Morgunblaðið - 26.04.2012, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.04.2012, Qupperneq 28
Elskulegi afi Viktor minn er dáinn, ég á eftir að sakna þín mik- ið, elsku afi minn. Það var alltaf svo gaman að koma til ykkar ömmu og fá að gista. Þá sofnaði ég alltaf í afaholu og svaf á milli þín og ömmu. Alltaf eldaðir þú svo góðan mat, bestu sykruðu kartöflur í heimi. Þú varst lista- kokkur og hafðir gaman af því að dunda þér í eldhúsinu við mat- argerðina. Ég man þegar ég og pabbi fór- um til Spánar með þér og ömmu Júllu, það var skemmtileg ferð. Þér fannst svo gaman að horfa á Viktor Sigur- björnsson ✝ Viktor Sig-urbjörnsson fæddist að Kvistum í Ölfusi 23. nóv- ember 1956. Hann varð bráðkvaddur á Spáni 1. apríl 2012. Útför Viktors fór fram frá Hvera- gerðiskirkju 14. apríl 2012. mig hoppa á tram- pólíninu. Ég gleymi aldrei hvað þú brostir fallega til mín á meðan ég sýndi þér listir mín- ar. Þér leið svo vel á Spáni í hitanum og varst farinn að finna lykt og bragð aftur, eftir að þú fórst að vera meira þar. Mig langaði svo að koma að heimsækja þig til Spánar og smakka pizzurnar þínar á Rizzo. Þú varst alltaf svo duglegur að vinna, sama hvað þú tókst þér fyrir hendur. Þegar þú varst að vinna í Borgarnesi stilltirðu klukkuna þína fyrr svo þú myndir mæta tímanlega. Ég á eftir að sakna þess að sjá þig ekki aftur, minningar um góðan afa munu lifa í hjarta mínu. Ég mun hugsa til þín og passa ömmu Júllu. Hvíldu í friði. Þín afastelpa, Júlíana. 28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 ✝ Edda Guð-mundsdóttir fæddist á Bryggju í Grundarfirði 21. febrúar 1923. Hún lést 17. apríl 2012. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Guð- mundsson, heildsali frá Stykkishólmi, f. 8. október 1891, d. 10 janúar 1963, og Magnþóra Þórisdóttir, hár- greiðslukona, f. 13. júní 1891, d. 3. maí 1954. Uppeldisbróðir hennar var Þórir Kjartansson, lögfræðingur, f. 6. júní 1909, d. 13. júní 1974, kona hans var Steinunn Sveinsdóttir, hús- móðir, f. 1. febrúar 1911, d. 3. desember 2002. Lengst af var heimili Eddu að Laufásvegi 3 í Reykjavík. Hún vann við aðstoð- arstörf í Fé- lagsbókbandinu 1938-1975, hjá Gu- tenberg 1975-1976 og í ritfangadeild Kassagerðar Reykjavíkur 1981- 1989. Edda var formaður kvennadeildar Bókbind- ararfélags Íslands 1967-1974 og sat í stjórn Bókbindarafélagsins þann tíma. Útför Eddu fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 26. apríl 2012, kl. 11. Sigríður Edda Guðmundsdótt- ir eða Edda á Laufás eins og við í fjölskyldunni nefndum hana gjarnan er látin eftir erfið veik- indi. Edda var kjördóttir lang- ömmu okkar, Magnþóru Magnús- dóttur, og eiginmanns hennar, Guðmundar Guðmundssonar, heildsala frá Stykkishólmi, en þau bjuggu í hjarta bæjarins að Lauf- ásvegi 3 sem var fallegt timbur- hús með sérstökum garði sem skartaði fágæta gosbrunn sem fá- títt var í þá daga. Heimilið var mjög gestkvæmt og oft glatt á hjalla. Hún ólst upp við mikið ást- ríki foreldranna og bróður síns, Þóris Kjartanssonar, uns hann kvæntist. Eftir að foreldrar henn- ar dóu bjó Edda í áratugi á Lauf- ásveginum og þaðan eigum við margar góðar minningar. Edda var á margan hátt sérstök kona. Hún hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og var óhrædd við að láta þær í ljós. Hún var barngóð og hafði unun af ungabörnum. Ávallt mundi hún eftir afmælisdögum okkar og aldrei gleymdi hún sængurgjöf þegar nýr einstaklingur kom í heiminn. Það var henni mikið gleðiefni þegar móðursystir okkar, Magn- þóra, skírði frumburð sinn í höf- uðið á henni og var Edda yngri hennar sólargeisli alla tíð þó að höfin skildu að en Edda yngri hef- ur búið erlendis síðustu áratugi. Þær héldu ávallt sérstöku sam- bandi og voru hvor annarri ákaf- lega góðar. Hún Edda yngri mat það líka mikils hversu vel Edda reyndist móður hennar þegar hún þurfti hjálpar við á erfiðu tímabili í lífi sínu en hún féll frá í blóma lífsins frá ungum börnum og var öllum harmdauði. Edda hefur verið tíður gestur í fjölskylduboðum alla tíð og eftir að móðir okkar sem var mjög ræktarsöm við Eddu veiktist al- varlega hefur Edda iðulega verið gestur á heimilum okkar systkina. Edda starfaði við bókband í árafjöld og var félagi í prentara- félaginu. Þaðan átti hún góðar vinkonur sem héldu saumaklúbb um áraraðir. Síðustu árin hafa verið Eddu erfið vegna veikinda og síðustu misserin bjó hún á dvalarheimili aldraðra við Dal- braut þar sem hún hlaut einstaka umönnun. Við leiðarlok þökkum við Eddu samfylgdina. Sigfríði vinkonu hennar sem var hennar helsta hjálparhella og sinnti henni fá- dæma vel dag hvern síðasta ára- tuginn færum við innilegt þakk- læti. Systkinin Ingibjörg, Steinunn, Margrét, Þórir og Tómas. Edda missti föður sinn ung og var tekin í fóstur og síðar ættleidd af föðurbróður sínum og konu hans, þeim Guðmundi Guðmunds- syni heildsala og Magnþóru Magnúsdóttur hárgreiðslukonu í Reykjavík. Uppeldisbróðir henn- ar var Magnús Þórir Kjartansson lögfræðingur. Þótt hún væri skírð Sigríður Edda, notaði hún alltaf Eddunafnið. Edda giftist ekki og var barnlaus. Hún starfaði við bókband alla sína starfsævi. Nú er komið að kveðjustund. Edda frænka var kletturinn í lífi mínu. Hjá henni átti ég og mitt fólk alltaf öruggt skjól. Hún skaut skjólshúsi yfir mömmu og okkur systkinin þegar foreldrar okkar skildu. Edda bjó lengi vel á upp- eldisheimili sínu á Laufásvegi 3. Þar átti ég mitt annað heimili. Mamma mín lést þegar ég var 16 ára og má því segja að þar með hafi Edda tekið við móðurhlut- verkinu. Ég hef búið í Bandaríkj- unum um árabil og hefur Edda heimsótt okkur þangað í nokkur skipti. Ég veit að það var henni erfitt þar sem hún var svo flug- hrædd, en hún kom samt. Mér er það í fersku minni þegar hún kom til okkar nýkomin úr erfiðum upp- skurði. Ég ætlaði ekki að þekkja hana á flugvellinum, svo mikið höfðu veikindin markað hana. Aldrei kvartaði hún þrátt fyrir mikil veikindi til lengri tíma. Það var engin ástæða að hennar mati að búa til áhyggjur fyrir mig, bú- setta svona langt frá í Bandaríkj- unum frá 16 ára aldri. Edda var ekki allra, en hún var gull af manni og var mér og minni fjölskyldu einstaklega góð. Hún sendi mér súkkulaði og jólaskraut og hún mundi alla afmælisdaga. Krakkarnir mínir biðu alltaf spennt eftir símtali á afmælisdag- inn sinn frá Eddu frænku. Edda var barngóð og vinamörg og ræktaði vináttuna. Vinkonurn- ar í saumaklúbbnum hittust reglulega í áratugi. Henni var um- hugað um fjölskylduna og var dugleg að halda sambandi við systkinabörnin og þeirra fólk. Hún fylgdist vel með í þjóðfélags- málum og var stolt af sínu fólki. Það sýna ótal úrklippur hennar úr dagblöðum sem hún hafði geymt. Síðustu 2 árin bjó Edda á Dal- braut 27 þar sem heilsu hennar fór hrakandi. Það er mér ómet- anlegt að hafa komið til landsins ásamt börnunum mínum í febrúar síðastliðnum. Edda var svo stolt á 89 ára afmælisdaginn sinn, 21. febrúar, þar sem hún gat kynnt fjölskylduna sína frá Ameríku sem hún hafði svo oft talað um. Ræktarsemi Eddu sýndi mér í verki mikilvægi fjölskyldunnar og vonandi tekst mér að halda merki hennar á lofti í þeim efnum. Ég er stolt af því að vera alnafna Eddu minnar og vil þakka fyrir að hafa fengið að eiga þig að svo lengi. Guð geymi minningu þína, elsku Edda mín. Edda Guðmundsdóttir Escarzaga og fjölskylda. Edda Guðmundsdóttir ✝ Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AGNARS TRYGGVASONAR fyrrv. framkvæmdastjóra Búvörudeildar SÍS. Guðrún Helga Agnarsdóttir, Jón Kristjánsson, Anna Agnarsdóttir, Björn Agnarsson, Sigríður Agnarsdóttir, Tryggvi Agnarsson, Steingerður Þorgilsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar, mágs, frænda og vinar, EYJÓLFS PÉTURSSONAR fyrrverandi bónda á Nautaflötum í Ölfusi, Úthaga 3, Selfossi. Starfsfólki Kumbaravogs eru færðar alúðarþakkir fyrir umönnun og hlýju. Þorbergur Pétursson, Rós Ólafsdóttir, Soffía Pétursdóttir, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Útför eiginmanns míns, JÓNS ÞORGEIRSSONAR frá Skógum í Vopnafirði, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunda- búð sunnudaginn 22. apríl, fer fram frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 28. apríl kl. 14.00. Jarðsett verður að Hofi. Jónína R. Björgvinsdóttir, börn og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SIGRÍÐUR KOLBRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Hvannarima 16, Reykjavík, lést á görgæsludeild Landspítalans, Hringbraut föstudaginn 20. apríl. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 2. maí kl. 13.00. Kristján H. B. Ólafsson, Bryndís Björk Kristjánsdóttir, Jóhann Örn Arnarson, Einar Sigurður Kristjánsson, Soffía Eðvarðsdóttir, Guðni Magni Kristjánsson, Margrét Einarsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN LEÓSSON netagerðarmeistari, lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn 22. apríl. Jarðsungið verður frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 2. maí kl. 13.00. Iðunn Elíasdóttir, Leó Jónsson, Ragna Haraldsdóttir, Hrönn Jónsdóttir, Viktor Jónsson, Ingibjörg Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR GUÐMUNDSSON múrari, Stóragerði 28, lést á Landspítala Hringbraut föstudaginn 20. apríl. Jarðsungið verður frá Grensáskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 13.00. Ingibjörg Pétursdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Pétur Ingi Guðmundsson, Kristín Sigríður Gunnarsdóttir, Sigþór Þórarinsson, Ástrós Gunnarsdóttir, Þorfinnur Ómarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þegar Matthías Guðmunds- son féll frá vorið 1995 urðu ákveðin kaflaskipti í sögu Þing- eyrar í Dýrafirði. Og nú kveðj- um við Camillu Sigmundsdótt- Camilla Sigmundsdóttir ✝ Camilla Sig-mundsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 5. ágúst 1917. Hún andaðist á Heil- brigðisstofnun Ísa- fjarðar 14. apríl 2012. Útför Camillu fór fram frá Þing- eyrarkirkju sunnu- daginn 22. apríl 2012. ur, eiginkonu hans. Haft var eftir góðri konu hér vestra að á tíma aristó- kratanna á Þing- eyri hefði þar verið einn stór veislusal- ur meðan aðrir staðir voru eins og lítil kabínett. Svona var gest- risnin mikil og höfðingsskapurinn. Það fréttist víða. Hún Milla okkar var framarlega í flokki dætra Dýrafjarðar sem sáu um þann veislusal. Megi hún eiga góða heimkomu. Hallgrímur Sveinsson. Bjarni Georg Einarsson. Kveðja frá Thorvaldsensfélaginu. Við kveðjum eina af okkar kæru félagskonum, Unni Run- ólfsdóttur. Unnur gekk í Thorvaldsens- félagið 1973. Hún hafði ljúf- Unnur Runólfsdóttir ✝ Unnur Runólfs-dóttir fæddist í Reykjavík 19. maí 1918. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Eir 5. apríl 2012. Útför Unnar fór fram frá Bústaða- kirkju 17. apríl 2012. mannlega fram- komu og vann vel fyrir félagið á sín- um fyrri árum í því. Það er alltaf söknuður að góðum félagskonum en þetta er lífsins gangur. Að leiðarlokum þökkum við Unni fyrir samfylgdina og hennar góðu störf. Thorvaldsensfélagið sendir sínar innilegustu samúðarkveðj- ur til fjölskyldunnar og annarra aðstandenda. Kristín Zoëga, formaður. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsend- ingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja við- eigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.