Morgunblaðið - 26.04.2012, Side 10

Morgunblaðið - 26.04.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við verjum einum þriðja afárinu í Kenýa, einumþriðja í Skaftártungu ogeinum þriðja í Hafnar- firði,“ segir Elín Þorgeirsdóttir en hún og maður hennar, Borgar Þor- steinsson, hafa undanfarin fimmtán ár rekið ferðaþjónustufyrirtæki í Kenýa undir nafninu Afríka ævin- týraferðir. Þar fyrir utan reka þau ferðaþjónustu í Hrífunesi í Skaft- ártungu yfir íslenska sumartímann. Og þau halda líka heimili í Hafnar- firði. Elín segir þessa ævintýraþrá eiga rætur sínar í því að áður en hún og Borgar kynntust hafði hann ferðast mikið um Afríku sem og um Suður-Ameríku. „Hann var því heillaður af ferðalögum þegar við tókum saman og við lögðum saman upp í okkar fyrstu ævintýraferð ár- ið 1997, keyrðum á gömlum Land Rover frá Danmörku, þar sem við bjuggum þá, niður til Afríku. Með í för var níu mánaða sonur okkar og annar níu ára. Við bjuggum í kúlu- tjöldum í fjóra mánuði í þessu fæð- ingarorlofi. Þetta var frábær tími,“ segir Elín og bætir við að fleira fólk hafi verið með í ferðinni og að þau hafi keyrt í gegnum Austur-Evrópu á leið sinni suður. „Fyrir vikið var Evróputúrinn heilmikil upplifun og þaðan fórum við svo til Sýrlands og Jórdaníu. Það var mikið ævintýr að fara í gegnum þessi lönd og við enduðum ferðina í Kenýa. Við vor- um svo heilluð af því að vera á ferðalagi að við ákváðum að í stað þess að vera alltaf að safna fyrir nýrri ferð þá myndum við gera þetta að lífsstíl, með börnunum okkar. Þá stofnuðum við Afríku æv- intýraferðir.“ Klæðskerasníða ferðir Þau eru búin að fara í ótal ferðalög síðan Land Rover-ferðinni góðu lauk. „Við erum búin að fara með þúsundir Íslendinga til Afríku. Við förum mest með fólk um Aust- ur-Afríku, til landanna í kringum Viktoríuvatn, Úganda, Kenýa, Tan- saníu og Rúanda. Við skipuleggjum ferðirnar og erum leiðsögumenn sjálf en við erum líka með innfædda leiðsögumenn í fámennari ferð- unum. Við klæðskerasníðum ferðir fyrir ólíka hópa eftir þeirra óskum og því eru ferðirnar fjölbreyttar, safaríferðir til að skoða villta dýra- lífið, gönguferðir á fjallið Kilimanj- aró, ferðir á slóðir górilla, allskonar þemaferðir og kennaraferðir. Eitt sinn vorum við með sérstaka kvennaferð en í henni voru tuttugu konur á aldrinum 20-80 ára. Og þar sem ég er félagsfræðingur skipu- lagði ég ferð fyrir félag félags- fræðinga þar sem við tókum upp efni í Afríku til að nota í kennslu fyrir framhaldsskólanema,“ segir Elín og bætir við að hún og Borgar skiptist á að fara í ferðirnar svo annar aðilinn geti verið heima að sinna fjölskyldunni. „Við eigum þrjá drengi og þeir yngri eru á skólaaldri og við höldum því heimili yfir veturinn í Hafnarfirði. En við vorum samt öll fjölskyldan úti í Kenýa í desember og janúar síðast- liðinn og héldum þar jólin. “ Geta talað svolítið svahílí Þegar Elín er spurð að því hvað sé svona heillandi við Afríku svarar hún því að hún sé ósnortin. „Þar er svo margt að sjá og upplifa. Allt er svo frábrugðið því sem við þekkjum hér heima á Íslandi. Mannlífið heillar óskaplega mikið, villta dýralífið, náttúrufegurðin og umhverfið. Græni liturinn er ótrú- Búa ýmist í Kenýa eða í Skaftártungu Þau ákváðu að gera ferðir á framandi slóðir að lífsstíl, í stað þess að vera alltaf að safna fyrir nýrri ferð. Þau stofnuðu Afríka ævintýraferðir og hafa átt annað heim- ili í Kenýa síðan. Á sumrin reka þau gistiþjónustu í Hrífunesi í Skaftártungu. Afrísk fegurð Samburu-konur í Umoja, kvennaþorpi í Norður-Kenýa. Fjölskyldan við hafið Elín lengst til vinstri, Máni, Borgar, Þorgeir og Steinn ásamt vinunum Mikhail og Sthepanie í Kenýa um síðustu jól. Franski hönnuðurinn Anna Michalak, sem kallar sig Önnu Chocola, er frönsk að uppruna en býr nú í bresku borginni Brighton. Anna er listamað- ur og lausapenni en hún hannar dálít- ið gamaldags og fallega hatta í frönskum stíl. Þá má sjá á vefsíðuni annachocola.com sem Anna heldur út og hefðu örugglega bæði Edith Pi- af og Coco Chanel ánægðar látið sjá sig með svona fínirí á höfðinu. Hattarnir hennar Önnu er í ýmsum litum og gerðum. Sumir væru til- valdir í rigningarúða á miðju vori, gráköflóttir eða rósóttir, en aðrir eru sparilegri með slöri og dúllum og henta frekar til að vera með í sumar- brúðkaupi. Hægt er að kaupa hönnun Önnu á eBay þannig að þau ykkar sem líst vel á hönnun hennar geta auðveldlega verslað við hana. Sann- arlega skemmtilegir og öðruvísi fylgi- hlutir í frönskum stíl. Vefsíðan www.annachocola.com AFP Skraut Algeng sjón er að sjá fagurlega skreytt höfuð sem þessi í Bretlandi. Hattar í frönskum stíl Brim 2012, sýning nemenda á list- námsbraut við Borgarholtsskóla, verður opnuð í dag, fimmtudag 26. apríl, klukkan 17. Þeir 25 nemendur sem eiga verk á sýningunni hafa sér- hæft sig í margmiðlun, nánar tiltekið prent- og skjámiðlun. Verk þeirra eru fjölbreytt, m.a. er að finna ljós- myndaverk, skjáverk, vefsíður og þrí- víddarverk. Sýningin er haldin í Brimhúsinu á Miðbakka við Geirsgötu og stendur til 29. apríl, en opið er alla sýning- ardagana frá kl. 14 til 18. Endilega … … skoðið listaverk á Brim Fjölbreytt Verk nemendanna sem taka þátt í sýningunni eru af ýmsum toga. VOR 2012 EIKJUVOGI 29, 104 RVK | Sími 694 7911 | OPIÐ: mán. - fim. 12–18, fös. 12–16 Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Fjarðarkaup Gildir 26. - 28. apr. verð nú áður mælie. verð Svínakótelettur úr kjötborði .............................. 1.198 1.598 1.198 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði................................... 1.798 2.198 1.798 kr. kg Lambainnralæri úr kjötborði ............................. 2.998 3.398 2.998 kr. kg Hamborgarar, 4x80 g m/brauði ........................ 576 680 576 kr. pk. Fjallalambs valið saltkjöt.................................. 1.698 2.098 1.698 kr. kg Ísfugl frosinn kjúklingur .................................... 598 698 598 kr. kg Hagkaup Gildir 27. - 29. apr. verð nú áður mælie. verð Holta ferskur kjúklingur heill ............................. 749 998 749 kr. kg Holta úrb. skinnl.bringur magnp........................ 2.283 2.854 2.283 kr. kg Holta kjúklingaleggir í texaskryddl. .................... 699 998 699 kr. kg Hotla kjúklingaleggir Indland ............................ 699 998 699 kr. kg Myllu tómatbrauð ............................................ 299 459 299 kr. stk. Súkkulaðiterta ................................................. 999 1.499 999 kr. stk. Helgartilboðin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.