Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 4

Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 4
VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is Séra Agnes M. Sigurðardóttir pró- fastur hefur verið kjörin biskup Ís- lands, fyrst kvenna. Fráfarandi biskup, Karl Sigurbjörnsson, mun vígja Agnesi í embætti 24. júní nk. Hún tekur formlega við sem biskup hinn 1. júlí. Karl biskup sendi frá sér svohljóðandi tilkynningu í gær til þjóðkirkjufólks: „Góðu systkin. Kirkjan fagnar nýkjörnum bisk- upi Íslands og umvefur bænum sín- um. Tökum nú höndum saman með séra Agnesi Sigurðardóttur, þau öll sem bera hag kirkju og kristni fyrir brjósti, vorverkin bíða, uppskeran er mikil! Með hlýjum hamingjuóskum og björtum sumarkveðjum, Karl Sigurbjörnsson.“ Erindi kirkjunnar aðalatriðið „Mér er þakklæti efst í huga,“ sagði séra Agnes í samtali við Morg- unblaðið. Hún kvaðst hafa búið sig undir hvort tveggja, sigur og tap. „Þetta var ótrúlegt ferli og gott að finna mikinn stuðning og hvatn- ingu,“ sagði Agnes um kosningabar- áttuna. „Þetta var mjög mikil vinna en hún var ekki erfið. Hún varð mér til gleði, lærdóms og eflingar.“ Agnes sagði að sitt fyrsta verkefni sem biskup yrði að hlusta á og tala við fólkið sem starfar innan kirkj- unnar. Hvað varðar áherslur í starfi kvaðst Agnes hafa mestan áhuga á að erindi kirkjunnar næði eyrum fólks, enda væri það aðalatriðið. „Kirkjan er ekki til nema vegna trúarinnar og þess boðskapar sem hún flytur. Ég stend í þeirri bjarg- föstu trú að líf okkar verði farsælla ef til treystum á Guð og Jesú Krist. Erindi kirkjunnar er að koma Jesú Kristi og boðskap hans á framfæri.“ Agnes sagði mjög gott og gefandi starf vera unnið í söfnuðum landsins. Það þyrfti að koma því betur á fram- færi hvað kirkjan væri að gera. Kirkjan væri ekki bara Laugavegur 31 (Biskupsstofa) heldur einnig söfnuðirnir um allt land; fólkið sem tilheyrir þeim og er annt um sókn- arkirkjuna sína og leitar til hennar. En telur hún þörf á að breyta skipu- lagi þjóðkirkjunnar? „Ég tel að skipulagið sé í grunn- inn mjög gott. En lífið heldur áfram og þess vegna verðum við að byggja á þessum góða grunni með tilliti til þróunar samfélagsins. Við þurfum t.d. að nýta okkur tiltæka fjölmiðla, við tölum ekki bara af prédik- unarstóli eins og áður,“ sagði Agnes. – Núverandi biskup Íslands hefur minnst á neikvæða orðræðu og nei- kvæða þætti í þjóðfélaginu eftir hrun. Hvað segir þú um það? „Ég tel að farsæld okkar felist í því að vera jákvæð. Mér finnst bisk- up hafa það hlutverk gagnvart þjóð- inni að halda voninni á lofti. Segja aftur og aftur að það sé von. Það að hafa von gefur svo mikið fyrir fram- tíðina og lífið.“ Kristnir þurfa að standa saman – En hver er afstaða þín til ann- arra trúfélaga og trúarbragða? „Það er miklu meiri samvinna á milli kristinna trúfélaga en var, mið- að við það sem var,“ sagði Agnes. „Kristnir menn þurfa að standa saman, hvort sem þeir tilheyra þjóð- kirkjunni eða öðrum kristnum söfn- uðum. Hvað varðar önnur trúar- brögð þurfum við að virða trú hvert annars.“ – Málefni samkynhneigðra ber gjarnan á góma þegar rætt er um þjóðkirkjuna. Þarf hún að koma meira til móts við óskir samkyn- hneigðra? „Kirkjan verður að taka á móti öll- um af virðingu og kærleika. Það skiptir ekki máli hvort fólk er sam- kynhneigt eða ekki. Telji samkyn- hneigðir að kirkjan hafi ekki staðið sig gagnvart þeim þá vil ég heyra þær raddir eins og aðrar.“ Agnes kvaðst hafa lýst því yfir að hún vildi fylgja jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar og stuðla að því að fólk hefði jafnan rétt og möguleika án tillits til kynferðis. „Ég mun hafa þetta í huga þegar ég tekst á við mál.“ – En fyrir hvað stendur M. í nafn- inu þínu? „Margrétardóttir. Þetta er frá því ég var unglingur. Mér fannst ein- kennilegt að vera ekki kennd við báða foreldra mína og tók því upp þetta millinafn.“ – Hvernig verður nýja bisk- upsfjölskyldan? „Ég á móður á lífi og þrjú systkini. Svo á ég fyrrverandi eiginmann og við eigum þrjú uppkomin börn, tvær tengdadætur og eitt barnabarn.“ – Munt þú horfa með söknuði til Bolungarvíkur? „Já, það mun ég gera. Ég hef átt þar gott líf í nærri 18 ár. Þar býr frá- bært fólk sem hefur borið mig á höndum sér alla tíð. Það verður mik- ill söknuður að fara frá Bolung- arvík,“ sagði Agnes M. Sigurð- ardóttir að endingu. „Það að hafa von gefur svo mikið“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðandi biskup Séra Agnes var á Dómkirkjuloftinu þegar úrslitin voru tilkynnt. F.v.: Séra Hulda Hrönn M. Helga- dóttir, séra Agnes M. Sigurðardóttir, verðandi biskup, og elsti sonur Agnesar, dr. Sigurður Hannesson.  Séra Agnes M. Sigurðardóttir var kjörin biskup Íslands  Hún verður fyrsta konan sem gegnir embættinu  Biskupsvígsla verður á Jónsmessu, 24. júní, og tekur Agnes við embætti 1. júlí nk. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Sjö félagar úr Félagi íslenskra stór- meistara fara á morgun til Porto- roz í Slóveníu undir forystu Frið- riks Ólafssonar, sem árið 1958 tefldi þar á millisvæðamóti og lagði að velli Bobby Fischer, en þeir höfnuðu í 5. til 6. sæti á mótinu. Skák Friðriks og Fischers var síðar valin skák 20. aldarinnar af íslensk- um skákmönnum. Hinir stórmeist- ararnir eru Helgi Ólafsson, Mar- geir Pétursson, Jón L. Árnason, Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grét- arsson og Þröstur Þórhallsson. „Þetta er svona til að rifja upp gamlar minningar um þetta mót. Þetta er svona hálfgerð Mekkaferð. Okkur fannst bara ágætt, af því að við höfum haldið árlega fundi, að hafa einn þarna,“ sagði Friðrik Ólafsson um ferðina. „Þetta byggist allt á mótinu í Portoroz. Það á að rifja upp helstu atburðina í mótinu og það sem þar skeði og heima- menn ætla að fara ofan í söguna með okkur. Þeir sem tefldu þarna urðu síðar margir með þekktustu skákmeisturum heims. Af þeim sex sem unnu sér rétt í úrslitakeppnina urðu þrír síðar heimsmeistarar. Þetta er eitthvað sem gleymist ekki í íslenskri skáksögu. Þetta var fyrsta mótið þar sem ég sló í gegn,“ sagði Friðrik. Hann segir mótið hafa verið mjög sterkt og að Fisc- her hafi þarna stigið sín fyrstu spor á alþjóðavettvangi, 15 ára gamall. Í ferðinni stendur til að halda skák- mót þar sem stórmeistararnir tefla við skákmenn úr héraðinu. ipg@mbl.is Á skáksöguslóðir í Slóveníu  Sjö íslenskir stórmeistarar í „hálfgerða Mekkaferð“  Heimsækja bæinn þar sem Friðrik sigraði Fischer 1958 Morgunblaðið/Sigurgeir S. Skákdagur Hér tefla Friðrik og Nansý Davíðsdóttir á Bessastöðum. „Þetta er kall tímans eftir konu,“ sagði séra Sigurður Árni Þórð- arson um úrslit biskupskjörsins. Hann var í framboði ásamt séra Agnesi M. Sigurðardóttur í síðari umferð kosninganna. Sigurður taldi skýr kosn- ingaúrslit einnig endurspegla að hluta þátttöku kirkjunnar í upp- gjöri hrunsins. Þá hafi kall tímans eftir konu að einhverju leyti verið uppgjör við kynferðisbrotamál sem hafi verið kirkjunni bæði sár og þungbær síðustu árin. „Ég vil færa Agnesi og bisk- upsstarfi hennar blessunaróskir,“ sagði Sigurður. Hann sagði suma segja embættið vera erfiðasta starf á Íslandi. „En ég hef sagt að þessu starfi fylgi miklir mögu- leikar. Ég tel mikilvægt að við- urkenna í verki að kirkjan er að starfi um allt land og hefur starfað mjög vel. Hún er farvegur nýrra möguleika. Það eru mikil tækifæri til áherslubreytinga. Ég hef verið málsvari breytinga og þess að kirkjan nútímavæðist.“ Sigurður sagði að sem biskup gæti Agnes verið í forystu fyrir nú- tímavæðingu kirkjunnar og það væri bæði hennar og allra annarra að svara því kalli. „Ég sit á kirkjuþingi og mun vinna þar að auknu dreifræði, auk- inni þátttöku leikmanna í kirkju- legu starfi og áhrifum innan kirkj- unnar. Ég tel að þess þurfi með,“ sagði Sigurður. „Kall tímans eftir konu“ SÉRA SIGURÐUR ÁRNI ÞÓRÐARSON „Ég vil færa Agnesi og biskupsstarfi hennar blessunaróskir,“ sagði Sigurður. Séra Agnes M. Sigurðardóttir fæddist á Ísafirði 19. október 1954, dóttir Sigurðar Kristjáns- sonar, sóknarprests á Ísafirði og prófasts í Ísafjarð- arprófastdæmi, og Margrétar Hagalínsdóttur ljósmóður. Agnes varð stúdent frá MÍ 1975 og lauk cand. theol-prófi við Háskóla Íslands 1981. Hún fór í framhaldsnám í prédik- unarfræði í Uppsölum í Svíþjóð 1997. Hún lærði á píanó við Tón- listarskóla Ísafjarðar og Tónlist- arskóla Reykjavíkur og orgel við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Agnes var æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar 1981-86, varð sóknarprestur 1986 og hefur verið prófastur frá 1999. Agnes var gift Hannesi Bald- urssyni tónlistarmanni og eiga þau þrjú uppkomin börn, Sig- urð, Margréti og Baldur. Prestur og prófastur VERÐANDI BISKUP Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við Agnesi . Stakar stangir á lausu á komandi veiðisumri • 27/6 - 30/6 • 15/7 - 18/7 • 21/7 - 24/7 • 19/8 - 22/8 • 10/9 - 13/9 Hofsá í Vopnafirði Veiðiklúbburinn Strengur ehf Skipholti 35 105 Reykjavík Nánari upplýsingar veitir Orri, orri@sela.is Veiðileyfi á laxasvæðinu Þriggja til sex daga leyfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.