Morgunblaðið - 26.04.2012, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 23:30
Opið um helgar frá 18:00 - 23:30
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Nýr soðinn rauðmagi
í hádeginu
www.tskoli.is
Uppskerudagur
Opið hús í Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins,
laugardaginn 28. apríl kl. 13:00 – 16:00.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir það mjög miður að versl-
unarfyrirtæki hafi í auknum mæli
opið 1. maí, svo fjöldi starfsmanna
fær ekki frí á þessum baráttudegi
verkafólks.
Stefán Einar Stefánsson, for-
maður VR, gagnrýndi í opnu bréfi í
Morgunblaðinu í gær þá ákvörðun
Kringlunnar og Smáralindar að hafa
opið 1. maí og fór hann þess á leit við
forsvarmenn þeirra að endurskoða
þessa ákvörðun. Það ætla þeir hins
vegar ekki að gera.
Ályktun frá miðstjórn ASÍ
Miðstjórn ASÍ fjallaði um málið
í gær og sendi frá sér ályktun þar
sem mótmælt er harðlega fyrirætl-
unum verslanamiðstöðva og fleiri að
hafa búðir opnar 1. maí baráttudegi
verkalýðsins. „Dagurinn er frídagur
verslunarfólks eins og alls annars
launafólks á Íslandi og hefur svo ver-
ið um áratugaskeið. Miðstjórnin
harmar allar tilraunir til að breyta
þessu og hvetur neytendur til að
sniðganga verslanir sem hafa opið
þennan dag,“ segir í ályktuninni.
Færst hefur í vöxt að verslanir
séu opnar 1. maí en Gylfi segir virð-
ingarvert af stjórnendum Bónuss að
hafa ætíð lokað á þessum degi.
„Ég tek undir með Stefáni Ein-
ari að þetta er vond leið hjá fyr-
irtækjunum að leyfa ekki starfsfólk-
inu að eiga þennan baráttudag fyrir
sig,“ segir Gylfi og bendir á að við
þær erfiðu aðstæður sem ríkja á
vinnumarkaði felist í opnun versl-
ananna undirliggjandi hótun, þó að
hún sé ekki orðuð beinum hætti.
Vegna aðstæðnanna hafi fólk ekki
val heldur sé gert að mæta í vinnuna.
Skilur sjónarmið VR
Samtök verslunar og þjónustu
skipta sér ekki af afgreiðslutímum
verslana, að sögn Andrésar Magn-
ússonar, framkvæmdastjóra SVÞ.
Það sé Kringlunni og Smáralind al-
gerleg í sjálfsvald sett að ákveða af-
greiðslutímann. „Þróunin hefur ver-
ið í þá átt að hafa lengur opið eftir
því sem viðskiptavinirnir vilja. Næt-
urafgreiðslan hefur verið nýjasta
þróunin sem er til komin vegna þess
að það er þörf er fyrir hana. En ég
skil út af fyrir sig alveg sjónarmið
VR,“ segir Andrés.
Með skólafólk í vinnu
Mjög er þó misjafnt eftir versl-
unum hvar opið er 1. maí. Þannig
hafa stjórnendur Bónuss haldið fast
við þá venju að allar Bónusversl-
anirnar eru lokaðar 1. maí og svo
verður einnig að þessu sinni, skv.
upplýsingum sem fengust hjá fyr-
irtækinu. Hagkaupsverslanir hafa
hins vegar verið opnar á þessum
degi og opið verður bæði í Krónunni
og Nóatúnsverslununum. Kristinn
Skúlason, framkvæmdastjóri Krón-
unnar, segir að verslanir Krónunnar
hafi verið opnar 1. maí á und-
anförnum árum og engin breyting
verði á því nú. Afgreiðslutíminn
verði eins og venjulega. Hann segir
að starfsmönnum sé hins vegar
frjálst að taka sér frí á þessum degi
ef þeir kjósi svo. „Við erum ekki mik-
ið með fastafólkið í vinnu heldur er
meira um að skólafólk sinni þessu,“
segir Kristinn.
Stefán Einar segist hafa skiln-
ing á því að nauðsynlegt geti verið að
halda ákveðinni grunnþjónustu
gangandi á þessum degi. Þróunin
hafi hins vegar verið í þá átt að
margar verslanir eru opnar 1. maí. Á
seinasta ári bar 1. maí upp á sunnu-
degi og þá var lokað bæði í Smára-
lind og Kringlunni. Það bendi til að
þessar ákvarðanir séu byggðar á út-
reikningum um hversu líklegt sé að
fjöldi viðskiptavina komi í versl-
unarmiðstöðvarnar.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir 1. maí vera lögbundinn frí-
dag og þróunin á engan hátt
frábrugðin því sem á sér stað á öðr-
um lögbundnum frídögum. „Við höf-
um séð t.d. að í kringum jól og páska
hafa fyrirtæki sem tengjast þjónustu
og verslun verið með opið. Við verð-
um bara að átta okkur á því að það
koma svo margir ferðamenn, og þó
að ekki væri nema af þeirri ástæðu
verður að hafa opið á helstu stöðum
þar sem þeir vilja eiga viðskipti eða
fá þjónustu. Þjóðfélagið er að breyt-
ast og vegna fjölda ferðamanna sér-
staklega gengur það ekkert lengur
að loka helstu þjónustu- og versl-
unarkjörnum,“ segir hann.
ASÍ hvetur fólk til að
sniðganga verslanir
Morgunblaðið/Eggert
Verslun Forystumenn launþegasamtaka gagnrýna að opið verður í versl-
unarmiðstöðvunum Kringlunni og Smáralind á baráttudegi verkafólks.
Forsvarsmenn Kringlunnar og
Smáralindar sögðu við mbl.is í
gær að ekki verði hætt við að
hafa opið 1. maí þrátt fyrir ósk-
ir formanns VR í Morg-
unblaðinu í gær. Versl-
unarmiðstöðvarnar hafa verið
opnar á þessum degi und-
anfarin átta ár hið minnsta og
eru jafnan mjög vel sóttar af
viðskiptavinum 1. maí. Í fyrra
var þó lokað þar sem 1. maí bar
upp á sunnudegi.
„Kringlan hefur ákveðið að
hún verði opin fyrir við-
skiptavinum þennan dag, en
kaupmönnum er ekki skylt að
hafa opið, þeim er það í sjálfs-
vald sett,“ sagði Sigurjón Örn
Þórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar. „Þetta er frídagur
og fólk nýtir oft sitt frí til þess
að gera eitthvað sem það hefur
ekki tíma til að gera á öðrum
dögum. Þannig að svarið er já,
ég geri ráð fyrir að hér verði
talsvert af fólki að versla,“
sagði hann.
Sturla Gunnar Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri Smáralindar,
hafði svipaða sögu að segja.
„Viðtökur viðskiptavina eru
mjög góðar á þessum degi og
gestafjöldi mun meiri en aðra
daga,“ sagði Sturla.
Halda sínu
striki 1. maí
KRINGLAN OG SMÁRALIND