Morgunblaðið - 26.04.2012, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Glæsilegir
sólskálar lengja
sumarið og gera
sælureitinn
ómótstæðilegan
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Gluggar og garðhús
Nánari
upplýsingar á
www.solskalar
.is Viðhaldsfríir
gluggar og hurðir
AFP
Elísabet II. Bretadrottning skoðar gulli prýddan
drottningarbátinn Gloriana við Greenland Pier í
Greenwich í austurhluta Lundúna í gær. Drottning og
fjölskylda hennar munu ferðast á bátnum um Tempsá á
60 ára krýningarafmæli Elísabetar í júní og þá munu
þúsund bátar taka þátt í kappsiglingu á ánni.
Krýningarafmælið undirbúið
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Newt Gingrich, frambjóðandi í for-
kosningum bandarískra repúblik-
ana, hefur ákveðið að draga sig í hlé.
Hann ætlar að lýsa yfir stuðningi við
að Mitt Romney sem forsetaefni
repúblikana í nóvember. Mitt Rom-
ney, fyrrverandi ríkisstjóri
Massachusetts, sigraði með yfir-
burðum í forkosningum í fimm aust-
urríkjum, þ. á m. New York, á
þriðjudag. Romney hefur í raun
tryggt sér útnefninguna en hann
hefur sigrað í forkosningum í 23 ríkj-
um og tryggt sér atkvæði 724 kjör-
manna af þeim 1.144 sem þarf til.
Frjálshyggjumaðurinn Ron Paul,
þingmaður frá Texas, mun vafalaust
halda áfram baráttunni en útilokað
er talið að honum muni takast að
skáka Romney.
Eftir sigurinn á þriðjudag var
Romney sigurreifur, hét stuðnings-
mönnum að „betri tíð“ væri nú hafin
í Bandaríkjunum. „Undanfarin þrjú
ár höfum við séð vonir og drauma
hjaðna vegna falskra fyrirheita og
veikrar forystu,“ sagði hann.
Gingrich hættur við
Romney talinn hafa tryggt sé útnefningu repúblikana
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Anders Behring Breivik fullyrðir að
geðlæknarnir hafi verið í tilfinninga-
legu ójafnvægi þegar þeir skrifuðu
fyrstu skýrsluna um andlegt heil-
brigði hans en einnig segir hann þá
hafa gengið erinda stjórnvalda þegar
þeir úrskurðuðu hann geðsjúkan.
Kom þetta fram í vitnaleiðslum í
Ósló í gær þegar fjallað var um sak-
hæfi norska fjöldamorðingjans.
Breivik, sem berst hart fyrir því
að vera ekki úrskurðaður geðsjúkur,
sagði 80% skýrslunnar vera lygi.
„Þegar ég las þetta hugsaði ég með
mér að þetta fólk ætti heima á geð-
veikrahæli og ætti að loka það sam-
stundis inni,“ sagði hann.
Of mikil athygli?
Margir hafa gagnrýnt að Breivik
skuli hafa fengið jafn langan tíma og
raun ber vitni til að lýsa í réttarsaln-
um hroðaverkum sínum og þoku-
kenndum öfgum. Er spurt hvort
ástæða sé til að ýfa þannig sár þeirra
sem særðust eða misstu ættingja,
hvort fjölmiðlar ættu frekar að taka
sig saman um að þegja um manninn.
Dálkahöfundurinn James Paterson í
blaðinu Sydney Morning Herald
segir á hinn bóginn að slík þöggun
gæti haft öfug áhrif. „Viðbjóðslegar
skoðanir þrífast í myrkrinu,“ segir
Paterson. Í huga þeirra brengluðu
manna sem styðji Breivik gæti slík
ritskoðun gefið til kynna að skoðanir
hans séu kraftmeiri og meira sann-
færandi en reyndin sé.
Húðskammar
geðlæknana
Breivik segir þá
hafa gengið erinda
stjórnvalda
Reuters
Geðsjúkur?Anders Behring Breivik
brosir í réttarsalnum í Ósló í gær.
Fórnarlömb tjá sig
» Fórnarlömb Breiviks sem
komust af og vitni hafa sagt
frá reynslu sinni.
» Öryggisvörður sagðist hafa
séð á eftirlitsmyndavél hvar
Breivik lagði bíl sínum, hlöðn-
um sprengiefni, við stjórnar-
bygginguna í Ósló.