Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nær heiðskírt hefur verið um allt
land síðustu tvo daga. Þessar ungu
dömur létu fara vel um sig í Naut-
hólsvík þegar ljósmyndara bar að
garði í gær. Eins og sjá má á gervi-
hnattarmynd sem sótt var á vef
bandarísku geimvísindastofnunar-
innar Nasa er landið þó enn snævi
þakið. Óli Þór Árnason, veðurfræð-
ingur á Veðurstofunni, á von á
áframhaldandi góðu veðri á suð-
vesturhorninu en búast má við
meiri næðingi næstu daga. „Það
verður hryssingslegra fyrir norðan
og austan vegna þeirrar norðanátt-
ar sem von er á. Jafnvel verða ein-
hver smáél á Norður- og Austur-
landi,“ segir Óli Þór. „Ástæða góða
veðursins undanfarna daga er þessi
hæga norðvestanátt.“
Afar heiðskírt hefur verið um allt land síðustu tvo daga og margir nutu útiverunnar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sólin sleikti landsmenn
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar kveðst
vongóður um að kísilverksmiðja rísi á
iðnaðarsvæðinu við Helguvík en
verkefninu seinki vissulega vegna
þess að rifta þurfti lóðarsamningum
við Íslenska kísilfélagið. Lóðin hefur
verið seld öðru félagi. Framkvæmda-
stjóri Íslenska kísilfélagsins segir
reynt að bjarga verkefninu.
Reynt að bjarga verkefninu
Íslenska kísilfélagið sem er að
mestu í eigu danskra og íslenskra
verkfræðinga hefur í nokkur ár und-
irbúið byggingu kísilverksmiðju í
Helguvík. Samið var við bandarískt
fyrirtæki, Globe Speciality Metal
(GSM), um samvinnu við uppbygg-
ingu verksmiðjunnar og rekstur.
Bandaríska fyrirtækið stóð, að sögn
framkvæmdastjóra Íslenska kísil-
félagsins, ekki við samkomulag um
fjármögnun og strandaði verkefnið
því í vetur. Fyrir nokkru ákvað
Reykjaneshöfn að rifta öllum samn-
ingum við Íslenska kísilfélagið vegna
vanefnda og nú hefur Íslenska kís-
ilfélagið og aðaleigandi þess, Tom-
ahawk Development, rift samningum
við bandaríska fyrirtækið, sömuleiðis
vegna vanefnda. „Nú erum við að
reyna að bjarga verkefninu og við
verðum að gera það sjálfir til að byrja
með,“ sagði Magnús Garðarsson,
framkvæmdastjóri Íslenska kísil-
félagsins, í samtali við mbl.is í gær.
Á sama fundi og atvinnu- og hafna-
ráð Reykjanesbæjar ákvað að rifta
samningum við Íslenska kísilfélagið
ákvað ráðið að selja lóðina til félags-
ins Stakksbrautar 9 ehf. Ekki er gef-
ið upp hverjir standa að baki þess fé-
lags en Árni Sigfússon bæjarstjóri
staðfestir að félagið hafi þegar greitt
200 milljónir kr. fyrir lóðina. Íslenska
kísilfélagið hafði ekki greitt fyrir
hana.
Ræðst af orkusamningum
„Þessi aðili hyggst ráðast í sams-
konar verkefni og áður var áformað.
Það er mjög jákvætt en óneitanlega
tefur þetta framkvæmdina um
nokkra mánuði, að minnsta kosti,“
segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Framhald málsins og tímarammi
ræðst að öllum líkindum af því hvern-
ig gengur að semja um afhendingu á
orku. Íslenska kísilfélagið hafði
gengið frá orkusamningum en gat
ekki staðfest þá gagnvart Lands-
virkjun áður en lokafrestur til þess
rann út. Ljóst er að gera þarf nýja
samninga en Árni kveðst vona að
hægt verði að byggja í aðalatriðum á
fyrri samningum.
Kísilverkefni haldið lifandi
Nýtt félag hefur keypt kísillóðina við Helguvík Verkefninu seinkar vegna þess að slitnað hefur upp
úr samstarfi við bandarískt fyrirtæki sem ætlaði að reka verksmiðjuna Bæjarstjórinn vongóður
Helguvík Þótt mikið hafi verið unn-
ið láta verksmiðjurnar á sér standa.
Þorláksbúðarfélagið hefur ekki skil-
að yfirliti ársreikninga til Ríkisend-
urskoðunar þrátt fyrir ítrekaðar
óskir stofnunarinnar. Ríkið hefur
veitt 9,5 milljónir til fram-
kvæmdanna frá árinu 2008.
Tilgangur Ríkisendurskoðunar
með því að óska eftir ársreikningum
er að staðfesta „að peningarnir hafi
farið í það sem þeir voru veittir til.
En við höfum ekki fengið þá ennþá,“
segir Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi.
Árni Johnsen, forsvarsmaður Þor-
láksbúðarfélagsins, segir að Skál-
holtsstaður og Skálholtsskóli annist
fjármálahlið verkefnisins. Hann seg-
ist ekki vita betur en verið sé að taka
saman þau gögn sem Ríkisendur-
skoðun hefur óskað eftir. »25
Krefjast reikninga
Ríkisendurskoðun
skoðar Þorláksbúð
Þorláksbúð Framkvæmdum við
Þorláksbúð er ekki að fullu lokið og
hefur húsið ekki verið opnað.
Hörður Arnar-
son, forstjóri
Landsvirkj-
unar, staðfesti
í gær að for-
svarsmenn Al-
coa á Íslandi
hefðu tilkynnt
Landsvirkjun
að Alcoa ætti í
viðræðum við
lífeyrissjóðina
um þátttöku í fjármögnun á 180
þúsund tonna stækkun álvers
Fjarðaáls í Reyðarfirði.
Hann sagði engar viðræður
hafa farið fram milli fyrirtækj-
anna um orkukaup en fyrir ligg-
ur að viðbótin þurfi um 270
megavatta orku. Sú orka er ekki
til en einn af þeim möguleikum
sem liggja fyrir varðandi orku-
öflun, og þegar er til skoðunar
hjá Landsvirkjun, er stækkun á
Kárahnjúkasvæðinu.
„Flestir ef ekki allir okkar við-
skiptavinir hafa áhuga á eða
áform um að stækka. Þetta er í
takt við það og við fögnum því en
við eigum náttúrlega eftir að sjá
hvort við getum leyst þetta og
munum skoða það með opnum
hug,“ sagði Hörður.
Hann sagðist gera ráð fyrir að
Alcoa myndi eiga frumkvæðið að
því að taka upp viðræður fljót-
lega.
Gerir ráð fyrir að
viðræður verði tekn-
ar upp fljótlega
Hörður Arnarson
Fjárfesting í liðlega 40 þúsund
tonna kísilverksmiðju í Helguvík
nemur 16-18 milljörðum króna.
Verkefnið hefur dregist. Verk-
smiðjan átti að taka til starfa á
þessu ári. Samið hafði verið um
kaup á orku frá Landsvirkjun og
HS Orku. Talið er að 300-350
ársstörf skapist við byggingu
slíkrar verksmiðju og að hún
skapi 90 varanleg störf.
90 varanleg
störf skapast
KÍSILVERKSMIÐJA
Polarolje
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Minn læknir mælir með
Polarolíunni, en þinn ?
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð
Nú líka
í hylkjum
Nýtt!
Skannaðu kóðann
til að lesa°nánari
frétt um málið.
Þrátt fyrir að umferð á höfuðborgar-
svæðinu, á þremur mælisniðum
Vegagerðarinnar, hafi minnkað um
1,5% í apríl frá því sem var sama
mánuð í fyrra, hefur umferðin fyrstu
fjóra mánuði ársins aukist lítillega á
svæðinu. Kemur þetta fram í frétt á
vef Vegagerðarinnar.
Áfram er reiknað með smávegis
aukningu umferðar á höfuðborgar-
svæðinu í ár öfugt við umferðina á
hringveginum þar sem reiknað er
með samdrætti.
Mest dró úr umferð á Hafnar-
fjarðarvegi, 2,3%, en 0,7% aukning
varð á Vesturlandsvegi. Þetta er
heldur meiri samdráttur en umferð-
ardeild Vegagerðarinnar átti von á
samkvæmt framreikningi um þróun
umferðar út árið.
Það sem af er ári hefur akstur,
samkvæmt mælisniðunum þremur,
aukist um 0,5% milli ára.
Enn dregur
úr akstri