn Force India-
liðsins lentu í miðju mótmælanna í gær og var bensínsprengjum meðal ann-
ars kastað yfir bifreið þeirra. Náði ökumaðurinn að sveigja í gegnum gat í
eldveggnum á götunni. Tveir liðsmannanna sneru heim í gær eftir atvikið.
Reuters
Táragas gegn mótmælum
Í vitnis-
burði sín-
um í gær
lýsti Breivik
því hvernig
hann not-
aði stríðs-
tölvuleikinn
Call of
Duty: Mod-
ern Warfare
2 til þess
að þjálfa sig í skotfimi fyrir
árásina á Útey. Sagðist hann
hafa notað sérstakt heilmynd-
armið með leiknum til að æfa
sig.
„Það er þannig byggt að ef
þú létir ömmu þína fá það þá
yrði hún afbragðsskytta,“
sagði Breivik um miðið.
Leikurinn vakti deilur þegar
hann kom út á sínum tíma þar
sem í einu borðinu fara leik-
menn í hlutverk öfgaþjóðern-
issinna sem fremja fjöldamorð
á saklausum borgurum á rúss-
neskum flugvelli.
Þjálfaði sig í
tölvuleik
UMDEILDUR LEIKUR
Skjáskot úr CoD:
Modern Warfare 2.