Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir gluggana
á einum stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp
Nýtrúlofaði hásetinn frá Ísafirði, Sverrir Örn Rafnsson, verð-ur þrítugur í dag og af því tilefni ætlar hann að hafa þaðnáðugt. Hann á líka, meðal annars, von á að hans heittelsk-
aða Halldóra Gunnlaugsdóttir færi honum morgunmat í rúmið og í
kvöld ætla þau saman út að borða á veitingastaðinn Húsið á Ísafirði.
Afmælisveisluna hélt hann á páskadag enda höfðu þá vinir hans
flykkst vestur á hátíðina Aldrei fór ég suður. Hápunktur páskahelg-
arinnar var þó ekki veislan heldur bónorðið sem hann bar upp við
Halldóru uppi á sviði á tónleikum kvöldið áður. Halldóra sagði já og
í gærmorgun voru þau helst á að því að líklega yrði giftingin aðra
helgina í júlí 2013.
„Það eru margir sem eru búnir að skjóta því að okkur, síðan ég
bað hennar á Aldrei fór ég suður, að við ættum bara að gifta okkur á
hátíðinni á næsta ári. Láta Muggapabba, pabba Mugison, gifta okk-
ur en hann er skipstjóri og með öll réttindi til slíks. Mér finnst það
flott en konunni líst ekkert á það.“ Sverrir Örn er háseti á frystitog-
aranum Baldvini Njálssyni GK-400. Aðaláhugamálin eru fjölskyldan
og barnaupppeldið en þau Halldóra eiga tvær dætur, Sigrúnu Ísa-
fold eins árs og Aðalrós Freyju sem er næstum fjögurra ára. Sverrir
Örn segir frábært að búa á Ísafirði og ala þar upp börn. Hann próf-
aði að búa fyrir sunnan í um þrjú ár. „En síðan náði ég mér í stelpu
að vestan og flutti bara aftur vestur,“ segir hann. Þar er hann miklu
ánægðari. runarp@mbl.is
Sverrir Örn Rafnsson háseti er þrítugur
Sverrir Örn Rafnsson
Heppinn að ná sér
í stelpu að vestan
R
íkharður fæddist í
Reykjavík en ólst upp
í Mosfellsbænum frá
1976. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1992 og BA-prófi
í hagfræði frá Columbia University
í New York 1996.
Frá Fram til Fram
Ríkharður stundaði sumarstörf
hjá Mosfellsbæ á unglingsárunum
og starfaði síðan á sumrin við Ís-
landsbanka.
Ríkharður æfði og keppti knatt-
spyrnu með Aftureldingu í 5. og 4.
flokki og síðan með Fram. Hann
lék með meistaraflokki Fram frá
1989, lék með KR 1996 og 1997,
með norska liðinu Viking í Staf-
anger 1998-2000, með Stoke á
Englandi 2000-2002, með Lille-
ström 2002-2003 og með Fredriks-
Ríkharður Daðason knattspyrnukappi 40 ára
Morgunblaðið/Einar Falur
Hetjan 1998 Mynd af einu frægasta landsliðsmarki íslenskrar knattspyrnu. Ríkharður Daðason skallar í mark nýbak-
aðra heimsmeistara, Frakka, á Laugardalsvelli eftir frábæra aukaspyrnu Rúnars Kristinssonar. Leikurinn fór 1 - 1.
Í fótspor afa í boltanum
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Hetjan 1951 Ríkharður Jónsson borinn í gullstól af Melavellinum eftir
landsleik við Olympíumeistarana, Svía, 29.6. 1951. Ríkharður var hetja
leiksins og skoraði öll mörk Íslendinga sem unnu 4 - 3.
Vestmannaeyjar Bjartur fæddist 29.
september 2011 á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja kl. 02.00.
Hann vó 4.050 g og var 54 cm langur.
Foreldrar hans eru Guðný Sigur-
mundsdóttir og Tryggvi Hjaltason.
Nýir borgarar
Danmörk Emma Lísa fæddist 28.
febrúar kl. 15.47. Hún vó 3.605 g
og var 54 cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Guðbjörg Ingunn Magn-
úsdóttir og Hlynur Svan Rún-
arsson.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is