Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur veitti forstjóra fyrirtækisins umboð í gær til viðræðna við fulltrúa ís- lenskra lífeyrissjóða um verkefn- isfjármögnun Hverahlíðarvirkj- unar. Í samþykkt stjórnar OR segir að viðræðurnar snúist m.a. um að stofnað verði sérstakt fyrirtæki með þátttöku Orkuveitunnar um byggingu orkuvers á Hverahlíð- arsvæðinu og sölu þess fyrirtækis á orku til Norðuráls að öðrum skil- yrðum uppfylltum. „Í samnings- forsendum skal m.a. tryggt að ekk- ert framsal eigi sér stað á eignarrétti að orkuauðlindum, sem og að tryggt verði að eignarhald á öllum mannvirkjum og rekstri þeirra falli til Orkuveitunnar að nánar skilgreindum tíma liðnum. Samningar, ef til þess kemur, skulu háðir fyrirvara um samþykki stjórnar Orkuveitunnar og eigenda Orkuveitunnar,“ segir í samþykkt stjórnarinnar. Samþykktin var harðlega gagn- rýnd af fulltrúa VG í stjórninni, Sól- eyju Tómasdóttur. Rætt við líf- eyrissjóði um Hverahlíðina  Stjórn OR veitir forstjóra umboð Morgunblaðið/RAX Virkjun Orkuveita Reykjavíkur áformar virkjun í Hverahlíð. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Velferðarnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp til breytinga á lögum í þeim tilgangi að skýra heimildir land- læknis til þess að afla persónugrein- anlegra upplýsinga við eftirlit með gæðum heilbrigðisþjónustu. Tilefnið er álit Persónuverndar sem komst að þeirri niðurstöðu að lagastoð skorti til þess að afhenda megi landlækni per- sónugreinanlegar upplýsingar, m.a frá lýtalæknum vegna PIP-brjóstap- úðamálsins. Einnig álítur Persónu- vernd að ekki sé nauðsynlegt að kalla eftir upplýsingunum því þær varði ekki líf og heilsu kvennanna. „Meirihluti nefndarinnar var ósam- mála hvoru tveggja, það eru velferð- arráðuneytið og landlæknir líka. Við leggjum áherslu á að landlæknir þarf að hafa heimildir til að fá þær upplýs- ingar og gögn sem hann telur sig þurfa til að geta sinnt eftirlitsskyldu sinni,“ segir Álfheiður Ingadóttir, for- maður velferðarnefndar. „Við viljum breyta lagaákvæðinu þannig að það sé skýrt hvernig á að fara með upp- lýsingarnar, að þær lifi bara á meðan eftirlitið stendur yfir, eftir það sé þeim eytt. Ef einhver telur að land- læknir hafi ekki heimild til að kalla eftir persónuupplýsingum getur verið að við þurfum að herða lögin enn frek- ar og setja skýra heimild um að hann geti það. Við erum að skoða það,“ seg- ir Álfheiður. Hún gerir ráð fyrir að frumvarpið fari í umræðu á þingi í næstu viku. Velferðarnefnd hélt fund í gær þar sem hún fékk fulltrúa frá Persónu- vernd, landlækni og velferðarráðu- neytinu til þess að fara yfir álit Per- sónuverndar vegna fyrirspurnar Læknafélagsins varðandi skyldur lýtalækna til að afhenda landlækni persónugreinanlegar upplýsingar. „Mér finnst alvarlegt mál ef Persónu- vernd ætlar að ákveða hvað teljast nauðsynlegar upplýsingar og hvað skiptir máli í eftirliti landlæknis. Enn hafa yfirvöld ekki getað fengið upp- lýsingar um hvaða konur fengu PIP-brjóstapúða og hvernig hægt er að ná í þær. Við teljum einsýnt að þetta stefni heilsu kvennanna í hættu og með því að veita landlækni upplýs- ingarnar megi forðast frekara heilsu- tjón,“ segir Álfheiður. Landlæknir á að geta fengið persónuupplýsingar Mauk PIP-brjóstapúði sem var fjar- lægður úr konu á Landspítalanum.  Velferðarnefnd er ósammála úrskurði Persónuverndar og vill breyta lögunum Mennta- og menningarmálaráð- herra skipaði í byrjun árs 2010 nefnd til þriggja ára til að fylgja eft- ir stefnu um notendaviðmót á ís- lensku í skólum og hins vegar til að gera áætlun um aðrar aðgerðir sem tilgreindar eru í málstefnunni um ís- lensku í tölvuheiminum. Íslenska kom illa út í skýrslu um stöðu tungunnar gagnvart nýrri upplýsingatækni í 30 Evrópulöndum eins og sagði frá í Morgunblaðinu í gær. Þar kom fram að íslenskan væri illa búin undir framfarir í upp- lýsingatækni. Í mennta- og menningarmála- ráðuneytinu fengust þær upplýs- ingar að verið væri að vinna að til- lögum til úrbóta í þessu máli, meðal annars með skipun nefndarinnar. Þá er sett það markmið í íslenskri mál- stefnu að íslensk tunga verði nothæf og notuð á öllum þeim sviðum innan tölvu- og upplýsingatækninnar sem varða daglegt líf alls almennings. Til er stefna um íslensku í tölvuheiminum Spennan er í hámarki því í kvöld kl. 20.05 fer fram úrslitaviðureign Skólahreysti MS. Frítt inn á keppnina í Laugardalshöll og bein útsending á RÚV til kl. 22. Ekki missa af þessu! Gangi ykkur vel krakkar Kíkið á Skólahrey stisíðuna á Faceboo k og skolah reysti.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.