Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 1
Hann horfi þar til mála sem þýð-
ingarmikið sé að hafa „þokkalega
breiða samstöðu um“.
Fiskurinn og virkjanirnar
Af stórum málum sem bíða af-
greiðslu þingsins má nefna sjávar-
útvegsfrumvörpin og rammaáætlun.
Skúli Helgason, þingmaður Sam-
fylkingar, segir að sætta þurfi ólík
sjónarmið þegar sjávarútvegsfrum-
vörpin eru annars vegar. Þar þurfi
að halda mjög vel á málum.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Á næstu vikum hyggjast stjórnarlið-
ar freista þess að afgreiða mörg flók-
in og viðamikil mál sem heyra undir
lykilmál í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Stjórnarflokkarnir geta ekki
gengið út frá því sem vísu að meiri-
hluti sé fyrir öllum málum og kveðst
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG,
horfa til stuðnings Hreyfingarinnar
og þingmanna úr öðrum flokkum.
komi „hrá“ fyrir þingið og hætta sé á
mistökum við lagasetningu.
Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, efast um að
stjórnin hafi þingmeirihluta þegar
sjávarútvegsfrumvörpin og ramma-
áætlunin eru annars vegar. Hótun
Hreyfingarinnar um vantraust sýni
að ríkisstjórnin standi höllum fæti og
treysti á stuðning eða hlutleysi þing-
manna úr stjórnarandstöðunni.
Brothættur meirihluti
Þingmaður VG horfir til stuðnings stjórnarandstöðuþingmanna við lykilmál
Ljúka á stórum málum í maí Stjórnarandstaðan varar við flumbrugangi
MStjórnarliða bíða »14-15
Í kjölfar skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis var þingmanna-
nefnd meðal annars falið að gefa
þinginu tillögur um bætta starfs-
hætti á Alþingi, meðal annars við
framlagningu stjórnarfrumvarpa.
Lakari vinnubrögð á þingi
Atli Gíslason, formaður nefndar-
innar, segir þá staðreynd að lykilmál
séu að koma seint fram á vorþinginu
til vitnis um að ástandið hafi versnað
ef eitthvað er í þessu efni. Frumvörp
F I M M T U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 1 2
Stofnað 1913 97. tölublað 100. árgangur
LÉK Á ÁRINU
MEÐ ÖLLUM
LANDSLIÐUM FINNUR.IS
KOMIÐ AÐ SVARI
VIÐ BRÉFI HELGU Í
BORGARLEIKHÚSINU
Fjölskyldustríð sem slær
við sápuóperum
OKKAR ÍSLENSKI HAMLET 34VILL AFTUR ÚT ÍÞRÓTTIR
Bernharður leikur á 14
karata gullflautu
Eiginfjárhlutfall
Sparisjóðs Vest-
mannaeyja, sem
er í meiri-
hlutaeigu rík-
isins, nam 13,9% í
árslok 2011 og er
því komið undir
það 16% lágmark
sem Fjármálaeft-
irlitið hefur sett sjóðnum. Ólafur El-
ísson sparisjóðsstjóri segir að sjóð-
urinn hafi þegar upplýst FME um
stöðuna og verið sé í viðræðu- og
upplýsingaferli við aðila vegna þeirr-
ar stöðu sem upp er komin og hvaða
leiðir séu færar til að styrkja eig-
infjárhlutfall sjóðsins. Tap sjóðsins á
síðasta ári nam um 166 milljónum –
einkum vegna virðisrýrnunar eigna.
Sparisjóðurinn hefur ennfremur
átt í viðræðum við Seðlabankann og
óskað eftir aðkomu bankans í ljósi
þessa tjóns sem sjóðurinn hefur orð-
ið fyrir í tengslum við gengis-
lánadóma Hæstaréttar. »Viðskipti
Undir kröf-
um FME
Séra Agnes M. Sigurðardóttir hefur verið kjörin biskup Íslands, fyrst
kvenna. Atkvæði í síðari umferð biskupskosninga voru talin í gær. Á kjör-
skrá voru 502 en 477 greiddu atkvæði. Agnes hlaut 307 atkvæði (64%) en
séra Sigurður Árni Þórðarson 152 atkvæði (32%). Auðir og ógildir kjör-
seðlar voru 18. Sigrinum var fagnað í safnaðarheimili Háteigskirkju í gær-
kvöldi þar sem Agnes tók á móti stuðningsmönnum sínum og vinum. Á
myndinni faðmar séra Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, hinn til-
vonandi biskup. sem verður vígður á Jónsmessu í júní nk. »4
Séra Agnes biskup Íslands fyrst kvenna
Morgunblaðið/Kristinn
Sigmund Jó-
hannsson, upp-
finningamaður
og teiknari í
Vestmanna-
eyjum, hefur
undanfarin fjög-
ur ár unnið að
hönnun slökkvi-
búnaðar til notk-
unar við erfiðar
aðstæður eins og
í jarðgöngum,
skipum og stórum verksmiðjum og
telur að framleiðsla geti hafist eftir
nokkra mánuði. Kerfið byggist á
röralögnum og róbótum. »12
Sigmund með nýj-
ung í brunavörnum
Sigmund
Jóhannsson
Alls bíða nú um 40 manns á Land-
spítalanum eftir að komast inn á
hjúkrunarheimili, þar af liggja um
14 manns á bráðadeildum spítalans.
Hildur Helgadóttir, innlagnastjóri
Landspítalans, vill að reglum verði
breytt þannig að sjúklingar þurfi að
víkja af spítalanum geti þeir fengið
pláss á hjúkrunarheimili. Nú geti
þeir neitað að yfirgefa spítalann ef
þeir fá ekki inni á því hjúkrunar-
heimili sem þeir kjósa.
Hildur segir dæmi um að sjúkling-
ar hafi dvalið á bæklunarskurðdeild í
marga mánuði af þessum sökum.
Dvöl á bráðadeild geti kostað allt að
110.000 krónur á dag en daggjald á
hjúkrunarheimili sé 23.000 krónur.
Starfsmenn spítalans geti aðeins
rætt við viðkomandi sjúklinga og
góðfúslega óskað eftir að þeir setji
sig á biðlista á fjórum hjúkrunar-
heimilum og taki það pláss sem losni
fyrst. Margir verði við þessu. „En
aðrir eru ákveðnir í að fara á tiltek-
inn stað. Það getur valdið erf-
iðleikum,“ segir hún.
Sumaráætlun spítalans liggur fyr-
ir og er gert ráð fyrir að 20% af legu-
rýmum spítalans verði lokað í fjórar
vikur. Alls er um að ræða 136 rúm af
674. Þetta er svipað og í fyrra nema
þá náðu lokanirnar yfir lengri tíma,
að sögn Hildar. Vegna þess hversu
spítalinn er nú í þröngri fjárhags-
legri stöðu segir Hildur að hugs-
anlega verði að loka enn fleiri rúm-
um og er greinilegt að hún hefur
töluverðar áhyggjur af því ástandi
sem þá kann að skapast. „Þá er ég
hrædd um að fleiri þurfi að liggja á
göngunum,“ segir hún. »16
Bíða lengi á bráðadeildum
110.000 krónur dagurinn Blikur á lofti um lokanir
„Við þurfum að tryggja að fólki
finnist að það hafi verið rétt
gefið og það hafi verið komið
fram af sanngirni gagnvart lán-
þegum í þessu landi … Það
verður þó ekki hægt að gera allt
fyrir alla en forgangsmálið verð-
ur að vera að aðstoða þá sem
eru í miklum greiðsluvanda,“
segir Skúli Helgason, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, um þær
aðgerðir sem ríkisstjórnin und-
irbýr í skuldamálunum og ætl-
unin er að kynna í maílok.
Geta ekki
hjálpað öllum
SKULDAVANDINN
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
VIÐSKIPTI