Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Sólskinsdagar Þessi kríli voru alsæl með vorkomuna og góða veðrið þar sem þau sátu í kerrunni sinni og virtu fyrir sér mannlífið, búið að draga frá tjaldið og hvað eina. Golli Nú liggur fyrir Al- þingi frumvarp frá fjármálaráðherra þar sem ráðherrann fer fram á heimild til að lána hlutafélagi fé til að grafa svokölluð Vaðlaheiðargöng. Þetta verkefni hefur verið tekið út fyrir vegaáætlun á þeirri forsendu að um sé að ræða einkaframkvæmd. Félagið sem á að taka við láninu heitir Vaðlaheiðargöng hf. sem er í eigu Vegagerðarinnar og félags sem heitir Greið leið ehf. Hlutafé á að verða 600 milljónir, þar af leggur Greið leið ehf. til 400 milljónir en Vegagerðin 200. Hluthafar Greiðr- ar leiðar ehf. eru að meginstofni til sveitarfélög á Norðurlandi eystra. Verkefnið er skiljanlega mikið kappsmál fyrir þetta landsvæði en því miður hefur verið haldið þannig á málinu á Alþingi að ekki er hægt að styðja verkefnið. Risalán – lítið eigið fé Vaðlaheiðargöng voru tekin í for- gang út fyrir samgönguáætlun á þeirri forsendu að um væri að ræða einkaframkvæmd sem byggðist á innheimtu veggjalda. Ég er hlynnt- ur því að nota veggjöld þar sem því verður við komið og ég er hlynntur einkaframkvæmdum þar sem þær eiga við. En hér stendur hnífurinn í kúnni. Þessi framkvæmd er ekki einkaframkvæmd. Fyrirtækið sem á að fá lán frá ríkissjóði er að lang- stærstum hluta í eigu opinberra að- ila, þ.e. Vegagerðarinnar og sveit- arfélaga og það þarf að teyga sig ansi langt til að halda því fram að hér sé einkaaðili á ferðinni. Það sem meira er, þá stendur til að lána 8.700 milljónir til fyrirtækis með hlutafé upp á 600 milljónir. Óþarfi er að hafa mörg orð um það, hver ber áhættuna af verkefninu þegar einungis um 6,5% eru fjár- mögnuð með eiginfé. Prófsteinn fjárlaganefndar Fjárlaganefnd hefur nú þetta mál til umfjöllunar. Innan nefnd- arinnar hefur að undanförnu farið fram mikil umræða um eftirlits- hlutverk Alþingis, mikilvægi vand- aðrar fjárlagavinnu og mikilvægi þess að fjárlög séu virt. Fjárlaganefnd getur ekki komist að neinni annarri nið- urstöðu en þeirri að hafna beri þessu frum- varpi. Hér er á ferð- inni opinber fram- kvæmd sem á að búa í búning einka- framkvæmdar. Ríkið ætlar að færa 8,7 milljarða sem lán á bókum sínum en í raun er verið að fjár- festa fyrir þessa upphæð. Allt tal um að líklegt sé að ríkið fái lánið endurgreitt með veggjöldum skiptir ekki máli í þessu samhengi. Framkvæmt á réttum forsendum Ég er ekki á móti því að ráðist verði í Vaðlaheiðargöng, þvert á móti þá er þetta mikilvæg sam- göngubót fyrir héraðið og Vega- gerðin heldur því fram að fram- kvæmdin sé þjóðhagslega hagkvæm. En þetta réttlætir ekki að svona sé staðið að málum. Hér er um opinbera framkvæmd að ræða og það á að fara með hana sem slíka. Búa þarf málið upp á nýtt og í ljósi þess að hægt er að innheimta veggjöld á þessari leið, þá er hægt að ná pólitískri sam- stöðu um að taka þessa fram- kvæmd fram fyrir í samgönguáætl- un og ráðast strax í hana. En það að kalla fjárfestingu lán og opin- bera framkvæmd einkaframkvæmd býður hættunni heim. Grikkir eru gagnrýndir fyrir að blekkja með sínu ríkisbókahaldi, það er ekki ástæða fyrir okkur til að feta þá braut. Eftir Illuga Gunnarsson » Það sem meira er, þá stendur til að lána 8.700 milljónir til fyrir- tækis með hlutafé upp á 600 milljónir. Óþarfi er að hafa mörg orð um það, hver ber áhættuna af verkefninu þegar ein- ungis um 6,5% eru fjár- mögnuð með eiginfé. Illugi Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Grískt bókhald Þekkt er úr sögunni að röng viðbrögð við efnahagskrísu valda oft meira efnahagstjóni en krísan sjálf. Ýmsir bentu Íslendingum á þessa hættu fljótlega eftir fall bankanna. Ég benti nýverið á að stefna ríkisstjórnar- innar og viðbrögð henn- ar við falli bankanna hefðu valdið samfélag- inu meira tjóni en bankahrunið sjálft. Það varð til þess að blogglúðrasveit og netdólgar ríkisstjórnarflokkanna hrukku af hjörunum. Annar eins fúk- yrðaflaumur hefur líklega ekki komið úr þeirri átt frá því að ég tók upp á því að tjá mig um mikilvægi þess að ráðast í almenna skuldaleiðréttingu, snemma árs 2009. Það staðfestir að maður hafi hitt naglann á höfuðið í pólitískri gagn- rýni þegar andstæðingarnir eiga ekki önnur svör en að ryðja úr sér per- sónulegum svívirðingum. Einhverjir hættu sér þó út í tölfræði og töldu að fráleitt væri að ætla að ríkisstjórnin hefði valdið jafnmiklum skaða og 8.000 milljarða tapi fjármálakerfisins af efnahagshruninu. Eftir á að hyggja hefði ég átt að bú- ast við því að stjórnarliðar hefðu ekki síður áhyggjur af tapi Deutsche Bank og annarra erlendra kröfuhafa en tapi íslensks almennings. Öll stefna ríkisstjórnarinnar hefur gefið það til kynna. Það er því rétt að árétta að þegar ég segi að ríkisstjórnin hafi valdið meira tjóni en bankahrunið þá er ég að tala um áhrifin á íslenskt samfélag. Samanburðurinn Óhjákvæmilegur kostnaður af bankahruninu skiptist einkum í fernt. Lífeyrissjóðir og sparifjáreigendur sem áttu hluta- og skuldabréf í bönk- unum töpuðu verulegum fjárhæðum þegar bankarnir féllu. Skattgreið- endur töpuðu á veðum Seðlabankans og auk þess tapaði almenningur á þeirri kaupmáttarrýrnun sem banka- hrunið olli. Verstu áhrifin voru hins vegar þau sem helst mátti komast hjá, þ.e. tap skuldsettra heimila vegna höfuðstólshækkunar skulda. Endanlegt tap Seðla- bankans nemur líklega um 200 milljörðum króna, en hann getur prentað krónur. Lífeyr- isþegar og aðrir sem lögðu sparifé sitt í hlutabréf urðu fyrir miklu áfalli. Margir voru sviptir lífeyri sín- um. Slíkt er gríðarlegt áfall fyrir þá sem í hlut eiga. Hvað varðar áhrif á samfélagið í heild standa þó skuldamálin upp úr. Þegar skuldir millitekjufólks aukast skyndilega og eigið fé þurrk- ast út hefur það gríðarleg áhrif á stöðu ótal heimila og dregur úr virkni hagkerfisins. Neysla og skatt- greiðslur dragast saman, fólksflótti eykst og svo framvegis. Ofan á þetta bættist kaupmáttarrýrnun vegna falls krónunnar, aukins atvinnuleysis og lægri launa. Möguleikar stjórn- valda til að koma í veg fyrir þetta tjón voru borðliggjandi. Það að nýta ekki þau tækifæri olli því að tjónið af bankahruninu varð miklum mun meira en það hefði þurft að vera. Tækifærin Allar forsendur voru til að leiðrétta stökkbreytinguna á lánum heim- ilanna. Ef lánin hefðu verið færð frá gömlu bönkunum yfir í Íbúðalánasjóð á eðlilegum afslætti hefði mátt leið- rétta fyrir öllum áhrifum verðbólgu- skotsins og meira til. Það sama á við um lán bankanna til rekstrarfélaga. Þannig mátti endurskipuleggja skuldir heimila og fyrirtækja hratt. Auk þess hefði ríkið eða Seðlabank- inn átt að kaupa skuldabréf bankanna á meðan þau voru til sölu á hrakvirði (eins og við lögðum til). Slík fjárfest- ing hefði alltaf verið hagstæð enda ís- lensk lánasöfn verðmætari fyrir Ís- lendinga en fyrir vogunarsjóði sem ætla að ná skammtímagróða. Þetta hefði meira en vegið upp tap Seðla- bankans af veðlánum. Með pólitískum stöðugleika, skyn- samri skattastefnu og orkufram- leiðslu hefði fjölmörgum stórum at- vinnuskapandi verkefnum verið hrint í framkvæmd á undanförnum árum. Þúsundir manna hefðu þá fengið vinnu. Ef 6.000 manns væru án at- vinnu í stað 13.000 hefði það skilað samfélaginu tugum milljarða. Slíkt var raunhæft og borðliggjandi miðað við aðstæður 2009 eins og m.a. kom fram í kosningaauglýsingum Sam- fylkingarinnar og margítrekað í máli forsætisráðherra. Raunin Hér voru allar aðstæður til að fjár- festing yrði vel yfir meðallagi, eins og iðulega gerist eftir niðursveiflu. Stefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt til þess að fjárfesting er sú lægsta frá því að mælingar hófust. Tap sam- félagsins af þeim mun er ekki undir 75 milljörðum á ári. Í stað þess að leiðrétta lán heim- ilanna samhliða stofnun nýju bank- anna var komið til móts við erlenda kröfuhafa. Það skaðaði heimilin beint og jók á snjóhengjuna sem hefur haldið krónunni í höftum og valdið samfélaginu ómældu tjóni. Í ofanálag dældi ríkisstjórnin tugum milljarða inn í gjaldþrota fjármálafyrirtæki án heimildar frá Alþingi. Ólögmæt myntkörfulán voru færð yfir í nýju bankana sem lögmæt þrátt fyrir við- varanir. Tap ríkisins af því gæti num- ið 150 milljörðum. Í ofanálag hafa svo skatta- og gjaldahækkanir ríkis- stjórnarinnar hækkað lán heimilanna og þar með kröfur erlendra lánar- drottna um tugi milljarða. Niðurstaðan Lauslega áætlað og með vísan til þekktra auglýsinga er niðurstaðan um það bil þessi: Hrun heils fjármálakerfis: 670 milljarðar. Sósíalistastjórn í 3 ár: 890 millj- arðar. Kosningar og ný ríkisstjórn sem nýtir hin óendanlegu tækifæri Ís- lands öllum til hagsbóta: Ómetanlegt. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Það staðfestir að maður hafi hitt nagl- ann á höfuðið í pólitískri gagnrýni þegar and- stæðingarnir ryðja úr sér persónulegum sví- virðingum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Framsóknar- flokksins. Kostnaðurinn af skaðlegri ríkisstjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.