Morgunblaðið - 20.04.2012, Síða 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta oglektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands með meiru, er60 ára í dag. „Dagurinn fer í Útsvarið,“ segir hann en sem
kunnugt er hefur Vilhjálmur farið fyrir liði Garðabæjar í spurn-
ingakeppni ríkissjónvarpsins undanfarin ár. „Þetta er fimmta árið,
19. þátturinn af 132 í Útsvarinu,“ heldur hann áfram um undan-
úrslitaþáttinn í kvöld, þar sem lið Garðabæjar mætir liði Fljótsdals-
héraðs.
Lið Garðabæjar hefur staðið sig vel í Útsvari. Vilhjálmur segir að
undirbúningurinn taki tíma, en hann hafi líka sérstaklega gaman af
því að fletta bókum og afla sér víðtæks fróðleiks í innlendri og er-
lendri sögu, hagsögu og stjórnmálum. „Ég geri ekki margt upp-
byggilegt á meðan,“ segir hann varðandi keppnina en bætir við að
hann eyði töluvert miklum tíma í einmenningsíþróttir, sé því ekki
háður öðrum og geti hugsað um það sem hann fáist við hverju sinni
meðan hann hjóli, hlaupi hálfmaraþon eða spili golf klukkan sex á
morgnana. „Ég hef alveg nóg að gera og er betur á mig kominn sex-
tugur en kynslóðin á undan.“
Vilhjálmur er mikill keppnismaður og segir að samvinnan í liði
Garðabæjar sé góð. „Ef maður er í þessu verður maður að vera í
þessu af alvöru,“ segir hann og leynir því ekki að stefnan sé að fara
alla leið. „En svo er þetta orðið nóg hjá mér.“ steinthor@mbl.is
Vilhjálmur Bjarnason 60 ára
Morgunblaðið/ÞÖK
Í faðmi fjölskyldunnar Vilhjálmur og Auður María Aðalsteinsdóttir
ásamt tvíburadætrunum Huldu Guðnýju og Kristínu Mörthu.
Vill alla leið með
liðið í Útsvarinu
S
igurður ólst upp í Dalbæ í
Hrunamannahreppi, lauk
stúdentsprófi frá ML
1982 og prófi í dýralækn-
ingum frá Konunglega
dýralækna- og landbúnaðarháskól-
anum í Kaupmannahöfn 1989.
Bóndi og dýralæknir
Sigurður stundaði bústörf með
námi 1970-84, starfaði hjá MS í
Reykjavík 1982-83, var bóndi í Dalbæ
1987-94, dýralæknir í uppsveitum Ár-
nessýslu 1990-95, settur héraðs-
dýralæknir í Hreppa- og Laugarás-
umdæmi 1992-94 og í Vestur-
Barðastr.umdæmi, dýralæknir hjá
Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf.
1996-2009, oddviti Hrunamannahr.
2002-2009 og er alþm. Framsókn-
arflokks í Suðurkjördæmi frá 2009.
Félagsstörf hrannast upp
Sigurður sat í varastjórn UMFH,
sat í sóknarnefnd Hrepphólakirkju
1993-97, í sveitarstjórn Hrunamanna-
Sigurður Ingi Jóhannsson 50 ára
Tveir vinir Sigurður með Molda í stóðinu heima. Sigurður heldur nú tuttugu hross og er hestamaður af guðs náð.
Dýralæknir frá Dalbæ
Nýgift Sigurður Ingi og Ingibjörg Elsa, með svaramönnum, Ingjaldi Ás-
valdssyni og Páli Jóhannssyni, börnum sínum, tengdasyni og barnabarni.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Aníta K. Árna-
dóttir, Birna B.
Bjarnadóttir,
Sigdís S. Guð-
jónsdóttir og
Katrín E. Krist-
jánsdóttir héldu
tombólu á Álfta-
nesi og söfnuðu
8.401 kr. sem
þær færðu Rauða
krossinum á
Álftanesi.
Hlutavelta
Danmörk Alexander Örn fæddist 7.
janúar kl. 8.14. Hann vó 4.115 g og var
54 cm langur. Foreldrar hans eru Ás-
dís Alda Runólfsdóttir og Anton Örn
Pálsson.
Nýir borgarar
Danmörk Tinna Hauksdóttir og Bjarni
Geir Pétursson eignuðust son 19.
mars. Hann vó 3.720 g og var 54 cm
langur.
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is
LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN!
LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR.
STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR.
Efnalaug - Þvottahús
SVANHVÍT EFNALAUG
- NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur