Morgunblaðið - 26.04.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Björgvin G. Sigurðsson þing-maður væntir þess að hreinar
línur verði komnar í aðlögun að
ESB fyrir næstu kosningar. Þetta
er eðlilegt mat hjá Björgvini, enda
hefur enginn nennt að segja hon-
um að þetta standi ekki til.
Ingibjörg Sólrún ákvað á sínumtíma að Björgvin banka-
málaráðherra henn-
ar fengi ekkert að
vita um að íslenskir
bankar kynnu að
vera í vanda.
Forstjóri Fjár-málaeftirlits-
ins, sem heyrði
undir Björgvin, sagðist aðeins einu
sinni hafa hitt hann á árunum fyr-
ir hrun. Það gæti þess vegna hafa
verið óvart úti í búð. Um miðja
síðustu öld var t.d. ekki rætt um
veikindi fólks á heimilum svo börn
heyrðu til.
Þegar Glitnir rak upp kvalaópinog haldinn var neyðarfundur
var Björgvini bankamála ekki sagt
frá honum og það fyrsta sem hann
frétti var að Jón Ásgeir krafðist
þess að hann kæmi til sín um
miðja nótt og sæti þar undir
skömmum rétt eins og ráðherrann
væri einn af körlunum á köss-
unum.
Þegar þingið logaði í vor, þarsem vitað var að ekki var
lengur meirihluti fyrir ákæru á
Geir, mætti Björgvin ekki til at-
kvæðagreiðslu, sem var eðlilegt
því enginn hafði sagt honum að
það væri fundur, hvað þá annað.
Nú væri tilvalið að sjálf-umglaðir í Kastljósi fengju
Björgvin í viðtal og spyrðu hann
hvort hann mæti það svo að lands-
dómur lyki senn störfum. Þetta er
jú eitt af því sem þjóðin á rétt á
að fá að vita.
Björgvin G.
Sigurðsson
Björgvin telur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 4 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 snjókoma
Vestmannaeyjar 5 skýjað
Nuuk -2 heiðskírt
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 10 skúrir
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 11 heiðskírt
Lúxemborg 7 skúrir
Brussel 10 skúrir
Dublin 6 skúrir
Glasgow 7 alskýjað
London 12 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 10 skýjað
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 15 heiðskírt
Vín 19 léttskýjað
Moskva 18 léttskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 10 skýjað
Montreal 7 skýjað
New York 15 heiðskírt
Chicago 16 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:15 21:37
ÍSAFJÖRÐUR 5:06 21:55
SIGLUFJÖRÐUR 4:49 21:39
DJÚPIVOGUR 4:41 21:10
Fjölbreytt dagskrá var í Mýrdals-
hreppi í gær á Degi umhverfisins,
25. apríl, sem er fæðingardagur
Sveins Pálssonar, fyrsta nátt-
úrufræðings Íslendinga. Í ár voru
250 ár liðin frá fæðingu Sveins, sem
heimamenn nefna einn af merkustu
sonum Víkur.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra heimsótti íbúa Mýrdals-
hrepps í gær af þessu tilefni og af-
hjúpaði m.a. minnisvarða um Svein
sem sveitarfélagið hefur látið reisa
á Guðlaugsblettinum svonefnda.
Einnig var dagskrá í Leikskálum
þar sem flutt voru erindi um líf og
störf Sveins. Börn úr Víkurskóla
tóku þátt í dagskránni, auk þess
sem afrakstur þemaviku skólans
var til sýnis.
Mýrdalshreppur tók einnig þátt í
málþingi á þriðjudag um ævi og
störf Sveins sem haldið var í Öskju
ásamt umhverfisráðuneytinu,
Læknafélagi Íslands og Land-
græðslu ríkisins.
Minntust að 250 ár eru frá
fæðingu Sveins Pálssonar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhjúpar skilti í Vík í Mýrdal.
Hádegisverðartilboð
Tvíréttað í hádegi frá 1.890,-
Fljót og góð þjónusta
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is
Sævar Ingþórs-
son, líffræðingur
og doktorsnemi,
var útnefndur
„Ungur vís-
indamaður árs-
ins 2012 á Land-
spítala“.
Þetta var til-
kynnt á
uppskeruhátíð
vísindastarfs á
spítalanum, Vísindum á vordögum,
sem hófust í gær.
Sævar er fæddur árið 1981 og
lauk BS-prófi í líffræði frá raunvís-
indadeild Háskóla Íslands árið 2006
og meistaraprófi í líf- og læknavís-
indum frá læknadeild Háskóla Ís-
lands 2008. Hann hóf doktorsnám í
líf- og læknavísindum við lækna-
deild HÍ 2009 og starfar á rann-
sóknastofu í stofnfrumufræðum
sem rekin er af Magnúsi Karli
Magnússyni prófessor og Þórarni
Guðjónssyni dósent.
Samhliða rannsóknum sínum hef-
ur Sævar leiðbeint íslenskum og er-
lendum nemum sem koma á rann-
sóknastofuna í styttri verkefni,
ásamt kennslu í vefjafræði við
læknadeild.
Sævar hefur hlotið ýmsa rann-
sóknarstyrki, m.a. frá Rannís, Há-
skóla Íslands og Landspítalanum.
Ungur vís-
indamaður
Landspítala
Sævar
Ingþórsson